Fréttablaðið - 12.06.2002, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 12.06.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTABLAÐIÐ KJÖRKASSINN 12. júní 2002 MIDVIKUDAGUR Ef hægt er að yfirfæra niðurstöður á Vísi.is á þjóðina alla þá ætla rúmlega 100 þúsund manns að mótmæla komu forseta Kína hingað til lands. Ætlar þú að mótmæla við heimsókn Jiang Zemin? Niðurstöður gærdagsins á wvw.vísir.is Spurning dagsins í dag: Á að leggja Byggðastofnun niður? Farðu inn á vísi.is og segðu þína skoðun _________________ Utanríkisráðherra um viðbrögð við komu Falun Gong: VIÐSKIPTI Oþægilegt að standa í þessu heimsókn „Það er mjög óþægilegt að þurfa að standa í þessu,“ segir Halldór Ásgrímsson, utanríkis- ráðherra, um þá ákvörðun stjórn- valda að meina iðkendum Falun Gong landvist meðan á heimsókn Jiang Zemin, forseta Kína, stend- ur. „Við vorum algjörlega granda- laus um að það myndu koma fleiri hundruð manns hingað til að heimsækja gesti okkar. Það var mat lögreglunnar að hún gæti ekki ábyrgst öryggi gesta okkar ef hingað kæmu fleiri hundruð manns. Við áttum enga kosti aðra en að taka mið af því.“ Halldór mun funda með Zemin ásamt Davíð Oddssyni, forsætis- ráðherra. Aðspurður hvort mann- réttindabrot í Kína verði gagn- rýnd á þeim fundi segir hann um- ræðuefni fundarins ekki liggja fyrir. „Við höfum ekki náð saman, ég og forsætisráðherra. Við mun- um fara yfir fundarefnin þegar forsætisráðherra kemur heim frá útlöndum. Þegar ég var í Kína í haust ræddu ég og utanríkisráð- herrann mjög ítarlega um mann- réttindamál. Sjálfsagt munu mannréttindamál koma til um- ræðu í þessari heimsókn." ■ HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Auka verður löggæslu eða íhuga að hætta að taka á móti opinberum gestum. Síðasta áætlun um hagvöxt á evrusvæðinu gerði ráð fyrir um 0,6 prósenta hagvexti á fjórð- ungnum. Evrópski seðlabankinn mun hins vegar gefa út nýja áætlun um hagvöxt seinna í vik- unni. Evrópski seðlabankastjórinn Wim Duisenberg gaf til kynna í síðustu viku að bankinn hyggð- ist hækka vexti í kjölfar aukins verðbólguþrýstings á evrusvæð- inu. Vestir bankans hafa verið óbreyttir frá nóvember. Næsti vaxtaákvörðunarfundur evrópska seðlabankans er þann 4. júlí en þess er þó ekki vænst að vextir verði hækkaðir fyrr en í september. Borgarbyggð: Broskarl felldi Framsókn suórnmál Jón Sveinsson hæsta- réttarlögmaður hefur ritað fimm síðna kæru vegna vafaatkvæðis sem dæmt var ógilt í sveitar- stjórnarkosningunum í Borgar- byggð. Atkvæðið var merkt Fram- sóknarflokknum en aftast í línu var teiknaður broskarl sem varð til þess að atkvæðið var talið ógilt. Jón Sveinsson telur sig hafa vissu fyrir því að atkvæðið hafi í upp- hafi verið dæmt gilt en þeirri ákvörðun síðan breytt. Kosning- arnar í Borgarbyggð stóðu tæpt og tapaði Framsóknarflokkurinn hlutkesti sem efnt var til vegna þessa eina atkvæðis þar sem broskarlinn kom við sögu. Málið er nú til meðferðar hjá þar til kvaddri þriggja manna nefnd en Jón Sveinsson hefur farið fram á að öll atkvæði verði endurtalin, vafaatkvæði sem og önnur. ■ PYRLA LANDHELGISGÆSLUNNAR Þegar hafa safnast tveir þriðju hlutar þess fjár sem þarf til að kaupa nætursjónauka. Fé safnað fyrir nætur- sjónaukum: Þrír fjórðu hlutar fjár frá einkaaðilum öryggismál 24 milljónir króna hafa safnast til kaupa á nætur- sjónaukum í þyrlur Landhelgis- gæslunnar. Af þeim eru 17 millj- ónir komnar frá einkaaðilum en sjö milljónir frá dómsmálaráðu- neytinu. Heildarkostnaður við aö kaupa sjónaukana og koma fyrir í þyrlum Landhelgisgæslunnar er áætlaður 36 milljónir króna. Stefnt er að því að taka nætur- sjónaukana í notkun næsta haust. Þeir munu verða notaðir við björgun á sjó og landi og auka notkunarmöguleika þyrla Land- helgisgæslunnar til muna. ■ VIÐSKIPTI | Þýsk og bresk fyrirtæki juku framleiðslu sína í apríl. Fram- leiðsla í Þýskalandi jókst um 0,2 prósent en í Bretlandi nam aukn- ingin 1,1 prósenti. Framleiðslu- aukningin þykir gefa til kynna að tvö stærstu hagkerfi Evrópu séu að taka við sér eftir samdráttar- skeið í Evrópu á síðasta ári, segir í fréttum Búnaðarbankans. Hrafn óskar eftir friði og 37 milljónum Hrafn Gunnlaugsson segir framkvæmdir á lóð sinni allar í samræmi við reglur. Hrafn vill 38 milljóna bætur frá borginni vegna tafa við byggingu vinnustofu. Lögmaður vill 12 þúsund krónur á tímann, samtals ríflega 1.300 þúsund krónur vegna aðstoðar við Hrafn. „En hitt er víst að „geníal" hugmyndir verða stund- um til vegna áreitis..." skipulagsmál Hrafn Gunnlaugs- son vísar á bug ásökunum bygg- ingarfulltrúans í Reykjavík um óleyfisframkvæmdir. Hann segir meintar óleyfilegar framkvæmd- ir ýmist ekki á sín- um vegum eða þá að fyrir þeim sé leyfi. Lögmaður Hrafns, Jón Stein- ar Gunnlaugsson, hefur krafist þess að Reykjavíkur- borg greiði Hrafni 36,6 milljónir króna í bætur vegna átta ára tafa sem orðið hafi á því að Hrafn gæti reist vinnustofu við hús sitt. Úr- skurðarnefnd skipulags- og bygg- ingarmála ógilti á dögunum ný- legt deiliskipulag á lóð Hrafns sem ekki gerði ráð fyrir vinnu- stofunni. Jón Steinar segir útlagðan kostnað Hrafns vegna vinnustofu- málsins vera 3 milljónir króna. Að auki hafi hann orðið af 350 þúsund króna tekjum á mánuði sem svari til húsaleigu fyrir sambærilegt húsnæði. Þessi krafa nemur 33,6 milljónum. Sjálfur krefst Jón Steinar að borgin greiði sér 112 vinnustundir á 12 þúsund krónur stundina, sam- tals 1.344 þúsund krónur, vegna þjónustunnar við Hrafn. ítarleg svör Hrafns við ávirð- ingum byggingarfulltrúans voru send 6. maí sl. Hrafn segir m.a. um kjallara LAUGARNESTANGI 65 „Ég vil búa hér í friði við geistleg og veraldleg yfirvöld og vil leggja mig fram um að gera þeim til hæfis og hafa í heiðri ábendingar þeirra," segir Hrafn Gunnlaugsson undir bryggjuverönd að veröndin hafi ekkert breyst frá því hún var samþykkt fyrir fimm árum. Þá hafi bryggjuskáli ofan á verönd- inni verið samþykktur í borgar- ráði í september 2000. Þá segir Hrafn að aðeins hluti umdeildra grjót- og moldarhóla utan lóðarmarka séu þar að hans undirlagi. Suma hólana hafi ná- grannar hans gert. Hann segir jarðveginn og grjótið hafa fallið til vegna vinnu borgarinnar á svæðinu. Verktakinn hafi leitað hjá honum ráða um það hvað ætti að gera við efnið. Hann viti ekki hvort verktakinn hafi síðar rætt málið við yfirvöld. „En hitt er víst að „geníal" hugmyndir verða stundum til vegna áreitis..." segir kvikmyndaleikstjórinn. Hrafn bendir ennfremur á að skipulag geri ekki ráð fyrir af- mörkun lóða í Laugarnesi. „Mér sýnist að allir íbúar hafa skilið þetta svo að lóðarmörk og frjálst land ættu að renna saman,“ segir hann. Að sögn Hrafns ollu fram- kvæmdir á vegum borgarinnar uppþornun á Laugarnesi. Með tjörnum sem hann hafi gert sé reynt að færa hlutina í uppruna- legt horf og koma fuglalífi til bjargar. „Eg vil búa hér í friði við geist- leg og veraldleg yfirvöld og vil leggja mig fram um að gera þeim til hæfis og hafa í heiðri ábending- ar þeirra," segir Hrafn Gunn- laugsson. gar@frettabladid.is Iðnaðarráðherra undrast ummæli Guðjóns Guðmundssonar: Ummælin sérkennileg og koma á óvart bygcðastofnun „Mér finnst þetta allt frekar sérkennilegt. Ummæli Guðjóns Guðmundssonar, vara- formanns stjórnar Byggðastofn- unar, koma mér á óvart en ég tel rétt að hafa ekki mörg orð um þau að sinni. Ég hef ekki hugsað mér að eiga frumkvæði að samtölum við Guðjón um þessi ummæli," sagói Valgerður Sverrisdóttir iðn- aðarráðherra. Valgerður vísar þarna til traustsyfirlýsingar sem Guðjón gaf á störf forstjóra Byggðastofnunar í blaðinu í gær. Valgerður segist ekki túlka álykt- un oddvita framboða í sveitar- stjórn Skagafjarðar sem gagnrýni á sig. „Þeir telja sig hafa ákveðn- um skyldum að gegna gagnvart byggðarlaginu og ég veit að vilji þeirra er góður. Það er hins vegar frekar óvanalegt að þverpólitísk samstaða myndist um að hafa af- skipti af viðkvæmum málum eins og deilan um Byggðastofnun er. Þetta er orðinn ansi harður linút- ur. Hins vegar læt ég ummæli sem fallið hafa, ekki hafa áhrif á þann metnað sem ég hef til þess að leysa deiluna og það fyrir árs- fund Byggðastofnunar á ísafirði 21. júní,“ sagði iðnaðarráðherra. ■ VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR Ætlar ekki að leita eftir skýringum vara- formanns stjórnar Byggðastofnunar. INNLENT Talsvert magn ammoníaks lak út í kælikerfi fiskvinnslunnar íslandssögu á Suðureyri á mánu- dag bæði í fljótandi og loft- kenndu formi. Lokað var fyrir kerfið og slökkviliðsmaður íklæddur eiturefnagalla loftræsti húsið með reykblásurum og spúlaði gólfið. Verkið tók alls þrjá tíma og þurfti að rýma hluta hússins vegna þess mikla fnyks er stóð af ammoníakinu. BB sagði frá. Heilbrigðisnefnd Suðurnesja hefur veitt fyrirtækinu Laugafiski hf. í Innri Njarðvík áminningu fyrir ítrekuð brot á starfsleyfi fyrirtækisins. Fyrir- tækinu er gefinn frestur til úr- bóta til 25. júní næstkomandi eða eiga á hættu að starfsleyfið verði afturkallað. Víkurfréttir skýrðu frá því að íbúar í Innri Njarðvík væru orðnir langþreyttir á mikl- urn óþef sem leggur frá starf- semi fyrirtækisins.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.