Fréttablaðið - 15.03.2002, Síða 24
FRÉTTABLAÐIÐ
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20
VlÐ SEGJUM FRÉTTiR Fréttavefurinn á VlSÍf.ÍS Fyrstur með fréttirnar
mBíEmtL
- í
FTfÍ RAFLAGNiR ÍSLANDS ehf.
n 11 VERSLUN - HEiLDSALA
FAMI hillukerfi
Hillur fyrir vandláta - Óþrjótandi
möguleikar og sérsmíði. Slétt
yfirborð auðveldar þrif og
umgengni. GOTTVERÐ
írshöfða 1 - Sími 511 1122
www.simnet.is/ris
Þráins Bertelssonar
Lánastofnanir eða
hamflettivélar?
Nú er vaxtaokrið orðið svo gegnd-
arlaust að bankarnir láta sér
ekki duga lengur að reyta fiðrið af
viðskiptavinum heldur er verðtrygg-
ing peninga eins og tölvustýrð ham-
flettivél sem sviptir kúnnanum úr
fiðurhamnum á augabragði þegar
búið er að reyta hann. Einu sinni
voru bankar dáldið menningarleg
fyrirbæri og stjórnendur þeirra vel
meðvitaðir um þjóðfélagslega
ábyrgð sína, en í mórallausu
fjaðrafoki frjálshyggjunnar hefur
hin þjóðfélagslega ábyrgð gleymst
og sú frumstæða miðaldahugsun
skotið rótum að fjármálastofnanir
geti keypt sér síðan einhver konar
andleg kjólföt með því að sletta fá-
einum krónum, kannski tíu mánaða
undirforstjóralaunum í einhverja
menningarstarfsemi, svo sem Þjóð-
leikhús (sem Ríkið á að geta rekið án
ölmusu) og þar með aflausn og
syndakvittun fyrir að mergsjúga
fólk og fyrirtæki í landinu.
—♦—
ÞAÐ er auðvitað sælla að gefa en
þiggja. Og ef bankar og fjármálafyr-
irtæki langar til að taka upp á því að
fara að gefa einhverjum eitthvað
ættu þessar peningamaskínur fyrst
og fremst að hugsa um að gefa þjóð-
inni ábyrga og sanngjarna banka-
starfsemi, eins og til var ætlast af
þeim í upphafi.
—*—
ÞAÐ er auðvitað ekki bara við
bankana að sakast heldur við æðstu
fjármálastjórn landsins sem hefur
gert það að heilögu trúaratriði að
peningar eigi að vera líftryggðir,
það er að segja tryggðir um alla ei-
lífð fyrir möl og ryði og öllum þeim
öflum sem geta grandað okkur. Þessi
líftrygging maurapúkanna heitir
„verðtrygging". Og hún er lykillinn
að þeirri svikamyllu sem öllum al-
menningi finnst hann vera lentur í
þegar fólk lendir í þeirri sjálfsögðu
stöðu í lífinu að þurfa að taka lán.
ÞAÐ eru margir sem hafa fengið
upp í kok af verðtryggingu og vaxta-
okri og svokallaðri frjálsri sam-
keppni milli banka sem virðist öllum
vera stjórnað af fákeppnis- og sam-
ráðsheila. Er ekki að verða tímabært
að frjálshyggju- og fjármálavið-
undrin standi við stóru orðin og
bankar á landinu fari að keppa sín á
milli í stað þess að hafa aðstoð
stjórnvalda til að keppast við að
plokka og síðan hamfletta neytend-
ur?
I
; .
gfSgSííý:#§j
-—-——-----
Með þvi ac-skfá
ekkerfc mmutaver
i. Peg-ar þeir
hépinn. hringja þe\
mý'-& y 119
Skraðu GSM-sf.ma
- • -- <
r r-SH eSs&
simirm.is Upplýsingar og skráning á siminnJs
SIMINN
Heimsþekktu
leirvörurnar
Verid velkomin í Lágmúlann
1922
BRÆÐURNÍR
Nú á tilboði með afslætti