Fréttablaðið - 15.03.2002, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 15.03.2002, Blaðsíða 22
HRÓSID Hrósið fær Árni M. Mathiesen sjávarút- vegsráðherra fyrir að auka loðnukvótann um 100 þúsund tonn til að nýja loðnu- gangan komist ekki undan nótum Islenska flotans. 22 FRETTABLAÐIÐ 15. mars 2002 FÖSTUDAGUR Gagnrýni þarf alltaf að vera heiðarleg og sanngjörn Liora Herzl hefur verið sendi- herra ísraels í Noregi frá því í ágúst síðastliðnum. Á miðviku- daginn afhenti hún Halldóri Ás- grímssyni utanríkisráðherra trún- aðarbréf sitt sem sendiherra ísra- els á íslandi, með aðsetur í Nor- egi. Hún lætur vel af dvölinni í Noregi. Þar sé gott að vera. En hvernig skyldi vera að sitja undir stöðugri gagnrýni á þau stjórn- völd sem hún er fulltrúi fyrir? „Mér finnst það allt í lagi. Þetta er mitt starf,“ segir hún. Hún seg- ir eðlilegt í lýðræðisþjóðfélagi að gagnrýnisraddir fái að heyrast. Þannig sé það líka í ísrael. „Við erum vön því að heyra mikið af gagnrýni í ísraelskum fjölmiðlum. Þar birtist hörð gagn- rýni á bæði stjórnina og stjórnar- andstöðuna. Og það er í góðu lagi, ég á ekkert erfitt með að taka gagnrýni." Hins vegar vildi hún taka fram að í leiðara Jónasar Kristjánssonar í Fréttablaðinu á mánudaginn hafi verið of langt gengið. „Þegar ísrael er kallað æxli og sagt að við berum ábyrgð Persónan Liora Herzl er nýbakaður sendiherra ísraels fyrir ísland. á öllu hatri múslima út í Vestur- lönd, þá er slíkt að mínu mati ekki gagnrýni. Þarna er ekki farið að sanngjörnum leikreglum. Ég held að átökin í Miðausturlöndum séu kannski ekki alveg eins og menn sjá þau frá íslandi eða öðrum löndum. Palestínumenn eru ekki saklausir í þeim hildarleik." ■ LIORA HERZL Málstaður ísraels hefur átt lítinn hljóm- grunn á Vesturlöndum. Stundum er sárt að sitja undir því sem sagt er. SAGA DAGSINS 1 TÍMAMÓT 15. MARS AFMÆLI 'amkvæmt tímatali Rómverja )var Júlíus Sesar, keisari, myrt- ur á þessum degi 44 árum fyrir Krist- sburð. Það gerði mág- ur hans og trúnaðar- vinur Markús Brútus með því að stinga hann í bakið fyrir framan róm- verska alþingishúsið. Síðustu orð hins mikla keisara voru: “Et tu, Brute“ - og þú Brútus. Bæjarsíminn í Reykjavík var formlega stofnaður 15. mars 1905 með því að leikið var á fiðlu í símann. Þá höfðu fimmtán símar verið tengdir. Þjóðverjar réðust inn í Tékkóslóvakíu 15. mars 1939. Örlög þjóðarinnar eru talin hafa ráðist 30. september 1938 þegar Adolf Hitler, Benito Mussolini, Edouard Daladier og Neville Chamberlain undirrituðu Múnchen sáttmálann. Undirskriftin hafi í raun verið afsal Tékkóslóvakíu í hendur Þjóðverja í þeirri tilraun að halda friðinn í Evrópu. Bandarísk flugvél hrapaði í Vatnsmýrinni í Reykjavík og átta menn fórust 15. mars 1942. Rokksöngvarinn Fats Domino hljóð- ritaði lagið sitt “Ain’t That a Shame“ 15. mars 1955. Rokktónlist var um það leyti að ryðja sér til rúms. Lagið komst í toppsæti Billboard-listans í Bandaríkjunum og sat þar í þrjá mánuði samfleytt. Þjóðvarnarflokkur íslands var stofnaður 15. mars 1953. Hann starfaði í áratug og barðist einkum fyrir brottför varnarliðsins. JARÐAFARIR 10.30 Baldur Krístjónsson, íþróttakenn- ari, Kópavogsbraut 69, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogs- kirkju. 11.00 Gunnar Jón Sigtryggsson, Skarðshlíð 18b, Akureyri, verður jarðsunginn í dag frá Höfða- kapellu. 13.30 Hólmfríður Einarsdóttir, Ijós- móðir frá Varmahlíð, verður jarð- sungin frá Bústaðakirkju I dag. 13.30 Leó Sigurðsson, fyrrverandi út- gerðarmaður, Oddeyrargötu 5, Akureyri, verður jarðsunginn í dag frá Akureyrarkirkju. 13.30 Svanhildur Sigurðardóttir frá Seyðisfirði, Eyjahrauni 5, Vest- mannaeyjum, verður jarðsungin í dag frá Laugarneskirkju. 13.30 Sigríður Magnúsdóttir, Æsufelli 2, Reykjavík, verður jarðsungin í dag frá Fella- og Hólakirkju. 13.30 Þórir Jón Jensson, Heiðargerði 54, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni. 13.30 Guðfinna Sigurðardóttir, Skip- holti 49, Reykjavík, verður jarð- sungin frá Háteigskirkju. 13.30 Birna Guðný Björnsdóttir, Skóla- braut 5, Seltjarnarnesi, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju. 14.00 Elínborg Ágústsdóttir frá Máva- hlíð á Snæfellsnesi verður jarð- sungin frá Ólafsvíkurkirkju í dag. 14.00 Gunnar Sveinsson, Faxabraut 38a, Keflavík, verður jarðsunginn í dag frá Keflavíkurkirkju. 15.00 Sigurrós Rósa Einarsdóttir verð- ur jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag. 15.00 Karl Th. Lilliendahl, hljóðfæra- leikari, Krummahólum 10, Reykja- vík, verður jarðsunginn í dag frá Hallgrímskirkju. Hver tími velur sér form Þorsteinn frá Hamri er 64 ára í dag. Hann vinnur nú að 16. ljóðabók sinni. afmæli Skáldið og rithöfundurinn Þorsteinn frá Hamri er 64 ára í dag. „Ég er að búa mig undir verða tilbúinn með ljóðabók á ár- inu, þegar dregur nær hausti," segir Þorsteinn þegar hann er spurður um störf sín um þessar mundir. Fyrsta ljóðabók Þor- steins kom út árið 1958 þegar hann var að verða tvítugur. Ljóðabækur Þorsteins eru nú orðnar 15 talsins, auk eins ljóða- úrvals, og skáldsögurnar eru þrjár. Ritsafn Þorsteins kom út í tilefni sextugsafmælis hans fyrir fjórum árum. „Þar er nánast allt sem ég hef samið." Skáldsögurnar skrifaði Þor- steinn á árunum 1967 til 1980. „Það leitar ekki á mig um þessar mundir,“ segir Þorsteinn þegar hann er spurður hvort hann hafi lagt skáldsagnagerð á hilluna. „Eg hafði gaman að því í þá daga að breyta til og prófa þetta form til hliðar við ljóðið en margt í þessum sögum var svo sem ná- skylt Ijóðinu." Þorsteinn frá Hamri var bók- hneigður þegar hann var dreng- ur, segist hafa lesið allt sem fyrir hendi var. „Ég hreifst ungur af skáldskap, einfaldlega. Svo leit- aði ég í þennan farveg sjálfur með hugsanir mínar og tilfinn- ingar.“ Þegar Þorsteinn var ung- ur voru verulegar hræringar í ljóðagerð, þótt mestu átökin hafi verið um garð gengin þegar hann byrjaði sjálfur að skrifa. „Ég var alinn upp við hefðina eins og hún var sterkust," segir Þorsteinn. ÞORSTEINN FRÁ HAMRI Þorsteinn og fjölskylda hans ætla að fara út að borða í tilefni dagsins og býst hann sjálfur við að fá sér saltfisk. Hann var því ekki sérlega hrifinn af formbreytingunum í æsku. „En fljótlega eftir að ég fór að mannast og kynna mér nýjungar hætti þetta að vefjast fyrir mér og ég hef ort bæði laust og bund- ið.“ Þorsteinn telur að ljóðahefðin búi í okkur þótt hún hafi hugsan- lega verið í lægð um skeið. „Ann- ars er stundum sagt að hver tími velji sér form við hæfi, tjáning- armáta og stíltegund. En tíma- skeið er ekki bara tímaskeið. Það eru vitanlega líka margvíslegir og ólíkir einstaklingar þar sem hver syngur með sínu nefi, ef allt er með felldu." „Við höfum talað um að borða einhvers staðar og þá fæ ég mér líklega saltfisk," segir Þorsteinn um afmælisdaginn. „Reyndar hef ég oftast gert mér dagamun þeg- ar staðið hefur á tug, en lítið þess á milli, og þegar ég varð sextug- ur hugsuðu margir til mín og komu á Hótel Borg þar sem bóka- útgáfan Iðunn hélt mér afmælis- hóf.“ steinunn@frettabladid. www.hollver.is STEftKT Einw OTUR aÐHMT é é 6 IKJÖ6 Taktu eftir merkjunum - þau tala sínu máli Vörur sem innihalda hættuleg efni eiga aö vera merktar á íslensku með varnaðarmerkjum ásamt hættu- og varnaðarsetningum. Mikilvægt er að neytendur kynni sér merkingar vörutegunda og fari eftir þeim viðvörunum sem þar koma fram. Framleiðendur, innflytjendur og seljendur bera ábyrgð á því að merkingar séu í samræmi við reglur. Spjald með varnaðarmerkjum fæst endurgjaldslaust hjá Hollustuvernd Hollustuvernd ríkisins Ármúla 1a, 108 Reykjavík. Sími 585-1000. Heimasíða: www.hollver.is TÍMAMÓT 15.00 Elisabeth Lísa G. Berndsen, Bergi, Hafnarfirði, verður jarð- sungin í dag frá Hafnarfjarðar- kirkju. AFMÆLI Jóhannes Arason, fyrrum útvarpsþulur Ríkisútvarpsins, er 82 ára í dag. Þorsteinn frá Hamri, skáld, er 64 ára í dag. Guttormur Pétur Einarsson, forstjóri, er 64 ára í dag. Baldur Trausti Hreinsson, leikari, er 35 ára í dag. STÖÐUVEITINGAR______________________ Hrafnkell V. Gíslason hefur verið skip- aður forstjóri Póst- og fjarskiptastofnun- ar frá og með 1. apríl 2002. Eirikur Þ. Einarsson hefur verið kjörinn formaður Félags leiðsögumanna. ANPLÁT_______________________________ Sigrún Einarsdóttir lést 3. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Jónina Elíasdóttir frá Hesteyri, Kópa- vogsbraut 18, lést 12. mars. Ágúst Sörlason lést 12. mars. Maríanna Haraldsdóttir, Nesbala 33, Seltjarnarnesi, lést 12. mars. Nikulás Guðmundsson, Sólheimum 25, Reykjavík, lést 3. mars. Útförin hefur far- ið fram I kyrrþey að ósk hins látna.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.