Fréttablaðið - 02.04.2002, Síða 1
MYNPLIST
Áhorfandinn
skapi eigin sögu
bls 16
TÓNLIST
Holdgervingur
syndarinnar
bls 14
AFMÆLI
Fékk
barnabarn
í afmœlisgjöf
bls 22
Spænska
Sebastian Nowenstein
FRETTABLAÐIÐ
62. tölublað - 2. árgangur
ÞRIÐJUDAGUR
Forsætisráðherra
til Víetnam
Hfebðalög Davíð
Oddsson, forsætis-
ráðherra, heldur í
dag í opinbera
heimsókn til Ví-
etnam. Hann er
fyrsti íslenski ráð-
herrann til að
heimsækja Víetnam sem eitt fárra
ríkja heldur enn í kommúníska
stjórnhætti.
Forskot á kosningar
atkvæðagreiðsla Utankjörfundarat-
kvæðagreiðslur vegna sveitar-
stjórnarkosninga hef jast í dag.
Ekki liggur enn fyrir hvaða listar
verða í framboði en þeir sem skipta
um skoðun geta breytt atkvæði
sínu fram á kjördag.
VgÐR|Ð ,• DAC
REYKJAVÍK Norðlæg eða
breytíleg átt 5-10 m/s
og ský jað að mestu.
Hiti 0 til 5 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
isafjörður 15-23 Snjókoma Q 0
Akureyri © 10-18 Skýjað £>4
Egilsstaðir (}lO-18Bjart ©4
Vestmannaeyjar © 8-15 Skúrir ©4
Miðasala
Listahátíðar hefst
miðasala Búast má við að mikið
verði um að vera í Bankastræti 2 í
dag þar sem miðasala Listahátíðar
Reykjavíkur hefst klukkan ellefu.
Miðasalan hefur aldreið áður hafist
svo snemma. Mánuður er þar til há-
tíðin hefst.
Fimm leikir í
ESSO-deildinni
HANDBQiTi Fimm leikir fara fram
í ESSO-deild karla í kvöld. HK
tekur á móti Víkingi í Digranesi,
ÍR mætir Þór í Höllinni á Akur-
eyri, FH fær Stjörnuna í heimsókn
á Kaplakrika, Grótta KR tekur á
móti Haukum á Seltjarnarnesi og
Selfoss spilar við Aftureldingu í
Varmá.
j KVÖLDIÐ í KVÖLPÍ
Tónlist 16 Bíó 14
Leikhús 16 (þróttir 12
Myndlist 16 Sjónvarp 20
Skemmtanir 16 Útvarp 21
MEÐALLESTUR FOLKS A ALDRINUM 25 TIL 80 ARA A
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP I OKTÓBER 2001.
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Þriðjudagurinn 2. apríl 2002
Arafat haldið í algerri
einangrun í Ramallah
ísraelski herinn herðir enn tök sín á Palestínumönnum. Sharon segist eiga í stríði við hryðju-
verkamenn og kennir Arafat alfarið um. Bush segist skilningsríkur. Fjölmenn mótmæli gegn
Israel í arabaríkjum.
mið-austurlönd ísraelski herinn
hefur frá því á föstudag hersetið
borgina Ramallah á Vesturbakk-
anum. Þar hafa hermenn farið hús
úr húsi í leit að hryðjuverkamönn-
um og sprengjubúnaði þeirra.
Herinn réðst að auki í gær inn í
Betlehem og nokkra aðra bæi
Palestínumanna á Vesturbakkan-
um.
Jasser Arafat, leiðtoga Palest-
ínumanna, hefur verið haldið í al-
gerri einangrun í þremur her-
bergjum í byggingu sinni í Ram-
allah, án alls símasambands.
Margir Palestínumenn óttast að
ísraelar ætli að leggja Vestur-
bakkann og Gazasvæðið alveg
undir sig á ný.
í Jórdaníu, Egyptalandi, Lí-
banon, Líbíu og fleiri arabaríkjum
var í gær efnt til fjölmennra mót-
mælafunda gegn ísrael. Sums
staðar lentu mótmælendur í átök-
um við lögreglu. Bæði Jórdanía og
Egyptaland hafa hótað því að slíta
stjórnmálasambandi við ísrael.
Mikið mannfall hefur verið
undanfarna daga í ísrael og á her-
teknu svæðunum. Palestínumenn
hafa gert eina eða tvær sjálfs-
morðsárásir á degi hverjum. Þær
hafa kostað tugi manna lífið. Þá
myrtu herskáir Palestínumenn á
sunnudaginn tíu Palestínumenn,
sem þeir grunuðu um að hafa veitt
ísraelsmönnum aðstoð og upplýs-
ingar.
ísraelski herinn myrti einnig
fimm palestínska lögreglumenn í
Ramallah í gær. ísraelski herinn
segir einn þeirra hafa verið með
sprengjubelti um sig miðjan.
Sjúkrabifreiðum var meinaður að-
gangur að svæðinu í nokkra
klukkutíma.
Aríel Sharon, forsætisráðherra
ísraels, sagði í sjónvarpsávarpi á
BEÐIÐ ÁTEKTA í BETLEHEM
Þessir vopnum búnu Palestinumenn biðu
innrásar ísraelska hersins fyrir utan Fæð-
ingarkirkjuna í Betlehem í gær.
sunnudaginn að ísrael ætti í stríði
við hryðjuverkamenn. Hann
kenndi Jasser Arafat, leiðtoga
Palestínumanna, alfarið um
hvernig komið væri.
Sharon sagði ísraelsmenn hafi
fallið frá kröfu sinni um sjö daga
frið, þeir hafi kallað hermenn sína
frá borgum Palestínumanna og
sýnt bæði Anthony Zinni, sendi-
fulltrúa Bandaríkjanna, og Dick
Cheney, varaforseta Bandaríkj-
anna, fulla samvinnu. Palestínu-
menn hafi ekki svarað með öðru
en fleiri hryðjuverkum.
„Þessum hryðjuverkum er
stjórnað af einum manni, Jasser
Arafat," sagði Sharon. „Jasser
Arafat er óvinur ísraels og óvinur
hins frjálsa heims.“
George W. Bush Bandaríkja-
forseti sagðist í ræðu á laugardag-
inn skilja sjónarmið ísraela. Þeir
hefðu fullan rétt á að verja land
sitt gegn hryðjuverkamönnum.
Sumir fréttaskýrendur spá því að
Bush ætli að gefa Sharon frjálsar
hendur í nokkra daga, áður en far-
ið verði að þrýsta á um samninga-
viðræður á ný.
Nánar bls. 2
CAROLINE LEFORT komin HEIM MEÐ DÓTTUR SÍNA Caroline Lefort náði dóttur sinní, Lauru Sólveigu, aftur úr umsjá fyrrverandi
sambýlismanns síns fyrir viku í Frakklandi. Hún fór huldu höfði í Stokkhólmi um páskana en kom heim til Islands í gær. Nánar bls. 2
Bretar
syrgja
drottnir
armóður
1 ÍPRÓTTIR 1
Undanúrslit
meistara-
deildarinnar
SÍÐA 12
Gestir af nektarstað riðu húsum í Keflavík:
Tólf lögregluþjóna þurfti til
að stilla til friðar í Scimkvæmi
lögregla Fimm manns eiga nú yfir
höfði sér kæru frá lögreglunni í
Keflavík vegna átaka og óspekta í
samkvæmi í heimahúsi þar í bæn-
um í gærmorgun.
Lögreglan var kölluð að fjölbýl-
ishúsi við Heiðarból um klukkan
sex. fbúar í húsinu voru þá allir
vaknaðir við mikil háreysti. Þau
komu úr íbúð manns um tvítugt
sem er nýlega fluttur í húsið.
Fjórir lögreglumenn fóru á
staðinn en tókst ekki að ná tali af
húsráðandum. Veislugestur skellti
hurð á fót eins lögreglumannsins.
Hurðin brotnaði en lögreglumað-
urinn mun ekki vera alvarlega
meiddur.
Það var síðan við vaktaskipti
hjá lögreglunni að næturvaktin og
dagvaktin sameinuðust og héldu
tólf lögreglumenn að Heiðarbóli.
Upp úr klukkan sjö bárust slags-
mál úr íbúðinni fram á stigagang
og þá lét lögreglan til skarar
skríða. Tveir slagsmálahundar
voru handteknir. Þriðji maðurinn
var handtekinn þegar hann mætti
á lögreglustöðina til að reyna að
„frelsa" félaga sinn.
Gestirnir í samkvæminu munu
hafa verið á súludansstað um nótt-
ina en fært skemmtanahald sitt í
Heiðarból þegar dansstaðnum var
lokað klukkan fimm. Húsráðand-
inn kvaðst muna eftir að hafa boð-
ið fólkinu heim til sín. Hann hefði
hins vegar sofnað fljótlega og ekki
vitað hvað á gekk. ■
ÞETTA HELST
Utanríkisráðherra segir ísra-
ela eiga á hættu að einangr-
ast á alþjóðavettvangi. bls. 2
Landlæknir segir ekkert at-
hugavert við að lyfjafyrirtæki
styrkti kvikmyndagerð læknis.
bls. 2
..-♦...
Bandarísk fyrirtæki vill reisa
f jögurra milljarða króna stál-
pípuverksmiðju í Helguvík.
bls. 11
—♦—
Eistu f jögurra karlmanna voru
f jarlægð vegna kynferðisbro-
ta frá 1948 til 1971. Slíkar
aðgerðir eru enn heimilar í
lögum. bls. 4