Fréttablaðið - 12.06.2002, Blaðsíða 13
MIÐVIKUPACUR 12. júní 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
13
George Foreman um
heimsmeistarann:
Lewis er
langbestur
box Evander Holyfield eygir nú von
um að mæta heimsmeistaranum í
þungavigt, Lennox Lewis, í hringn-
um á ný. Lewis varði titla sína sl.
laugardag með því að rota Mike
Tyson í áttundu lotu. Lewis, sem er
36 ára, hefur íhugað að leggja
hanskana á hilluna. Holyfield held-
ur þó í vonina um að hann láti ekki
af því verða svo þeir geti mæst í
þriðja sinn. Hann tapaði fyrir Lew-
is á stigum árið 1999.
„Ef Lennox gefur mér tækifæri
vona ég að við sláumst," sagði
Holyfield.
ROTHÖGG
Lennox Lewis rotaði Mike Tyson í Memp-
his á laugardaginn var.
George Foreman segir að með
sigrinum á laugardaginn hafi Lewis
sýnt og sannað að hann er besti
hnefaleikakappi allra tíma. Forem-
an varð heimsmeistari árið 1973
þegar hann vann Joe Frazier en tap-
aði svo titlinum til Muhammad Ali,
sem hingað til hefur verið talinn sá
allra besti. „Þeir sem segja að Lew-
is sé ekki besti hnefaleikakappi sög-
unnar eru lygarar," sagði Foreman.
„Það hefur engin barist eins og
Lewis gerir.“ ■
Atli Eðvaldsson um Dani:
Eitt besta lið Evrópu
fótbolti Mikil stemmning hefur
verið í Danmörku síðan karla-
landslið þeirra í knattspyrnu vann
heims- og Evrópumeistara Frakka
í gær á heimsmeistaramótinu.
Danir voru með íslendingum í
riðli í undankeppninni fyrir mót-
ið. Danir unnu báða leikina, 1-0
hér heima en 6-0 á Parken í Kaup-
mannahöfn.
„Við þekkjum Danina nú aldeil-
is vel,“ segir Atli Eðvaldsson,
landsliðsþjálfari, hlæjandi. „Það
brostu margir og hristu höfuðið
þegar ég sagði að Danir væru með
eitt besta lið Evrópu í dag. Það
hefur nú aldeilis komið í Ijós. Þeir
eru með frábært lið og það eru fá
lið sem hafa jafn marga tekníska
og hraða leikmenn innanborðs."
Atli segir erfitt að segja til um
hve langt Danirnir eiga eftir að
ná. Liðið mætir Englendingum,
Svíum eða Argentínumönnum í
16-liða úrslitum.
„Eigum við ekki að sega að þeir
mæti Argentínumönnum eða Sví-
um í úrslitum. Það verður hörku-
leikur og erfitt fyrir öll lið.“ ■
ATLI EÐVALDSSON
Atli vonast til að Evrópuþjóð
hampi heimsmeistaratitlinum.
Hann telur samt að Spánn, ítal-
ía og Brasilía séu sigurstrang-
legustu þjóðirnar en eitthvað
lið á eftir að koma á óvart.
Clarence Seedorf:
Frá Inter
tilAC
fótbolti Hollenski miðvallarleik-
maðurinn Clarence Seedorf er
genginn til liðs við AC Milan frá
Inter Milan.
Zeedorf vermdi
varamanna-
bekkinn hjá Int-
er-liðinu nánast
allt síðasta tíma-
bil. Hann fær
lægri laun hjá
nýja liðinu en
fær vonandi að
spila meira.
Hann hefur ver-
ið einn af lykil-
leikmönnum
hollenska landsliðsins. Það náði
þó ekki að tryggja sér sæti í loka-
keppni HM.
Samningurinn gildir til ársins
2005 og verður kynntur á fimmtu-
daginn. ■
CLARENCE
SEEDORF
Fær vonandi að
spila meira með
nýja liðinu.
JUNICHI INAMOTO
Leikmaður Arsenal hefur slegið í gegn á
HM.
Inamoto eftirsóttur:
Eindhoven
sýnir áhuga
fótbolti Hollenska liðið PS^Eind-
hoven hefur lýst yfir áhuga á
japönsku stjörnunni Junichi Ina-
moto, leikmanni Arsenal. Framtíð
piltsins hjá Lundúnaliðinu er
óráðin en hann hefur spilað með
varaliðinu.
Inamoto hefur skorað tvö mörk
fyrir Japani í fyrstu tveimur
leikjum heimsmeistaramótsins.
Hann hefur einnig verið orðaður
við ítalska liðið Atalanta.
„Inamoto hefur verið á óska-
lista okkar í þó nokkurn tíma,“
sagði Frank Arnesen, hjá PSV.
„Við erum með fullan hóp núna en
ef einhver fer munum við reyna
að ná honum.“ ■
MOLAR
Leikur Englendinga við Nígeríu
í dag sker úr um það hvort
hinir fyrrnefndu komist áfram en
þeim nægir jafntefli. Owen
Hargreaves, leikmaður Bayern
Munchen, verður ekki með þeim í
dag vegna meiðsla. Líklega kem-
ur Trevor Sinclair inn í liðið í
hans stað og verður á vinstri
væng, en Paul Scholes með Nicky
Butt á miðjunni.
ASOFUIVL+ STQLUM + MONTANAHll I 1 )M
ERUM AÐ RYMA
FYRIR NÝRRI
SÝNINGU
25-40% aðeins
AFSLÁTTUR 1 J UAbA
Epat hf.
Skeifunni 6
Sími 568 7733
Fax 568 7740
epal@epal.is
www.epal.is
Nanoq Kringlunni - Everest Skeifunni - Garðheimum- Noatúnsbúðunum
stærra, i^gío^ei,
fínna og flottara
Það toppar ekkert “Rolsinn” ígnllum...
■ ■■
Sumir borða til að lifa
- aðrir lifa til að grilla!
Þú færð Sterling hjá:
STERLING
- ergrillið!
f # f
6