Fréttablaðið - 20.07.2002, Qupperneq 4
SVONA' ERUM VIÐ
VIÐSKIPTI VIÐ ÚTLÖND
Árið 2001 seldu [slendingar vörur fyrir
rúmlega 196 milljarða til útlanda. Sama ár
keyptu þeir vörur fyrir rúmlega 220 millj-
arða frá útlöndum. Langsamlega mést af
þessum viðskiptum var við lönd Evrópska
efnahagssvæðisins. Tölurnar í töflunni eru
milljónir króna.
VIÐSKIPTI
Útflut. Innflut.
EES 144.812 138.569
Önnur Evrópulönd 14.167 17.274
Bandaríkin 20.330 24.506
Japan 6.839 7.298
Önnur lönd 10.435 33.228
Samtals 196.582 220.874
HEIMILD: HAGSTOFA ISLANDs|
Heilbrigðisstofnunin
Selfossi:
Lát konu
rannsakað
hjá land-
lækni
rannsókn Konan var lögð inn á
Heilbrigðisstofnunina Selfossi
fyrri hluta júlímánaðar og lést þar
skömmu síðar. Lát konunnar hef-
ur verið sent Landlæknisembætt-
inu til rannsóknar til að staðfesta
dánarorsök sjúklingsins eins og
gert er þegar óvæntir atburðir
eins og skyndileg dauðsföll eiga
sér stað innan heilbrigðiskerfis-
ins. Landlæknir hefur staðfest að
málið sé í hans höndum og mun
það taka einhvern tíma að fá nið-
urstöður.
í tilkynningu frá Heilbrigðis-
stofnun Selfoss segir að ekki sé
hægt að fjalla um mállið í fjöl-
miðlum fyrr en niðurstöður liggi
fyrir þar sem starfsmenn séu
bundnir trúnaði um einstaka sjúk-
linga. ■
ERLENT
Réttarhöldum yfir Winnie
Madikizela-Mandela, fyrrver-
andi eiginkonu Nelsons Mandela,
hefur verið frestað þangað til í
október. Hún er að þessu sinni
kærð fyrir fjársvik. Árið 1991
hlaut hún dóm fyrir mannrán ög
líkamsárás.
—♦—
Farþegaþotu frá Kólumbíu var
nauðlent á herflugvelli skammt
frá Madrid í gær eftir að gerð var
tilraun til að ræna henni. Talsmað-
ur sendiráðs Kólumbíu sagðist ef-
ast um að flugræningjanum hafi
verið full alvara. Hann eigi við
drykkjuvandamál að stríða.
......
Mary Robinson, mannréttinda-
fulltrúi Sameinuðu þjóðanna,
hvatti þau ríki, sem heyja nú bar-
áttu gegn hryðjuverkamönnum, til
þess að fara í hvívetna eftir al-
þjóðareglum um mannréttindi.
Hún sagði töluvert skorta á að fyl-
gst væri með því, hvort þær að-
gerðir sem gripið er til brjóti gegn
mannréttindum.
Bandaríski þingmaðurinn James
Traficant verður að öllum lík-
indum annar þingmaðurinn í sögu
Bandaríkjanna, sem rekinn verður
af þingi. Þingnefnd, sem rannsak-
aði mál hans, mælti í gær með því
að þingiö svipti hann þingsæti
vegna fjársvika, sem hann hefur • j
hiotiö dóm fyrir.
..♦:...
Lögregla í Kaliforníu hefur
nandtekið karlmann í tengslun, 1
við dauða fimm ára stúlku sern
rænt var frá heimili sínu síðasta
mánudag og fannst látin daginn
eftir. Talið er að stúlkan hafi verið j
misnotuð kynferðislega. Vitni báru
aó maóur nefði ekið upp að heimili
stúlkunnar og sagst þurfa á hjálp
að halda við að leita að hundi sín-
um.
FRÉTTABLAÐIÐ
20. júlí 2002 LAUGARDAGUR
Ársskýrsla Orkuveitunnar:
Belgískur
listamaður
teiknaði Al-
freð og félaga
orkumál „Ársskýrsla Orkuveit-
unnar er alltaf að verða ódýrari
og í ár er sérstök ánægja með
hana og þá sérstaklega hversu
vel gekk að halda verði niðri.
Skýrslan kostaði ekki nema 800
þúsund krónur,“ segir Kolbeinn
Bjarnason, almannatengill hjá
Orkuveitunni, sem hafði umsjón
með ársskýrslu stofnunarinnar.
Sérstaka athygli vekur að
stjórn orkuveitunnar
Séð með augum belgiska listamannsins Hans Vera.
belgískur listamaður var fengin
til að teikna myndir af stjórnar-
mönnum, starfsfólki og mann-
virkjum og staðhæfir Kolbeinn
að það hafi síst reynst dýrari
kostur en ljósmyndir: „Lista-
maðurinn heitir Hans Vera og er
búsettur í Grindavík," segir
hann.
Ársskýrsla Orkuveitunnar er
prentuð og gefin út í 2000 eintök-
um. í ávarpi Alfreðs Þorsteins-
sonar stjórnaformanns, sem
fylgir með teikningu belgíska
listamannsins af stjórninni, er
boðað að nýjar höfuðstöðvar
Orkuveitunnar í Reykjavík verði
teknar í notkun í haust. ■
Mesti fjöldamorðingi
Bretlands fyrr og síðar
Heimilislæknirinn Harold Shipman myrti 215 af sjúklingum sínum á rúmlega 20 ára tímabili.
Niðurstaða rannsóknar á þeim sem létust á grunsamlegan hátt á læknastofu hans birt í gær.
london.ap Heimilislæknirinn
Harold Shipman er mesti
fjöldamorðingi Bretlands fyrr og
síðar. Opinberri rannsókn á þeim
—~é___ sjúklingum sem
létust á grunsam-
legan hátt á rúm-
lega 20 ára löng-
um læknisferli
hans er nýlokið. í
niðurstöðum
hennar kemur
fram að Shipman
hafi alls myrt 215
af sjúklingum sín-
um auk þess sem sterkur grunur
leiki á að hann hafi einnig myrt
45 manns til viðbótar.
Fjöldamorð Shipmans, sem er
56 ára, hófust árið 1975, ári eftir
að hann hóf læknisstörf í bænum
Hyde sem er í úthverfi
Flestir hinna
látnu voru
miðaldra og
eldri konur
sem létust á
grunsamlegan
hátt á árunum
1975 til 1998.
SHIPMAN
Shipman var í janúar árið 2000 dæmdur í
15-falt lífstíðarfangelsi fyrír að hafa myrt
15 af sjúklingum sínum með banvænum
skammti af heróíni. Hann er nú mesti
fjöldamorðingi Bretlands fyrr og síðar.
Manchester-borgar. Árið 1992
opnaði Shipman sína eigin lækna-
stofu í bænum. Þar er talið hann
hafi myrt 143 af sjúklingum sín-
um á sex ára tímabili. Hann hafði
áður verið rekinn úr starfi á
annarri læknastofu eftir að hafa
verið sektaður fyrir að skrifa út
lyfseðla fyrir sjálfan sig fyrir hið
ávanabindandi lyf pethidine, sem
virkar svipað og morfín. Shipm-
an var þá áminntur fyrir athæfið
en fékk að halda læknisleyfi sínu.
Fyrir rúmum tveimur árum
var Shipman dæmdur í 15-falt
lífstíðarfangelsi fyrir að hafa
myrt 15 af sjúklingum sínum,
marga hverja við ágætis heilsu,
með banvænum heróínskömmt-
um. Grunur fór að falla á Shipm-
an eftir að læknir sem hann hafði
beðið um að undirrita með sér
nokkrar beiðnir um líkbrennslu,
lagði fram kvörtun um fjölda
þeirra sem látist höfðu á lækna-
stofu Shipmans. Lögreglan lét
málið aftur á móti niður falla
vegna skorts á sönnunargögnum.
Nokkrum mánuðum síðar fór
rannsókn á Shipman af stað að
nýju eftir að dóttir 81 árs gamall-
ar ekkju komst að því að hún
hefði breytt erfðaskrá sinni þan-
nig að hann fengi allar hennar
eigur.
í rannsókninni sem nú er lokið
voru lát 494 af sjúklingum
Shipmans rannsökuð. Flestir
hinna látnu voru konur á aldrin-
um 41 til 93 ára sem létust á
grunsamlegan hátt á árunum
1975 til 1998. 44 karlar voru á
meðal hinna látnu.
Janet Smith, sem hafði yfir-
LÆKNASTOFAN
Læknastofa Shipmans í Market Street í
Hyde, úthverfi Manchester-borgar.
umsjón með rannsókninni, sagði
það vera afar truflandi að hin
fjölmörgu lát sjúklinga Shipmans
hafi ekki vakið upp neinar grun-
semdir. „Allir þeir sem lesa
skýrsluna geta ekki annað en
verið í losti yfir því hversu morð
Shipmans voru umfangsmik-
il,“sagði Smith.
Mestu fjöldamorðingjar Bret-
lands til þessa eru m.a. Thomas
Hamilton, sem skaut 16 skóla-
börn og kennara þeirra til bana í
skóla í Dunblane í Skotlandi árið
1996 og Fred West sem myrti 12
ungar konur sem fundust látnar í
„hryllingshúsi" hans í Gloucest-
er. ■
Utanríkisráðherra Breta:
Gagnrýndur fyrir vopnasölu
london. ap Jack Straw utanríkis-
ráðherra Breta er gagnrýndur
fyrir að hafa ekki komið í veg
fyrir vopnasölu til Indlands og
Pakistans meðan spenna milli
ríkjanna var i hámarki í maí og
júrtí síðastliónum. í gær birtist
sameiginleg skýrsla fjögurra
breskra þingnefnda urn máíið,
sem komst í fréttir fyrir
nokkrum vikum.
i skýrslunni. segir að Straw
hafi ekki farið eftír þeim regl-
um', sem giida um vopnastilu í
Bretjandi, aó stjórnvöldum beri
að banna vopnasölu tii ríkja, þar.
sem hætta er á að þeim verði
beitt til árása á önnur ríki.
Þingnefndirnar fjórar lýsa
furöu sinni á að Straw hafi ekki
sjálfur slcoðað umsóknir um út-
flutningsleyfi til Indlands og
Pakistans meðan deilur ríkjanna
um hryðjuverkastarfsemi og
Kasmír-hérað voru í hámarki.
í bréfi til bingnefndanna stað-
festir Straw aó á þessum tíma
hafi stjórnvöld gefið 148 útflutn-
ingsleyfi til Indlands og 18 til
Paltistans. Hann segist sjálfur
ekki hafa. skoðað umsóknir um
þessi leyfi. ■
Á FERÐ UM ASÍURÍKl
Jack Straw, utanríkisráóherra
Breta, tekur þarna í höndina á
indverskum starfsbróður sin-
um, Yaswant Sinha, i Nýju
Delhí. Straw er einmitt þessa
dagana á ferð um Asíuríki,
meðai annars Indland og
Pakistan.