Fréttablaðið - 12.06.2002, Síða 7
MIÐVIKUPAGUR 12. júní 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
7
Náttúruleikskólinn Krakkakot á Álftanesi:
I leikskóla með
hænsnum og froskum
leikskólar A náttúruleikskólanum
Krakkakoti á Álftanesi leika dýrin
jafnt á við börnin og taka stóran
þátt í uppeldi þeirra. „Tdgangur-
inn er að börnin læri að bera virð-
ingu fyrir dýrunum og geri sér
grein fyrir að þau eru lifandi ver-
ur,“ segir Erla Thomsen leikskóla-
stjóri. Á leikskólanum eru heimil-
isföst nokkur hænsn, tveir hanar,
kanínur, naggrís, páfagaukar og
froskur svo fátt eitt sé nefnt. Erla
segir börnin finna sig í að annast
dýrin og meðal annars sjá þau um
að moka og þrífa hænsnahúsið og
tína eggin. „Þau hafa afskaplega
gaman af að umgangast dýrin og
upplifa samfara því bæði gleði og
mikla sorg þegar eitthvert þeirra
deyr.“
Erla velkist ekki í vafa um að
þessi þáttur í uppeldi barnanna
komi þeim til góða í framtíðinni og
segir að foreldrar séu afar
ánægðir með dýraríkið á staðnum.
„Sumir hafa spurt hvort ekki hafi
gætt ofnæmis hjá börnunum en
sannarlega ég hef ekki orðið þess
vör. Það er eitthvert lán yfir okkur.
Barnalæknar hafa nefnt það við
mig í gríni hvort við gætum ekki
tekið nýfædd börn. Menn eru
nefnilega sannfærðir um að öll
þessi ofnæmistilfelli megi rekja til
þess hve steril við erum orðin. Því
fyrr sem börn komast í kynni við
GUÐNÝ GUÐJÓNSDÓTTIR
Guðný er fædd og uppalin í Reykjavík. I dag er hún 86 ára gömul og segist einungis hafa búið á tveimur stöðum alla sína ævi.
Dauðlangar ofan
í heitu pottcina
Mikil veðurblíða var í höfuðborgarinni í gær og fór hitinn upp í 22 stig.
Margir lögðu leið sína í Nauthólsvík og nutu sólar. Guðný Guðjónsdótt-
ir var ein þeirra en tæp sextíu ár voru liðin síðan hún steig síðast fæti í
fólk Reykvíkingar fengu heldur
betur gott veður í gær og mældist
hitinn 22 stig um þrjúleytið. Mikil
stemmning myndaðist í Nauthóls-
vík sem án efa hefur fest sig í
sessi meðal höfuðborgarbúa sem
eftirsótt útivistarsvæði. Ungir
sem aldnir nutu sólar og fengu sér
sundsprett í sjónum. Blaðamaður
lagði leið sína í Nauthólsvík í gær
og rakst þar á Guðnýju Guðjóns-
dóttur, 86 ára gamlan Reykvíking.
I spjalli við Guðnýju kom í ljós að
hún hafði ekki stigið fæti í Naut-
hólsvík í tæp sextíu ár þegar henni
var boðið að koma með kunningja-
konu sinni í gær. Henni fannst um-
Nauthólsvík.
hverfið hafa mikið breyst og leist
vel á það sem hún sá og vitnaði.
„Ég kom oft hingað sem ung stúl-
ka. Þá var ekkert hér nema sand-
urinn og hann var svartur en ekki
gulur eins og hann er núna.“ Guð-
ný var sannfærð um að hún myndi
koma aftur ef tækifæri byðist og
bætti því við að hana dauðlangaði
að fara ofan í heitu pottana.
Nauthólsvíkin á sér langa sögu.
Á vefsíðu ÍTR kemur fram að fólk
hafi byrjaði að leita nokkru fyrir
seinni heimsstyrjöld í víkina.
Einkum var staðurinn nafntogað-
ur á 6. áratugnum. Sjóböð lögðust
hins vegar af um miðjan sjöunda
áratuginn vegna skólpmengunar í
Fossvogi. í sárabætur fengu
Reykvíkingar afnot af „heita
læknum" þar sem yfirfallsvatn
frá hitaveitugeymnum á Öskjuhlíð
rann í Fossvoginn. Reynslan af
heita læknum var hins vegar ekki
góð. í fjölmiðlum frá þessum tíma
var margoft skýrt frá drukknu
fólki sem baðaði sig í læknum eft-
ir að dansleikjum lauk og leiddi
það athæfi oft til slysa. Lögreglan
í Reykjavík mæltist því til þess að
Hitaveitan hætti að veita heitu
vatni í lækinn. Nú er öldin önnur.
kolbrun@frettabladid.is
Umsókn um stöðu lektors í fornleifafræðum:
Alit dómnefndar
annmörkum háð
fólk Álit dómnefndar á umsækj-
endum um stöðu lektors í forn-
leifafræði við heimspekideild Há-
skóla íslands var haldið ýmsum
annmörkum að mati stöðunefndar
sem fjallaði um málið. Þá greindi
hlutdrægni í umfjöllun nefndar-
innar. Fjórir sóttu um stöðuna.
Dómnefnd mat fornleifafræðing-
ana dr. Margréti Hermanns-Auð-
ardóttur og dr. Orra Vésteinsson
hæf til stöðunnar. Þau dr. Bjarni F.
Einarsson og Steinunn Kristjáns-
dóttir voru metin óhæf. Sérstaka
athygli vakti umsögn nefndarinn-
ar um þau Bjarna og Steinunni.
Sagði þar „að það lýsi skorti á
sjálfsgagnrýni og nánast dóm-
greindarleysi að halda að svo
hroðvirknislegt og ófullburða
verk geti orðið til framdráttar um-
sókn um starf í háskóla" um það að
Steinunn lagði fram ófullgert
handrit að doktorsritgerð sinni. Þá
fá verk Bjarna neikvæða dóma og
hann sakaður um ábyrgðarleysi,
að hafa farið illa með almannafé
við rannsóknarstörf í Kolgrafar-
firði. Málið verður tekið fyrir á
deildarfundi í næstu viku. ■
HÁSKÓLI ÍSLANDS
Hlutdrægni gætti í umfjöllun dómnefndar
um stöðu lektors I fomleifafræði.
KRAKKAKOT
Þar upplifa börnin bæði gleði og sorgir í félagsskap dýranna.
dýrin og náttúruna því betra.“
Starfið á leikskólanum er ekki
rakið til neinnar sérstakrar stefnu
en að sögn Erlu má helst segja að
sótt sé í smiðju Waldorfskólans.
„Leikir barnanna eru frjálsir og
þau fara mikið í búleiki, dúkkuleiki
og viðgerðir. Við erum með gömul
tæki sem þau fá að leika sér með
s.s. gömul útvörp, tölvur og annað
dót sem þau geta skrúfað og lagað
að vild,“ segir Erla. ■
EFTIRLAUNASJÓÐUR
SLÁTURFÉLAGS SUÐURLANDS
Fosshálsi 1,110 Reykjavík
Sími: 575-6000. Fax: 575-6090
EFTIRLAUNASJÓÐUR SLÁTURFÉLAGS SUÐURLANDS
Boðað er til ársfundar Eftirlaunasjóðs Sláturfélags Suðurlands.
Fundurinn verður haldinn á Fosshálsi 1,3. hæð,
fimmtudaginn 27. júní n.k. kl. 17.00.
Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa í stjórn sjóðsins.
2. Skýrsla stjórnar.
3. Kynning ársreiknings, tryggingafræðilegrar
úttektar og fjárfestingastefnu.
4. Önnur mál.
Stjórnin.
002!^"
akki
gildir í júní 2002
I tilefni af sýningunni “Sumarhúsið og
garðurinn” í íþróttamiðstöðinni að Varmá
Mosfellsbæ bjóðum við eftirfarandi
tilboðspakka í sumarbústaðinn:
TCÍIGI
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 564 1088 • Fax: 5641089 • tengi.
IFÖ Calypso sturtuklefi ásamt stálbotni 80x80 °
V)
Moracera hitastillt sturtutæki |
o
IFÖ CERA salerni með setu og einföldu skoli
IFÖ CERA vegghandlaug 57x44
Morajunior blöndunartæki fyrir handlaug m. lyftit.
Intra eldhúsvaskur úr stáli, 1 hólf með borði
Morajunior eldhúsblöndunartæki