Fréttablaðið - 12.06.2002, Blaðsíða 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
12. júní 2002 MIÐVIKUPAGUR
Pele á sjúkrahúsi:
A batavegi
fótbolti Brasilíska knattspyrnu-
goðið Pele er á batavegi eftir að
hafa verið lagður inn á sjúkrahús
í heimalandi
sínu vegna
verkja í
brjósti. Að
sögn lækna er
Pele, sem er
61 árs, á góð-
um batavegi
og ekki talinn
í lífshættu.
Pele lék í fjórum heimsmeist-
aramótum fyrir Brasilíu og sigr-
aði þrisvar; árin 1958, 1962 og
1970. Hann er af mörgum talinn
besti knattspyrnumaður fyrr og
síðar. ■
ÍÞRÓTTIR í DAG
06.10 Stöð 2
HM 2002 (Nígería - England)
0830„Sýn
HM 2002 (Nígeria - England)
08.30 Stöð 2
Leiðin á HM (Road to Asia
2002)
10.30 Sýn
HM-spjalI
11.00 Sýn
Heklusport
11.15 Stöð 2
HM 2002 (Suður-Afríka -
Spánn)
11.20 Sýn
HM 2002 (Slóvenia - Paragvæ)
13.30 Sýn
HM 2002 (Suður-Afríka -
Spánn)
15.05 Stöð 2
íþróttir um allan heim
(Trans World Sport)
15.30 Sýn
HM-spjall
16.00 Syn
HM 2002 (Svíþjóð - Argentína)
18.00 Sýn
HM 2002 (Nígería - England)
Sfmadeild kvenna
20.00 Hásteinsvöllur
ÍBV - FH
1. deild karla
20.00 Hliðarendi
Vaíur - Breiðablik
20.00 Sýn
HM-442
21.00 Sýn
HM 2002 (Leikur dagsins)
| IVIOLAR |
Þótt Suður-Afríku nægi jafntefli
gegn Spáni í dag til að komast í
úrslitakeppnina segir þjálfari
þeirra, Jomo Sono, ekkert annað en
sigur koma til greina. Hann segist
gera sér grein fyrir að það verði
erfitt því að lið Spánar sé mjög
sterkt og hafi úr mörgum góðum
leikmönnum að velja. „Þeir eru
meðal þriggja bestu liðanna í
keppninni, en við förum ákveðnir í
leikinn og fullir sjálftrausts."
E' g vil fá að sjá lið okkar spila al-
mennilega frá fyrstu mínútu,“
segir þjálfari Spánverja, Jose
Antonio Camacho, en liðið hefur
þegar tryggt sér sæti í úrslita-
keppninni. Fyrir leikinn gegn S-
Afríku í dag sagði hann menn sína
ekki geta gefið andstæðingunum
15 mínútur í upphafi leiks þegar í
útsláttakeppnina er komið, þó svo
þetta hafi bjargast í riðlakeppn-
inni. „Andstæðingarnir geta unnið
okkur á þeim tíma.“
Heimsmeistaramótið:
Ekki bara knattspyrna
fótbolti Þúsundir manna hafa
fagnað sigrum landsliða sinna á
heimsmeistaramótinu í knatt-
spyrnu. Fagnaðarlætin eru ekki
bara í og við leikvangana. í Dak-
ar, höfuðborg Senegal, söfnuðust
tugir þúsunda manna saman á
götum úti og sungu sigursöngva
eftir að landslið þeirra lagði það
franska að velli í opnunarleik
mótsins. Sigurinn var nefnilega
ekki bara á knattspyrnuvellinum.
Senegal var áður nýlenda undir
stjórn Frakka. Þjóðarstoltið
sprakk út.
Leikur Bandaríkjanna og Suð-
ur-Kóreu snerist ekki bara um
fótbolta heldur samskipti þjóð-
anna til margra ára. Á landamær-
um Suður- og Norður-Kóreu eru
þúsundir bandarískra hermanna
sem gæta hlutlauss svæðis.
Spennan á milli hermanna og ná-
lægra íbúa var mikil fyrir leik.
Bandaríski sendiherrann í Suður-
Kóreu lét hafa eftir sér í blaða-
viðtali að hann óskaði þess að
heimamenn sigruðu í leiknum
svo friður gæti haldist. Leikurinn
endaði með jafntefli, 1-1.
Rúmlega hundrað knatt-
spyrnubullum frá Englandi var
meinað að koma til Suður-Kóreu
og Japans af ótta um að slagsmál
brytust út.
Útsendingar frá heimsmeist-
aramótinu hafa verið bannaðar í
Rússlandi í kjölfar óláta eftir að
landsliðið tapaði fyrir Japan.
Tveir létu lífið í kjölfar ólátanna
og að minnsta kosti 30 slösuðust.
Keppnin er bara hálfnuð. Ótt-
ast er að frekari ólæti eigi eftir
að brjótast út. Gestgjafarnir eru
þó bjartsýnir og vona að fólk
hvaðanæva úr heiminum eigi
eftir að sameinst um skemmtun-
ina. ■
tsmmtmsanittmtmmissstmsisissaiMsei
Gestgjafarnir gætu
farið alla leið
Fjórir leikir fara fram í þriðju umferð riðlakeppninnar á HM. Arnór Guðjohnsen spáir
Englendingum og Svíum í 16-liða úrslit. Hann telur að Suður-Afríka eigi eftir að fylgja
Spánverjum. Suður-Kórea er með frábært lið, segir Arnór.
B RIÐILL
fótbolti „Mér líst þokkalega á
keppnina en ég hef ekki séð neitt
lið sem er alveg brilejant. Þetta er
samt ágætis keppni,“ segir Arnór
Guðjohnsen, fyrrverandi lands-
liðsmaður í knattspyrnu. Hann
segir það ekki hafa komið á óvart
að Frakkar séu dottnir
úr leik, lið gestgjafanna
í Suður-Kóreu hafi hins
vegar komið á óvart.
„Mér finnst Suður-
Kórea hafa sýnt alhliða
getu; þeir sýna góðan
styrkleika, spila hraðan
bolta, góðar sendingar,
vinnusemi og skipu-
lagningu. Ég er mjög
hrifin af þeirra leik.
Það kæmi mér ekki á
óvart þó þeir færu
langt, þess vegna alla
leið ef heppnin er með þeim.“
Þriðja og síðasta umferð F- og
B-riðils verður leikin í dag. Eng-
lendingar mæta Nígeríu, en síðar-
nefnda þjóðin er þegar úr leik.
„Nígeríumenn hafa verið mjög
LIÐ L STIG
Spánn 2 6
Suður Afríka 2 4
Paragvæ 2 1
Slóvenía 2 0
F RIÐILL
LIÐ L STIG
Svíþjöð 2 4
Engiand 2 4
Argentína 2 3
Nígería 2 0
slakir á flestan máta. Englending-
arnir voru góðir á móti Argentínu,
það besta sem maður hefur séð til
þeirra í langan tíma. Ég tel að
Englendingarnir vinni 2-0.“
Svíar mæta Argentínumönnum
einnig í F-riðli. „Ég hef alltaf sagt
að þegar skandinavísk-
ar þjóðir fara í svona
stórkeppni má bóka að
þær ná því besta út úr
sér. Það er svo spurn-
ing hvað þær ná langt á
því,“ segir Arnór, sem
spilaði á sínum tíma
með Hácken og Örebro
í Svíþjóð. „Þeir spila
sterkan og agaðan
varnarleik en beita
hættulegum skyndi-
sóknum."
Svíum nægir jafn-
tefli og segir Arnór jafnteflisfnyk
vera af leiknum. Hann spáir því
að bæði lið skori eitt mark. Fari
svo að Englendingar sigri og Sví-
ar geri jafntefli komast bæði lið
upp en Árgentína verður eftir.
í ÚRSLIT
Englendingum nægir jafntefli gegn Nígeríu
til að komast áfram.
Spánverjar hafa þegar tryggt-
sæti sitt í 16-liða úrslitum. Þeir
mæta Suður-Afríku í B-riðli klukk-
an hálf tólf. Suður-Afríku nægir
jafntefli til að komast áfram. Arn-
ór segir erfitt að spá fyrir um leik-
inn. Spánverjar eru þegar komnir
áfram og svo gæti farið að þeir
ARNÓR GUÐJOHNSEN
Telur að Suður-Kórea geti farið alla leið,
með smá heppni.
hvíli lykilleikmenn. „Það er samt
til mikils að vinna og ég tel að
Spánverjar vinni leikinn.“
Paragvæ og Slóvenar mætast í
hinum leik riðilsins og telur Arnór
að fyrrnefnda þjóðin sigri með
tveimur mörkum gegn einu.
kristjan@frettabladid.is
16-liða úrslit heims-
meistarakeppninnar:
Línur
farnar að
skýrast
fótbolti Línurnar eru farnar að
skýrast um hvaða lið mætast í 16-
liða úrslitum. Þjóðverjar mæta lið-
inu sem lendir í 2. sæti B-riðils.
Líklega verða^ það Suður-Afríka
eða Paragvæ. írland mætir sigur-
16-LIPA URSLIT
Þýskaland - 2. sæti B-riðils
Danmörk - 2. sæti F-riðils
Senegal - Sigurvegari F-riðils
írland - Sigutvegari B-riðils
Sigurvegari G-riðils - 2. sæti D-riðils
Sigurvegari C-riðils - 2. sæti H-riðils
Sigurvegari H-riðils - 2. sæti C-riðils
Sigurvegari D-riðils - 2. sæti G-riðils
vegurunum, væntanlega Spánverj-
um. Senegal mætir sigurvegurum
úr F-riðli. Þar stendur baráttan á
milli Svíþjóðar, Argentínu og Eng-
lands. Danir mæta liðinu sem lend-
ir í 2. sæti F-riðils.
Erfitt er að spá um hverjir
mætast í öðrum viðureignum. Allir
riðlar eru galopnir og baráttan í al-
gleymi. ■
Danir skelltu heims- og Evrópumeistumnum:
Frakkar sendir heim
hornsófar
stakir sófar
stólar
hvíidarstólar
svefnsófar
veggeiningar
borðstofuhúsgögn og fl
HM stóllinn
I Höfðatúni 12 105 Reykjavík Slmi 552 5757
www.serhusgögn.is
fótbolti Iíeims- og Evrópumeistar-
ar Frakka eru úr leik á heims-
meistaramótinu í knattspyrnu í
Japan og Suður-Kóreu. Frakkar
töpuðu í gær fyrir Dönum með
tveimur mörkum gegn engu. Þeir
hefðu þurft að vinna leikinn með
tveimur mörkum til að eiga mögu-
leika á að komast áfram. Frakk-
land lenti í neðsta sæti A-riðils,
með eitt stig, og skoraði ekki mark.
Dennis Rommedahl og Jon Dahl
Tomasson skoruðu mörk Dana.
Danir enduðu í efsta sæti riðilsins,
með sjö stig. Þeir mæta liðinu sem
endar í öðru sæti í F-riðli, dauða-
riðlinum, í 16-liða úrslitum.
Senegalar tryggðu sér einnig
sæti í úrslitum með því að gera
jafntefli við Úrúgvæja. Þetta var
einhver fjörugasti, sveiflukennd-
asti og grófasti leikur sem sést
hefur á heimsmeistaramóti.
Senegalar komust í 3-0 í fyrri hálf-
leik. Úrúgvæjar jöfnuðu metin, en
þar við sat. Tólf leikmenn voru
bókaðir. Senegalar mæta efsta lið-
inu úr F-riðli. Úrúgvæjar eru úr
leik.
Þjóðverjar tryggðu sér efsta
sæti E-riðils með því að sigra
Kamerúna með tveimur mörkum
gegn engu. Þjóðverjar misstu
Carsten Ramelov af velli á 40. mín-
útu en tíu mínútum síðar skoraði
Marco Bode fyrsta mark leiksins.
„ I T
0t 1
5t
BÚIÐ SPIL
Einmanna franskur áhorfandi eftir leikinn
við Dani. Frakkar eru úr leik á heimsmeist-
aramótinu.
Kamerúnar misstu mann út af þeg-
ar tæpar 15 mínútur voru eftir af
leiknum. Markahrókurinn
Miroslav Klose skoraði síðan sig-
urmarkið og tryggði sætið í 16-liða
úrslitum. írar mættu Sádí-Arabíu.
Robbie Keane kom írum yfir strax
á 7. mínútu. Gary Breen og
Damien Duff skoruðu síðan tvö
mörk og tryggðu írum annað sætið
í riðlinum. Kamerúnar sitja eftir.
Þjóðverjar mæta liðinu sem
lendir í öðru sæti B-riðils, væntan-
lega Suður-Afríku eða Paragvæj-
um. írar mæta líklega sigurvegur-
um sama riðils, væntanlega Spán-
verjum.
Mikið kapp hljóp í leikmenn í
gær enda mikið í húfi. í leikjunum
fjórum voru gefin 25 spjöld og tvö
rauð. Carsten Ramelov, hjá Þýska-
landi, fer sjálfkrafa í bann og miss-
ir því af 16-liða úrslitunum. ■