Fréttablaðið - 12.06.2002, Page 6
SPURNING DAGSINS
Hver er uppáhaldsveitinga-
staðurinn þinn?
Ég held mest upp á Ítalíu og fer oftast
þangað. En besti maturinn er samt hjá
mömmu.
Tinna Hauksdóttir * náms- og knattspyrnumaður
ÓSKAR ÞÓR-
MUNDSSON
Dómsmála-
Dómsmálaráðuneytið:
Sendum fólk-
ið heim sem
fyrst
HEIMSÓKN Liðsmenn Falun Gong-
hreyfingarinnar verða sendir
heim eins fljótt og auðið er, segir
Stefán Eiríksson,
skrifstofustjóri
dómsmála- og lög-
gæsluskrifstofu
dómsmálaráðuneyt-
isins. Hann sagði
ekki ljóst hve lengi
þyrfti að halda fólk-
inu í Njarðvíkur-
skóla og sagði ekki
víst að allir sem von
ráðuneytl segir var jj ( gær og ( dag
tilmæli hans til ðu sencjjr ( sk61_
frettamanna
umaðræða ann, sumum yrði
ekki við fólkið hugsanlega bara
vera eðlileg og haldið í Flugstöðinni
byggja á ósk og sendir beint til
baka.
Fréttamönnum
var ekki hleypt inn í
Leifsstöð í gær og þegar fyrstu
Falun Gong-liðar voru að koma í
Njarðvíkurskóla beindi lögreglan
þeim tilmælum til þeirra að tala
ekki við fólkið.
„Þetta eru eðlileg tilmæli sem
við gáfum vegna þess að sumt af
þessu fólki óskaði sérstaklega eft-
ir því að verða ekki auðkennt,"
sagði Stefán í gær. Hann sagði
enn vera von á mörgum liðsmönn-
um Falun Gong og sagði laga-
heimildir til að vísa þeim úr landi
mjög skýrar. ■
þess um að
„verða ekki
auðkennt."
Opinberar heimsóknir:
Vigdís bauð
Zemin árið
1995
heimsókn Heimsókn Jiangs Zem-
ins, forseta Kína, á rætur sínar að
rekja til opinberrar heimsóknar
Vigdísar Finnbogadóttuir, þáver-
andi forseta íslands,
! til Kína árið 1995.
Sverrir Haukur
i Gunnlaugsson, ráðu-
1 neytisstjóri í utanrík-
isráðuneytinu, segir
ákvörðun um að bjóða
I þjóðarleiðtogum til
landsins tekna af for-
seta íslands og ríkis-
stjórn. Boðin séu yfir-
leitt gagnkvæm,
þannig að þegar for-
seta íslands sé boðið í
opinbera heimsókn, þá
bjóði hann eðlilega viðkomandi
þjóðhöfðingja á móti. Þetta sé lið-
ur í eðlilegum samskiptum, menn-
ingarlegum og viðskiptalegum. ■
I HEIMSÓKN |
VIGDÍS
Heimsókn
hennar til
Kína á sín-
um tíma var
nokkuð um-
deild.
Bann íslenskra stjórnvalda við
inngöngu liðsmanna Falun
Gong í landið byggir á 10. grein
laga um eftirlit peð útlendingum
frá árinu 1965. í henni segir með-
al annars að meina megi útlend-
ingi landgöngu ef ætla megi „að
hann sé kominn hingað til starfa
eða athafna, sem eru ólöglegar,
ósæmilegar eða hættulegar hags-
munum ríkis eða almennings ...“.
FRÉTTABLAÐIÐ
12. júní 2002 MIÐVIKUPAGUR
Logreglan á Keflavíkurflugvelli í pattstöðu:
Fólkið vildi
ekki úr landi
heimsókn Tæplega 70 félagsmenn
Falun Gong voru í haldi lögregl-
unnar í Keflavík síðdegis í gær. 26
komu með flugvél frá Boston um
morguninn. Þar var um ríkisborg-
ara frá Kína, Ástralíu, Kanada og
Bandaríkjunum að ræða. Sá hópur
var fluttur í Njarðvíkurskóla. Um
40 manns komu síðan með Kaup-
mannahafnarvélinni sem lenti um
tólf á hádegi. Þar voru á ferð rík-
isborgarar Tævan. Þeim var hald-
ið í Leifsstöð.
Ætlunin var að senda hópinn
strax til baka, eða eins fljótt og
sætarými leyfði. Enginn vildi hins
vegar láta snúa sér til baka og
sagði Óskar Þórmundsson, yfir-
lögregluþjónn á Keflavíkurflug-
velli, því hálfgerða pattstöðu hafa
komið upp.
„Það er ekki um annað að ræða
en að beita fólk valdi eða láta það
vera,“ sagði hann og sagði ekki
VIÐ LEIFSSTÖÐ
Tæplega 40 tævanskir félagar í Falung Gong komu til landsins með þessari flugvél I gær.
hafa komið til greina að velja
fyrrnefnda kostinn. Hann sagði
lögreglu framfylgja skipunum ut-
anríkis- og dómsmálaráðuneytis-
ins og átti von á því að fulltrúar
þeirra væru að funda um málið til
að finna á því lausn.
Óskar sagði hugsanlega örfáa
félagsmenn hafa komið með síð-
degisvélunum og hann átti von á
fleirum í dag, einkum frá Frank-
furt. Hann sagði þó ómögulegt að
segja til um hversu margir kæmu
alls, en íslensk stjórnvöld sögöu
von á hundruð manna í mótmæl-
Islensk stjórnvöld
hafa verið heilaþvegin
26 félagsmenn Falun Gong voru fluttir í Njarðvíkurskóla í gær. Þeir
undrast samskipti íslenskra stjórnvalda og kínverskra sem þeir segja
dreifa óhróðri um hreyfinguna. Allir fengu bréf frá dómsmálaráðuneyti
þar sem þeim var ráðlagt að hætta við ferðina.
heimsókn „Við vonumst til þess
að gott fólk um allan heim stígi á
stokk og mótmæli meðferð leið-
toga Kína á Falun Gong,“ sagði
Shean Lin, vísindamaður sem var
í hópi 25 liðsmanna Falun Gong
sem komu frá Boston í gærmorg-
un.
Fólkinu, sem flutt var frá
Leifsstöð í Njarðvíkurskóla um
hádegisbil í gær, misbauð fram-
ganga íslenskra stjórnvalda í
þess garð. Hópurinn var fluttur í
rútu til Njarðvíkurskóla eftir yf-
irheyrslu lög-
T,~4" reglu. í skólanum
„Við erum hafði matsalurinn
hissa á sam- Verið innsiglaður
starfi íslenskra af lögreglunni og
stjórnvalda við gerðar ráðstafan-
harðstjórn (r til að loka fé-
Kína." lagsmenn Falun
—4— Gong inni.
Þegar rútan
var að renna í hlað falaðist Óskar
Þórmundsson, yfirlögregluþjónn
á Keflavíkurflugvelli, eftir því að
ekki yrði rætt við fóíkið, en lög-
reglan gerði þó ekkert til að
reyna að koma í veg fyrir að
fréttamenn ræddu við Falun
Gong-fólkið, sem þusti til frétta-
manna um leið og dyr rútunnar
höfðu verið opnaðar.
„Við erum mjög undrandi [á
ákvörðun íslenskra stjórnvalda],
okkur hefur alls staðar verið vel
tekið. Við höfum tekið þátt í mót-
mælum í Genf og víðar og þau
hafa öll farið friðsamlega fram,“
sagði Lin.
Honun hafði eins og öllum far-
þegum flugvélarinnar frá Boston
verið afhent bréf fra dómsmála-
VIÐ NJARÐVÍKURSKÓLA
Ráðstafanir íslenskra stjómvalda er ekki ætlað að hefta tjáningarfrelsi eða að koma í veg
fyrir friðsamleg mótmæli segir í bréfi sem allir farþegar vélarinnar frá Boston fengu afhent
og þótti liðsmönnum Falung Gong nokkur mótsögn í því.
ráðuneytinu þar sem sagt er að
líklegt sé að mótmæli sem hundr-
uð erlendra mótmælenda ætli sér
að taka þátt í muni fara úr þönd-
unum og valda almenningi hættu.
Því megi farþegar sem ætla sér
að mótmæla komu Kínaforseta til
landsins eiga von á að verða ekki
hleypt inn í landið. Farþegar vél-
anna urðu allir að skrifa undir
bréfið, áður en þeir gengu um
borð.
Hvorki Lin né aðrir sem
Fréttablaðið ræddi við áttu von á
hundruð manna til landsins og
sögðu íslensk stjórnvöld vera
auðtrúa í garð kínverskra.
„Þau hafa verið heilaþvegin,“
sagði Lin. Honum kom einnig á
óvart að algerlega virtist farið
eftir útliti þegar farþegar voru
stöðvaðir í landamæraeftirlitinu,
allir sem litu út fyrir að vera kín-
verskir hefðu verið stöðvaðir.
Hvorki hann né Giordon Kwok
Wah Yu, sjúkraþjálfari, kvörtuðu
þó yfir meðferð lögreglu, sögðu
hana hafa komið vel fram.
Giordon sagðist bæði hissa og
leiður yfir því að lenda í þessu á
landi þar sem tjáningarfrelsi
ætti að ríkja. „Við erum hissa á
samstarfi íslenskra stjórnvalda
við harðstjórn Kína sem brýtur
mannréttindi á Falun Gong,“
sagði Lin. ■
Forseti Kína:
Komst til metorða í
kjölfar ijöldamorða
heimsókn Jiang Zemin, forseti
Kína, var kallaöur tiltölulega
óþekktur til starfa aðalritara kín-
verska kommúnistaflokksins árið
1989. Ástæðan var veiklyndi þá-
verandi aðalritara flokkksins,
Zhao Ziyang, í garð mótmæla
stúdenta á Torgi hins himneska
friðar. Mótmælin enduðu sem
kunnugt er í fjöidamorðum. Deng
Xiaoping, þáverandi forseti,
hreinsaði til í flokksforystunni og
það gagnaðist Zemin. Valið kom
nokkuö á óvart á sínum tíma.
Zemin náði hins vegar aó tryggja
sig vel í sessi á þeim átta árum
sem liðu þangað til Deng Xiaoping
lést, og varð arftaki hans.
Hann tilheyrir „þriðju kyn-
slóð“ leiðtoga í Kína, er hlynntur
efnahagslegum umbótum, en
íhaldssamur að öðru leyti. Þegar
hann var kallaður til af Xiaoping
gegndi hann embætti borgar-
stjóra í Sjanghæ. Sumum borgar-
búum þótti hann atkvæðalítill og
kölluðu hann „blómapottinn" sem
er kínverskt hugtak yfir yfir-
borðsmennsku. Stjórnmálaskýr-
endur segja það þó berlega van-
mat á manninum.
Zemin er fæddur árið 1926 í
borginni Yangzhou. Hann gekk í
enskan skóla, lauk námi í verk-
fræði og vann bæði í Rússlandi og
Rúmeníu á unga aldri. Tungu-
málakunnátta hans er því með
ágætum og hann þykir heims-
borgaralegri en margur kínversk-
ur leiðtoginn. Zemin vakti heims-
JIANG ZEMIN
Mannréttindabrot kínverskra stjórnvalda
hafa verið harðlega gagnrýnd. Meðferð á
pólitiskum föngum er meðal þess sem
mannréttindafrömuðir vilja fá bætt úr auk
þess sem þeir hafa gagnrýnt hömlur á
tjáningarfrelsi og lýðræði.
athygli þegar hann tók Elvis-slag-
arinn Love Me Tender í karoókeí
eftir kvöldmat með Fidel Ramos,
forseta Filippseyja, árið 1996. ■
Skólastjóri Njarðvíkurskóla:
Gat ekki
annað en
samþykkt að
lána skólann
heimsókn „Vissulega hefði ég getað
sagt nei, en ég held bara að þá hefðu
aðrir mér æðri tekið af skarið og
sagt að við gerum þetta samt,“ sagði
Gylfi Guðmundsson, skólastjóri
Njarðvíkurskóla.
Hann var staddur við
skólann til að fylgjast
með hópnum sem
fluttur var í skólann
um hádegi.
Starfsmenn sýslu-
mannsins á Keflavík-
urflugvelli höfðu
samband við Gylfa í
fyrradag og föluöust
eftir húsnæði skólans
fyrir Falun Gong.
Hann hafði í fram-
haldinu samband við
Ellert Eiríksson, bæj-
arstjóra í Reykjanes-
bæ, og gáfu þeir sam-
þykki sitt.
„Eg lít á þetta sem gistiheimili,"
sagði Gylfi, spurður hvort að sér
þætti ekki óviðkunnanlegt að hafa
fólk í haldi í skólanum. Hann sagðist
búast við því að allt færi vel og ró-
lega fram, enda sýndist honum
þetta vera afar elskulegt fólk á ferö.
Stór og mikill salur skólans sem
þægilegt er við að eiga sagði Gylfi
telja vera helstu ástæðu þess að
Njarðvíkurskóli hefði verið valinn
fyrir hópinn. Jafnvel væri hægt að
nota salinn til gistingar og einnig
væri mötuneyti á staðnum. „Ráðu-
neytið sendir allan mat en starfs-
fólk okkar afgreiðir hann til fólks-
ins.“ ■
GYLFI GUÐ-
MUNDSSON
Starfsmenn
sýslumannsins
á Keflavíkur-
flugvelli höfðu
samband við
hann og föluð-
ust eftir skól-
Ungliðar:
Mótmæla
aðgerðum
stjórnvalda
HEIMSÓKN Ákvörðun íslenskra
stjórnvalda að meina félagsmönn-
um Falun Gong um landvist á ís-
landi var mótmælt í gær af ungliða-
hreyfingum Sjálfstæðisflokksins,
Framsóknarflokksins og Samfylk-
ingarinnar.
Mannréttindabrotum kínverskra
stjórnvalda er og harðlega mótmælt
í yfirlýsingu sem Heimdailur, Sam-
band ungra framsóknarmanna og
Ungir jafnaðarmenn sendu frá sér.
I henni segir meðal annars að
það sé „óskiljanleg afstaða af hálfu
íslenskra stjórnvalda að bjóða heim
leiðtoga ríkis sem virðir mannrétt-
indi þegna sinna að engu, ásamt
vopnuðu fylgdarliði hans, en vísa úr
landi friðsömu fólki sem hingað er
komið í þeim eina tilgangi að taka
þátt í friðsamlegum mótmælaað-
gerðum gegn mannréttindabrot-
um.“ Félögin hyggjast efna til mót-
mæla gegn Zemin á laugardag en
vegna þess aö dagskrá heimsóknar-
innar hefur ekki verið gefin út er
ekki ljóst hvar mótmælin veröa.
Þau verða skipulögð á opnum fundi
í Húsi málarans í kvöld. ■