Fréttablaðið - 04.04.2002, Qupperneq 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KIÖRKASSINN
VILJA HALDA f
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN
Einungis 17% netverja
vilja leggja Þjóðhags-
stofnun niður. Aðrir
vilja halda í hana.
Á að leggja Þjóðhagsstofnun
niður?
Niðurstöður gærdagsins
á vwvw.vísir.is
17%
Nei
œw.
Spurning dagsins í dag:
Munu rauðu strikin halda?
Farðu inn á vísi.is og segðu I
þína skoðun
Kostnaður vegna
sérfræðiþj ónustu:
Skúli fékk
þriðjung í
sinnhlut
reykjavíkurborg Skúli Bjarnason,
stjórnarformaður Strætó bs., fékk
rúmar 19 milljónir króna í sinn hlut
fyrir verkefnavinnu við breytingar
á rekstrarformi og
sölu á tíu borgar-
fyrirtækjum.
Heildarkostnaður
við breytingarnar
og söluna var tæp-
ar 54 milljónir.
Þóknun Skúla við
skúli brey tingarnar
Fékk 19 milljónir í nema því 35% af
sinnhlut. heildarkostnaði.
Sveinn Andri Sveinsson, hrl., fékk
rúmar 6 milljónir fyrir verkefna-
vinnuna og Sigurður Kr. Friðriks-
son, viðskiptafræðingur, rúmar 4
milljónir. I maí 1996 var borgar-
stjóra ásamt tveimur borgarráðs-
mönnum falið að leggja mat á hvaða
ávinning Reykjavíkurborg kynni að
hafa af sölu fyrirtækja borgarinnar.
Þremenningarnir voru fengnir til
aðstoðar við verkefnavinnuna.
Kostnaður vegna vinnu þeirra nem-
ur tæpum 30 milljónum af 54 millj-
óna heildarkostnaði.
Söluverð þeirra fyrirtækja sem
seld voru, þ.e. Húsatryggingar,
Pípugerðar Reykjavíkur og Skýrr,
nam 517 milljónum. ■
—♦—
Segir dagföðurinn sak-
lausan af handleggsbroti:
Var hjá móð-
ur sinni og
ömmu
barnavernd Lögmaður dagföður-
ins, sem dæmdur var í héraðsdómi
fyrir að bana níu mánaða dreng,
segir hann ekki hafa handleggs-
brotið átta mánaða stúlku sem var í
gæslu hjá honum.
Eins og kom fram í Fréttablað-
inu í gær var komið með stúlkuna
til meðferðar á Landspítalanum 13.
febrúar í fyrra. Niðurstaða lækna
var sú að stúlkan hefði brotnað á
framhandlegg 5 til 8 dögum fyrr.
Engar skýringar fundust á hand-
leggsbrotinu þá. Heldur ekki við
lögreglurannsókn sem hófst þrem-
ur og hálfum mánuði síðar.
Sveinn Andri Sveinsson, lög-
maður dagföðurins, segir í fréttatil-
kynningu sem hann sendi frá sér í
gær að niðurstaða lækna hafi verið
sú að stúlkan hafi handleggsbrotn-
að á degi sem hún var ekki í gæslu
hjá dagföðurnum. Þann dag muni
stúlkan hafa verið í umsjá móður
og/eða ömmu sinnar. Ekki náðist í
gær að bera þessa fullyrðingu lög-
mannsins undir rannsóknardeild
lögreglunnar í Kópavogi.
Tekið skal fram að ekki sagði í
frétt Fréttablaðsins í gær að dag-
faðirinn hefði átt sök á handleggs-
broti litlu telpunnar. Fram kom að
löreglurannsókn hefði ekki leitt til
niðurstöðu.
Mál dagföðurins verður tekið
fyrir í Hæstarétti í haust. ■
3.300 fermetrum óráðstafað í Smáralind:
4. apríl 2002 FIIVIMTUPACUR
5.000 fermetrar ekki komnir í notkun
VERSLUN 3.300 fermetrum er óráð-
stafað í verslunarmiðstöðinni
Smáralind, ekki 2.000 fermetrum,
eins og haft var eftir Pálma Krist-
inssyni, framkvæmdastjóra húss-
ins, í gær. Pálmi sagði í samtali
við Fréttablaðið í gær að þegar
hann hefði sagt 2.000 fermetrar,
þá hefði hann ekki tekið með í
reikninginn þá 1.200 fermetra
sem eyrnamerktir eru verslun-
inni Hennes og Mauritz. Hann
hefði áttað sig á því að hann hefði
gefið rangar upplýsingar þegar
hann las fréttina í blaðinu.
Alls eru um 5.000 fermetrar,
sem ætlaðir eru í verslun, ekki
komnir í notkun í Smáralindinni.
Það er um 16,7% af heildarversl-
unarrými. Þar af segir Pálmi búið
að ganga frá leigusamningi á um
1.200 fm plássi við hlið Deben-
hams og um 500 fm plássi hægra
megin við Pennann. Ekki sé þó
hægt að greina frá nafni komandi
vei'slana að svo stöddu. Samning-
ur um leigu á 300 fm plássi á milli
Lukkusmára og Pizza Hut er í yf-
irlestri og hefur ekki verið undir-
ritaður. Samningarnir við H&M
eru ófrágengnir eins og fram hef-
ur komið. Pálmi segir viðræður í
gangi um megnið af rýminu sem
eftir er, að undanskildum þremur
einingum sem alls eru um 600 fer-
metrar. ■
SMÁRALIND
Er 63.000 fermetrar að stærð, þar af eru um 30.000 fermetrar ætlaðar undir verslun.
Mikill verðmunur
er á milli apóteka
Verðkönnun ASÍ leiðir í ljós að verðmunur er á bilinu 16% og upp í 884% í flokki lyfseðils-
skyldra lyQa. Minnsti verðmunur í flokki lausasölulyQa er 27%, mestur 91%.
LYFSEÐILSKYLD LYF, VENJULEGT VERÐ
LYF TEGUND HÆSTA VERÐ LÆGSTA VERÐ MUNUR MEÐALVERÐ
Femanor/töflur 84 stk. Tíðahvörf 2.475/Lauganesap. 2.064/Rimaap. 20% 2.288
Gynera/töflur 63 stk. Getnaðarvörn 1.834/Árbæjarap. 1.467/Nes-og Rimaap. 25% 1.485
Kaavepenin/töflur 20 stk. Sýklalyf l.lOl/Árb.-og Lauganesap. 880/Nes- og Rimaap. 25% 992
Losec MUPS/töflur 28 stk. Magalyf 4.768/Lauganesap. 3.712/Rimaap. 28% 4.203
Rítalín/töflur 30 stk. Ofvirkni 987/Árb.-Laugn-Grafarv 635/Skipholtsap. 55% 877
Ventolin/innúðad. 1 stk. Astml 1,560/Grafarv. 1,338/Árbæjarap. 17o/o 1.408
Zoloft/töflur 28 stk. Þunglyndi 2.786/Lyf- og heilsa 2.395/lðufell 16% 2.545
' '
LYFSEÐILSSKYLD LYF, VERÐ TIL ELLI- OG ÖRORKULÍFEYRISPEGA
1 LYF TEGUND HÆSTA VERÐ LÆGSTA VERÐ MUNUR MEÐALVERÐ j
Atenolol NM Pharma/töflur ÍOO stk. Hár blóðþr. 876/Árbæjarap. 636/Rimaap. 38% 759 1
Daren/töflur ÍOO stk. Hár blóðþr. 2.337/Árbæjarap. 367/Rimaap. 537% 1.065 1
Madopar/lOO stk. Parkison 3.364/Árbæjarap. 343/Rimaap. 881% 1.219 |
LAUSASÖLULYF, VENJULEGT VERÐ
LYF TEGUND HÆSTA VERÐ LÆGSTA VERÐ MUNUR MEÐALVERÐ
Ibufen/töflur 20 stk. Verkir/bólga 260/Grafarvogsap. 158/Ap. Iðufell, Lyfja Smáral 65% 187
Nicorette/tyggig. 210stk. Reykingar 3.758/Laugarn.ap. 2.269/Ap. Iðufell 660/0 2765
Treo/freyðitöflur 20 stk. Verkjastill. 422/ Laugarn. ap 230/Grafarv.ap. 83% 327
Zovir/krem Herpes 917/Laugarn.ap. 624/Lyfja Smáral. 47o/o 767
SKAMMTUR AF PILLUNNI,
VERKIALYFIUM OG NICO-
RETTE F. ÁRIÐ*
Hæsta verð: 26.808
Lægsta verð: 17.601
Munur: 9.207
*miðað við 5 pk. af Nicorette, einn af Treo og
einn af Ibufeni, 4 pk. af pillunni.
SKAMMTUR AF RITALIN I,
SÝKLALYF OG MAGALYFI
F. ÁRIÐ*
Hæsta verð:
Lægsta verð:
Munur:
40.711
28.771
11.940
*miðað við rúmlega 2 töflur af Ritalíni á dag,
2 pk. af sýklalyfi og magalyf í 3 mánuði.
lyf Verðkönnun ASÍ á lyfjaverði á
höfuðborgarsvæðinu leiðir í ljós að
gífurlegur verðmunur er á milli
apóteka. Kannað var verð á 25 lyf-
seðilsskyldum lyfjum, bæði venju-
legt verð og verð til elli- og örörku-
lífeyrisþega. Einnig var kannað
verð á 18 lausasölulyfjum. Dæmi
um verðmun á nokkrum lyfjanna
má sjá í meðfylgjandi töflu.
í flokki lyfseðilsskyldra lyfja
var oftast lægst verð í Rimaapó-
teki, eða 15 sinnum, og Nesapó-
teki, 14 sinnum. Laugarnesapótek
var með hæsta verðið í 17 tilfell-
um af þeim 19 sem apótekið gaf
upp. Munur á milli hæsta og
lægsta verðs var allt frá 16% á
þunglyndislyfinu Zolofti og upp í
107% á bólulyfinu Roaccutan.
Þegar verð á lyfseðilsskyldum
lyfjum til elli- og örorkulífeyris-
þega er skoðað kemur í ljós gífur-
legur munur í sumum tilfellum.
Minnstur var munurinnn á bólgu-
lyfinu Voltaren Rapid, eða 20%.
Mestur verðmunur er á parkison-
lyfinu Madopar eða 884% verð-
munur. Mjög mikill verðmunur
var líka t.d. á þunglyndislyfinu
Zoloft fyrir elli- og örorkulífeyris-
þega, eða 523%, það kostaði 333
kr. í Rimaapóteki, 2.073 í Laugar-
nesapóteki.
í flokki venjulegs verðs lausa-
sölulyfja voru Rimaapótek og Ap-
ótekið Iðufelli með lægsta verðið í
7 tilfellum. Laugarnesapótek með
hæsta verðið í 11 tilfellum.
Minnstur reyndist munurinn vera
30%, á ofnæmistöflunum Loritín,
mestur á Treo eða 83%. Verðmun-
ur var enn meiri fyrir elli- og ör-
orkulífeyrisþega. 27% munaði á
Nicoretti-tyggigúmmi en 91%
verðmunur var á íbúfen-verkja-
töflum. Verð var í flestum tilfell-
um hæst í Laugarnesapóteki og
Grafarvogsapóteki, en lægst í Ár-
bæjarapóteki.
Af 12 apótekum á höfuðborgar-
svæðinu tóku níu þátt í könnun-
inni, Apótekið Iðufelli, Árbæjar-
apótek, Grafarvogsapótek, Laug-
arnesapótek að hluta til, Lyf og
heilsa, Lyfja, Nesapótek, Rimaapó-
tek og Skipholtsapótek. Borgar-
apótek, Hringbrautarapótek og
Garðsapótek neituðu að taka þátt. I
sumum tilfellum veita apótekin
viðskiptavinum sérstakan afslátt,
en ekki var tekið tillit til þess í
könnuninni.
sigridur@frettabladid.is
Prodi segir sáttatilraunir Bandaríkjanna hafa mistekist:
Egyptaland slítur stjórnmálasambandi við Israel
ÍSRAELSKUR HERMAÐUR ÓGNAR LANDA SÍNUM
fsraelskur landamærahermaður ógnar ísraelskum mótmælanda þegar til átaka kom á
leiðinni til Ramallah. ísraelskir friðarsinnar, bæði gyðingar og arabar, reyndu að koma vist-
um til Ramallah en voru stöðvaðir af ísraelska hernum.
BETLEHEM, RAM. BEIRÚT. LÚXEMBORG.
AP Egypsk stjórnvöld skýrðu frá
því í gær að þau hefðu slitið öllum
stjórnmálatengslum við ísrael, að
undanskildum þeim sem gætu orð-
ið málstað Palestínumanna til
framdráttar. í raun hafa tengsl
ríkjanna þó ekki verið mikil, þann-
ig að þessi yfirlýsing hefur eink-
um táknræna merkingu. Þýðing
hennar er þó mikil vegna þess að
auk Egyptalands er Jórdanía eina
arabaríkið sem verið hefur í
stjórnmálasambandi við ísrael.
Romano Prodi, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins, sagði í gær að sáttamiðlunartil-
raunir Bandaríkjanna hafi greini-
lega mistekist. Réttast væri að
Bandaríkin drægju sig til baka og
leyfðu fleiri ríkjum og samtökum
að taka þátt í samningaviðræðum
milli fsraela og Palestínumanna.
Auk Bandaríkjanna þyrfti Evrópu-
sambandið, Sameinuðu þjóðirnar,
Rússland og hófsöm arabaríki að
miðla málum í þessum deilum.
ísraelsher herti enn ( gær að-
gerðir sínar á herteknu svæðun-
um. Ráðist var inn í bæina Jenín og
Salfit á Vesturbakkanum auk þess
sem flóttamannabúðirnar við
Jenín voru umkringdar.
Jasser Arafat er enn í einangr-
un á skrifstofum sínum í Ram-
allah. fsraelsmenn hafa nú girt
bygginguna af með gaddavír.
ísraelsher beitti sér í gær gegn
2.000 ísraelskum friðarsinnum,
bæði gyðingum og aröbum, sem
reyndu að koma vistum til Palest-
ínumanna í Ramallah. ísraelsher
hefur haldið íbúum þar í herkví frá
því á föstudaginn langa. Fólk hefur
ekki komist út úr húsi og margir
eru orðnir matarlitlir eftir margra
daga einangrun.
Á annað hundrað vopnaðra
Palestínumanna leituðu á þriðju-
daginn skjóls í Fæðingarkirkjunni
í Betlehem, sem margir kristnir
menn trúa að sé reist á fæðingar-
stað Jesú Krists. f kirkjunni eru
einnig fjölmargir almennir borg-
arar, þar á meðal héraðsstjórinn í
Betlehem auk munka og presta.
Samningaviðræður voru reyndar í
gær um að Palestínumennirnir
fengju að komast út úr kirkjunni,
sem er umkringd ísraelskum her-
mönnum.
Þá hafa geisað bardagar í tvo
daga milli ísraelskra hermanna og
skæruliða í Líbanon við landamæri
ríkjanna. Þótt ísraelski herinn hafi
farið frá hernámssvæðinu í suður-
hluta Líbanons fyrir tæpum tveim-
ur árum, þá héldu ísraelsmenn eft-
ir smærra svæði sem Líbanir gera
enn tilkall til. Skæruliðar í Líbanon
hófu á ný árásir á ísraelska her-
menn um páskana, í beinu fram-
haldi af hertum aðgerðum ísraels
gegn Palestínumönnum. ■