Fréttablaðið - 15.03.2002, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 15. mars 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
Jagúar og Ferrari:
Gamlir bílar í viðbragðsstöðu
FORMÚiA i Jagúar-Iiðið er óánægt
með frammistöðu nýja R3-bílsins í
Ástralíu á dögunum. Breytingar
hafa verið gerðar fyrir kappakst-
urinn í Malasíu um helgina. „Það
er knappt milli kappakstra. í raun
gefst ekki meiri tími en rétt að
fljúga á milli keppnisstaða. En við
náðum að vinna aðeins í nýja bíln-
um,“ segir Niki Lauda, yfirmaður
liðsins.
Ökumaðurinn Eddie Irvine lenti
í fjórða sæti í Melbourne og fékk
þrjú stig fyrir. Lauda segir árekst-
urinn ástæðuna, hraðskreiðari bíl-
ar duttu úr keppni. Hægagangur-
inn á R3-bílnum varð til þess að lið-
ið íhugar að nota bílinn frá því í
FERRARI MENN
Keppa aftur á gamla bílnum um helgina.
fyrra. Lauda segir að ekki hafi gef-
ist tími til að prófa R3-bílinn eftir
breytingarnar og ekki sé búið að
taka ákvörðun.
Ferrari ætlar að keppa aftur á
gömlu bílunum um helgina.
Schumacher getur unnið þriðja
árið í röð £ Malasíu. Hann er mjög
öruggur á brautinni. Þegar hann
sneri aftur eftir þriggja mánaða
siúkrameðferð vegna fótbrots
vann hann ráspól. Síðan varð hann
í fyrsta sæti en gaf sigurinn til
Eddie Irvine, sem var þá liðsfélagi
hans, í keppni um heimsmeistara-
titilinn. Ekki er komið á hreint
hvenær nýi Ferrari-bíllinn verður
tilbúinn. Honum verður reynsluek-
ið á Spáni fyrir næsta kappakstur í
Brasilíu 31. mars. „Við viljum vera
öruggir um að allt sé í lagi. Ég býst
við að við notum hann í Brasilíu,"
sagði Schumacher. ■
S
Gríptu verkfærið
■
á meðan
það gefst
20 - 40%
afsláttur
af öllum
verkfærum
fram að
páskum.
á innimálningu
20-40% afsláttur
aíallri innimálningu
Fagleg ráðgjöf og þjónusta
fýrir einstaklinga.
Bílanaust er opið:
Mán. tilfös. kl. 8-18.
Einnig opið í Borgartúni á laugardögum kl. 10 -14.
,
jL - *
Freistandi
sértilboð!
Borgartúni. Reykjavík. Onlbniul, Akuroyri,
Bíldshöfóa, Reykjavik Grófinni, Ketlavik. Sl'mi 535 9000
Ðæjarhrauni, Hainarfirði. Lyngnsi, Egilsstöðum.
Hrismýri, Selfossi. Álaugarvegi. Hornafirði www.bilanaust.is
ara
Harpa Sjöfn málningarverslanir
Skeifunni 4, Reykjavík s: 568 7878
Snorrabraut 56, Reykjavík s: 561 6132
Stórhöfða 44, Reykjavík s: 567 4400
Austursíðu 2, Akureyrí s; 464 9012
Hafnargötu 90, Keflavík s: 421 4790
Bæjarlind 6, Kópavogi s: 544 4411
HarpaSjöfn
Gefm'Ufinu Ut/