Fréttablaðið - 21.06.2002, Síða 23

Fréttablaðið - 21.06.2002, Síða 23
GHtkfÞÍÍtAH Til staðar fyrir fólk í vímuefnavanda %/ Markmið Götusmiðjunnar er að aðstoða ungt fólk sem hefur leiðst út úr hinum hefðbundna samfélagsramma og inn í heim fíkniefna og afbrota, til að fóta sig og koma lífi sínu í jákvæðan farveg. I tilefni af T ára afmæli GötusmiSjunnar viljum vií Jaakka samfélaginu fyrir veittan lilýhug og stu^ning* Við höfum veitt um 300 ungmennum aðstoS vegna vímuefnavanda. Um 70% þeirra voru karlkyns og 30% kvenkyns. Um 65% þeirra voru yngri en 18 ára en 35% 18 til 20 ára. Um 70% þeirra voru búsett í Reykjavík og nágrenni. Um 30% þeirra höfðu ekki lokið grunnskólanámi. Um 78% þeirra hófu neyslu vímugjafa á aldrinum 12-14 ára. Um 65% þeirra eru skilnaðarbörn. Um 50% þeirra sem koma til okkar hafa neytt vímugjafa f 5- 6 ár áður en þau koma í meðferð. Um 2.200 ráðgefandi símtöl voru veitt árið 2001. Árvellir á Kjalarnesi Svona erum við: Meðferðarstarfið samanstendur af hugrænni atferlismeðferð, lífsleikninámi, meðferðarfundum, einstaklingsviðtölum, fyrirlestrum, verk- efnavinnu, tómstundum, hreyfingu og útivist. Rík áhersla er lögð á þátttöku foreldra í meðferðinni, m.a. með vikulegum meðferðarfundi með foreldrum svo og reglulegum einkaviðtölum, ýmist með eða án þátttöku nemanda. Nám og lífsleikni er stór partur af meðferðinni á Árvöllum. Verkefni nemenda við Árvelli eru byggð á námsskrá menntamálaráðuneytis- ins um lífsleikni og verður námið metið til eininga. Nemendur geta einnig sinnt formlegu námi á meðan dvöl þeirra stendur í samstarfi við námsráðgjafa og kennara viðkomandi skóla. Eftir nám á Árvöllum tekurvið eftirmeðferð. Eftirmeðferðin felur í sér vikulega meðferð- arfundi, viðtöl og ráðgjöf. Markmið hennar er að styðja og leiðbeina nemendum okkar í að lifa ábyrgu og skemmtilegu lífi án vímugjafa. Einnig starfrækir Götusmiðjan þjónustu- og fjölskyldudeild sem veitir ráðgjöf til fjölskyldna, einstaklinga, félagasamtaka, skóla, og for- eldrafélaga. Nýverið hóf deildin að bjóða upp á göngudeildarprógramm vegna mikillar aðsóknar. Þjónustusími fjölskyldudeildar veitir ráðgjöf um vandamál tengd vímuefnum. Símanúmer þjónustu- og fjölskylduráðgjafa er 821- 6393. Foreldrafélag Götusmiðjunnar er sjálfstætt foreldrafélag Götusmiðjunnar. Stuðningsfundir eru haldnir á þriðjudagskvöldum kl. 20:00 í Borgartúni 29 og er fyrir foreldra sem hafa átt eða eiga barn í vímuefnavanda. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Götusmiðjunnar: http://www.gotusmidjan.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.