Fréttablaðið - 15.03.2002, Qupperneq 12
FRÉTTABLAÐIÐ
FÓTBOLTI
15. mars 2002 FÖSTUDACUR
TYRKIR ÆFIR
Öll helstu blöð Tyrklands voru ævareið yfir
ólátunum, sem urðu milli leikmanna AS
Roma og Galatasaray eftir Meistaradeildar-
leikinn í Róm á miðvikudag. í fyrirsögnum
stóð m.a. „(talskt hneyksli", „Ljótir italir" og
„Villimennska". Leikurinn endaði 1-1.
Fallvaltur fótbolti
í Everton:
Moyes í
stað Smith
fótbolti David Moyes var ráðinn
þjálfari úrvalsdeildarliðs Everton
í gærkvöldi. Moyes, sem hefur
stjórnað Preston við góðan orðstír,
samdi við Everton til fjögurra ára.
Moyes tekur við liðinu af Walter
Smith. Smith var látinn taka poka
sinn skömmu eftir að Everton
tapaði 3-0 fyrir Middlesbrough í
fjórðungsúrslitum ensku bikar-
keppninnar. Moyes bíður erfitt
verkefni að rífa Everton upp úr
þeirri lægð sem það hefur verið í.
Liðið er nú í sjötta neðsta sæti
deildarinnar með 30 stig. Næstu
WALTER SMITH
Fékk að fjúka vegna slæms gengis.
tvö lið fyrir neðan Everton eru
jöfn því að stigum.
Fyrsti leikur Everton undir
stjórn Moyes verður gegn Fulham
á laugardaginn.
Smith tók við stöðunni í júlí
1998 en hann hafði þá gert garðinn
frægan með Glasgow Rangers.
Hann fékk eina milljón punda við
uppsögn sem skaðabætur fyrir þá
15 mánuði sem eftir eru af samn-
ingi hans við Everton. ■
Enska knattspyrnu-
sambandið:
Viduka
og Smith
sýknaðir
fótbolti Framherjarnir Mark
Viduka og Alan Smith hjá Leeds
hafa verið sýknaðir eftir yfir-
heyrslur hjá enska knattspyrnu-
sambandinu. Viduka var kallaður
til eftir að gefa Martin Keown hjá
Arsenal olnbogaskot fyrr í vetur.
Smith lenti í rifrildi við Graeme Le
Saux þegar Leeds vann Chelsea í
deildarbikarnum.
Ákvörðunin var tekin þegar búið
var að grandskoða myndbandsupp-
ALAN SMITH
Getur nú vonast eftír sæti I landsliðínu á
móti Ítalíu.
tökur af atvikunum. Smith getur nú
vonast til þess að fá sæti í enska
landsliðinu í vináttulandsleiknum á
móti Ítalíu, sem fer fram á Elland
Road seinna í mánuðinum. Ef hann
hefði verið fundinn sekur hefði
hann fengið þriggja leikja bann á
Englandi og ekki getað spilað í
landsleiknum. Stjórnarformaður
Leeds var hæstánægður með niður-
stöðuna og sagði félagið alltaf hafa
haldið sakleysi félaganna fram. ■
Sigið á seinni hlutann
Ensku liðin eru farin að horfa til loka leiktíðarinnar. Þó veturinn hafi gengið vel þýðir ekki að
missa dampinn á lokasprettinum. Fjöldi leikja er á Englandi um helgina.
STREMBINN MÁNUÐUR
Nourredina Naybet hjá Deportivo skorar á móti Arsenal á þriðjudaginn. Arsenal mætir
Aston Villa á sunnudaginn. Ef liðinu á að takast að vinna ensku deildina, bikarinn og
Meistaradeild Evrópu bíða þess 18 leikir á átta vikum.
lÍÞRÓTTIR í DAG
014.15 Eurosport
WTA tennismótið i
Bandaríkjunum.
15.00 Eurosport
Hjólreiðar.
15.05 Stöð 2
NBA-tiiþrif.
16.00 Eurosport
Heimsbikarinn i skíðastökki.
120 metra hár pallur í
Þrándheimi.
17.45 Eurosport
Heimsbikarinn í norrænni
tvíþraut. Skíðastökk og -ganga
á Holmenkollen í Osló.
18.00 Sýn
Heklusport gærkvöldsins
endursýnt
18.30 Sýn
íþróttir um allan heim
19.00 Körfubolti
Fyrsti leikur Keflavíkur og
Hauka i úrslitakeppni Epson-
deildarinnar i Keflavík.
19.30 Sýn
Alltaf i boltanum.
20,00 Eurosport
Evrópumeistaramótið i eróbikk
2001 í Búdapest.
20.00 Svn
Gillette-sportpakkinn,
20.00 Handbolti
FH ferðast til Vestmannaeyja
þar sem ÍBV tekur á móti því í
ESSO-deild karla. Liðin standa
jafnt í deildinni. Bæði eru með
21 stig. FH er i áttunda sæti og
ÍBV í niunda.
22.15 Eurosport
Yoz Mag.
22.45 Eurosport
Vetrarólympiuleikar fatlaðra.
fótbolti Draumur Arsenal um
þrefaldan sigur, í ensku deild-
inni, enska bikarnum og í Meist-
aradeild Evrópu, stendur á
brauðfótum. Ef þetta á að takast
blasa við 18 leikir á aðeins átta
vikum. Einnig eru átta leikmenn
meiddir.
Leikjamaraþon Arsenal hefst
hjá Aston Villa á sunnudaginn.
Varnarmennirnir Tony Adams,
Martin Keown, Matthew Upson
og Ashley Cole, miðvallarleik-
mennirnir Ray Parlour og
Giovanni van Bronckhorst, fram-
herjinn Francis Jeffers og vara-
markvörðurinn Stuart Taylor
gátu ekki verið með í 2-0 tapi á
móti Deportivo de La Coruna á
þriðjudag. Þrátt fyrir tapið getur
Arsenal komist í fjórðungsúrslit
Meistaradeildarinnar með góðu
gengi á móti Juventus í Tórínó á
miðvikudaginn. Þremur dögum
seinna mætir liðið Newcastle aft-
ur í fjórðungsúrslitum enska bik-
arsins. Þann dag átti það að mæta
West Ham en frestaði leiknum.
Ef það kemst áfram í Meistara-
deildinni þarf einnig að fresta
leik á móti Charlton 1. apríl. Dag-
setningarnar eru að klárast.
Dennis Bergkamp er flug-
hræddur og spilar því sjaldan í
útileikjum á meginlandinu. Hann
segir vatnaskil komin í tímabil
Arsenal. „Það er ómögulegt að
hafa unnið fullt af leikjum og
kasta því á glæ síðasta mánuð-
inn,“ segir Bergkamp. „Við þurf-
um hjálp slasaðra leikmanna og
heppni. Því fyrr sem þeir snúa
aftur því betra. Það væri hræði-
legt ef allt myndi klúðrast þegar
titlarnir eru innan seilingar."
Manchester United og Liver-
pool eru helstu keppinautar
Arsenal um enska meistaratitil-
inn. Bæði liðin eru dottin út úr
bikarkeppninni og inni £ Meist-
aradeild. United er komið áfram
en Liverpool þarf að vinna AS
Roma í næstu viku. United, sem
gæti orðið fyrsta liðið til að vinna
ensku deildina fjögur ár í röð, er
með eins stigs forskot á Arsenal.
Það mætir West Ham á morgun.
Liverpool, sem hefur ekki unnið
deildina síðan 1990 og er tveimur
stigum á eftir United, fer til
Middlesbrough.
Newcastle er sex stigum á eft-
ir. Það mætir Ipswich, sem er í
fallhættu. Chelsea er í góðu
formi eftir tvo stórsigra á Totten-
ham. Það er í fimmta sæti og fær
Sunderland í heimsókn. Á botni
deildarinnar er útlitið svart hjá
Leicester. Það mætir Sout-
hampton, sem tókst að klifra upp
undir miðja deild. Derby er í
næst neðsta sæti. Það fer í heim-
sókn til Bolton, sem er litlu fyrir
ofan. Ipswich fer til Newcastle
og Everton fær Fulham, sem er í
undanúrslitum bikarsins, í heim-
sókn.
Á sunnudaginn tekur Leeds á
móti Blackburn. Á mánudaginn
reynir Tottenham að bæta fyrir
töpin á móti Chelsea með því að
vinna Charlton á heimavelli. ■
KAUPENDAÞJÓNUSTAN - SÍMI 533 3444
Opið um helgina á milli 11:00 -14:00
Nýjung hjá skíðasvæðunum:
Skíðafærið í símann
Við á Þingholti höfum fjölda fólks á skrá sem bíður eftir réttu eigninni.
2ja
Höfum kaupanda að 2ja herb. íbúð í skiptum
fyrir 72 m2 3ja herb. íbúð í Austurbænum.
Sölum. örn
Starfsmaður á leikskóla leitar að notalegri 2ja
herbergja íbúð í Austurborginni má vera
risíbúð eða lítið niðurgrafin kjallaraíbúð. Gott
greiðslumat. Sölum. Steinbergur.
Höfum kaupendur að litlum 2ja herbergja
íbúðum og einstaklingsíbúðum, bæði sam-
þykktum og ósamþykktum.
Tölvufræðingur leitar að ca. 55-70 fm 2ja til
3ja herb. íbúð á jarðhæð í Grandahverfi, helst
með sér garði. Sölum. Þórður.
3ja
Þroskaþjálfi og háskólanemi leita að 3ja her-
bergja íbúð á svæöum 104 og 105 fyrir allt
að 13 M. Ekki kjallara. Sölum. Steinbergur.
Háskólakennari óskar eftir notalegri 3ja herb.
íb. á svæðum 101 og 107. Gott greiðslumat.
Sölum. Steinbergur.
Starfsmaður Orkuveitu Vestfjarða óskar eftir
íbúð í Reykjavík, Seltjarnarnesi eða Kópa-
vogi, með 2-3 svefnherbergjum. Sölum.
Pórður
Þjónustufulltrúi óskar eftir notalegri 3ja herb.
ibúð í Þingholtunum eða í gamla Vesturbæ,
Hringbraut kemur til greina. Risíbúð kemur til
greina en ekki kjallari. Sölum. Þórður.
Einstæð móðir með gott greiðslumat óskar
eftir a.m.k. 65 fm 3ja herb. íb. vestan við
Elliðaár. Sölumaður Steinbergur.
Opinber starfsmaður leitar að 3ja til 4ra her-
bergja íbúð í lyftuhúsi, helst með bilskýli.
Þórður.
Roskin hjón sem eru búin að selja stærri eign
óska eftir góðri íbúð í lyftuhúsi, þó ekki á 1 .h.
Sölum. Steinbergur.
4ra til 5
Hjón sem búin eru að selja vantar 3ja til 4ra
herb íbúö í Sala- eða Lindahverfi Kópavogs.
Sölum. Örn 11320
Yfirmatreiðslumaður á rótgrónum veitinga-
stað í miðborg Reykjavíkur óskar eftir góðri
ibúð i gömlu Reykjavík. Sölum. Steinbergur.
Ung hjón, lögmaður og sagnfræðingur sem
eru nýbúin að selja eign sína á Seltjarnarnesi
óska eftir góðri íbúð, helst nýlegri eða nýlega
standsettri, með sérinngangi og a.m.k. 3
svefnherbergjum. Sölum. Þórður.
Hjón sem vinna hjá traustu fyrirtæki f Höfða-
hverfi vantar 4-5 herbergja ibúð í nágrenninu,
td. í Grafarvogi, Árbæ, Kvislum, Voga- eða
Bústaðahverfi. Sölum. Örn.
Vélstjóri leitar að góðri 4-5 herb. íbúð í hverf-
um 104 og 105, má gjarnan vera falleg risí-
búð, ekki blokk eða kjallari. Sölum. Örn.
Hæöir
Verkfræðingur leitar að góðri sérhæð, má
vera með sameiginlegum inngangi, bílskúr
æskilegur en ekki skilyrði. Sölum. Geir.
Góðan kaupanda vantar hæð meö góðum
bílskúr vestan Elliðaáa. Sölum. örn.
Höfum fjársterkan kaupanda að sérhæð í
Vesturbæ, aðeins mjög góð eign kemur til
greina. Sölum. Steinbergur.
Hjón með dýr sem eru að minnka við sig
vantar hús eða sérhæð í 104 með svölum,
sérinngangi og bílskúr. Sölum. Örn.
Rad/par
Hjón, leikskólakennari og viðskiptafræðingur,
sem búin eru að selja vantar sérbýli með 3 til
4 svefnherbergjum í Grafarvogi eða Grafar-
holti sölumaður örn.
Hjón sem eru búin að selja verðmæta fast-
eign leita að minna sérbýli, rað-, par-, eða
einbýlishúsi í Garðabæ eða Kópavogi. Sér-
hæð á 1 .h með sér garði kemur einnig til
greina. Sölum. Geir.
Kaupandi með góða greiðslugetu óskar eftir
einnar hæðar raðhúsi í Mosfellsbæ, engin
húsbréfaafföll. Sölum. Þórður.
Einbýlishús
Lögmaður leitar að mjög vönduðu einbýli í
vesturbæ eða Fossvogi fyrir fjársterkan um-
bjóðanda. Verð allt að 50 M. Sölum. Þórður.
Eigandi 140 fm. einbýlishúss í Mosfellsbæ
óskar eftir svipaðri eign í Árbæ, Grafarvogi,
Voga eða Bústaðahverfi. Skipti eða bein
kaup koma til greina. Sölum. Þórður.
Hjón sem eru búin að selja og eru með
góða greiðslugetu vantar einbýlishús i
Breiðholti eða Árbæ. Húsið þarf helst að
vera á einni hæð. Sölum. Örn.
Hveragerði. Viðskiptafræðing vantar einbýl-
ishús með bílskúr í Hveragerði. Sölum. Örn.
Nýbyggingar
Rafvirkja vantar 3ja til 4ra herbergja íbúð
helst fokhelda á höfuðborgarsvæðinu.
sölum. Örn.
Hjón sem eru að flytja í bæinn vantar rað /
parhús fokhelt eða lengra komið i Garðabæ
eða Kópavogi. Sölum. Örn
Salahverfi Kópavogi, höfum góðan kaup-
anda að c.a. 150 fm raö-par- eða hæð sem
lengst komna. Sölum. Örn.
# A
jfVj 1 á| |31t4BFmíLT
Tg ^ ■TTGrícuirrS^aBSSHrcicu
skíði Nú er hægt að fá send smá-
skilaboð með upplýsingum um færð
og veður á skíðasvæðunum. Ef sent
er skeyti með stafnum S í númerið
691-6010 koma til baka upplýsingar
um stöðuna í Bláfjöllum, Skálafelli,
Hengilssvæðinu og Hlíðarfjalli. Ef
sent er til baka skeyti með stafnum
V verða sendar nýjar upplýsingar
um leið og staðan breytist. Þetta er
tilraunaverkefni nú í mars. Notand-
inn greiðir fyrir að senda skilaboð
úr eigin síma. Skíðasvæðin greiða
skilaboðin á móti. Á eflaust eftir að
falla í kramið hjá gemsakynslóð-
inni. Góð aðsókn hefur verið að
skíðasvæðum höfuðborgarsvæðis-
ins að undanförnu. ■
Grensásvegi 12 -s: 533 2200 «
V___ -■ .. -_ - - - _____V