Fréttablaðið - 07.05.2002, Side 16
FRÉTTABLAÐIÐ
7. maí 2002 ÞRIÐJUDAGUR
Allt að 90% Lagersala
afsláttur
•4^
jMm
oasis
Þriðjudag og
miðvikudag
kl. 18-21.
gengið inn
bakdyrameginn
í Kringlunni
á/almennum)
NICOLE VALA
CARIGLIA OG
ÁRNI HEIMIR
INGÓLFSSON
Árni var sannfærð-
ur um að allir ættu
að geta fengið eitt-
hvað við sitt hæfi
og sem passaði við
skaplyndi hvers og
eins. „Fólk heyrir
allt frá abstrakt
barrok, rosalega
vellandi rómantík
út í alveg hreint yf-
irgengilega drama-
tík.
Tónleikar í Salnum:
Vellandi róm-
antík og yfir-
gengileg
dramatík
tónleikar Nicole Vala Cariglia, selló-
leikari, og Árni Heimir Ingólfsson,
píanóleikari, halda í kvöld kl. 20 tón-
leika í Salnum í Kópavogi. Á efnis-
skrá eru Gömbusónata í D-dúr eftir
J.S. Bach, Arpeggione-sónatan eftir
Franz Schubert, og sellósónata í d-
moll eftir Dmitri Shostakovich.
Verkin spanna ríflega 300 ára sögu
sellósins og forvera þess, gömbunn-
ar, sem var alþekkt hljóðfæri á bar-
rokktímanum, og arpeggiones, sem
átti sér stutta sögu á fyrstu áratug-
um 19. aldarinnar.
Árni segir verkin tvö eftir Bach
og Schubert vandmeðfarin þar sem
ekki sé verið að leika á upprunalegu
hljóðfærin Á tónleikunum verði að
miðla málum og fá annað út úr
hljóðfærunum. „Það verður að setja
sig vel inn í þennan upprunalega
hljóðheim og allar skreytingar, fras-
eríngar og trillur sem eru öðruvísi
en heyrast í seinni tíma tónlist. Verk
Shostakovic er svo eitt magnaðasta
verk sem komist er í tæri við.“
Frá abstrakt barrok, rosalega
vellandi rómantík út í alveg hreint
yfirgengilega dramatík. ■
ismotsmtssmssmíífiíssseímsxsitfifmMiii
HELGA ÓLAFSDÓTTIR
Blindir og sjónskertir og þeir sem af öðrum ástæðum geta ekki fært sér hefðbundið letur í nyt, eiga rétt á að fá lánaðar hljóðbækur
í Blindrabókasafninu. Notendur blindraleturs fá efni við hæfi og eftir þörfum hvers og eins. hljóðbækur og blindraletursbækur. Allt
efni safnsins er framleitt á staðnum.
Tölvutæknin helsta hjálpartæki
blindra og sjónskertra
Blindrabókasafii Islands fagnar 20 ára starfsafinælinu sínu í dag. Helga Olafs-
dóttir hefur gegnt starfi forstöðumanns safiisins írá byrjun.
bókasafn Blindrabókasafn ís-
lands fagnar í dag 20 ára starfs-
afmæli sínu. Starfsemin hefur
eflst ár frá ári og má áætla að
safnið þjóni nú hátt á þriðja þús-
und manns um allt land. Helga
Ólafsdóttir hefur unnið að þróun
safnsins síðan 1976 og er nú for-
stöðumaður þess. Aðspurð um
helstu breytingar segir hún
tölvutæknina tvímælalaust helstu
byltinguna. „Blindrabókasöfn er
mjög tæknileg, ekki síst í fram-
leiðslu á blindraletri. Við erum
með sérsniðið útlánakerfi sem
hjálpar fólki við val á bókurn og
hjálpar bókavörðum við aðstoð-
ina á valinu. Símaþjónusta okkar
er mjög persónuleg sem gefur
fólki tækifæri til að gefa sér
góðan tíma við val hverju sinni.“
Helga segir útgáfustarfsemi
safnsins öfluga, 150 titlar séu
framleiddir ár hver. Vanalegast
sé rokið í jólabækurnar um leið
og þær komi út og innlestri flýtt.
I tilefni afmælisins verður
opið hús í safninu í dag frá kl. 16
til 18. Helga segir nýja hljóð-
bókatækni kynnta, fyrsta sporið
í áttina til stafrænnar upptöku.
„Aðalmunurinn við þessa nýju
tækni er að hægt verður með
auðveldum hætti að fletta upp í
bókunum. Snældurnar eru þan-
nig að líkja mætti við að lesa inn
á klósettpappír, nánast ómögu-
legt er að finna einhvern ákveð-
inn stað aftur. Þessi nýja staf-
ræna tækni á eftir að koma sér
veþekki síst fyrir námsfólk.
í tilefni dagsins verður kynnt
til sögunnar nýr vefur safnsins
www.bbi.is. Hann er sérstaklega
sniðinn að þörfum blindra og
sjónskertra. Við skoðun vefsins
er hægt að velja sér leturstærð
og liti bakgrunns og leturs, en
litir geta skipt sköpum fyrir
sjónskerta. Vefurinn er settur
upp með einföldum hætti til þess
að auðvelda blindum og sjón-
skertum og fólki med dyslexíu
að ferðast um hann. Hann gefur
ítarlegar upplýsingar um þjón-
ustu og bókakost Blindrabóka-
safns.
Helga segir Blindrabókasafn-
ið veita sambærilega þjónustu
og gerist í nágrannalöndum.
„Við erum stöðugt að þróast og
eflast ekki síst með þessari dá-
samlegri tölvutækni sem léttir
heilmikið líf blindra og sjón-
skertra í landinu."
kolbrun@frettabladid.is
ÞRIÐJUDAGURINN
7. MAÍ
FUNPIR_______________________________
11.15 Aðalfundur Samtaka atvinnulífs-
ins verður haldinn í Gullteigi á
Grand hótel Reykjavík, í dag.
Fulltrúaráð SA kemur saman til
stjórnarkjörs kl. 11.00 en venjuleg
aðalfundarstörf hefjast kl. 11.15.
Opin dagskrá aðalfundar hefst kl.
13.00 með ræðu nýkjörins for-
manns SA. Þá ávarpar fundinn
Davíð Oddsson forsætisráðherra
og Arí Edwald, framkvæmdastjóri
SA, kynnir tillögur samtakanna
um breytingar á samkeppnislög-
gjöfinni.
16.00 Aðalfundur Landssamtaka lífeyr-
issjóða verður haldinn í dag á
Hvammi, Grand Hótel Reykjavík.
Fundurinn hefst með ræðu Geirs
H. Haarde, fjármálaráðherra, sem
ber yfirskriftina „Lífeyrissjóðir á
breyttum tímum", en að erindi
ráðherrans loknu hefjast venjuleg
aðalfundarstörf, þar sem m.a.
verður fjallað um starfsskýrslu og
reikninga samtakanna.
FÉLAGSSTARF________________________
13.30 Félag eldri borgara í Hafnarfirði,
Hraunseli, Flatahrauni 3. Brids,
saumur undir leiðsögn og frjáls
handavinna kl. 13.30. Spænsku-
kennsla kl 16.30.
HJÓLREIÐAR______________________
20.00 ísienski fjallahjólaklúbburinn
býður til þriðjudagskvöldferðir í
hverri viku 1 .október. Ferðirnar
eru ætlaðar almenningi til að
kynnast höfuðborgarsvæðinu og
ferðaleiðum fyrir hjólreiðar. Brott-
för er alltaf frá skiptistöð Strætó
b.s. í Mjódd að vestanverðu
klukkan 20.00. i kvöld verður
Kópavogshringurinn farinn sem er
um 13 km.
TÓNLEIKAR_______________________
20.00 Nicole Vala Cariglia, sellóleikari,
og Árni Heimir Ingólfsson, pí-
anóleikari, halda í kvöld tónleika í
Salnum í Kópavogi. Á efnisskrá
eru Gömbusónata í D-dúr eftir J.S.
Bach, Arpeggione-sónatan eftir
Franz Schubert, og sellósónata í
d-moll eftir Dmitri Shostakovich.
KVIKMYNDIR______________________
20.00 Bíó Reykjavik er samvinnuhópur
kvikmyndagerðamanna með það
eitt að markmiði að byggja upp
nýtt samfélag kvikmyndagerða-
fólks á islandi. Allir þeir sem hafa
gert stuttmynd og vilja koma
henni á framfæri fá hana sýnda
hjá Bíó Reykjavík. Bíó Reykjavík
verður alltaf á fyrsta þriðjudegi
hvers mánaðar í húsnæði Leík-
hús Vesturports Vesturgötu 18.
20.00 Filmundur sýnir i kvöld i Háskóla-
bíói hina nýju endurgerð af
Apocalypse Now eftir Francis
Ford Coppola. Með aðalhlutverk
fara Martin Sheen og Marlon
Brando, en með önnur hlutverk
fara Robert Duvall, Laurence Fis-
hburne, Harrison Ford og Dennis
Hopper.
MYNDLIST____________________________
Helgi Þorgiis Friðjónsson sýnir um
þessar mundir í Gallerí Kambi, Hellu,
samansafn teikninga eða mynda sem
unnar eru á pappír með mismunandi
efni frá hinum og þessum tímum. Gall-
eríið er lokað alla miðvikudaga. Sýningin
stendur til 2. júní.
Sigtryggur Bjarni Baidvinsson hefur
opnað sýning á 13 nýjum málverkum í
Englaborg, Flókagötu 17. Sýningin ber
yfirskriftina Treemix-Remix. Sýningin er
opin daglega kl. 14-18 og lýkur 19. maí.
Björk Guðnadóttir hefur sýna fyrstu
einkasýningu á íslandi í galleri@hlem-
mur.is. Á sýningu Bjarkar Heilagar
stundir verða m.a. myndband og
saumverk. Galleríið er opið fimmtudaga
til sunnudags frá kl. 14-18. Sýningunni
lýkur 26. maí.
Rússnesk list - frá raunsæi til
framúrstefnu er yfirskrift sýningar á rúm-
lega 80 verkum eftir 52 heimskunna
listamenn frá um 1880-1930 í
Listasafni fslands Meðal þeirra sem
eiga verk eru Chagall, Kandinskij,
Kúznetsov og Malevitsj. Sýningin sten-