Fréttablaðið - 12.06.2002, Blaðsíða 4
4
FRETTABLAÐIÐ
12. júní 2002 lyilÐVIKUDACUR
SVONA ERUM VIÐ
STÆRÐ SKÓLAÁRGANGA
Nemendafjöldi í grunnskólum Reykja-
víkur skólaárið 2001 til 2002
1. bekkur 1.425
2. bekkur 1.502
3. bekkur 1.536
4. bekkur 1.574
5. bekkur 1.521
6. bekkur 1.577
7, bekkur 1.465
8. bekkur 1.484
9. bekkúr 1.362
10. bekkur 1.261
Heimild: Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur
EITT FÓRNARLAMBA KAÞÓLSKU
KIRKJUNNAR
Patrick McSorley er einn þeirra fjölmörgu
manna, sem sakað hafa presta kaþólsku
kirkjunnar í Bandaríkjunum um kynferðis-
brot.
Hneykslismál kaþólsku
kirkjunnar:
Eigendur Heiðarfjalls vilja að ríkislögreglustjóri „upþræti svikamyllu“ stjórnvalda:
Kæra aðmírál og sendiherra
lögreglumál Eigendur Heiðarfjalls
á Langanesi hafa kært bandaríska
aðmírálinn í Keflavík og sendiherra
Bandaríkjanna á íslandi til Ríkis-
lögreglustjóra.
Landeigendurnir vilja að lög-
reglan „uppræti þá svikamyllu sem
viðgengst með því að bandarískum
stjórnvöldum takist að fela sig á bak
við íslensk stjórnvöld með því að
vísa á þau, en íslensk stjórnvöld
sem liður í þessu gangverki, segja á
hinn bóginn að málinu sé lokið af
þeirra hálfu. Menn hafa sagt að
svona framkoma sé landráð," segja
þeir í kærunni.
Landeigendur vilja að Banda-
ríkjamenn fjarlægi spilliefni og úr-
HEIÐARFJALL
Landeigendur óttast mengun frá úrgangi
og spilliefnum Bandarlkjahers á Heiðar-
fjalli.
gang sem skilinn var eftir á Heiðar-
fjalli þegar Bandaríkin lögðu þar
niður radarstöð árið 1970.
„Það er krafa okkar að lögreglan
stuggi tafarlaust við Bandaríkja-
mönnum í þessu máli og sjái til þess
að þeir hirði eignir sínar sem eru til
mikilla vandræða og tjóns á okkar
eign,“ segir í kæru landeigendanna.
Sama mál var kært til lögreglu
árið 1993. Kærunni var þá vísað frá
á þeim grundvelli að meðferð sorps-
ins hefði verið í samræmi við venj-
ur þess tíma. Landeigendurnir segj-
ast hins vegar vera að kæra viðvar-
andi ástand en ekki það hvemig
sorpinu var komið fyrir á sínum
tíma. ■
Hafnarfjörður:
Lúðvík sest í stól
bæjarstjóra
sveitarstjórnir Samfylkingin tók
við stjórnartaumunum í Hafnar-
firði í gær á fyrsta fundur nýrr-
ar bæjarstjórnar eftir kpsning-
arnar í síðasta mánuði. Á fund-
inum voru teknar fyrir tillögur
Samfylkingar um breytingar í
stjórnsýslunni, lækkun fast-
eignagjalda, styrk til íþrótta- og
æskulýðsstarfs 10 ára og yngri
og samanburðarúttekt á fjár-
málum Hafnarfjarðarbæjar.
f dag tekur Lúðvík Geirsson,
oddviti Samfylkingar, við
lyklunun að bæjarskrifstofun-
um úr hendi Magnúsar Gunn-
arssonar, fráfarandi bæjar-
stjóra. ■
Sharon þakklátur
bandaríska þinginu
Þrjátíu Palestínumenn handteknir á Vesturbakkanum. A1 Aksa, herdeildirnar segjast ætla að
hætta árásum innan Israels. Boða fleiri árásir á herteknu svæðunum.
Biskup
segir af sér
bandaríkin Kaþólskur biskup í
Bandaríkjunum, J. Kendrick
Williams í Kentucky, sagði af sér í
gær. Hann er ásakaður um að hafa
níðst á börnum kynferðislega.
Þrjár kærur hafa borist á hann.
Williams er þriðji biskupinn í
Bandaríkjunum sem segir af sér
vegna svipaðra mála, sem skekið
hafa kaþólsku kirkjuna undan-
farna mánuði. Að minnsta kosti
225 kaþólskir prestar hafa sömu-
leiðis annað hvort sagt af sér eða
verið reknir frá því hneykslismál
þessi komust í hámæli í byrjun
ársins. ■
STUTT
Eldur kom upp í íbúðarhúsi í
Vestmannaeyjum í fyrra-
kvöld. Kviknaði í plastmáli á
hellu. Að sögn lögreglunnar var
ekki um mikinn bruna að ræða.
Töluverður reykur kom aftur á
móti upp í húsinu.
Héraðsdómur Vestfjarða
dagmdi tvítugan Vestfirðing
í fangelsi fyrir sðild á Nokia
farsíma og Nikon myndavél.
Munina tók pilturinn á ’véitinga-
staðnum Sjallanitm á ísafirði.
Andvirði þýfisins er samtals
51.790 krónur. H^efileg refsing
fyrir verknaðinn er aö mati Erl-
ings Sigtryggssohar dómstjóra
eins mánaðar fangelsi, skiíorðs-
bundið í tvö ár.
WASHINGTQN Ariel Sharon, for-
sætisráðherra ísraels, þakkaði
bandarískum þingmönnum í gær
stuðninginn, sem þingið og
bandarísk stjórnvöld hafa veitt
ísrael. Á meðan voru ísraelskir
hermenn að athafna sig í Ram-
allah og víðar á Vesturbakkan-
um. Þeir vörpuðu sprengjum,
skutu á hús og handtóku að
minnsta kosti þrjátíu Palestínu-
menn.
Meginmarkmið Sharons með
heimsókn sinni til Bandaríkj-
anna var að sjá til þess, að sjón-
armið ísraelsmanna endurspegl-
uðust í friðartillögum, sem Geor-
ge W. Bush Bandaríkjaforseti
hefur verið með í smíðum. Sér-
staklega vildi Sharon fá fullvissu
þess efnis, að Bush myndi ekki
setja ströng tímamörk eða reyna
að hraða friðarsamningum.
„Við höfum náð því fram, sem
við ætluðum okkur,“ sagði hátt-
settur embættismaður í ísrael
við fréttamann AP-fréttastof-
unnar eftir að Sharon hafði átt
fund með Bush á mánudaginn.
Bu'Sh gagnrýndi einnig
frammistöðu Jassers Arafats,
leiðtoga Palestínumanna. Hins
vegar tók hann undir kröfur
Sharons um að gera þurfi miklar
endurbætur á stjórnstofnunum
Palestínumanna.
í.jær fundust tvö lik Palest-
ínumanna í Hebron á Vestur-
bakkanum. Mennirnir eru taldir
hafa veitt ísraelsmönnum upp-
lýsingar, sem urðu til þess að
ísraelski herínn drap þann 22.
apríl síðastliðinh Marwan Zall-
oun, einn af leiðtogum A1 Áksa
herdeildanna. A1 Aksa, sem eru
samtök tengd Fatah, stjórnmála-
hreyfingu Arafats, lýstu í gær
FISKIBOLLUR
599 kr. kg
Grillpinnar...!
2* kg af kartöflum
fylgja með í.dag
Fiskbúðin Vör, s. 587-5070
Höfðabakka 1
*SÉ VERSLAÐ FYRIR A.M.K 1.000 KR.
SHARON HITTIR BIDEN
Ariel Sharon, forsætisráðherra Israels, með Joseph Biden, leiðtogá meirihlutáns i.ölduhgadeild bandaríska þingsins.
yfir ábyrgð á morðum mannanna
tveggja.
I gær sagði Majid al-Masri,
sem er leiðtogi A1 Aksa á Vestur-
bakkanum, að samtökin myndu
ekki á næstunni gera árásir inn-
landamæra Israels. Áfram
an
megi þö búast við árásum á ísra-
elska landtökumenn og herstöðv-
ar á herteknu svæðunum, þ,e.
Veslurbakkanum og á Gazá-
ströndinni. ■
Vísitala neysluverðs í dag:
verðlag Niðurstaða á mælingu
vísitölu neysluverðs birtíst í
dag. Þetta er fyrsta mælingin
sem birt er eftir að rauða strik-
ið hélt í maí sl.
í fréttum Búnaðarbankans
segir að verðbólgan hafi verið
á hraðri niðurleið síðustu mán-
uði og það sé að miklu léyti til
komið vegna aðhaldsaðgerða í
kringum rauðu strikin og
vegna styrkingar á gengi krón-
unnar. Verðbólga á ársgrund-
velli hefur þannig lækkað nið-
ur í 5,9 prósent frá því aö hafa
numið 9,4 prósent í janúar.
Helstu fjármálafyrirtæki
spá hækkun vísitölunnar að
meðaltali um 0,2 til 0,5 prósent.
Vegur þyngst hækkun bensín-
verðs, en lítrinn hefur hækkað
um 4,8 krónur frá síðustu mæl-
ingu.
Greiningardeild Búnaðar-
bankans spáir 0,4 prósent
hækkun á vísitölunni. Gangi sú
spá eftir er verðbólga síðustu
tólf mánuði um 4,75 prósent. ■
BENSÍNHÆKKANIR
Olíufélögin hafa hækkað bensinverð um
4,8 krónur og vegur það þungt í
vísitölunni.