Fréttablaðið - 15.03.2002, Side 6

Fréttablaðið - 15.03.2002, Side 6
SPURNING DAGSINS Heldur þú að verðlag í landinu fari yfir rauða strikið í vor? Nei, ég held að rauða strikið sleppi. Eftir 1. maí þegar rauða strikið er að baki mun verðlagið hinsvegar hækka. Lárus Hannesson starfar sem trésmíður. HEIÐRÚN JÓNSDÓTTIR Tölvuþrjótar réðust á netkerfi Landssímans og segir upplýsingafulltrúi fyrirtækisins að ströng viðurlög séu við að trufla samskipti. Ráðist á netkerfi Landssímans: Arásir aðutan TÖLVUPRJÓTAR „ Við fengum nokkr- ar árásir sem standa í stuttan tíma þannig að þær valda ekki miklum truflunum en einhverjum þó,“ sagði Heiðrún Jónsdóttir, upplýs- ingafulltrúi Landssímans. Ein- hverjar truflanir urðu á netsam- bandi fyrirtækisins um helgina þegar tölvuþrjótar, oft nefndir hakkarar, réðust á búnað fyrir- tækisins sem sér um tengingu við Bandaríkin. Fyrir vikið verða af- köst búnaðarins miklu lélegri. „Við vitum að árásirnar koma erlendis frá og munum reyna að komast að því hverjir standa á bakvið þær. Ef við sjáum að það er verið að trufla kerfið vísvitandi sendum við málið áfram og látum reyna á það. Það eru ströng viður- lög í fjarskiptalögum við að trufla samskipti og það verður fróðlegt að sjá hvað kemur út úr því.“ ■ IlögreglufréttirI Þrír menn voru handteknir eftir að hafa brotist inn í söluturn- inn Brauðhomið í Grafarholti rétt fyrir klukkan þrjú í fyrrinótt. ör- yggisvörður sá mennina aka burt frá söluturninum og lét lögregl- una í Reykjavík vita. Náði hún sökudólgunum skömmu síðar. Að sögn lögreglunnar voru þjófarnir með þýfi í bílnum. FRETTABLAÐIÐ 15. mars 2002 FÖSTUDAGUR Ólga hjá starfsfólki Landssíma: Vill uppsögn á kjarasamningum kjaramál Guðmundur Gunnars- son, formaður Rafiðnaðarsam- bands íslands, segir að starfsfólk Landssímans hafi verið að koma með kröfur til stéttarfélaga sinna um að þau segi upp kjarasamn- ingum í framhaldi af ákvörðun samgönguráðherra að stórhækka launagreiðslur til stjórnarmanna fyrirtækisins. Hann segir að þessar launahækkanir séu í mörgum tilfellum hærri en mán- aðarlaun margra starfsmanna eins og t.d. þeirra sem vinna við símsvaranir hjá 118. Stéttarfé- lögin eiga hins vegar erfitt um vik þar sem þau eru bundin laga- bundinni friðarskyldu um samn- inga sína á meðan þeir eru í gildi. Aftur á móti sé einsýnt að þessar launahækkanir verða hafðar til hliðsjónar þegar gengið verði næst til samninga fyrir starfs- fólk Landssímans. Mörg stéttarfélög hafa lýst yfir mikilli vanþóknun á þessari hækkun til stjórnarmanna Lands- símans. Sem kunnugt er þá hækkuðu þau úr 65 þúsund í 150 þúsund á mánuði og úr 150 í 300 þúsund fyrir stjórnarformann- inn. Trúnaðarráð Eflingar í Reykjavík fordæmir þessi vinnu- brögð og telur þau vera ögrun við verkafólk. Stjórn Alþýðusam- bands Vestfjarða fagnar hins vegar í ályktun sinni því svig- rúmi sem ríkisstjórnin telur vera til almennra kauphækkana í þjóð- félaginu með þessari hækkun sinni til stjórnarmanna Lands- símans. í ljósi þessa bíður verka- fólk sem er með 90 þúsund krón- ur í mánaðarlaun eftir því að for- sætisráðherra tilkynni að þessi laun verði hækkuð um helming. ■ GUÐMUNDUR CUNNARSSON Segir að launafólki sé sagt að axla byrðar stöðugleika á meðan yfirstéttin tvöfaldar þóknun til sjálfrar sín fyrir fundarsetu. Kennir nýjum búnaði um tafir Dómstjóri Héraðsdóms Reykjaness segir stafrænan upptökubúnað frá Nýherja ekki hafa virkað sem skyldi. Afspilun á upptökum hafi verið hræðilega tafsöm. Nýherji segir dóminn hafa fengið þann búnað sem óskað var eftir. Sökin sé ekki fyrirtækisins sem þó vilji gjarnan aðstoða eftir mætti. pjónusta Ólöf Pétursdóttir, dóm- stjóri hjá Héraðsdómi Reykja- ness, segir stafrænan upptöku- búnað frá Nýherja hf., sem settur var upp í fyrra, ekki hafa virkað sem skyldi. Því hafi dregist að vél- rita upp vitnaleiðslur úr réttar- höldum. í Fréttablaðinu í gær var haft eftir Inga Tryggvasyni, formanni Rannsóknarnefndar sjóslysa, að 4 störf nefndarinnar hefðu tafist vegna þess að það hafi tekið Héraðsdóm Reykjaness fjóra til fimm mánuði að af- henda endurrit úr sjóprófum sem haldin voru eftir að togbáturinn Una í Garði fórst í júlí í fyrra: „Því miður verð ég að staðfesta að þetta er ekki Bergþór Ingi- leifsson. sölu- maður og hönnuður hjá Nýherja, segir búnaðinn vera nákvæmlega eins og kveðið var á um í út- boðslýsingu. —4— HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS „Þetta átti ekki að vera svona. Ég hefði aldrei farið út f að velja búnað með þessum hætti - það gefur auga leið," segir Ólöf Pétursdóttir dómstjóri við Héraðsdóm Reykjaness um upptökubúnað frá Nýherja. röng fullyrðing," segir Ólöf Pét ursdóttir. Héraðsdómurinn flutti í nýtt húsnæði í júní í fyrra. Ólöf segir að eftir flutninginn hafi komið upp vandamál með nýja stafræna upp- tökubúnaðinn. Afspilun á upptök- unum, sem voru á geisladiskum, hafi ekki verið hægt að stoppa í miðjum klíðum eða spóla til baka eins og tíðkast þegar tekið var upp á segulbönd. „ Þetta var alveg hræðilega tafsamt. Við hefðum verið miklu fljótari að gera þetta með gamla laginu. Þeir voru búnir að lofa okkur að þetta myndi verða miklu betra en svo reyndist það ekki vera. Nýjar tæknilausnir hafa tekið eilífðar- tíma, en ég held þeir séu komnir með lausnina núna,“ segir Ólöf. Ólöf segir upptökuna af sjó- prófunum hafa goldið þess að um var að ræða fyrsta málið þar sem reyndi á nýju tæknina. Ekki hafi bætt úr skák að upptakan tókst illa. „Það var mjög erfitt að heyra hvað menn voru að segja,“ segir hún. Bergþór Ingileifsson, sölumað- ur og hönnuður hjá Nýherja, segir búnaðinn vera nákvæmlega eins og kveðið var á um í útboðslýs- ingu. Þar hafi ekki verið getið um afspilunarbúnað. Hins vegar hafi Nýherji einnig boðið fram aðra og betri lausn með bæði upptöku- og afspilunartækjum. „Henni var hafnað og þeir tóku ódýrari lausn- ina,“ segir hann. Bergþór segir Nýherja hafa reynt að finna lausn til bráða- birgða. „Hún virkar en er ekki þægileg. Þetta er í þróun ennþá,“ segir hann. Að sögn Bergþórs hefur enn ekki verið rukkað fyrir þá vinnu sem Nýherji hefur lagt út auka- lega. Um það þurfi að ná sam- komulagi: „Sökin er ekki okkar en við erum tilbúin að teygja okkur langt til aðstoða," segir hann. „Þetta átti ekki að vera svona. Ég hefði aldrei farið út í að velja búnað með þessum hætti - það gef- ur augaleið," segir Ólöf Péturs- dóttir hins vegar. gar@frettabladid.ís LOÐNA Loðnukvótinn var í gær aukinn um 100 þúsund tonn. Loðnukvótinn: 100 þúsund tonna aukning SJávarútvegur Sjávarútvegsráðu- neytið hefur aukið loðnukvótann sem nemur 100 þús. tonnum eða úr 996.202 lestum í 1.096.202 lestir. Ákvörðun þessi var tekin að tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar. í janúar sl. lauk Hafrannsókna- stofnunin við mælingar á kyn- þroska hluta loðnustofnsins og gerði að þeim loknum tillögu um 1200 þúsund tonna heildarafla- mark fyrir yfirstandandi loðnuver- tíð. Undanfarið hafa verið spurnir af líklegri vestangöngu loðnu og hafa nú mælst liðlega 100 þús tonn sem talið er að ekki hafi tilheyrt þeim hluta stofnsins sem mældur var í janúar. Gera má ráð fyrir að hækkun á leyfilegum heildarafla í loðnu auki útflutningsverðmæti sjávar- afurða á árinu 2002 um 1,2 millj- arða frá fyrri áætlunum Þjóð- hagsstofnunar. ■ |lögreglufréttir| Að minnsta kosti 10 manns þurftu að fara upp á slysa- deild Landspítala-háskólasjúkra- húss í gær eftir að hafa runnið til í hálku. 4 umferðaróhöpp urðu einnig vegna hálku. Voru þau óhöpp minniháttar að sögn Um- ferðarráðs, sem vildi taka fram að það varaði fólk eindregið við hálku á götum höfuðborgarsvæð- isins. Snjór lá yfir hálkunni og þvf átti fólk erfitt með að átta sig á aðstæðum. Meira mun hafa ver- ið um það að eldra fólk dytti og meiddi sig í hálkunni. AÐALFUNDUR Aðalfundur Verzlunarnnannafélags Reykjavíkur veröur haldinn mánudaginn 25. mars kl. 19:30 á Grand Hótel Reykjavík. Dagskrá: • Venjuleg aðalfundarstörf • Lagabreytingar Tillögur um lagabreytingar þurfa að berast 4 dögum fyrir aðalfund. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Auglýsing Sýnar kærð til siðanefndar SÍA: „Ekki athygli sem við höfum áhuga á“ auglýsing „Viðbrögð manna gera ráð fyrir því að vinnusiðferði fólks sé svo brenglað að það skrópi bara í vinnunni. Það var svo fjarri okk- ur að halda að fólk tæki þessu svona alvarlega,“ sagði Hörður Harðarson, markaðsstjóri Sýnar, um þau viðbrögð og eftirmála sem hafa orðið vegna auglýsingar þar sem fólk er hvatt til að vanda valið á veikindadögum sínum. Jafn- framt eru íþróttaviðburðir sem sjónvarpsstöðin sýnir á næstunni kynntir. Aðspurður hvort auglýs- ingin sé ekki vel heppnuð sé miðað við þá athygli sem hún fær sagði Hörður. „Hún vekur jú athygli en ekki þá athygli sem við höfum áhuga á að vekja. Okkur datt ekki einu sinni í hug að þetta myndi gerast. Vinnuveitendur verða að bera það traust til starfsfólks að það sé ekki öllum stundum að svíkjast undan vinnu.“ „Þarna er verið að hvetja til lög- brota og brota á kjarasamningum. Það er kristaltært að löggjöfin, sem um þetta fjallar, veitir fólki m.a. rétt til launa vegna slysa- og sjúkdómaforfalla. Rétturinn skap- ast eingöngu vegna veikinda, punktur og basta,“ segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunarinnar. Samtökin hafa kært auglýsingu frá sjón- varpsstöðinni Sýn til siðanefndar Samtaka íslenski-a auglýsinga- stofa. Andrés segir að samtökin leggi þann skilning í auglýsinguna að verið sé að hvetja fólk til að taka veikindafrí þegar það er ekki veikt. „Að okkar mati er verið að hvetja fólk til lögbrota og misnota þann ríka rétt sem það hefur sam- kvæmt lögum og kjarasamning- um. Við sem hagsmunasamtök at- vinnurekenda í verslun getum ekki horft á það þegjandi.“ ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.