Fréttablaðið - 21.06.2002, Qupperneq 2
KJÖRKASSINN
90% netverja segja
úrslit á HM hafa
komið sér á óvart
Hafa úrslit leikja á HM komið
þér á óvart?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
lifij
189%
11%
Spurning dagsins í dag:
Er réttlætanlegt að fsraelar herði tök sín
i Palestínu?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þína skoðun
CUÐRÚN CfSLADÓTTIR SEKKUR
Norskir björgunarmenn náðu myndum af
því þegar íslenska milljarðaskipið sökk í
fyrradag.
Utgerð Guðrúnar
Gísladóttir í vanda:
Tafír á til-
lögum um
mengunar-
varnir
skipsskaði Síðdegis í gær höfðu
norskum mengunarvarnaryfir-
völdum engar áætlanir borist frá
útgerð fjölveiðiskipsins Guðrúnar
Gísladóttur KE-15 um það hvern-
ig hindra eigi mengun frá skipinu
þar sem það liggur á sokkið við
Noregsstrendur. Frestur hafði
verið gefin til hádegis. Von var á
áætlun útgerðarinnar seinna um
kvöldið.
Útgerðin, Festi hf. í Grindavík,
mun hins vegar hafa lofað að dæla
olíunni úr skipinu og koma þannig
í veg fyrir hugsanlegt mengunar-
slys. Yfir 300 tonn af dísilolíu eru
í skipinu auk nokkurra tonna af
smurolíu. Norsk yfirvöld meta
mengunarhættuna ekki sem
mikla.
Örn Erlingsson, annar eiganda
útgerðar Guðrúnar Gísladóttur,
vísaði því á bug í gær fullyrðing-
um skipstjórnanda björgunar-
skips um að skipstjóri fjölveiði-
skipsins hefði tekið rangar
ákvarðanir varðandi björgun þess
eftir að það steytti á skeri. Örn
sagði björgunaraðgerðir hafa ver-
ið í samvinnu við og undir stjórn
norskubjörgunaraðilanna.
Sjópróf vegna óhappsins fara
fram í dag. ■
I ERLENT I
T Terkalýðsfélög á Spáni fóru í
V gær í sólarhrings verkfall til
að mótmæla fyrirhuguðum breyt-
ingum stjórnvalda á greiðslu at-
vinnuleysisbóta. 11,3% Spánverja
eru atvinnulaus, sem er hæsta
hlutfall atvinnulausra á meðal
þeirra þjóða sem eru aðilar að
Evrópusambandinu.
Hæstiréttur í Bandaríkjunum
hefur úrskurðað að aftökur
andlegra vanheilla einstaklinga
samræmast ekki stjórnarskrá
landsins. Árið 1989 úrskurðaði
hæstiréttur að slíkar aftökur
væru löglegar. 20 ríki í Banda-
ríkjunum hafa fram að þessu
leyft slíkar aftökur.
FRÉTTABLAÐIÐ
Orðsending
Vegna sumarleyfa starfsmanna
verður hlé á laugardagsút-
gáfu Fréttablaðsins fram yfir
verslunarmannahelgi.
FRÉTTABLAÐIÐ
21. júní 2002 FÖSTUPAGUR
Vændi til framfærslu leyft en einkadans bannaður:
Vilja að lögum um klám
og vændi verði breytt
úttekt Einkadans verður bannað-
ur og tilskilin fjarlægð verður að
vera milli dansara og gesta á nekt-
ardansstöðum ef tillögur nefndar
á vegum dóms- og kirkjumálaráð-
herra um úrbætur vegna kláms og
vændis ná fram að ganga.
Nefndin leggur til að talsverð-
ar breytingar verði gerðar á lög-
um um klám og vændi. Lagt er til
að ekki verði lengur refsivert að
stunda vændi í framfærsluskyni.
Hins vegar verði tekin upp
ákvæði þess efnis að refsivert
verði að bjóða kynlífsþjónustu til
sölu á almannafæri. Við því liggi
sektir. Klám yrði flokkað í tvennt
samkvæmt tillögum nefndarinn-
ar. Annars vegar gróft klám,
barna-, dýra- og ofbeldisfullt
klám, sem verði bannað. Hins
vegar klám af vægara tagi sem
verði ekki lengur bannað að
dreifa og birta. Þó verði sett þau
mörk að það megi ekki sýna þar
sem börn eða aðrir einstaklingar
kæra sig ekki um.
Tillaga er gerð um að allt að 12
ára fangelsi liggi við því að ein-
staklingur 18 ára eða eldri hafi
mök við einstakling undir 15 ára
aldri. ■
CLUB ÓÐAL
Nefndin leggur til að nektardansstaðir
megi ekki standa of nærri hvorum öðrum,
miðbæjum sveitarfélaga, Ibúðahverfum,
skólum og öðrum opinberum byggingum.
iLÖCRECLUFRÉTTIRf
Tilkynnt var um eld í nýbygg-
ingu Byko í Kópavogi í gær.
Þegar slökkvilið kom á staðinn
höfðu starfsmenn fyrirtækisins
ráðið bug á eldinum. Þá var
slökkvilið kallað út vegna elds í
dyramottu við hús í Hlíðunum.
Forseti íslands og sendiherra
Kanada heimsóttu Vestur-
farasetrið á Hofsósi í gær. Lög-
reglulið Sauðárkróks sinnti
gæslu vegna heimsóknarinnar.
Bíl var ekið út af við bæinn
Laxamýri í Suður-Þingeyjar-
sýslu. Bíllinn er mikið skemmd-
ur en farþega í bílnum sakaði
ekki.
-Original Message-
From: Eilen Thomas [mailto:propl@propl.org]
Sent: 19 June 2002 14:00
^ To: info@peace2000.org
\ Subject: Fwd: RE: Human rights violations in Iceland
Æ >From: Bjami Guðmundsson <bjami.gudmundsson@Ir.is>
\ >To: "'EIIen Thomas'" <propl @propl ,org>
>Subjcct: RE: Human rights violations in lceland
>Datc: Wed, 19 Jun 2002 12:18:02 -0000
>X-Mailer: Intemet Mail Service (5.5.2653.19)
>X-MIME-Autoconverted: from quoted-printable to 8bit by pooky.zilch.net
>g5JCQmAM022571
> ____________________________________
vn business plcase.
are now on the list
>
-<-QrigÍHal M.esf^ge—- ^ ^ ^ ^ A \ \ \ \
LÖGREGLAN
Aðstoðarvarðstjóri sagði viðmælenda sinna fara á listann.
id
V
<
\
4
V
s
v
Kæra svarta lista
lögreglunnar
Vilja opinbera rannsókn á tilurð listanna. Forstöðumanni erlendra
friðarsamtaka bætt á svartan lista í kjölfar mótmælabréfs sem hún
sendi lögreglunni í Reykjavík.
lögreglumál Friður 2000 hefur
óskað eftir úrskurði Persónu-
verndar á því hvort skrán-
ing fólks á svokallaða
svarta lista yfir fólk í frið-
ar- og mnanréttindasam-
tökum, stangist á við lög
um persónuvernd. Enn-
fremur óskar Friður 2000
álits Persónuverndar á því
hvort lögreglu sé heimilt
að skrá fólk á slíka lista
vegna skoðana þess eða
mótmæla gegn mannrét- ai
indabrotum. I bréfi sem
Ástþór Magnússon sendi
Persónuvernd í gær segir að ís-
lensk stjórnvöld virðist halda
„Vinsamlegast
skiptu þér
ekki af málum
sem ekki
koma þér við.
Og meðal
annarra orða,
þitt nafn er nú
komið á list-
svartan lista yfir fólk í friðar- og
mannréttindasamtökum, í sam-
vinnu við erlend lögreglu-
fyrivöld og kínversku
leyniþjónustuna. Þess er
farið á leit að Persónu-
vernd kynni sér þá lista
sem lögregla kunni að
vinna með.
í bréfi Friðar 2000 til
Persónuverndar segir enn-
fremur að lögreglan í
Reykjavík hafi tilkynnt
Ellen Thomas, forstöðu-
manni erlendrar friðar-
stofnunar, að nafni hennar
verið bætt á fyrrnefndan
Blaðið hefur fengið
hafi
svartan lista
afrit af tilkynningu lögreglu sem
jafnframt er svar lögreglunnar
við mótmælum vegna þess sem
konan kallar mannréttindabrot á
íslandi. Konan mótmælti aðgerð-
urn lögreglu gegn iðkendum Falun
Gong í tengslum við komu Kína-
forseta til Islands. í svarbréfi lög-
reglunnar segir; „Vinsamlegast
skiptu þér ekki af málum sem
ekki koma þér við. Og meðal ann-
arra orða, þitt nafn er nú komið á
listann." Sendandi bréfsins er að-
stoðarvarðstjóri hjá lögreglunni í
Reykjavík. Þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir náðist ekki í yfirmenn
lögreglunnar vegna þessa.
the@frettabladid.is
Jasser Arafat:
Fordæmir sjálfsmorðsárásir
palestína Jasser Arafat, leiðtogi
Palestínumanna, hvatti herskáa
Palestínumenn í gær til þess að
hætta árásum á ísraela. Hann for-
dæmdi allar árásir á óbreytta
ísraelska borgara. Hann sagði
sprengjuárásirnar „ekki hafa
neitt að gera með þjóðernisrétt-
indi okkar og réttmæta and-
spyrnu gegn hernámi ísraela og
rétt okkar til að vernda and-
spyrnu okkar og helga staði gegn
þessari landnámshættu.“
Tvær sjálfsmorðsárásir hafa
orðið 26 manns að bana í vikunni.
Viðbrögð ísraelsmanna hafa verið
að senda herinn inn byggðir
Palestínumanna á Vesturbakkan-
um. Israelsstjórn segir að herinn
verði þar þangað til hryðjuverk-
JASSER ARAFAT
Segir sprengjuárásirnar ekkert hafa með
réttmæta andspyrnu að gera.
um Palestínumanna linnir.
Á þessum stöðum hafa ísra-
elskir hermenn farið hús úr húsi
og handtekið hundruð Palestínu-
manna. Útgöngubann hefur verið
lagt á, líkt og ávallt þegar ísraels-
her hernemur byggðir Palestínu-
manna. Palestínumenn fullyrða að
ísraelskir hermenn hafi skotið á
fólk nánast af handahófi.
George W. Bush, forseti
Bandaríkjanna, sagðist í gær bíða
eftir því, hvort Palestínumenn
fari í raun að óskum Arafats og
hætti árásum. Bush hefur frestað
því, að leggja fram friðaráætlun
fyrir ísraelsmenn og Palestínu-
menn, sem hann hefur verið með í
smíðum undanfarið. Ágreiningur
er innan ríkisstjórnar Bandaríkj-
anna um það, hvert hlutverk
Arafats eigi að vera í stofnun
Palestínuríkis, sem er liður í til-
lögum Bush. ■
fSLENSKAR KINDUR
Eigendur eru beðnir um að fylgist vel með
búfé sínu og að láta rannsaka óeðlileg
dauðsföll dýra og að eyða strax hræjum
með öruggum hætti
Salmonella í sauðfé í
Skagafirði:
Fimmtíu roll-
ur dauðar á
einum bæ
SALMONELLA Embætti yfirdýra-
læknis hefur rakið dauða 50 kinda
á bæ í Skagafirði til salmonella-
sýkingar. Sýkillinn hefur bæði
greinst í hræjum og drykkjar-
vatni kindanna sem rennur í
skurði í beitarlandinu. Sýkillinn
Salmonella typhimurium finnst
iðulega í umhverfinu og hluti
villtra fugla er talinn mengaður af
honum.
Landbúnaðarráðuneytið hefur,
að tillögu yfirdýralæknis, sett bæ-
inn og nágrannabæ hans í farbann
til að koma í veg fyrir útbreiðslu.
Aðeins kindur og hross eru á bæj-
unum og engar afurðir frá þeirn
hafa farið á markað að undan-
förnu.
Embætti yfirdýralæknis beinir
þeim tilmælum til dýraeigenda
um land allt, sérstaklega í Skaga-
firði, að þeir fylgist vel með búfé
sínu og hafi samband við sinn
dýralækni og héraðsdýralækni, ef
um vanhöld er að ræða í búfénu. ■
VESTFIRÐIR
Maður um fimmtugt, búsettur
í Reykjavík, var í Héraðs-
dómi Vestfjarða dæmdur í gær til
80.000 sektar fyrir að hafa spillt
friðlandi í hólmanum Arnarstapa
í Miðhúseyjum í Reykhólahreppi.
Var manningum gefið að sök að
hafa spillt mögulegu arnarvarpi
með því að raska hreiðurstað arn-
ar og spillt friðlýstum náttúru-
minjum. BB sagði frá.
Hundrað og þrjátíu manns
mættu á borgarfund sem
haldinn á sal Menntaskólans á
ísafirði í fyrrakvöld. Umræðu-
efnið var nýútkomið snjóflóða-
hættumat fyrir ísafjörð og Hnífs-
dal. Á vefsíðu BB var haft eftir
fólki að fundurinn hafi verið mál-
efnalegur.
Maður á þrítugsaldri var i
Héraðsdómi Vestfjarða í
gær dæmdur til greiðslu 40.000
króna sektar auk alls sakarkostn-
aðar fyrir að hafa veitt öðrum
manni högg í heimahúsi í Bolung-
arvík með þeim afleiðingum að
hann /ékk skurð og bólgnaði um
nef. Ákærði játaði sök og tók
fram að hann hefði reitt höggið
fram með höfði, það er að segja
skallað þolanda. BB sagði frá.