Fréttablaðið - 26.04.2002, Qupperneq 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
26. apríl 2002 FÖSTUDACUR
SVONA ERUM VIÐ
Stóriðjuáform Rússa:
Mjög jákvæður
fundur með Halldóri
STÚLKUR
VILJA LÆRA
RÓMÖNSK
TUNGUMÁL
Mun fleiri stúlkur
leggja stund é
frönsku, spænsku
og ftölsku f fram-
haldsskólum
landsins en strákar.
Haustið 2000 lagði
661 piltur stund á
frönsku en 1.742 stúlkur. 260 piltar voru
skráðir í spænsku en 811 stúlkur. Kynja-
munur er mestur í ítölsku. 42 voru skráðir,
þar af 36 stúlkur. Alls stunduðu 3.516
framhaldsskólanemar nám í málunum
þremur í október 2000.
Kynjaskipting í framhaldsskóla-
námi í rómönskum málum:
2.589
KONUR
927
KARLAR
stóriðja Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra fundaði í gær með
rússneskum aðilum í Pétursborg
sem sýnt hafa áhuga á að reisa
hér á landi álverksmiðju með 360
þúsund tonna ársframleiðslu og
súrálsverksmiðju með um 2 millj-
óna tonna framleiðslu á ári. Áætl-
að er að fjárfestingar vegna þess-
ara áforma geti numið samtals um
250 milljörðum króna og skapað
um 2 þúsund störf. Jón Hjaltalín
Magnússon verkfræðingur sem
vinnur að framgangi þessara
mála fyrir Rússa segir að fundui’-
inn með Halldóri hafi verið mjög
jákvæður. í viðræðunum hefðu
Rússarnir kynnt þeirra sjónarmið
í málinu. Hann vildi að öðru leyti
ekki tjá sig frekar um það sem
fram fór á milli þeirra og Hall-
dórs að svo stöddu, enda sé málið
á viðkvæmu stigi.
Jón Hjaltalín Magnússon segir
að þeir sem standa að baki þess-
um í’ússnesku stjóriðjuáformum
hér á landi væru t.d. fyrirtækið
Russian Aluminium. Það sé með
stærri fyrirtækjum á því sviði í
heiminum. Auk þess kemur að
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
Rússarnir virðast vera ánægðir með
fundinn með utanríkisráðherra um
stóriðjuáform þeirra.
þessu annað öflugt rússneskt fyr-
irtæki sem hefur verið umfangs-
mikið í gasi en er að snúa sér að
áli. Þá er rússnesk vísindastofnun
sem hefur sérhæft sig í áltækni
einnig með í þessu. n
Lífeyrissjóðurinn Eining:
Fundar-
gerdir opnar
lífeyrissjóðir Fundargerðir stjórn-
ar Lífeyrissjóðs Einingar standa
sjóðsfélögum opnar. Þetta kom
fram í máli stjórnarformanns
sjóðsins, Harðar Sigurgestssonar,
á aðalfundi síðasta þriðjudag.
Sagði Hörður að þar væri ekkert
að finna sem þyrfti að fara leynt.
Stjórnin mótaði almenna stefnu
sjóðsins en tæki ekki ákvarðanir
um einstakar fjárfestingar.
Þóra Elfa Björnsson, sjóðsfé-
lagi, spurði að þessu á aðalfundin-
um. Sagði Hörður að e.t.v. þyrfti
einhver að útskýra fyrir sjóðsfé-
lögunum hvað í fundargerðunum
stæði. ■
ti. twkuta*-.
D-listi um Línu.Net:
Hlutur Orkuveitunnar vex
borgarmál Af 756 milljóna króna
hlutafjáraukningu Línu.Nets á
síðasta ári lagði Orkuveita
Reykjavíkur til 671 milljón, eða
tæplega 90%. Upplýsingar um
þetta voru lagðar fram í borgar-
stjórn vegna fyrirspurnar Ingu
Jónu Þórðardóttur, oddvita sjálf-
stæðismanna. Hún segir það segja
sína sögu að engir utanaðkomandi
fjárfestar hafi viljað taka þátt.
Með þessum hætti hafi OR hækk-
INGA JÓNA ÞÓRÐARDÓTTIR
Fýsir einnig að vita um ábyrgðir
OR vegna lána Línu.Nets.
að eignarhlut sinn í fyrirtækinu
úr 67% í upphafi ársins 2001 í
75% nú.
Sjálfstæðismenn gagnrýna
einnig kaup Línu.Nets á fyrirtæk-
inu Landsneti í upphafi síðasta
árs. Samkvæmt upplýsingum frá
Línu.Neti var félagið keypt á 90
milljónir króna. Inga Jóna bendir
á að bókfært eigið fé félagsins
hafi skömmu áður verið 9 milljón-
ir.
Flestir borgarfulltrúar R-list-
ans eru þeirrar skoðunar að fjár-
festing í Línu.Neti muni skila arði
til framtíðar. ■
RISA-ÚTSALA
40-60% AFSLATTUR
ALLT A AÐ SELJAST
OPIÐ 10-18 mán.-fös. og 11-16 lau.
Verslunin Palazzi
Faxafeni 9
Slökkviliðið:
Eldur í bílum
bruni Slökkvilið var um eftirmið-
daginn í gær kallað út vegna elds í
fólksbifreið í Mosfellsbæ. Greið-
lega gekk að slökkva eldinn. Á
sama tíma var tilkynnt um að
kviknað hefði í rútu sem var inni á
verkstæði skammt frá. Rútan, sem
er eigu Ævintýraferða, var færð út
af verkstæðinu og eldurinn slökkt-
ur. Eigandi verkstæðisins var
fluttur á slysadeild en talið var að
hann hefði fengið reykeitrun. Mik-
il mildi var að slökkviliðið var statt
í Mosfellsbænum en það tók ein-
ungis um þrjár mínútur að komast
á milli staða. ■
Nýherji:
Samdráttur
í vörusölu
uppgjör Hagnaður af rekstri Ný-
herja nam tæpum 24 milljónum
króna eftir skatta í fyrra. Árið
áður var 3 milljóna króna hagnað-
ur. Hagnaður félagsins fyrir fjár-
magnsgjöld og afskriftir var 51
milljón króna. Rekstrartekjur
námu 1 milljarði króna og lækkuðu
um 7 prósent. Vörusala dróst sam-
an um 12 prósent, en þjónustutekj-
ur jukust um 28 prósent. ■
—+—
Hlutabréfasjóðir:
Talentur tvær
sameinaðar
FÉLÖG Tilkynnt var í gær að stjórn-
ir Islenska hugbúnaðarsjóðsins
hf., Talentu Hátækni og Talentu
Internet ætli að hefja formlegar
viðræður urn sameiningu félag-
anna. í tilkynningunni kom fram
að sameinað verði undir nafni ís-
lenska hugbúnaðarsjóðsins. Kom
fram að þessum viðræðum verði
hraðað og er stefnt að því að nið-
urstöður liggi fyrir í maí. ■
Skuldir hafa margfaldast. Ástæða tapsins er lántaka OR vegna arðgreiðslna til borgarinnar,
segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. Fegrar íjármál borgarinnar, en skýrir tap Orkuveitunnar.
Helgi Hjörvar bendir á að gengistapið hafi þegar gengið til baka.
borgarmál Skuldastaða Orku-
veitu Reykjavíkur versnaði um
1.800 milljónir króna á síðasta ári
vegna 20% gengisfalls krónunnar
gagnvart öðrum gjaldmiðlum.
Þetta er meginskýring 530 millj-
óna króna taps á síðasta ári.
Guðmundur Þóroddsson, for-
stjóri Orkuveitunnar, segir að
gengisáhætta fyrirtækisins hafi
aukist á síðustu árum með aukn-
um skuldum. Orkuveitan skuldar
nú rúmlega 20 milljarða króna
samanborið við 175 milljóna lang-
tímaskuldir árið 1994, á verðlagi
2001.
Sjálfstæðis-
menn færa rök
fyrir því að fyr-
irtækið sé mun
berskjaldaðra
nú en áður
vegna þess að 17
milljarðar króna
hafi verið færðir
úr sjóðum þess
yfir í borgarsjóð
í átta ára valda-
tíð R-listans. Þar
af runnu fjórir
milljarðar í borgarsjóð þegar
Orkuveitan var stofnuð, sem
teknir voru að láni.
„Maður verður að spyrja sig af
hverju skuldirnar hafa aukist
svona mikið,“ segir Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks og stjórnar-
maður í OR. „Staðreyndin er að á
síðustu átta árum hafa verulegir
fjármunir verið færðir úr fyrir-
tækinu til borgarinnar til að
VILHJÁLMUR Þ.
Sakar R-listann um
að blóðmjólka
Orkuveituna.
fegra stöðu borgarsjóðs. Þetta
skýrir tapið.“ Vilhjálmur segir að
þrefalt meira fjármagn hafi verið
tekið út úr fyrirtækinu frá árinu
1994 en þegar D-listi var við
stjórn, síðustu átta ár þar á und-
an.
Helgi Hjörvar, forseti borgar-
stjórnar og borgarfulltrúi
Reylkjavíkurlistans, bendir á að
afkoma Orkuveitunnar hafi snúist
á fyrstu þremur mánuðum þessa
árs þegar hagnaður var 900 millj-
ónir króna. Fyrirtækið sé auk
þess með eina sterkustu eiginfjár-
stöðu allra fyrirtækja í landinu.
Hann segir að
ekki megi ein-
blína á fjár-
magnskostnað.
Helgi segir
arðbærar og
nauðsynlegar
f járfestingar
______________ ásamt hóflegum
HELGi hjörvar arðgreiðslukröf-
Hóflegar argreiðslur um borgarinnar
og arðbærar fjár- liggja til grund-
festingar. vallar mikillar
skuldaaukningar síðustu átta ára.
í valdatíð D-listans hafi peningar
verið teknir út úr veitufyrirtækj-
NÝJAR HÖFUÐSTÖÐVAR
ORKUVEITUNNAR
Kostar 2,4 milljarða og verður tílbúið
I september. Hagnaður OR árið 2001 var
áætlaður 260 milljónir króna en afkoman
reyndist 790 milljónum lakari,
samkvæmt bráðabirgðauppgjöri.
Von er á endurskoðuðu uppgjöri
á mánudag.
unum á annan hátt samanber
kostun Hitaveitunnar á Perlunni-
„Við viljum taka arðgreiðslurnar
og nota þær til uppbyggingar í
borginni, það skýrir muninn."
mbh@frettabladíd.is
Hér byggtr Orkuveita Reyk|avikur
nýjar höfudstödvar. —
* Orkuveui
Reykj[avíkur
Orkuveita Reykjavíkur
tapar 530 milljónum