Fréttablaðið - 26.04.2002, Page 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
26. apríl 2002 FÖSTUDAGUR
HASKOLABIO
HAGATORGl • SIMl 530.1919 * STÆRSTA SÝNIMGARTJAID IANDSINS
Sýnd kl. 5.30,8 og 10.30
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 IHARRY POTTER m/ens.tal , ; kl. 5 i
[mulholland drive kL7og lo[ [BEUTIFUL MIND kTÍÖl
|the mean machine kL 81 IAMELIE kl. 4.45)
i' : - t
SITIHRH^ BÍÚ
SIÖBT
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10
Sýnd kl. 8 og 10.30
Sýnd kl. 7
ROLLERBALL kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 j
[ÍSÖLP m/ens. tal
ÍÍSÖLD m/tsLtal
kl. 2,4 og 6 [
LORD OFTHERINGS
kl. 2, 4og6l lÓVlSSUSÝNING 10.10 og í LÚXUS kl. 10j
□□ Dolby /DD/lSSí Thx SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is
ÁLFABAKKA 8, SÍMI 587 8900 www.samfilm.is
Dúndur
tilboð!
10 tíma 3ja mán.
Ljósakort á 3500 kr.
Nýjar perur
Grænatúni 1 Kópavogi
Sími 554 3799
fyrir.gf'ðhúsgög/i,
Qtuggaog
^klæðnin9ar
MALARINN im
Bæjarlind 2 » Kópavogi • Simi: 581 3500
www.handfrjals.is
)UM FKIBINN l l N,
Snöggtum
kraftur.
KOMAT*SU
zenonH
Limgerðisklippur
d/TIGIV
Vetrarsól ehf - Askallnd 4
201 Kópav. Simi: 564 1864
FRÉTTIR AF FÓLKI
Hinn 17 ára gamli leikari Ro-
bert Iler sem fer með hlut-
verk AJ, sonar Tony í þáttunum
um Soprano fjöl-
skylduna, hefur
játað fyrir rétti
að hafa rænt tvo
ferðamenn í New
York í fyrra. Ef
hann hefði ekki
játað hefði hann
getað átt allt að
15 ára fangelsis-
vist yfir höfði sér. Hann og vinur
hans rændu 40 dollurum af
tveimur unglingum sem höfðu
verið að ráfa upp og niður sömu
götuna. Iler segir allt hafa verið
gert í mesta gríni, þar sem hann
hafi ekki þurft á peningunum að
halda. Það fyrsta sem hann sagði
t.d. við lögregluna þegar hún
handtók hann var: „Hafið engar
áhyggjur af mér, ég er milljóna-
mæringur."
Iskoðanakönnun sem Disney-
fyrirtækið lét gera kom í ljós
að flestum aðdáendum teikni-
mynda þeirra
finnst Toy Story
vera sú besta sem
fyrirtækið hefur
framleitt. í öðru
sæti var Jungle
Book en fram-
haldsmynd Toy
Story var í því
þriðja. Það kom
fyrirtækinu mest á óvart að 7 af
efstu 10 myndunum voru fram-
leiddar á síðustu 10 árum. Buzz
Lightyear var síðan valin vin-
sælasta hetja Disney-myndanna.
Fyrrum fótboltaruddinn Vinnie
Jones sem hefur verið að
reyna fyrir sér í kvikmyndaleik
tók þátt í fótbolta-
leik á dögunum í
Hollywood. Það
fór nú ekki betur
en svo að honum
var vísað af leik-
velli eftir að hafa
verið inn á í 15
sekúndur. Jones
var víst einum of
ákafur í leik sínum og klippti nið-
ur einn andstæðing sinn eins og
honum einum er lagið. Eftir að
hafa fengið að sjá rauða spjaldið
trítlaði kappinn svo hlæjandi af
vellinum.
Boy George neyddist til að
fjarlægja lag poppdrottning-
arinnar Madonnu úr söngleik sín-
um þar sem
breyting á texta
lagsins féll ekki í
kramið hjá henni.
George breytti
texta lagsins
Vouge í; „Ginger
Rogers, Fred
Astaire, that
Madonna, dyes
her hair“. Þetta fannst Madonnu
ekkert fyndið og ákvað því
George að taka lagið úr söngleik
sínum fremur en að breyta text-
anum aftur til baka. Hann varð
hundfúll og sakaði Madonnu um
að vera gjörsamlega geril-
sneydda af húmor.
FRAILTY
Paxton grefur ekki stríðsöxina í myndinni Frailty, heldur flest annað sem hún snertir.
Ljúflingurinn Paxton
I dag frumsýnir Smárabíó kvikmyndina The Frailty. Hún er fyrir þá
sem þrá ekkert heitar en að finna hárin aftan á hnakkanum rísa.
kvikmyndir Leikarinn Bill
Paxton er líklegast þekktastur
fyrir að leika „leiðinlega gaur-
inn“. Það gerir hann þó ekki að
leiðinlegum leikara, þvert á
móti. Hann hefur líka oft verið
undarlega sannfærandi í hlut-
verkum sínum. Man t.d. einhver
eftir honum í hlutverki Chet
Donelly, eldri bróður Wyatts, í
hinni mögnuðu mynd Weird
Science? Persónur hans í mynd-
unum Predator 2, Apollo 13 og
Twister voru ekki mikið
skemmtilegri. Paxton býr yfir
þeim sjaldgæfa hæfileika að
vera ávallt afar trúverðugur í
hlutverkum sínum og hefur liðið
fyrir það í Hollywood, þar sem
hann er yfirleitt ekki ráðinn
nema persóna hans eigi að vera
örlítið leiðinleg.
Kvikmyndin Frailty er enn
ein tilraun leikarans til að
brjóta sig út frá þessari ímynd.
Auk þess að leikstýra myndinni
leikur hann aðalhlutverkið, geð-
sjúkan fjöldamorðingja er kall-
ar sig „Hönd Guðs“. Sem sagt,
mun skemmtilegri og meira
upplífgandi persóna, hmmmm?
Myndin fjallar um tvo unga
bræður í smábæ í Bandaríkjun-
um. Eitt kvöldið eftir að pilt-
arnir eiga að vera farnir að sofa
kemur faðir þeirra inn í svefn-
herbergið. Hann útskýrir fyrir
þeim að Guð almáttugur hafi
lagt það verkefni í hendur sér
að útrýma djöflum sem gangi
um jörðina í mannslíki. Hann
tekur sér því exi í hönd og byrj-
ar að búta fólk, í Guðs nafni.
Við slíkar fréttir renna skiljan-
lega tvær grímur á þá pilta og
taka þeir misjafna afstöðu í
máli föður síns. Yngri bróðir-
inn lítur á föður sinn sem hetju
á meðan sá eldri sér aðeins
voðaverk hans.
Myndin hefst þó mörgum
árum síðar, er eldri bróðirinn
(leikinn af Matthew McConaug-
hey) gengur inn á skrifstofu
FBI (Alríkislögreglunnar) hald-
andi því fram að hann viti hver
morðinginn er. Hann segir lög-
reglumönnunum söguna af föð-
ur sínum og hvernig yngri bróð-
ir hans hafi svo tekið upp exina
eftir föður sinn og haldið verki
hans áfram.
Svo er það alltaf spurningin
um hvað er satt og hverju sé
logið?
biggi@frettabladid.is
Regnboginn sýnir Birthday Girl:
Leyndarmál póst-
kröfubrúðarinnar
kvikmyndir Nýjasta kvikmynd
leikkonunnar Nicole Kidman heitir
Birthday Girl og leikur hún þar
rússneska póstkröfubrúði.
John (Ben Chaplin) býr í smábæ
í Bretlandi og hefur verið óheppinn
í ástarmálum. Hann ákveður því að
panta sér eiginkonu í gegnum Netið.
Þegar Nadia (Nicole) stígur úr flug-
vélinni sér hann að hún er undur-
fögur og það að hún tali litla sem
enga ensku er bætt upp með af-
bragðs frammistöðu í svefnher-
berginu. Þegar frænka Nadiu kem-
ur skyndilega í heimsókn til að
fagna afmæli hennar flækist vesal-
ings maðurinn enn meira í lyga- og
glæpavef brúðar sinnar.
Myndinni er lýst sem drama-
tískri og spaugilegri ástarsögu. Ben
Chaplin segir að með leik sínum í
myndinni hafi hann orðið fagmaður
í því að leika ástarsenur. Nicole hef-
ur víst mikla reynslu í slíku og kipp-
ir sér ekki mikið upp við þær, enda
átt nokkrar velheppnaðar í mynd-
BIRTHDAY GIRL
Póstkröfubrúðurin Nadia er ekki öll þar
sem hún er séð.
unum „Eyes Wide Shut“ og „To Die
For“. Hún tók því það verkefni að
sér að kenna piltinum „réttu tökin“.
Leikstjóri myndarinnar (Jez Butt-
erworth) segist hafa þurft að klippa
meira en helming þeirra úr mynd-
inni og að flestar verði fáanlegar
þegar myndin komi á DVD.
Myndin er sýnd í Regnbogan-
um. ■