Fréttablaðið - 15.03.2002, Page 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KIÖRKASSINN
HAFNARFJÖRÐUR
Tæplega helmingur
lesenda visis.is telur
að sveitarfélög eigi
að styrkja grínþætti
um sjálf sig.
Eiga sveítarfélög að styrkja
grínþætti um sjálf sig?
Niðurstöður gærdagsins
á ywvw.vísir.is
Spurning dagsins í dag:
Heldurðu að verðlag fari yfir rauða
strikið fyrir 1. mai?
Farðu inn á vísi.is og segðu I
þína skoðun
_________
Jón Olafsson um
Fj ármálaeftirlitið:
Akvörðun-
in tengist
mér ekki
yfirlýsing Jón Ólafsson, fyrrver-
andi hluthafi í Orca SA, segist
ekki hafa hugmynd um hvaða
ástæður lágu til grundvallar
ákvörðun Fjár-
málaeftirlitsins að
fella niður at-
kvæðisrétt eig-
enda FBA-Hold-
ing fyrir aðalfund
íslandsbanka.
í yfirlýsingu
sem hann sendi
frá sér í gær segir
að ekkert bréf
hafi borist honum
frá Fjármálaeftir-
litinu. „Hefði stað-
ið upp á mig að gera einhverjar
lagfæringar, má ætla að fjármála-
eftirlitið gætti stjórnsýslureglna,
gæfi kost á andmælum, færi fram
á úrbætur eða gæfi með öðrum
hætti kost á að bæta úr því sem að
teldist vera,“ segir Jón.
Jón vekur athygli á því að ef
ákvörðunin hefði tengst honum
hefði eignarhlutur, sem hann á í
eigin nafni í íslandsbanka, einnig
verið gerður óvirkur. ■
JÓN ÓLAFSSON
Hefur ekkert
heyrt frá Fjár-
málaeftirlitinu.
Innbrot í Grafarvogi:
Stálu 120
hálfs lítra
kókflöskum
lögregla Þrír ungir menn brutust
inn í Brauðhornið í Grafarvogi í
gær og stálu um 120 hálfs lítra
kókflöskum. Að sögn lögreglu
spenntu mennirnir upp hurð á
versluninni en öryggisvörður sá
til þeirra og tilkynnti innbrotið til
lögreglu.
Mennirnir, sem eru allir undir
18 ára aldri, voru handteknir
skömmu síðar þar sem þeir voru í
bíl í nágrenninu. Að sögn lögreglu
hafa mennirnir viðurkennt verkn-
aðinn og telst málið upplýst.
Grunur leikur á að þeir séu
viðriðnir önnur innbrot. ■
IlöcreclufréttirI
Maður á fertugsaldri var í
fyrradag úrskurðaður í sjö
daga gæsluvarðhald vegna gruns
um aðild að andláti manns í íbúð í
Hamraborg í Kópavogi aðfar-
anótt sunnudags. í fyrradag var
kona á sextugsaldri úrskurðuð í
sjö daga gæsluvarðhald.
Tveir drengir á tíunda
aldursári voru fluttir á
slysadeild eftir að bifreið var
ekið utan í þá á gatnamótum
Hraunbergs og Austurbergs í
Breiðholti í gær. Meiðsl drengj-
anna reyndust minni háttar,
nokkrar skrámur og marblettir.
2
15. mars 2002 FÖSTUDAGMR
'Öryrkjabandalagið hefur betur í Hæstarétti:
Fá að sjá minnisblað stjórn
valda um öryrkjadóminn
dómsiviál Hæstiréttur felldi í gær
þann dóm að Öryrkjabandalagið
skuli fá aðgang að minnisblaði
sem útbúið var fyrir ríkisstjórn-
arfund og fylgdi skipunarbréfi
nefndar sem átti að greina hvaða
leiðir væru færar til að bregðast
við dómi Hæstaréttar frá 19. des-
ember um skerðingar á örorku-
bótum.
Ríkisstjórnin hafði neitað
beiðni Öryrkjabandalagsins um
aðgang að minnisblaðinu og bar
því við að um vinnuskjal ríkis-
stjórnar væri að ræða. Slík skjöl
þyrfti ekki að birta nema ríkis-
stjórnin tæki ákvörðun þessa efn-
is. Þá túlkun samþykkti Héraðs-
dómur Reykjavíkur þegar málið
var tekið þar fyrir. Hæstiréttur
sneri þeim dómi. Rökin voi-u þau
að minnisblaðið hefði verið gert
að hluta erindisbréfs starfshóps-
ins sem átti að undirbúa viðbrögð
stjórnvalda við dómnum. Þar með
væri ekki hægt að líta á það sem
skjal sem hefði verið undirbúið
fyrir ríkisstjórnarfund og nyti
verndar af þeim orsökum.
Hæstiréttur klofnaði í afstöðu
sinni til málsins. Garðar Gíslason
skilaði séráliti. Sagði hann að
HÆSTIRÉTTUR
Hæstiréttur sneri úrskurði héraðsdóms og
fyrirskipaði stjórnvöldum að veita Öryrkja-
bandalaginu aðgang að minnisblaði vegna
öryrkjadómsins.
þrátt fyrir að skjalið hefði fylgt
skipunai’bréfi væri það tekið sam-
an fyrir ríkisstjórnarfund og nyti
verndar sem slíkt. Q
Hnífsstunga á
Grettisgötu:
Enn í önd-
unarvél
lögregla Líðan mannsins, sem
var stunginn í brjóst og kvið á
Grettisgötu á miðvikudaginn í
síðustu viku, er óbreytt. Maður-
inn er í öndunai’vél á gjörgæslu-
deild Landspítalans í Fossvogi.
Tæplega fertug kona hefur
verið úrskurðuð í gæsluvai’ðhald
vegna málsins, grunuð um að
hafa stungið manninn. Að sögn
lögreglu er ekkert nýtt að frétta
af rannsókn málsins en í yfir-
heyrslum hefur konan borið við
minnisleysi. ■
Innkoman byggð á
sviknum loforðum
Eimskip keypti hlut Akureyrarbæjar í ÚA árið 1996 á grundvelli lof-
orða um flutning fjölda starfa til bæjarins frá þeim og SH. „Þeir hafa
svikið allt,“ segir Jakob Björnsson þáverandi bæjarstjóri. „Réttast væri
að flagga í hálfa stöng,“ segir fyrrum stjórnarformaður ÚA.
viðskipti Skiptar skoðanir eru
meðal Akureyringa um ágæti
kaupa Eimskips nú í vikunni á
19% hlut í ÚA. Með kaupunum
færist eignarhluturinn upp í 55%
sem þýðir að ákvarðanir um fram-
tíð félagsins eru að öllu leyti í
höndum nýs meiri-
hlutaeiganda.
Sverrir Leósson,
útgerðarmaður og
fyrrum stjórnar-
formaður ÚA, kall-
ar aðdraganda
kaupanna undan-
farin fimm ár
sorgarsögu. Hann
óttast að nýjum
eigendum fylgi
nýjar áherslur
sem þýði fækkun
starfa á Akureyri með flutningi
aflaheimilda og vinnslu þaðan. Sú
þróun gangi þvert á þau sjónar-
mið sem réðu ferðinni þegar bær-
inn seldi Eimskip hlut sinn árið
1996.
—♦—
Nú er það í
eigu manna
sem gera það
sem skilar
mestum arði
hvort sem fyr-
irtækið er
staðsett á Ak-
ureyri eða
annars staðar.
........
Þáverandi bæjarstjórn fram-
sóknarmanna og krata vildi beita
áhrifum sínum í stjórn fyrirtæk-
isins til að ná störfum til bæjai’-
ins. í kjölfar þess urðu mikil átök
milli SH og íslenskra sjávaraf-
urða um sölusamning við félagið.
Bærinn tók tilboði SH en það
bauð í samvinnu við Eimskip
rúmlega 100 störf og ýmsa starf-
semi að auki. ÍS hafði boðist til að
flytja höfuðstöðvar sínar til Ak-
ureyrar.
Jakob Björnsson, þáverandi
bæjarstjóri, segir að Joforðin
hafi öll verið svikin. „í kjölfar
sölunnar komu hingað fjölmörg
ný störf en þau eru nú öll farin til
baka.“ Aðspurður sagðist hann
ekki trúa því að óreyndu að nýir
eigendur ÚA sjái hag sínum best
AKUREYRI
Nú starfa um 360 manns hjá ÚA á Akur-
eyri. Fram kom á aðalfundi Éimskipa í gær
að fækkun starfa sé ekki í bígerð.
fyrir þrifum. Nú er það í eigu
manna sem munu gera það sem
skilar mestum hagnaði hvort sem
fyrirtækið er staðsett á Akureyri
eða annars staðar."
Hann segir að Akureyringar
hafi fært miklar persónulegar
fórnir á árunum upp úr 1960 til
að gera ÚA að stöndugu sjávarút-
vegsfyrirtæki. „Nú þegar það er
farið að skila arði þá gefum við
frá okkur gulleggið."
Fram kom á aðalfundi Eim-
skips í eær að fyrirhuguð sam-
eining ÚA og Skagstrendings
myndi styrkja starfsemi beggja
félaga og bæta almennt atvinnuá-
stand á núverandi starfsstöðvum
félaganna.
mbh@frettabladid.is
borgið með því að fækka störfum
á Akureyri með tilfærslu veiði-
heimilda. „Það væri það lúaleg-
asta af öllu.“
Sverrir Leósson var í minni-
hluta bæjarstjórnar þegar hlutur
bæjarins var seldur. Hann segir
spá sína nú hafa ræst. „Það voru
mikil mistök hjá bænum að láta
þetta frá sér. ÚA var þegar orðið
sterkt hlutafélag og eignarhlutur
bæjarins stóð fyrirtækinu ekki
SVERRIR
LEÓSSON
Akureyringar færðu
miklar fórnír til að
koma ÚA á legg.
JAKOB
BJÖRNSSON
Kolkrabbinn sveik
loforð um flutning
starfa til bæjarins.
FRIÐARVIÐRÆÐUR
Ariel Sharon, forsætisráðherra israel hitti
bandaríska erindrekann Anthony Zinni í
gær.
Mið-Austurlönd:
Níu létust
daginn sem
Zinni kom
ísrael Níu manns létu lífið í átök-
um Israelsmanna og Palestínu-
manna í gær, sama dag og
bandaríska sendinefndin, með
Anthony Zinni í broddi fylking-
ar, kom til ísrael. Zinni á að
reyna að koma af stað friðarvið-
ræðum milli ísraela og Palest-
ínumanna. Er þetta þriðja skipt-
ið á fjórum mánuðum sem það
verður reynt.
Zinni átti fund með Ariel
Sharon, forsætisráðherra ísrael,
í gær og í dag mun hann hitta
palestínska ráðamenn. Síðustu
vikur hafa verið þær blóðugustu
á svæðinu í 18 mánuði. 1 gær lét-
ust sex Palestínumenn og þrír
ísraelskir hermenn í átökum
stríðandi fylkinga. Þrátt fyrir
þetta er það von sendinefndar-
innar að hægt verði að koma á
vopnahléi.
Bandarísk stjói’nvöld fóru í
gær fram á að Sharon drægi
ísraelska herinn burt frá Gaza
og Vesturbakkanum, þar með
talið Ramalla, en þar eru höfuð-
stöðvar Jasser Arafat. Telja
bandarísk stjórnvöld að brott-
hvarf hersins frá þessum stöð-
um komi til með að auðvelta
Zinni verk sitt. ■
Aðgerðir gegn launaskriði:
Aukið erlent vinnuafl
Telur þörf á erlendu vinnuafli til að koma I veg fyru launaskrið.
efnahagsmál Meðal mótvægisað-
gerða sem stjórnvöld íhuga til að
vega upp á móti efnahagslegum
áhrifum fyrirhugaðra fram-
kvæmda á Austurlandi er innflutn-
ingur erlends vinnuafls. í nýjasta
vefriti fjármálaráðuneytisins seg-
ir: „Mikil eftirspurn eftir vinnuafli
gæti leitt til launaskriðs og þar
með valdið verðbólguþrýstingi."
Björn Rúnar Guðmundsson, hjá
efnahagsskrifstofu ráðuneytisins,
sagði slíkt þó ekki hugsað til að
halda niðri launum. „Það er engum
í hag að framkvæmdir af þessu
tagi spenni allt upp í stuttan tíma.
Slík kaupmáttaraukning myndi
bara leiða til meiri verðbólgu og
óstöðugleika," sagði hann.
Björn Rúnar sagði erfitt að spá
fyrir um hvort grípa þyrfti til sér-
tækra ráðstafana, það myndi ráð-
ast af efnahagsástandinu. Sam-
kvæmt fyrirliggjandi gögnum
væri það fyrst frá og með árinu
2004 sem huga þyrfti að mótvægis-
aðgerðum. „Enginn veit hvernig
efnahagsástandið verður þá. Auð-
vitað skiptir verðbólgan máli,
hvort hún fer úr 8 prósentum í 10
vegna framkvæmdanna, eða úr 1
prósenti í 3,“ sagði hann.
Halldór Björnsson, varaforseti
ASÍ, sagði að ekki væri hægt að
stóla á að verkalýðshreyfingin yrði
jafn hófleg í launakröfum og í síð-
ustu samningum allt þegar þeir
verða lausir árið 2003, burtséð frá
mögulegum áhrifum erlends
vinnuafls. „Þjóðhollustan við að
tryggja stöðugleikann verður e.t.v.
ekki jafn áberandi, því miðað við
reynsluna virðumst við ein um að
tryggja stöðugleikann meðan aðrir
hafa minni áhyggjur," sagði hann
en taldi ekki óeðlilegt að mann-
frekar framkvæmdir kölluðu á
mannskap erlendis frá. ■