Fréttablaðið - 07.03.2002, Side 10
10
FRÉTTABLAÐIÐ
7. mars 2002 FIMMTUDAGUR
FRETTABLAÐIÐ
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Cunnar Smári Egilsson
og Jónas Kristjánsson
Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson
og Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavlk
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf.
Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is
Fréttablaðínu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Ekki heils-
ársdekk
Sigurður Hreiðar Hreiðarsson,
bílablaðamaður skrifar:
Grafalvarlegur misskilningur
kemur fram í „bréfi til blaðs-
ins“ 6. mars sl. Það er rétt að nú til
dags er hægt að fá mjög góð
ónegld vetrardekk, en aldrei jafn
góð í raunverulegu vetrarfæri og
negld dekk. Þetta kemur fram í
vönduðum prófunum (sbr. t.d.
Vinterdektest 2001 í
www.motor.no) Öll dekk menga og
öll dekk slíta götum, líka ónegld,
en þau eru vissulega hljóðlátari.
Alvarlegasta ranghugmyndin er
þó sú að þau séu heilsársdekk -
það eru þau almennt ekki. Eigin-
leikar þeirra til vetrarnotkunar
felast í efninu sem í þau er notað
og vetrarmunstrinu, en hvort
tveggja gerir þau stórum lakari til
sumarnotkunar en sumardekk. í
annan stað er óskynsamlegt að
slíta þeim að nauðsynjalausu yfir
sumarið og fá þau þannig lúin og
óeðlilega gagnslítil undir næsta
vetur. Það er í hæsta lagi hægt að
bjóða svokölluðum „heilsárs-
dekkjum" sem eru eins konar
málamiðlun milli vetrar- og sum-
ardekkja og eru öðruvísi gerð en
ónegld vetrardekk. Það er full
ástæða til að huga vel að dekkjum,
notkun þeirra og meðferð. Ódýru
lausnirnar í þeim efnum hafa oft
haft dýrar og alvarlegar afleið-
ingar í för með sér. ■
Vont að hlusta
Höldum frekar
áfram með
málið.
Þegar ríkislögreglustjórinn
lauk loks við rannsókn á mál-
um Árna Johnsen kom fram að
þau eru meiri að umfangi en flest-
ir bjuggust við. Reyndar hefur
__4___ ekki verið upplýst
hvaða rúmlega
þrjátíu mál teljast
saknæm og ekki
heldur hyerjir aðr-
ir en þingmaðurinn
fyrrverandi eru grunaðir um
glæpi. Daginn sem lögreglan
sendi málið til saksóknara keppt-
ust fjölmiðlar við að gera því skil.
Reyndar gætti lögreglan þess að
upplýsingar væru í lágmarki -
sem er leiðinlegur og margreynd-
ur siður lögreglu. Lögregla virðist
oftast líta á fjölmiðla sem sinn
helsta óvin. Það er vond þróun og
óæskileg.
Ríkisútvarpið ákvað að rekja
atburðarrásina. Spiluð voru göm-
ul viðtöl við Árna. Þau voru frá
þeim tíma sem hann reyndi að
ljúga sig frá vandanum. Allir vita
að hann sagði ósatt og því var
virkilega erfitt og reyndar sorg-
legt að hlusta á upptökurnar. Eg
gafst upp og slökkti á útvarpinu.
Svo sorglegt var að hlusta á hinn
seka mann. Árni braut af sér. Það
dylst engum. Ég efast því um
hvort rétt sé að spila fyrir þjóðina
viðtöl svo löngu síðar.
Það er sama hvaða sakamaður
á í hlut. Óþarft er að opna aftur
gömul sár og vond. Þingmaður,
sem brýtur af sér, á ekki að fá sér-
MáLmanna
Sigurjón M. Egilsson
skrifar um mál Áma Johnsen
meðferð fyrir dómstólum. í fjöl-
miðlum á ekki að hlífa þannig
manni. Alls ekki. Samt verður að
gæta hófs. Ég er ekki viss um að
það þjóni neinni löngun, ekki nein-
um hvötum eða þörfum að spila
gömul lygaviðtöl við þingmann
með allt á hælunum.
Á næstu dögum munu fjölmiðl-
ar skýra frá málsatvikum og
hverjir aðrir en Árni sæta því að
vera grunaðir um glæpi. Það er
skylda fjölmiðla að greina frá því.
Mig langar ekki að hlusta á gaml-
ar upptökur þar sem ég veit að
varnarlaus maður grípur til fá-
ránlegra lyga til að freista þess að
verjast. Höldum frekar áfram
með málið. ■
Eilífðardeilumál um stjórn fiskveiða
Fá deilumál hafa verið eins langvarandi og hatrömm og deilan um stjórn fiskveiða. Deilumálið er margþætt og flókið. Sjónarmiðin snúa að fiskveiðistjórnun,
byggðaþróun, hagkvæmni rekstrar sjávarútvegsins og réttlætissjónarmið er varða auðlindir þjóðarinnar. í frumvarpi sjávarútvegsráðherra um stjórn fiskveiða
birtast ágreiningsefnin. Sáttin virðist langt undan.
Vernd íiskistofn-
anna
Áhrifin á byggðir
landsins
Kvótakerfið felur í sér bæði
veiðistjórnunarkerfi og útdeil-
ingu auðlinda. Deilan um afla-
markskerfið snýst um fiskifræði
fyrst og fremst. Deilan snýst því
um hvort kerfið reynist vel við
uppbyggingu fiskistofna hér við
land. Um þetta eru deildar mein-
ingar. Hafrannsóknarstofnun hef-
ur haldið fram ágæti kerfisins til
að hafa stjórn á hversu mikið er
veitt. Andstæðingar kerfisins
draga í efa ágæti þess til að
byggja upp fiskistofna. Þeir
segja kerfið hvetja til brottkasts
og sóðalegrar umgengni um auð-
lindina. Máli sínu til stuðnings
benda þeir á að okkur hafi ekki
orðið verulega ágengt við upp-
byggingu fiskistofna. Andstæð-
ingar sóknarmarks tefla fram
rökum um að fáir sóknardagar
þýði að fjárfesting í sjávarútvegi
nýtist illa, þar sem flotinn verði
bundinn við bryggju stóran hluta
ársins. Á móti brottkasti í afla-
markskerfi komi of mikil sókn í
verðmætustu tegundir í sóknar-
markskerfi. Heldur sé ekki hægt
að útiloka að sóknarkerfi leiði til
minna brottkasts en afla-
markskerfi.
Ein afleiðing kvótakerfisins er að
veiðiheimildirnar safnast á færri
hendur. Kaup og sala kvóta lýtur
markaðslögmálum og þeir sem
hafa fé milli handa geta keypt.
Hinir ekki. Stærri útgerðir hafa
keypt mikinn kvóta. Smábátaút-
| gerð er hins vegar undirstöðuat-
I vinnugrein í mörgum byggðum
! landsins. Eftir því sem kvóti hef-
: ur farið burt frá byggðarlögum
I hafa þau veikst að sama skapi.
Hugmyndin um byggðakvóta er
hugsuð til að mæta röskun í
byggð landsins af þessum sökum.
Vestfirðingar hafa litið á sóknar-
mark sem leið til að styrkja
byggðir. Vestfirðirnir liggja ná-
lægt gjöfulum fiskimiðum og því
myndi slíkt kerfi henta atvinnu-
lífi þeirra vel. Andstæðingar
byggðakvóta benda á að þar ráði
miðstýrð úthlutun veiðiheimilda
sem vinni á móti hagræðingu í
greininni. Úthlutun byggðakvót-
ans hefur víða valdið deilum í
byggðunum sjálfum. Á þingi
virðist hins vegar vera pólitísk
sátt um að byggðasjónarmið sé
eitthvað sem taka verði tillit til.
Um aðferðirnar við það eru menn
I hins vegar ekki á eitt sáttir.
Hagkvæmni
greinarinnar
1 tillögum sjávarútvegsráðherra
er lagt til að hámark veiðiheim-
ilda til einstakra útgerða verði
aukið. Þetta er gamalt baráttumál
LÍÚ forystunnar. Á það hefur
verið bent að íslensk útgerðar-
fyrirtæki séu óhagkvæmar
rekstrareiningar. Kvótakerfið
hefur fækkað útgerðum og þær
hafa orðið stærri. Útgerðarmönn-
um og fjárfestum þykir ekki nóg
að gert. Krafa þeirra er að nýta
enn betur fjárfestingar í grein-
inni. Á móti þessu er teflt sjónar-
miðum um hættuna á að fáar og
stórar útgerðir muni að lokum
einar hafa aðgang að auðlindinni.
í slíku umhverfi þar sem auðlind-
in er takmörkuð sé nýliðun í
greininni útilokuð. Þar fyrir utan
muni aukning hámarksins þýða
að kvótinn muni leita frá þeim
byggðum sem standa höllum
fæti. Þetta vinni á móti byggða-
kvótanum. Fylgjendur aukningar-
innar benda á að allt tal um hugs-
anlegt auðlindagjald sé út í hött
ef arðsemi greinarinnar sé ekki
viðunandi. Bent er á þessu til
stuðnings að arðsemi íslenskra
sjávarútvegsfyrirtækja standist
ekki samanburð við erlend stór-
fyrirtæki í greininni.
Gjald fyrir að-
gang að auðlind
| Fiskurinn í sjónum er eign þjóð-
I arinnar. í frumvarpinu um stjórn
1 fiskveiða er gert ráð fyrir auð-
lindagjaldi sem er tengt afkomu
I fyrirtækjanna. Úthlutun kvóta
; verði ekki breytt. Andstaðan við
gjaldið er afar sterk innan grein-
I arinnar. í þeirri andstöðu eru sjó-
menn og útvegsmenn samstíga.
Útvegsmenn hafa kallað auð-
i lindagjald landsbyggðarskatt.
I Þau sjónarmið hafa einnig verið
| uppi að skatturinn muni að lokum
j leggjast á sjómenn og fiskverka-
j fólk. Fylgjendur auðlindagjalds
| eru þeirrar skoðunar að útvegur-
! inn sé rekinn á óbeinum ríkis-
j styrkjum. Markaðslögmál eigi að
| gilda í sjávarútvegi eins og öðr-
| um atvinnugreinum. Styrkir sem
1 þessir séu best til þess fallnir að
1 tefja nauðsynlega hagræðingu í
j greininni og draga úr arðsemi
: hennar. Sú leið sem helst hefur
í verið nefnd til að koma slíku
I kerfi á, er svonefnd fyrningar-
1 leið. Kvóti verði afskrifaður á
1 einhverju árabili og boðinn upp.
Sú leið tryggi aðlögunartíma út-
I gerða. Lokatakmarkið sé að sjáv-
I arútvegur verði rekinn eftir
: sömu lögmálum og önnur at-
vinnustarfsemi í landinu.
byrjendur
Windows
Word
Excel
Internetið
Önnur námskeið
Vefsíðugerö
Outlook
3D Studio
CorelDraw
Erfitt getur verið fyrir fólk í dag að
afla sér þekkingar í hefðbundum
tölvuskólum m.a. vegna óreglulegs
vinnutíma o.s.frv. Fjarkennsla.is býður
þess vegna upp á klæðskerasaumuð
tölvunámskeið fyrir fólk á öllum aldri. Þú og
kennarinn semjið stundarskrána sem hentar fyrir
þig. Hringdu núna og við veitum þér ókeypis ráðgjöf um hvernig
þínu námi er best háttað!
Júlíana R Einarsdóttir
nemandi
"Fyrir mig var það eina lausnin að fá
einkakennslu til að styrkja
mig í því krefjandi starfi sem ég er í.
Ég náði ótrúlega góðum árangri
og hef stórbætt mig á öllum sviðum.
Ég mæli því eindregið með
fjarkennslu.is"
Upplýsingar í síma 511-4510 og 698-6787
ORÐRÉTT
HVA! VAR EITTHVAÐ AÐ GER-
AST HÉR HEIMA?
Helst eru það Pentagonskjölin og
Watergatemálið sem tínd eru til
en eins og öllum er kunnugt þá
gegndu blaðamenn Morgunblaðs-
ins þýðingarmiklu hlutverki við
að upplýsa þessi mál. - Og vegna
þess hve vel þeir eru að sér í
málum sem skipta máli þá leggja
þeir sig eftir því að þagga niður
mál hér heima, mál sem eru svo
ómerkileg að þau komast ekki
einu sinni á forsíðuna.
Pistíll um rannsóknarblaðamennsku
Morgunblaðsins. Viðskiptablaðið. 6-12
mars.
LÍKA KONU FRIÐ-
RIKS PÁLSSONAR
Björn er náskyldur
fólki eins og Hall-
dóri Blöndal, for-
seta Alþingis, Har-
aldi, bróður hans,
Benedikt Sveinssyni, stjórnarfor-
manni Eimskipafélags Islands,
Einari Sveinssyni, forstjóra Sjó-
vár-Almennra, Ingimundi Sveins-
syni, arkitekt, og Guðrúnu Pét-
ursdóttur, fyrrverandi forseta-
frambjóðanda. Hann er einnig
skyldur Ragnhildi Helgadóttur,
fyrrverandi menntamálaráð-
herra. Sigríður, móðir Björns, var
föðursystir Markúsar Arnar Ánt-
onssonar, útvarpsstjóra.
Einar Jónsson um ættir Björns Bjarna-
sonar. Silfur Egils á Strik.is
SVO ÁJÖRÐU
SEM Á HIMNI
...en þetta er út af
fyrir sig ekkert
risastórt mál þegar
litið er til þess að
hann játar að þetta
hafi verið axarskaft. Þeim sem
játa að hafa haft rangt fyrir sér
er gjarnan fyrirgefið hér.
Gunnar Helgi Kristinsson um Össur
Skarphéðinsson. DV. 6. mars
TALI NÚ HVER FYRIR SIG
í ljósi ummæla Stefáns Jóns vek-
ur það nokkra furðu að hvorugt
þessara mála er á stefnuskrá R-
listans fyrir næsta kjörtímabil og
flokkur Stefáns Jóns, Samfylk-
ingin, lagði enga áherslu á að
koma þessum málum inn í þá
stefnuskrá. Stefán Jón er alls
ekki að tala fyrir stefnu R-listans
með þessum ummælum. Hann er
ekki einu sinni að tala fyrir
stefnu Samfylkingarinnar í þess-
um málaflokki.
Sverrir Jakobsson. Múrinn.is 5. mars
INNHERJAR |
Árnamálin
brædd og rædd
Mál Árna Johnsen taka mikið
rými á stiórnmálaþræði Inn-
erja á visi.is. Upp komu vanga-
veltur um hverjir fleiri bæru
ábyrgð.“Einhvcrjum hefur brugð-
ist bogalisíin í eftirlitinu, þám.
Björn jjarnason. Og hann er ekk-
ert minna sekur eða tækur til
ábyrgðar þótt hann hafi flúið úr
MMR. Eg held að Reykvíkingar
geri rétt meö því að setja fáa
sjálfstæðismenn á í kosningunum
í vor.“ Þessu er mótmælt kröftug-
lega. „Það eina sem hann gerði af
sér var að treysta Árna Johnsen.
Hans ábyrgð var ekki meiri en
svo. Hann vissi ekki af þessum
málum fyrr en eftir að BYKÓ-
málið komst upp. Það er því frá-
leitt að ætla það að hann beri ein-
hverja ábyrgð á glæpum Árna
Johnsen, algerlega fráleitt!!“ Þeg-
ar menn eru komnir í pólitískan
slag er stutt í skensið.
„Var það ekki Svavar Gestsson
sem réð Árna til þessara óhæfu-
verka?“ Því er vísað á bug, eins og
svo mörgu í fjörugri umræðu.
Innherjar eru umræðuvettvangur á
vefnum visir.is.