Fréttablaðið - 12.06.2002, Síða 11

Fréttablaðið - 12.06.2002, Síða 11
MIÐVIKUPAGUR 12. júni 2002 FRÉTTABLAÐIÐ 11 Harma bann við einka- dansi: Brýtur gegn stjórnarskrá stjórnmál Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík segja ákvörðun borgar- yfirvalda um að banna einkadansa til marks um að verið sé að refsa einstaklingum og fyrirtækjum vegna gróusagna og vafasamra vís- bendinga. Ungir jafnaðarmenn harma þessa ákvörðun borgaryfir- valda og segja bannið klárlega brjóta gegn stjórnarskrárákvæð- um um rétt manna til vinnu. Ungir jafnaðarmenn taka þó skýrt fram að með þessu sé félagið ekki að leggja blessun sína yfir vændi eða hvetja til þess að það sé stundað. ■ SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR Situr fundinn fyrir hönd íslands. Samstarfsráðherrar Norðurlanda: Ræða hindranir á flutningum samstarf Samstarfsráðherrar Norðurlanda funda í Tromsö í Noregi í dag. Helsta mál fundar- ins eru viðbrögð Norrænu ráð- herranefndarinnar við nýlegri skýrslu um réttindi Norðurlanda- búa. Sú skýrsla leiðir í ljós að ýmsar hindranir eru í vegi þeirra sem flytja milli Norðurlanda þrátt fyrir að samstarf ríkjanna eigi að tryggja Norðurlanda ferða- og flutningafrelsi. Á fundinum munu ráðherrarn- ir einnig ræða nýja rammaáætlun fyrir starfsemi Norrænu ráð- herranefndarinnar um málefni Eystrasaltsríkjanna og grann- svæða í Rússlandi auk mótunar umhverfisvísa. ■ ERLENT Indverjar hófu í gær að sigla herskipum sínum frá Pakist- an. Þau hafa verið í viðbragðs- stöðu skammt út frá ströndum Pakistan. Heldur hefur dregið úr spennu milli ríkjanna síðustu daga. Æðsta ráðið í Afganistan kom saman í gær, degi eft- ir að til stóð. Fulltrúarnir 1.550, sem koma hvaðanæva frá land- inu, leggja mikla áherslu á að sýna samstöðu. Stungið var upp á að Hamid Karzai, leiðtogi nú- verandi bráðabirgðastjórnar, verði áfram leiðtogi næstu átján mánuðina. Mafíuforinginn John Gotti lést á mánudaginn á fang- elsissjúkrahúsi í Springfield í Bandaríkjunum. Þar hafði hann dvalist í fangelsi í tíu ár. Hann var með krabbamein í hálsi. Fjórir af hverjum fimm Bandaríkjamönnum segjast glaðir vilja gefa frelsið upp á bátinn í skiptum fyrir öryggi. Tveir af hverjum fimm óttast að verða fyrir árás hryðju- verkamanna. Meira en 70 pró- sent eru fylgjandi því að banda- rískir ríkisborgarar gangi með nafnskírteini með fingraförum sínum. Samvörður 2002: Æfa samhæfingu björgunarstarfa HERCULES flutningaþyrlur Keikó var fluttur í einni slíkri en nú mun hún þjóna sem flutningavél við æfingar Samvarð- ar 2002. æfing Alls munu 550 íslendingar taka þátt í almannavarnaræfing- unni Samvörður 2002 sem verður haldin á íslandi 24 til 30 júní næst- komandi. Æfingin er hluti af al- þjóðlegu öryggis- og varnarmála- samstarfi Atlantshafsbandalags- ins. Hafsteinn Hafsteinsson, for- stjóri Landhelgisgæslunnar, verð- ur framkvæmdastjóri æfingar- innar. Landhelgisgæslan hefur skipulagt ferlið í samvinnu við Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli. Um það bil 500 erlendir þátt- takendur verða við æfingarnar. Meðal annars mun þyrlubjörgun- arsveit Bandaríkjahers taka þátt og stórar flutningaþyrlur. Markmiðið með æfingunni er að styrkja og samhæfa aðgerðir herja og borgaralega aðildarríkja NATO á sviði friðargæslu og björgunarstarfa, meðal annars í tengslum við náttúruhamfarir. Fjöldi sjálfboðaliða frá deild- um Rauða krossins og Slysavarn- arfélaginu Landsbjörgu taka þátt og leggja björgunarsveitir til bíla, báta, leitarhunda og fleira. ■ Lögregla finnur falsaða seðla: Fjórir menn í haldi lögreglu peningafölsun Lögreglan hefur fjóra menn, á aldrinum 19-23 ára, í haldi grunaða um að hafa komið fölsuðum 5.000 króna peninga- seðlum, sem fundist hafa á höfuð- borgarsvæðinu að undanförnu, í umferð. Þrír mannanna hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til föstudags. Við húsleit í Kópavogi í gær fannst tölvubúnaður, sem grunur leikur á að hafi verið notaður til að falsa peningaseðlana. Fyrsti maðurinn var handtekinn síðasta föstudag, tveir aðfaranótt mánu- dags og einn í fyrrakvöld. ■ Hversu vel fylgist þú meö. Þú missir ekki af neinu á Útvarpi Sögu 94,3 Utvc fréttir • si Ingvi Hrafn Jónsson á Hrafnaþingi. Skemmtilegar og fræöandi fréttaskýringar í hádeginu. Traustar fréttir á heila tímanum allan daginn. UTVARP SAGA 94,3 FRETTIR, SPJALL OG SPORT

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.