Fréttablaðið - 07.05.2002, Síða 6

Fréttablaðið - 07.05.2002, Síða 6
SPURNING DAGSINS FRÉTTABLAÐIÐ 7. maí 2002 ÞRIÐJ UDAGUR ianus Freyr Guðnason nemi í Háskólanum Ertu búinn að gera upp hug þinn varðandi borgarstjórnar- kosningarnar? „Nei, ég er ekki búinn að gera upp hug minn. Ég er óákveðinn." l f i HYDRO IÐNRISINN NORSKI Hydro borgar í mánuðinum um 30 millj- arða íslenskra króna í arð til hluthafa sinna. Fjárfesting í álveri í Reyðarfirði er talin nema um tífaldri arðgreiðslunni. Norsk Hydro AS: 30 millj- arða arð- greiðsla iðnaður Aðalfundur norska iðnris- ans Norsk Hydro hefur samþykkt tillögu framkvæmdaráðs fyrir- tækisins um að greiða hluthöfum arð sem nemur 10 norskum krón- um á hlut. Arðgreiðslan nemur tæpum 2,7 milljörðum norskra króna eða tæpum 30 milljörðum í íslenskum krónum talið. Fjöldi hluta í fyrirtækinu er 266.597.000 samkvæmt upplýsingum Nasdaq. Arðgreiðslan kemur til útborgun- ar 22. maí næstkomandi. ■ — Sólheimar í Grímsnesi: Athugasemd- um skilað fjÁrmál Stjórn Sólheima hefur skil- að inn athugasemdum við drög að skýrslu Ríkisendurskoðunar um fjármál stofnunarinnar. Stjórnin fékk frest til 6. maí til að skila þeim inn. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Ríkisendurskoðunar verður farið yfir athugasemdirnar á næstu dögum, en ekki er ljóst hvenær þetrrt vinnu mun ljúka. Ýmsar brotalamir hafa verið á Jijai iiiaiaoLjui ix ouxxxciiiia i vjxxxxxa- nesi samkvæmt drögum skýrslunn- ar. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins gat stjórnin ekki gert grein fyrir tugum milljóna króna, sem stofnunin fékk frá ríkinu síðustu tvö ár og voru ætlaðir til þjónustu við fatlaða. ■ ERLENT Utanríkisráðherra Bandaríkj- anna staðfesti í gær að Banda- rfkin ætli sér ekki að fullgilda stofnsáttmála Alþjóðlega stríðs- glæpadómstólsins. Clinton undirrit- aði samninginn á síðustu vikum sínum í embætti Bandaríkjafor- seta. Bush hefur aldrei farið dult með andstöðu sína við hann. Sjö ára drengur í Tyrklandi hefur fengið leyfi til að breyta nafni sínu úr Usame í Yusuf. Honum hafði verið strítt á Usame-nafninu, sem er tyrkneska útgáfan af Osama, nafni sádi-arabíska hryðju- verkamannsins sem vakið hefur heimsathygli fyrir ódæðisverk sín. Stækkun Evrópusambandsins til austur: Viðræðurnar komnar á lokasprett esb Evrópusambandið gerir ráð fyrir að tíu ríki í mið- og austur Evrópu fái aðild að sambandinu 1. janúar 2004 og taki þátt í kosn- ingum til Evrópuþingsins um mitt ár 2004. „Viðræður hafa gengið mjög vel að undanförnu," segir Eiríkur Bergmann Einarsson, yfirmaður íslandsdeildar fastanefndar ESB fyrir ísland og Noreg. „Viðræð- urnar fara fram í 31 efnisflokk. Það eru byrjaðar viðræður í öll- um þessum köflum. Langflestum þeirra hefur verið lokið.“ Meðal þeirra efnisflokka sem á eftir að ljúka viðræðum um má nefna landbúnaðarmál og fjárframlög. EIRÍKUR BERGMANN EINARSSON Aðildarríkjum ESB fjölgar úr 15 í 25 1. janúar 2004. Eiríkur mun kynna stöðu samningaviðræðnanna við vænt- anleg aðildarlönd ESB á mál- þingi um samrunaferlið í Evrópu og áhrif þess á íslensk stjórnmál og efnahagsmál á morgun. „Evr- ópusambandið lítur á Island sem eitt af sínum nánustu samstarfs- ríkjum. ísland er hluti af sam- starfi Evrópuríkja gegnum EES- samninginn. Þó við séum ekki að- ilar skiptir samrunaþróun Evr- ópu íslendinga mjög miklu máli.“ Auk Eiríks fjalla ýmsir fræðimenn um áhrif stækkunar ESB á íslensk málefni og Ger- hard Sabathil, sendiherra ESB, flytja ávarp. ■ Sex vikna gæsluvarðhald: Innbrot vegna fíkniefna- neyslu lögregla Maður um tvítugt var úr- skurðaður í sex vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Að sögn lögreglu er um svokallaðað sí- brotagæsluvarðald að ræða, en mað- urinn hefur ítrekað brotist inn í fyrir- tæki á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn hefur stolið tölvum og öðru sem hann hefur getað komið í verð til að fjármagna fíkniefna- neyslu. Lögreglan handtók hann í lok apríl og var hann fyrst úrskurðaður í 10 daga gæsluvarðhald. Ekki er vitað hversu mörgum innbrotum maður- inn tengist. ■ Framboð í uppnámi vegna 11 mínútna Yfirkjörstjórn hafnaði framboðslista bæjarmálafélagsins Hnjúka á Blönduósi. Barst of seint. Segjast fara eftir lögum. Mannréttindi og lýðræði. FRAMBOÐSMÁL Búist er við að fé- lagsmálaráðuneytið svari forustu- mönnum Á-lista í Blönduósbæ í dag, þriðjudag hvort það geti ógilt stjórnsýsluúrskurð yfirkjör- stjórnar Blönduósbæjar og Engi- hlíðarhrepps eða ekki. Talsmenn framboðsins afhentu ráðuneytis- mönnum greinar- gerð sína í málinu í gær. Sem kunn- ugt er þá hafnaði meirihluti yfir- kjörstjórnar fram- boðslistanum vegna þess að hann barst til þeir- ra 11 mínútum of seint sl. laugardag miðað við auglýst- an skilafrest. Þórdís Hjálmars- dóttir bæjarfulltrúi og efsti mað- ur á Á-listanum segir að menn muni einnig skoða það að fara S með málið í flýtimeðferð fyrir 1 Héraðsdómi. Ragnar Ingi Tómas- | son annar af tveimur meirihluta- 2 fulltrúum í yfirkjörstjórn segist | harma þessa niðurstöðu. Það hefði e hins vegar ekki verið hægt að gera annað vegna þess að „lög séu lög,“ eins og hann orðar það. Þórdís Hjálmarsdóttir segir að menn hafi einfaldlega gleymt sér við opnun kosningamiðstöðvar- innar sl. laugardag. Af þeim sök- um hefðu menn komið of seint með listann til yfirkjörstjórnar. Þetta hefði því verið „slys“ sem eigi ekki að bitna á mannréttind- um og lýðræði kjósenda. Hún vill aftur á móti ekki fullyrða hvort ——- Við höfum haft það að leiðarljósi að fara eftir lög- um og reglum og munum gera það . áfram. —+— FORUSTA HNJÚKA. Framtíð kosningabaráttu Á-listans á Blönduósi er í mikilli óvissu vegna ákvörðunar yfirkjörstjórnar. Fulltrúar listans funduðu með fulltrú- um félagsmálaráðuneytisins í gær. Það voru þau Þórdís Hjálmarsdóttir, Valdimar Guðmannsson, Kristján Þorbjörnsson og Gísli Guð- mundsson. einhver pólítík liggi að baki ákvörðun meirihluta yfirkjör- stjórnar vegna þess að þeir eru fulltrúar meirihlutans í bæjar- stjórninni, D og H-lista en Á-list- inn hefur verið í minnihluta. Ragnar Ingi Tómasson segir að þeir hefðu reynt að ná sambandi við Á-listann fyrir hádegi sl. laug- ardag en án árangurs. Hann segir að rökin fyrir ákvörðun þeirra hafi eingöngu verið bundin ákvæðum laga um skilafrest. Hann segir að menn hefðu einnig óttast að fá á sig kærur ef þeir hefðu horft fram hjá þessum 11 mínútum. Þá hefðu þeir einnig haft samband við félagsmálaráðu- neytið og lögfróða menn í þessu máli. Hann bendir einnig á að sá sem kemur á kjörstað t.d. 11 mín- útum eftir lokun fær ekki að kjósa samkvæmt kosningalögum. crhfafrettabladid.is Ráðgjafarbekkir í skóla grunnskóli Þórhildur Líndal umboðsmaður barna hefur ósk- að eftir samstarfi við kennara 10, 11 og 12 ára grunnskóla- barna með það í huga að koma á fót svokölluðum ráðgjafar- bekkjum umboðsmanns. Hug- myndin er að kennarar verði tengiliður á milli bekkjanna og umboðsmanns. Ætlunin er að kennarar sjái um að dreifa spurningarlistum frá umboðs- manni til nemenda. Þessi aðferð er sögð hafa gefst vel á Norður- löndunum til að fá almennar upplýsingar um málefni nem: enda, skoðanir og sjónarmið. í þessum spurningum verður hins vegar ekki spurt um einkamál barnanna. Með þessu gefst um- boðsmanni tækifæri á að öðlast meiri þekkingu á skoðunum T T 1 . X X 1 muvG/oiimuui ouiiiu. ÞÓRHILDUR LfNDAL Segist ekki gera ráð fyrir að fleiri en 100 börn muni taka þátt f þessu. barna og unglinga. Það á síðan að gagnast honum til að vinna að hagsmunum þeirra. Umboðsmaður barna segir væntanleg svör komi frá bekkj- um sem heild. Stefnt sé að hrin- da þessu í framkvæmd á næsta skólaári. Hann mun síðan koma sjónarmiðum barnanna á fram- færi við ráðamenn. Auk þess verður þetta notað í umsögnum og álitum umboðsmannsins. Þórhildur segir að þetta sé líka ein aðferð til að tryggja rétt barna til að láta í ljós skoðanir sínar í samræmi við Barnasátt- mála Sameinuðu þjóðanna. ■ I TN ' * ' xjwxiiaxi x Bandaríkjunum: Vill láta taka nekt- armyndir montesano. ap Dómari í Banda- ríkjunum hefur skipað 35 ára gamalli konu, Dewanna Granbert, að láta taka nektarmyndir af sér. Myndanna er þörf í réttarhöldum á hendur konunni, sem var ákærð fyrir kynferðisbrot gegn fjórtán ára gömlum pilt. Saksóknari máls- ins fór fram á að myndir verði teknar af konunni naktri, vegna þess að þá verði hægt að staðfesta lýsingar piltsins á líkamseinkenn- um hennar. Granberg neitar sök í málinu. Lögmaður hennar segir myndatökur af þessu tagi vera brot gegn persónuhelgi hennar. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.