Fréttablaðið - 02.04.2002, Side 2
KJÖRKASSINN
ANNAR HVER
SVARTSÝNN
Ríflegur helmingur
kjósenda á Vlsi.is lítur
efnahagsmálin ekki
björtum augum.
Telurðu bjart framundan í
efnahagsmálunum?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Spurning dagsins í dag:
Eru ísraelsmenn að ganga of langt í að-
gerðum sínum gegn Palestínumönnum?
Farðu inn é vísi.is og segðu I
þlna skoðun J
BENSÍNSTÖÐ
Álögur ríkisins á bensín lækka um nær
tvær krónur á lítrann.
Vörugjald á eldsneyti:
Bensínverð
óbreytt en
olía hækkar
VERÐLAGSIVIARKMIÐ Stjórnvöld hafa
ákveðið að lækka vörugjald á
bensíni til að auka líkur á því að
verðlagsmarkmið kjarasamninga
náist. Gjaldið lækkar úr 10,50
krónum á lítrann í 8,95 krónur. Að
auki reiknast virðisaukaskattur af
lægri fjárhæð en ella.
Olíufélögin hafa í kjölfar þessa
lýst yfir að bensinverð hækki ekki
nú um mánaðamótin.
Engar breytingar er á gjöldum
á öðru eldsneyti. T.d. hækkaði 01-
íufélagið hf. í gær verð á lítra af
gasolíu og flotaolíu um 3,50 krón-
ur og lítra af svartolíu um 5 krón-
ur. Þær hækkanir eru sagðar
vegna hækkana á heimsmarkaði.
Ríkisstjórnin segir bensínverð
hafa farið hækkandi á heims-
markaði. Það hefði stofnað verð-
lagsmarkmiðum kjarasamninga í
hættu ef sú hækkun skilaði sér út
í verðlagið hér. Bensíngjaldið
væri lækkað í trausti þess að olíu-
félögin leggðu jafnframt sitt af
mörkum til að tryggja að rauðu
strikin haldi.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar
gildir til júníloka og er sögð kosta
ríkissjóð 80 milljónir króna. ■
Margir leituðu til
Mæðrastyrksnefndar
fyrir páskana:
Astandið er
dapurlegt
mæðrastyrksnefnd Óvenju margir
leituðu aðstoðar til Mæðrastyrks-
nefndar Reykjavíkur fyrir páska til
að ná endum saman fyrir hátíðarn-
ar.
„Stundum hafa myndast biðrað-
ir út á götu.“ segir Ásgerður Jóna
Flosadóttir, formaður Mæðra-
styrksnefndar. Hún segir einnig að
margir hafi leitað aðstoðar til þess
að geta haldið fermingarveislur
barna sinna. „Það er sorglegt að
þurfa að taka á móti grátandi fólki
á hverjum vikudegi. Ástandið er
dapurlegt."
Mjólkursamsalan, Myllan og
Ömmubakstur hafa gefið vörur
vikulega til styrktar bágstöddum.
Frigg gaf nefndinni 8 þúsund bleiur
til aðstoðar barnafjölskyldum. Fyr-
ir jól úthlutaði Velferðarsjóður
barna Mæðrastyrksnefnd tveimur
milljónir króna. Peningurinn verð-
ur nýttur til þess að senda 97 börn
lágtekjufjölskyldna og einstæðra
mæðra í sumarbúðir KFUM og
KFUK. Hægt er að sækja um frá og
með deginum í dag. ■
2
FRÉTTABLAÐIÐ
Utanríkisráðherra segir greinilegt stríðsástand í Miðausturlöndum:
Israelar geta einangrast
MiÐAUSTURLÖNP „Þarna er greini-
lega komið á stríðsástands", seg-
ir Halldór Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra, um þá auknu hörku
sem er hlaupin í átök ísraela og
Palestínumanna. Aðgerðir fsra-
ela á svæðum Palestínumanna
brjóta gegn samþykktum Sam-
einuðu þjóðanna. Slíkt getur haft
mjög alvarlegar afleiðingar og
ísraelar eiga á hættu að einangr-
ast á alþjóðavettvangi haldi þeir
sínu striki.
Halldór segir mjög alvarlegt
hvernig ísraelsk stjórnvöld hafa
lagt til atlögu gegn Jasser Arafat.
„Arafat er réttkjörinn leiðtogi
Palestínumanna. Það er enginn
HALLDÓR
ÁSGRÍMSSON
ísraelar megna
ekkí að halda
uppi friði. Þörf
er á friðar-
gæsluliði.
annar sem gæti verið það sam-
einingarafl sem nauðsyn er á ef
takast á að koma á friði.“
Ef takast á að koma á friði í
Miðausturlöndum segir Halldór
nauðsynlegt að alþjóðlegt friðar-
gæslulið verði kallað á vettvang.
„Það er ljóst að ísraelsmenn
munu ekki megna það einir að
halda uppi friði á þessum svæð-
um.“
í utanríkisráðuneytinu hefur
ferð Halldórs til ísraels og
Palestínu verið í undirbúningi
um nokkurt skeið. „í síðustu viku
var þessi ferð á dagskrá síðustu
dagana í maí,“ segir Halldór.
Hann segir að nú sé meiri óvissa
um ferðina. í raun sé ekkert
hægt að segja um hvaða áhrif síð-
ustu atburðir hafi á fyrirhugaða
ferð hans. Það ráðist af því
hvernig mál þróast. ■
Vil eðlilegt líf með
dóttur minni hér
Caroline Lefort kom með dóttur sína heim til Islands í gær eftir að hafa
numið hana á brott með valdi frá fyrrum sambýlismanni sínum fyrir
viku. Hún fór huldu höfði í Evrópu þangað til í gær. Flóttinn var skipu-
lagður dagana á undan.
CAROLINE LEFORT MEÐ DÓTTUR SÍNA LAURU SÓLVEIGU ÞEGAR PÆR KOMU
TIL LANDSINS í GÆR
Caroline segist hafa átt fullan rétt á að ná dóttur sinní aftur úr umsjá föður hennar. Hún
hafi bráðabirgðaforsjá yfír Lauru og Francois hafi farið með hana ólöglega frá íslandi.
forsjArdeila „Ég vil vita hvað ís-
lensk stjórnvöld ætla að gera til
að fullvissa mig um að ég geti lif-
að eðlilegu lífi aftur,“ segir
Caroline Lefort sem kom heim til
íslands í gær eftir að hafa tekið
dóttur sína með valdi úr höndum
föður hennar í Frakklandi síðasta
þriðjudag. Þangað til í gær hafði
hún farið huldu höfði í Stokk-
hólmi. Fyrrum sambýiismaður
hennar og eiginmaður, Francois
Scheefer, flúði með dóttur þeirra
til Frakklands í byrjun september
á síðasta ári þrátt fyrir farbann
dótturinnar. Hann hafði ekki for-
sjá yfir barninu. „Hvað er hægt að
gera til að tryggja að þetta endur-
taki sig ekki,“ segir Caroline. „Ég
er hrædd.“
„Ég var búin að fara á staðinn
þar sem ég átti að hitta Lauru og
Francois og skoða aðstæður. Ég
hafði fengið vin minn í Frakklandi
í lið með mér og við leigðum bíla-
leigubíl,“ segir Caroline.
Eftir að hafa hitt dóttur sína á
leikvelli stakk hún sér inn í
bílaleigubílinn sem hafði verið
lagt við gangstétt sem þau gengu
eftir. Vitorðsmaðurinn sat við
stýrið og keyrði strax hratt í
burtu.
„Ég sá Francois rífa í hálsmál-
ið á konu minni og reka hana nið-
ur í gangstéttina," segir Yves
Lefort, faðir Caroline, en hann og
móðir Caroline voru með henni í
för þegar Caroline nam dóttur
sína á brott. Yves segir bera
piparúða á sér öllum stundum sér
til verndar. Honum sprautaði
hann í augu Francois til að koma
konu sinni til varnar. Þvi næst
flúðu hjónin í bíl sinn sem var lagt
skammt frá.
Caroline og vitorðsmaður
hennar keyrðu rakleitt yfir bel-
gísku landamærin skammt frá.
Þar hringdi hún í foreldra sína og
lét vita hvað hafði gerst. Faðir
hennar keyrði konu sína á lestar-
stöð þar sem hún hélt til heimilis
þeirra. Hann keyrði því næst til
Belgíu og hitti dóttur sína og vin
hennar. Caroline fór með föður
sínum og dóttur en vitorðsmaður-
inn tók bílaleigubílinn aftur til
Frakklands.
„Foreldrar mínir vissu ekki um
þessa áætlun mína,“ segir
Caroline. Hún segist einungis hafa
látið þau vita að hún vildi ná dóttur
sinni aftur. Hún hafði ekki látið
neinn vita að það yrði þennan
þriðjudag eða með þessum hætti.
Feðginin óku til Danmerkur
með Lauru og fóru þaðan til Stokk-
hólms. Þá var búið að panta flug
fyrir þau þrjú til íslands. Caroline
segist hafa verið skíthrædd allan
tímann að Francois fengi vitneskju
um ferðaáætlun þeirra. Nú reyni á
að íslensk stjórnvöld tryggi að hún
geti lifað eðlilegu lífi á Islandi með
dóttur sinni.
bjorgvin@frettabladid.is
Faðir Lauru Sólveigar bregst við:
Erindi sent dómsmála
ráðherra Frakklands
forsjárdeila „Sjónin á vinstra
auga er veruíega skert,“ segir
Francois Scheefer, faðir Lauru
Sólveigar, sem var með stúlkuna
í sinni umsjá þegar Caroline
Lefort tók Lauru frá honum og
flúði með hana til Stokkhólms.
Hann segir húðina á andliti
brennda eftir piparúða sem faðir
Caroline sprautaði á hann. í
læknisskýrslu má lesa að hann
hafi áverka eftir bit á hægri hönd
og sú vinstri sé illa klóruð.
Francois segir að frönsk yfir-
völd álíti Lauru í hættu. Barna-
verndarsamtökin SOS, sem láti
sig alvarlegar forsjárdeilur í
Frakklandi varða, standi við bak-
ið á honum og hafi ýtt á frönsk
yfirvöld að grípa til aðgerða.
Samtökin séu stór og öflug sem
skipti máli í baráttu hans. Hann
segir alla fordæma þær aðferðir
sem Caroline viðhafði við að ná
dóttur sinni aftur. Aðgerðin hafi
einkennst af miklu ofbeldi eins
og megi sjá á áverkum hans
sjálfs.
Francois segir að barnavernd-
arsamtökin hafi skrifað dóms-
málaráðherra Frakklands bréf og
spurt hvað yfirvöld ætli að gera í
málinu. Franskir fjölmiðlar eru
komnir í málið og nú reyni á ís-
lensk stjórnvöld að bregðast við
á réttan hátt. Þetta sé málefni
franskra dómstóla og því beri að
rétta í málinu í Frakklandi. ■
FRANCOIS SCHEEFER,
FAÐIR LAURU SÓLVEIGAR
Eins og sjá má á myndinni var Francois
með áverka á auga eftir að hafa fengið
piparúða í andlitið þegar Laura Sólveig var
tekin frá honum.
2. april 2002 ÞRIÐJUDACUR
Holtavörðurheiði:
Ferðalangar
lóðsaðir
umferð Lögreglan, Vegagerðin og
fimm björgunarsveitir fylgdu bíl-
um um Holtavörðuheiðina í gær.
Veginum var lokað beggja vegna
heiðarinnar og bílum fylgt yfir í
hollum. Blindbylur og hálka var á
heiðinni.
Mikil umferð var allan daginn í
gær og lá straumurinn fyrst og
fremst suður. Um tíma náði bíla-
lestin allt frá Blönduósi að Brú.
Fjórir árekstrar urðu á Holta-
vörðuheiði í gær. Tveir urðu áður
en veginum var lokað. Eftir að
opnað var fyrir umferð að nýju um
klukkan fjögur þurfti í tvígang að
loka aftur vegna óhappa. ■
I faðmi hafsins:
Lyfjafyrir-
tæki styrkir
kvikmynda-
gerð læknis
KVIKMYNDIR Lýður Árnason,
heilsugæslulæknir, segir enga
hættu á hagsmunaárekstri þó
lyfjafyrirtækið Astra Zeneca hafi
styrkt gerð myndarinnar í faðmi
hafsins sem hann framleiddi, leik-
stýrði og skrifaði handrit að. „Ef
þú ert að fiska eftir hvort það búi
eitthvað að baki, að ég skrifi bara
upp á þeirra lyf, þá er það ekki
svo.“
Lýður segir ekkert óeðlilegt
við að lyfjafyrirtæki styrki gerð
myndarinnar. „Þetta var hálfgerð
heilsugæsla að gera þessa mynd.
Það tóku allir þátt í þessu og þetta
var mikil Iyftistöng fyrir andlegt
upplag íbúa hér á svæðinu. Á
þeim forsendum talaði ég við
þetta lyf jafyrirtæki. Þeir voru til-
búnir að láta okkur hafa lítilræði á
þessum forsendum."
„Við getum alls ekki litið svo á
að þetta tengist starfi hans sem
læknis,“ segir Sigurður Guð-
mundsson, landlæknir. „Hann er
kvikmyndagerðarmaður. Kvik-
myndir eru styrktar af ýmsum að-
ilum. Ég myndi ætla að hann og
aðrir sem að myndinni koma láti
styrktaraðila hvorki hafa áhrif á
sína listrænu tjáningu né önnur
störf þeirra. Frá mínum bæjar-
dyrum myndi ég ekki hafa neitt
við svona tengsl að athuga." ■
SANDAFELL l' HAFNARFIRÐI
Vertíðarbáturinn Sandafell ÍS liggur á
hliðinni I Hafnarfjarðahöfn eftir óhapp við
sjósetningu.
Ohapp í slippstöð:
Bátur á
hliðina
óhapp Vertíðarbáturinn Sandafell
IS 82 sem var í viðgerð hjá Ósey í
Hafnarfirði lagðist á hliðina í
flæðarmálinu við slippstöðina
þegar sjósetja átti hann í fyrra-
dag.
Brautin gaf sig undan Sanda-
felli og seig hann því á hliðina.
Sandafell er 111 tonna stálbátur
sem smíðaður var í Póllandi árið
1988. Hann hafði verið í slippnum
i tvo mánuði.
Engin slys urðu á fólki. Óljóst
er með tjón vegna óhappsins.
Bátnum hefur enn ekki verið
komið á réttan kjöl. ■