Fréttablaðið - 02.04.2002, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 2. apríl 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
Bamaspítalinn við Hringbraut:
Ætla að flytja inn í
byrjun nóvember
FRflMKVÆiMD Guðný Sverrisdóttir,
stjórnarformaður Landspítala-Há-
skólasjúkrahúss, segir að gengið
sé út frá því að hægt verði að flyt-
ja barnadeildir inn í nýja barna-
spítalann við Hringraut í byrjun
nóvember nk. Það verði vart degi
of snemma þar sem víðtæk endur-
skipulagning deilda bæði í Foss-
vogi og á Hringbraut byggist á inn-
flutningi barnadeilda í nýju bygg-
inguna. Áætlanirnar hafa tekið
örum breytingum af ýmsum
ástæðum. Guðný segir að meðal
annars hafi timaáætlanir verktak-
ans um framgang verksins brugð-
ist síðasta haust. Nú sé hinsvegar
unnið hratt og örugglega.
„Þetta skiptir miklu máli fyrir
framgang alls tilflutnings deilda á
milli Fossvogs og Hringbrautar.
Það er búið að púsla þessu öllu
saman og aðeins beðið eftir að
rýmin losni,“ segir Guðný. Að
undanförnu hafa meðal annars
hjarta- og krabbameinsdeildirnar
í Fossvogi verið fluttar á Hring-
brautina.
NÝJI BARNASPÍTALINN
Lltlit er fyrir að endurskoðaðar tímaáætlanir standist og flutningur barnadeilda úr aðal-
byggingu Landspítalans og úr Fossvogi geti hafist í byrjun nóvember.
Nýi barnaspítalinn er alls tæp-
lega 7.000 fermetrar að stærð á
fjórum hæðum. Gert er ráð fyrir
sérstökum fyrirlestrarsal í garðin-
um milli spítalans og þeirrar álmu
þar sem kvennadeildin er nú. Fjór-
ar legudeildir verða auk dagdeild-
ar og göngudeildar. ■
Móðir í Kaliforníu:
Eignaðist eineggja fjórbura
HEILSUGÆSLAN SELTJARNARNESI
Nokkrir læknar sem starfa á Seltjarnarnesi líta á úrskurð kjaranefndar sem uppsögn.
Vilja fá tekjuskerðingu bætta:
Heilsugæslulæknar
hóta hópuppsögnum
SACRAMENTO. AP HjÓna-
leysin Ornsee Khamsa
and Verek Muy eignuðust
í liðinni viku fjórar ein-
eggja stúlkur eftir aðeins jj|
30 vikna meðgöngu.
Stúlkurnar voru teknar
með skurðaðgerð sem
tókst vel. Læknar fylgd-
ust vel með stúlkunum
fyrsta sólarhringinn og
töldu ekkert benda til
annars en að þær myndu
dafna.
Það heyrir til tíðinda
að parið naut ekki aðstoð-
ar frjósemislyfja við getnað en fjór-
burafæðingar hafa færst í vöxt með
aukinni notkun slíkra lyfja. Aðeins
munu örfá dæmi vera um eineggja
fjórbura í lifandi minni. ■
PREANA, AUDREANA,
NATALIE OG MELODY
Llkurnar á að fá eineggja fjórbura eru
sagðar einn á móti 11 milljónum. Allar
mun stúlkurnar vera við góða heilsu.
Smur-
stöð
VELALAND'
VÉLASALA > TÚRBÍNUR
VARAHLIJTIR * VIÐGERÐIR
Vagnhöfði 27 • 710 Reykjavík
Sími: S77 4500
velaland@velaland.is
læknar Þórir Kolbeinsson, for-
maður Félags íslenskra heimilis-
lækna, segir að fjölmargir lækn-
ar hvaðanæva af landinu ætli að
segja upp verði þeim ekki að
fullu bætt tekjuskerðing vegna
úrskurðar kjaranefndar frá 13.
mars. Þá úrskurðaði nefndin að
útgáfa vottorða væri hluti af að-
alstarfi heilsugæslulækna og
þeim því óheimilt að innheimta
greiðslur fyrir slíkt. Þórir segir
að í heilsugæslustöðvum á höfuð-
borgarsvæðinu standi málið um
allt að 15% af heildarkjörum.
Tíu heilsugæslulæknar af
Suðurnesjum skrifuðu undir eft-
irfarandi yfirlýsingu: „Við und-
irritaðir teljum að með þessari
einhliða tekjuskerðingu af hálfu
yfirvalda megi líta svo á að ráðn-
ingarsamningi okkar hafi verið
sagt upp og við séum því ekki
samningsbundnir stofnuninni
þegar uppsagnarfrestur okkar
rennur út.“ Þórir segir að svipuð
bréf hafi meðal annars borist frá
læknum sem starfa í Breiðholti,
Kópavogi, Hafnarfirði og á Sel-
tjarnarnesi og Selfossi.
Deilan stendur um vottorð
sem ekki varða almannatrygg-
ingar og félagslega aðstoð. Al-
gengt verð fyrir veikindavottorð
vegna tíma frá vinnu hefur ver-
ið 1.700 krónur. Launþegar hafa
svo að jafnaði átt kröfu á vinnu-
veitanda um endurgreiðslu. Þór-
ir segir brýnt að kjaranefnd
ákveði með hvaða hætti greiðsl-
ur vegna vottorðavinnu komi inn
í venjubundin laun, enda horfi til
vandræða vegna fækkunar
heimilislækna undanfarin ár.
Hann segir að útgáfa vottorða
muni víða sitja á hakanum á
næstunni.
Guðrún Zoega formaður
kjaranefndar sagði í samtali við
blaðið sl. þriðjudag að málið
væri í raun statt hjá læknum.
Áður en nefndin geti ákveðið
hvernig eða að hvaða marki
þeim verði bætt kjaraskerðingin
þurfi að berast ýmis gögn sem
skilgreini mismunandi flokka
vottorða. Hún sagðist vonast eft-
ir niðurstöðu nú í vikunni.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins er það viðhorf ríkjandi hjá
kjaranefnd að aldrei hafi legið
fyrir heimild fyrir lækna til að
ákveða sjálfir greiðslur til sín
vegna vottorða. Þannig krefjist
þeir þess að þeim verði bættar
tekjur sem þeir hafa í gegnum
árin innheimt í heimildarleysi.
Micr
T Ö L V U
dreífing
l
[
Tölvud reifi ng
heldur námstefnu fyrir viðskiptavini
Microsoft
Gerð
mbh@frettabladid.is
á Islandi
fimmtudaginn 11. apríl
á Radisson SAS Hótel Sögu, Sunnusal.
kl: 9.00 til 17.00
Aðgangur ókeypis!
Hvað er efst á baugi hjá Microsoft?
Enterprise Portal" með Microsoft SharePoint Portal Server
Öryggismál - vírusvarnir
Visual Studio .NET
Nánar um dagskrána og skráning á
WWW.td.ÍS. fyrir 8. apríl.
1
1
Tilboð
UTSALA
2.-8. apríl
Laugardag 10-16
Afsláttur 30-50%
Álraimnar
Gull/silfur
24x30 cm á 700
30x40 cm á 900
Tilboð
Smellurammar
40x50 cm á 300
50x60 cm 400
40x50 cm á 1600 i5x20 cm á 100
24x30 svart á 400
Tilboð
Trérammar
Margar stærðir
og gerðir
kr. 200-400
Plaggöt
innrömmuð
Afsláttur 15%
Innrömmun
Speglar
Tilb. rammar
RAMMA
fO.
MIÐSTOÐIN
Síðumúla 34 • 108 Reykjavík
Sími 533 3331 • Fax 533 1633