Fréttablaðið - 15.03.2002, Page 11

Fréttablaðið - 15.03.2002, Page 11
FÖSTUDAGUR 15. mars 2002 FRÉTTABLAÐIÐ Gheney kom til Jemen í gær: Lofar aðstoð Bandaríkjanna sana. ap Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, kom í gær til Jemen á ferð sinni um arabaríki. Hann lofaði stjórnvöldum þar meiri hernaðaraðstoð og bauð vin- áttu Bandaríkjanna. Osama bin Laden, helsti andstæðingur Banda- ríkjanna, er ættaður frá Jemen. Cheney dvaldi af öryggisástæð- um aðeins tvo tíma í Jemen. Að sögn ráðgjafa stjórnarinnar í Jemen vildi Cheney fá að senda bandaríska hernaðarráðgjafa til Jemens. Hins vegar sé mjög al- menn andstaða í Jemen við að bandarískir hermenn komi þang- að. Þeir þurfi ekki utanaðkomandi aðstoð til að hamla starfsemi hryðjuverkamanna. Ráðgjafinn sagði þó að stjórn- völd í Jemen taki með þökkum efnahagsaðstoð frá Bandaríkjun- um. Cheney hóf ferð sína um ellefu arabaríki á því að heimsækja þau tvö arabaríki sem hvað vinveittust eru Bandaríkjunum, það er að segja Jórdaníu og Egiptaland. Bæði Jórdanir og Egiptar lýstu andstöðu sinni við áform Banda- ríkjanna um hernað gegn írak. Einn helsti tilgangur ferðalags Cheneys er að afla stuðnings arabaríkja við næstu skref í stríði Bandaríkjanna gegn hryðjuverk- um. ■ FRÁ JEMEN Herinn í Jemen hefur hert eftirlit sitt með umferð á helstu þjóðvegum landsins í þeirri von að geta haft hendur í hári liðs- manna al Kaída, hryðjuverkasamtaka Osama bin Ladens. Serbía og Svartfjallaland semja um breytt samband og nýtt nafn: Júgóslavía heyrir brátt sögunni til MEÐ EVRÓPUSAMBANDIÐ A MILLI SÍN Þarna sitja, frá vinstri talið, Milo Djukanovic forseti Svartfjallalands, Javier Solana, utanrikis- fulltrúi Evrópusambandsins, og Vojislav Kostunica Júgóslavíuforseti. belgrað. ap Leiðtogar Serbíu og Svartfjallalands undirrituðu í gær samkomulag um miklar breytingar á sambandi sínu. Nafnið Júgóslavía heyrir þá sögunni til. Nýja ríkið á að heita Serbía og Svartfjallaland. u Samkvæmt samkomulaginu fá lýð- veldin tvö mun meiri sjálfstjórn en verið hefur í ríkjabandalaginu, sem gengið hefur undir nafninu Júgóslavía. Evrópusambandið hafði milli- göngu um gerð samningsins. Javier Solana, utanríkismálafulltrúi Evr- ópusambandsins, undiri'itaði samn- inginn ásamt þeim Vojislav Kostun- ica, forseta Júgóslavíu, og Milo Djukanovic, forseta Svartfjalla- lands, auk annarra hátt setti’a emb- ættismanna fi'á bæði Serbíu og Svartfjallalandi. Utanríkismál og varnarmál verða undir sameiginlegri stjórn Serbíu og Svartfjallalands. Hins vegar fara lýðveldin hvort um sig með stjórn efnahags-, gjaldeyris- og tollamála. Þing beggja ríkjanna hafa nú fengið það verkefni að setja sér nýja stjórnarskrá. Svo verða haldn- ar sameiginlegar þingkosningar í haust. Svartfellingar hafa jafn- fi-amt samþykkt að hætta við kosn- ingar um aðskilnað frá Serbíu, sem fram áttu að fara í maí. Eftir þrjú ár hafa hins vegar íbúar beggja lýð- veldanna rétt til að kjósa um sjálf- stæði. ■ Án hans væri lífið miklu bragðlausara Nýr og fastur fyrir eða þroskaður og mjúkur, með brauði, kexi og vínberjum, bræddur eða djúpsteiktur. Camembert - alltaf góður. Gjafabréf Stofnun eða innlegg á Framtíðar- reikning er tilvalin fermingargjöf Framtíðarreikningur Islandsbanka Fermingargjöf er framtíðarsjóður Framtíðarreikningur er frábær fermingargjöf og ólík öörum gjöfum að því leyti að hún vex með fermingarbarninu og tryggir því öruggan sjóð við 18 ára aldur. Hæstu vextir á innlánsreikningi Hámarksöryggi Verðtrygging Sveigjanleiki Laus til útborgunar við 18 ára aldur Engin lágmarksinnborgun Þú getur lagt inn reglulega eða þegar þér hentar Fallegar gjafaumbúðir íslandsbanki - þar sem gjafirnar vaxa! www.ostur.is fslenskir ostar - hreinasta afbragð wwW S 7S /5 /!>

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.