Fréttablaðið - 07.03.2002, Síða 4

Fréttablaðið - 07.03.2002, Síða 4
SVONA ERUM VIÐ FJÖLDl BARNA sem dvaldi utan heimilis vegna ráð- stafana barnaverndarnefnda Árið 2000 Fjöidi barna Lengri dvöl á meðferðarheimili 45 Sveitadvö! 162 Neyðarvistun 49 Heimavistarskóli fyrir tilstilli bvn. 4 Meðferðar-og greiningarvistun 105 Sambýli eða samsvarandi búseta 2 SAMTALS 367 Barnaverndarnefnd sendi á fjórða hundrað börn til dvalar utan heimilis síns árið 2000. Flest þeirra voru send í sveitadvöl, eða 44 prósent barnanna. Urn 29 prósent barnanna voru send í meðferðar- og greiningarvistun. 49 börn, um þréttán prósent, voru þegar fjariægð af heimilum sínum og send í neyðarvist- Erlendir fjárfestar: Sýna Sím- anum aft- ur áhuga ríkisfvrirtæki Formaður einka- væðingarnefndar, Ólafur Davíðs- son, sagði á fundi Verslunarráðs í gær að nokkur af þéím fyrirtækj- um, sem sýndu áhuga á að kaupa hlut í Landssímanum í fyrri hluta útboðsins, hafi látið í ljós vilja sinn til að skoða hugsanleg kaup nánar. Það gera þau í framhaldi af því að ríkisstjórnin hefur stoppað það ferli að selja til kjölfestufjár- festis. „Það verður haft samband við þau til þess að kanna hverjar hugmyndir þeirra eru um aðkomu að þessu máli,“ sagði Ólafur. Hann sagði stefnu ríkisins óbreytta varðandi sölu á ríkisfyr- irtækjum. „Ég er alveg sannfærð- ur um það að á næstu misserum munu hlutabréf ríkisins í þessum fyrirtækjum, Landssímanum, Landsbankanum, Búnaðarbankan- um og hugsanlega íslenskum að- alverktökum, verða seld.“ Eftir eitt ár verði hlutur ríkisins í þess- um félögum mun minni enda þá búið að taka veigamikil, skref í einkavæðingu. ■ Bresk rannsókn: Morgunverð- ur kemur í veg fyrir flensu heilsa Fólk sem gefur sér tíma til að snæða morgunverð gæti verið bet- ur varið en aðrir gegn því að fá hita eða flensu. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem vísindamenn við Car- diff-sálfræðiháskólann í Bretlandi stóðu að. Þeir 188 sjálfboðaliðar sem tóku þátt í rannsókninn skráðu matarvenjur sína í dagbók á 10 vikna tímabili. Niðurstöðurnar voru síðan bornar saman við hversu oft sjálfboðaliðarnir fengu hita eða flensu á tímabilinu. Kom í ljós að þeir sem veiktust einu sinni eða oft- ar voru mun líklegri til að sleppa því að snæða morgunverð. Sami hópur kvartaði einnig meira undanstreitu í vinnu. Ekki er vitað hvers vegna morgunmatur getur haft þessi áhrif. Líklegast er þó talið að ónæmiskerfi líkamans styrkist er hann er snæddur, að því er kem- ur fram á fréttavef BBC. í annarri hliðstæðri könnun voru voru 498 heilbrigðir stúdentar beðn- ir um að láta vísindamenn vita ef þeir fyndu til hita eða flensu. Þeir 188 sem létu vita voru mun líklegri til að vera reykingamenn auk þess sem margir þeirra sögðust lifa streitusömu lífi. ■ I REYKJAVÍK I Borgarráð samþykkti á þriðju- daginn að taka tilboði Háfells ehf. í endurnýjun á hluta Skóla- vörðustígs og Bankastrætis. Kostnaður við verkið er rúmar 97 milljónir króna. FRÉTTABLAÐIÐ 7. mars 2002 FIMMTUDACUR Margmiðlunarskólinn: Sjö manns sagt upp um síðustu mánaðamót uppsacnir Sjö starfsmönnum Margmiðlunarskólans var sagt upp störfum um síðustu mánaða- mót. „Við erum að segja upp vegna endurskipulagningar, eins og fyr- irtæki gera,“ sagði Ingi Rafn Ólafsson, starfandi skólastjóri Margmiðlunarskólans og fram- kvæmdastjóri Prenttæknistofnun- ar. Tók hann við störfum af Jóni Árna Rúnarssyni þann 4. janúar síðastliðinn. „Það var tekin sú ákvörðun að endurskipuleggja allt skólastarf í skólanum til þess að gera það hagkvæmara og betra. Við erum bara í þeirri vinnu núna,“ sagði Ingi. Alls starfa 13 manns í Margmiðlunarskólanum, sem rek- inn er af Prenttæknistofnun og Rafiðnaðarskólanum. Aðspurður hvort rekstur skólans hefði verið erfiður undanfarið sagði Ingi að það væri rétt. „Það er náttúrulega samdráttur í þessu eins og öllu öðru. Við erum að reyna að skoða okkar sóknarfæri og annað í þeim dúr.“ Ingi sagði að ekkert væri komið út um það hvort einhverra frekari aðgera væri að vænta á næstunni. „Við erum bara að vinna í þessum málum eins hratt og við getum.“ ■ MARGMIÐLUNARSKÓLINN Endurskipulagning stendur nú yfir ( Marg- miðlunarskólanum. Bandaríkin og ESB eiga í stríði um stál Gagnkvæmir verndartollar á innflutt stál valda vandræðum í samskiptum stórveldanna. BRUSSEL. WASHINGTON. AP EvrÓpu- sambandið ætlar að bregðast við bandarísku verndartollun- um á stál með því að setja ein- nig verndartolla. Þannig á að koma í veg fyrir að ódýrt stál, sem ekki verður lengur hægt að flytja til Bandaríkjanna, strey- mi á markað í Evrópusam- bandsríkjunum. Auk þess hyg- gst Evrópusambandið skoða, hvort refsitollar verði lagðir á bandarískar vörur. Þetta sagði Pascal Lamy, sem fer með stjórn viðskiptamála í fram- kvæmdastjórn Evrópusam- bandsins. Hann sagði einnig hugsanlegt að Bandaríkin verði kærð til Heimsviðskiptastofn- unarinnar. Stálframleiðsluríki í Evrópu og víðar hafa tekið afar illa í ákvörðun George W. Bush Bandaríkjaforseta, sem hann kynnti á þriðjudagskvöld, um að leggja allt að 30 prósent vernd- artolla á innflutt stál næstu þrjú árin. Patricia Hewitt, viðskipta- og iðnaðarráðherra Breta, sagði bæði sig og Tony Blair forsætis- ráðherra vera afskaplega von- svikin. Werner Múller, efna- hagsráðherra Þýskalands, sagði þessa ákvörðun valda „verulegu álagi“ á samskiptin milli Evr- ópu og Bandaríkjanna. Bush segir markmið nýju tollanna vera að vernda banda- rískan stáliðnað, sem hefur átt í vök að verjast á alþjóðlegum VEIFAR VIÐSKIPTASAMNINGUM Pascal Lamy, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Evrópusambandinu, segir að sambandið hafi ekki tíma til að bíða eftir úrskurði Heimsviðskiptastofnunarinnar. Evrópusambandið hafi því ákveðíð að fara að dæmi Bandaríkjaforseta og leggja verndartolla á stál. Hugsanlega verði Bandaríkin einnig kærð til Heimsviðskiptastofnunarinnar. markaði. í ræðu sinni sagði aðinum hafi valdið bandaríska Bush að hálfrar aldar pfskipti iðnaðinum ómældu tjóni, allt frá erlendra stjórnvalda af stáliðn- gjaldþrotum til atvinnuleysis. ■ Rrafa um endurskoðun á endurgreiðslubyrði námslána: Kostar um milljón að ná vopnum gegn ríkinu námsmenn Um 15 samtök launa- fólks sem eru með innan sinna vé- banda félagsmenn sem skipta við Lánasjóð íslenskra námsmanna, LÍN, hafa sett á fót samráðshóp. Verkefni hans er að leita leiða til að létta endurgreiðslubyrði náms- lána. Meðal verkefna hópsins er að meta hvað það myndi kosta ríkið að ívilna endurgreiðendum náms- lána. Um leið á að meta hvaða áhrif ívilnun hefði fyrir endurgreiðend- ur sem eru um 26 þúsund og áhrif þess á fjárhag LÍN. Skjólstæðingar LÍN, lántakendur og endurgreið- endur eru hins vegar um 34 þús- und. Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna gagnaöflunar bæði heima og erlendis og önnur vinna í tengslum við það geti numið allt að einni milljón króna. Gísli Tryggvason framkvæmda- LÁNASJÓÐURINN BHM vill viðræður við ríkið þegar búið verður að vinna heimavinnuna. stjóri Bandalags háskólamanna, BHM segist vona að starfshópur- inn muni skila niðurstöðum sínum í sumar. í framhaldi af því verður síðan tekin ákvörðun um hvaða leiðir verði farnir í viðræðum við stjórnvöld. I þessari vinnu verða einkum skoðaðar fimm leiðir til að létta endurgreiðslubyrði náms- lána. Það er að greiðslur af náms- lánum verði frádráttarbærar frá skatti, tekjutengt hlutfall endur- greiðslu verði lækkað, sveigjan- leiki í endurgreiðslum verði aukin, t.d. með því að hefja endurgreiðsl- ur síðar, hlutfall endurgreiðslna verði miðað við nettótekjur í stað brúttótekna og að verðtrygging námslána verði afnumin. Verk- efnastjóri í þessari vinnu verður Þórólfur Matthíasson dósent við Háskóla íslands. ■ Eldsprengja við sendiráð: Ennhjá saksóknara lögreglumál Mál mannanna sem talið er að hafi kastað eld- sprengju að sendiráði Banda- ríkjanna í Reykavík í apríl í fyrra er enn til skoðunar hjá embætti Ríkissaksóknara. Að sögn Braga Steinarssonar vararíkissaksóknara má búast við ákvörðun innan viku um það hvert framhald málsins verður. Bragi segir embættið hafa haft málið til umfjöllunar í u.þ.b. mánuð. „Á meðan er ekkert um málið að segja,“ segir Bragi. ■ Hveragerði: inn lenti í sjötta sæti framboðsmál í prófkjöri sjálfstæð- ismanna í Hveragerði um sl. helgi náði Hálfdán Kristjánsson bæjar- stjóri aðeins sjötta sætinu. Hann segir að ástæðan fyrir þessu hafi aðallega verið sú að flokksmenn hefðu hafnað því að bæjarstjóri sé á pólitískum lista. Hann telur að bæj- arbúar vilji að bæjarstjóri á hverj- um tíma sé fyrir þá alla en sé ekki merktur einhverjum flokkspólitísk- um öflum. Hálfdán neitar því hins vegar ekki að þessi niðurstaða sé viss vonbrigði fyrir sig. Hann gerir ekki ráð fyrir því að þessi niður- staða muni hafa einhver áhrif á stöðu sína sem bæjarstjóra. Þátttak- endur í prófkjörinu voru 289. Sjálf- stæðismenn eru með fimm bæjar- fulltrúa í sjö manna bæjarstjórn. Niðurstöður prófkjörsins voru þær að Alda Hafsteinsdóttir var kosin í fyrsta sætið. Næstu menn voru þau Pálína Sigurjónsdóttir, Hjalti Helgason, Jóhann ísleifsson, Theodór Birgisson og Hálfdán Kristjánsson sem lenti í sjötta sæt- inu. Fyrirfram er búist við að þessi niðurröðun verði óbreytt þegar gengið verður formlega frá fram- boðslistanum af hálfu fulltrúaráðs flokksins í Hveragerðí. Það verður gert innan tíðar. ■ Fulltrúi sýslumanns: Yfirvinna greidd í barnsburðarleyfi dómsmál Konu sem var fulltrúi hjá sýslumanninum á Akureyri hafa verið dæmdar 109 þúsund krónur vegna vangreiddra launa í barns- burðarleyfi. Þegar konan hafði starfað í rúm þrjú ár hjá sýslumanninum, í ágúst 1997, fór hún í barnsburðarleyfi sem stóð í eitt ár. Hún fékk ekki gre- itt í leyfinu samkvæmt föstum laun- um sem hún hafði haft hjá embætt- inu. Ekki var tekið tillit til fastra yf- irvinnugreiðslna. Dómurinn segir þær í raun hafa verið yfirborgun sem ekki var ætlast til að unnið væri aukalega fyrir utan dagvinnu- tíma. ■ I REYKJAVÍK I Framkvæmdir við byggingu 50 m yfirbyggðrar sundlaugar í Laugardal hefjast innan tíðar. Kostnaðaráætlun byggingardeild- ar Borgarverkfræðings hljóðar upp á rúman einn milljarð króna. Áætlað er að bjóða út jarðvinnu í mars og taka bygginguna í notk- un árið 2004. Ari Már Lúðvíksson arkitekt teiknaði húsið. Borgaryfirvöld hafa samþykkt að veita 125 milljónum króna í fóðrun holræsakerfisins í borg- inni. Fóðrun ehf. átti lægsta til- boðið og mun annast verkið. 1

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.