Fréttablaðið - 04.04.2002, Blaðsíða 22
FRÉTTABLAÐIÐ
SACA DACSINS
4. APRIL
Síðdegis þriðjudaginn 4. apríl
árið 1968 var leiðtogi réttinda-
baráttu þeldökkra Bandaríkja-
manna, séra Mart-
in Luther King,
myrtur í bænum
Memphis í Tenn-
essee. Banamaður
hans er talinn hafa
verið smákrimmi
að nafni James Earl Ray. Hann
hlaut lífstíðarfangelsi.
Hið íslenska prentarafélag var
stofnað 1897. Það er hluti af
Félagi bókagerðarmanna og elsta
verkalýðsfélag landsins.
Ragnar Th. Sigurðsson, ljós-
myndari, og Ari Trausti Guð-
mundsson jarðeðlisfræðingur,
komust á Norðurpólinn kl. 21.24
árið 1995, sennilega fyrstir ís-
lendinga.
TróLirrFRIÉTTUIVl 1
Kærleikar eru litlir milli sjálf-
stæðismannanna Geirs H.
Haarde f jármálaráðherra og
Björns Bjarna-
sonar borgar-
stjóraefnis.
Reyndar segir
sagan að þeir
tveir talist ekki
við. Sambandið
batnaði ekki þeg-
ar Inga Jóna Þórðardóttir, eigin-
kona Geirs, hrökklaðist undan
Birni úr oddvitasætinu út í jaðar
framboðslista Sjálfstæðismanna
fyrir borgarstjórnarkosningarn-
ar. Geir hefur marga fylgismenn
innan Sjálfstæðisflokksins en
hann er varaformaður flokksins.
Hann mun enn ekki hafa virkjað
þessa stuðningsmenn sína í kosn-
ingabaráttunni. Telja sumir að
það muni Geir yfirhöfuð alls ekki
gera. Borgin sé hvort eð er töpuð
flokknum. Því sé um að gera að
draga ekki úr falli helsta keppi-
nautar síns innan flokksins.
Annar angi af óánægju stuðn-
ingsmanna Geirs H. Haarde
með stöðuna innan flokksins birt-
ist í skemmtilegu
aprílgabbi Deigl-
unnar.is. Ritstjór-
inn Borgar Þór
Einarsson, sonur
Ingu Jónu Þórðar-
dóttur og stjúp-
sonur Geirs H.
Haarde, skrifar
þar um að Sjálfstæðisflokkurinn
ætli að láta undan þrýstingi og
opna bókhald sitt almenningi.
„Nokkur titringur mun hafa verið
innan veggja Valhallar vegna
þessa máls undanfarnar vikur en
eftir því sem Deiglan kemst næst
mun ákvörðun um að birta bók-
haldið hafa legið fyrir í nokkurn
tíma. Það flækir hins vegar málið
að Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri flokksins, mun
ekki eiga gott með að vinna á
tölvu og í ljós hefur komið að
bókhald flokksins er meira og
minna allt á svokölluðum „post-
it“ miðurn," segir Deiglan og hef-
ur eftirfarandi eftir heimildar-
manni sínum: „Það má nú eigin-
lega segja að bókhaldið hafi
aldrei verið neitt leyndarmál,
enda hafa allir rekið augun í
þessa blessuðu miða svona við og
við,“ segir heimildarmaður Deigl-
unnar og hann bætir við: „Sú
regla hefur hins vegar alltaf gilt
þarna innandyra að vera ekkert
að hnýsast í þessa miða, ekki síst
af tillitssemi við Kjartan."
Áhugamenn um kremlínólógíu
Sjálfstæðisflokksins lesa þarna
milli línanna pirring hins nýja
Geirs-arms flokksins út í flokks-
forystuna.
osningabaráttu R-listans í
Reykjavíkurborg er stjórnað
af ungu fólki, sem er Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur til ráðuneyt-
is. í þessu ráði sitja Kristrún
Heimisdóttir, heimspekingur, lög-
fræðingur og framkvæmdastjóri
Reykjavíkur akademíunnar,
Björn Ingi Hrafnsson, almanna-
tengslasérfræðingur Framsókn-
arflokksins, og Skúli Helgason.
Öldungurinn í hópnum er gamal-
reyndur pólitískur refur, Einar
Karl Haraldsson, fyrsti ritstjóri
Fréttablaðsins.
22
4. apríl 2002 FIIVIIVITUPAGUR
Hamingjuóskum rignir yfír Caroline
Persónan
Caroline Lefort er frönsk að nesja.
uppruna, 32 ára gömul. Hún er „Það var sameiginleg ákvörðun
okkar að flytja til íslands,
með MBA-gráðu í viðskiptafræði
og vinnur sem ráðgjafi hjá
Maritec á íslandi sem er dóttur-
fyrirtæki Tölvumynda. „Ég er
ofsalega ánægð að vera á íslandi
og er alls ekki á förurn," segir
Caroline.
Caroline var skiptinemi í
Keflavík árið 1987 og tengdist þá
landinu sterkum böndum og einn-
ig fjölskyldunni sem hún dvaldist
hjá. „Ég kalla hjónin sem ég var
skiptinemi hjá pabba og mömmu,"
segir Caroline en hún var hjá
hjónunum, Jóhanni Einvarðssyni
fyrrverandi alþingismanni, og
Guðnýju Gunnarsdóttur og var
nemandi í Fjölbrautaskóla Suður-
segir
Caroline um tildrög þess að hún
og maður hennar fluttu hingað
sumarið 1998. „Hann var líka
áhugamaður um ísland. Við
ákváðum bara að breyta til og
koma hingað."
Laura Sólveig, dóttir Caroline,
er tveggja og hálfs árs og fædd á
íslandi. Caroline segist ala hana
upp sem íslending. „Áður en hún
var tekin frá mér talaði hún bæði
frönsku og íslensku. Nú talar hún
auðvitað bara frönsku en ég held
að hún muni ná aftur íslenskunni
á stuttum tíma,“ segir Caroline,
en Laura Sólveig byrjaði nú í vik-
unni að fara aðeins til dagmömm-
Caroline Lefort kom á mánudaginn til lands-
ins með dóttur sína, Lauru Sólveigu, en faðir
Lauru Sólveigar hafði farið með hana úr
landi þrátt fyrir farbann hennar, í haust
unnar sem hún var hjá í sumar.
„Ég er mjög ánægð að vera hér.
Ég á marga vini og fæ svo mikinn
stuðning frá þeim. Síminn og
tölvupósturinn hefur ekki stoppað
síðan við komum heim á mánu-
daginn. Við fáum stöðugar ham-
ingjuóskir og blóm og allt mögu-
legt.“ ■
CAROLINE LEFORT
Caroline kom hingað sem skiptinemi árið
1987. Þá átti hún heima í Keflavík. Hún
kom aftur til íslands með manni sínum
árið 1998 og segist ekki vera á förum
héðan.
TÍMAMÓT
IARÐARFARIR__________________________
10.30 Ingunn S. Cuðmundsdóttir,
Kópavogsbraut 1A, Kópavogi,
verður jarðsungin frá Kópavogs-
kirkju í dag.
13.30 Ingiríður Guðmundsdóttir, fyrr-
um húsvörður Menntaskólans I
Reykjavík, verður jarðsungin í dag
frá Seljakirkju.
13.30 Kristin Ingibjörg Elíasdóttir, Vest-
urgötu 7, áður Sogavegi 164,
Reykjavík, verður jarðsungin í dag
frá Bústaðakirkju.
13.30 Jón H. Halldórsson, Vesturbergi
105, Reykjavík, verður jarðsunginn
í dag frá Fella- og Hólakirkju.
14.00 Magnús Torfi Sighvatsson frá Ási
í Vestmannaeyjum, Grýtubakka 2,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum í
dag.
15.00 Árni Árnason, fyrrverandi fram-
kvæmdarstjóri á Akureyri, Reykja-
vegi 59, Mosfellsbæ, verður jarð-
sunginn í dag frá Fossvogskirkju.
15.00 Unnur Brynjólfsdóttir, Hrafnistu í
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Áskirkju í dag.
15.00 Ingibergur Friðrik Kristinsson,
Háaleitísbraut 47, Reykjavík, verð-
ur jarðsunginn frá Hafnarfjarðar-
kirkju í dag.
AFMÆLI_________________________
Gyrðir Eliasson rithöfundur er 41 árs í
dag.
STÖÐUVEITINGAR
Hlér Guðjónsson hefur verið ráðinn
upplýsingafulltrúi Alþjóða Rauða kross-
ins. Hlér verður staðsettur í Afganistan
og hefur þegar farið utan.
ANPLÁT_______________________________
Nikólína Jóhannsdóttir, Sólheimagerði í
Skagafirði, lést 24. mars.
Guðrún Árnadóttir, Efri-Ey I í Meðal-
landi, lést 25. mars.
Reynir Kristinsson, Ásvallagötu 39,
Reykjavík, lést 28. mars.
Gunnar Hafsteinn Erlendsson, Kópa-
vogsbraut 87, Kópavogi, lést 28. mars.
STÖÐUVEITINC
Spennandi fyrir
alla fjölskylduna
Atli Hilmarsson tekur viö þjálfun á handknattleiksliði Friesenheim í
sumar. Hann lék handbolta í Þýskalandi í fímm ár á sínum yngri
árum og hefur þjálfaö bæði Fram og KA.
Atli Hilmarsson, sem þjálfað
hefur KA í handknattleik síð-
astliðin fimm á, er á förum til
Ludvigshafen í Þýskalandi til að
þjálfa liðið Friesenheim sem
kennt er við bæjarhluta í
Ludvigshafen. „Ég fór þangað í
heimsókn og leit á aðstæður í
nokkra daga,“ segir Atli þegar
hann er spurður hvort hann
þekki til í Ludvigshafen. Atli lék
handbolta á fjórum stöðum í
Þýskalandi í fimm ár en aldrei á
þeim slóðum sem hann er nú að
fara á. „Þetta leggst mjög vel í
mig. Ég held að þetta sé bara
beint framhald á því sem ég hef
verið að gera. Ég er búinn að
þjálfa í nokkur ár og hef verið
með KA liðið í fimm ár og fannst
kominn tími til að hætta því. Mig
langaði ekki til að þjálfa neitt
annað lið hér á íslandi," segir Atli
sem vill hvergi annars staðar á
íslandi vera en á Akureyri, þrátt
fyrir að vera borinn og barn-
fæddur Reykvíkingur.
Atli er 43 ára gamall. Hann
hóf handknattleiksferil sinn í
Fram en fór til Þýskalands að
spila handbolta strax eftir stúd-
entspróf frá MH. Þar lék hann i
fimm ár og svo í þrjú ár á Spáni.
Þjálfaraferil sinn hóf hann líka
hjá Fram en fór svo til KA fyrir
fimm árum.
Fjölskylda Atla fylgir honum
til Þýskalands, nema elsti sonur-
inn, Arnór, sem leikið hefur með
KA. Hann er í 2. bekk í MA og
stefnir að því að ljúka stúdents-
prófi þaðan. Hildur Arnardóttir,
kona Átla, hefur unnið hjá Sam-
herja. Hún verður heima fyrst
um sinn að sinna börnunum, Þor-
gerði Önnu, 9 ára, og Davíð Erni,
7 ára. „Það verður að hjálpa þeim
í upphafi vegna þess að þau tala
ekki málið og það verður erfitt
fyrir þau að komast inn í þýskan
skóla. Hún tekur sér þann tíma
sem þarf til að koma þeim í gang
á nýjum stað. Síðan hefur hún
hug á að fara í framhaldsnám.
Það er háskóli í Mannheim sem
ATLI HILMARSSON
Atli heldur ásamt fjölskyldu sinni til Þýska-
lands í sumar þar sem hann tekur við
starfi þjálfara Friesenheim.
gæti vel verið að hún færi í ef vel
gengur með krakkana." Atli segir
því flutninginn til Þýskalands
vera spennandi fyrir bæði hjón-
in. „Þetta hefði auðvitað aldrei
verið gert nema allir hefðu verið
til í þetta og litlu krakkarnir eru
mjög spenntir fyrir þessu.“
Atli telur að velgengni íslend-
inga í þýskum handknattleik opni
leið fyrir íslendinga inn í þýska
handboltann. „Ég held að það að
ég skuli fá þetta tækifæri sé
áreiðanlega því að þakka hvað ís-
lendingar eru vel liðnir í Þýska-
landi og hversu vel hefur gengið
hjá Alfreð Gíslasyni og hann hef-
ur áreiðanlega verið spurður
álits áður en mér var boðið starf-
ið.“ ■
Ása Andersen, Víðimel 38, Reykjavík,
lést 29. mars.
Sigurður Árnason, Bólstaðarhlíð 29,
Reykjavík, lést 29. mars.
Herdís M. G. Pálmadóttir, Aðalgötu 11,
Sauðárkróki, lést 29. mars.
Arna Hildur Valsdóttir, Heiðarseli 4,
Reykjavík, lést 30. mars.
Bjöm Gunnarsson, Sæbergi í Glerár-
hverfi, Akureyri, lést 30. mars.
Svanbjörg Magdalena Jósefsson lést
30. mars.
Skúli Jensson, lögfræðingur, Vífilsstöð-
um, lést 31. mars.
Matthías Laxdal Bjömsson frá Felli í
Árneshreppi lést 31. mars.
Halla Sigurjóns, tannlæknir, Víðigrund
59, Kópavogi, lést 31. mars.
Einar Guðbjöm Gunnarsson málara-
meistari, áður til heimilis í Brautarlandi
2, Reykjavlk, lést 31. mars.
Jóhannes Haraldsson, Víðilundi lOa,
Akureyri, lést 31. mars.
Steinunn Gunnarsdóttir frá Grænumýr-
artungu og Saurum, lést 31. mars.
Guðrún Ármannsdóttir, Höfðagrund 9,
Akranesi, lést 1. april.
Björgvin Haraldsson múrarameistari,
Eyjabakka 2, Reykjavík, lést 1. apríl.
Guðjón Ingvarsson fyrrverandi flugum-
ferðarstjóri, Espigerði 4, Reykjavik, lést 1.
april.
Einar Sigurbjörnsson, Lagarási 2, Egils-
stöðum, lést 1. apríl.
Guðmundur Valtýr Guðmundsson frá
Laugabóli lést 2. apríl.
Þórarinn Einarsson, Höfðagrund 7,
Akranesi, lést 2. apríl.
Sonja W.B. de Zorilla er látin.
Tilkynningar sendist á
ritstjorn@frettabladid.is
ÞRÚÐA