Fréttablaðið - 20.07.2002, Síða 7
20. júlí 2002 LAUGARDAGUR
FRÉTTABLAÐIÐ
7
Nanoq opnar á ný innan fárra daga:
Kaupþing keypti
fyrir 275 milljónir
NflNOO „Þetta seldist á mjög góðu
verði og þá er mikilvægt að aðrar
eignir búsins seljast á markaðs-
verði,“ sagði Jóhannes Rúnar Jó-
hannsson, skiptastjóri þrotabús
Nanoq. Rekstrarfélag Nanoq
ehf., nýstofnað félag í eigu Kaup-
þings, keypti í gær allar vöru-
birgðir og lausafé, sem Spari-
sjóður Reykjavíkur og nágrennis
(SPRON) hafði tekið veð í. Kaup-
verð er 275 milljónir króna og
var það greitt við undirritun
kaupsamnings. Þá keypti rekstr-
arfélagið firmanöfn, vörumerki
og lausafjármuni sem ekki féllu
undir veðsamninga. Tveir mats-
menn meta í sameiningu verð-
mæti þessara eigna. Áætlað er að
matsverð liggi fyrir um eða upp
úr verslunarmannahelgi. Rekstr-
arfélag Nanoq ehf. hefur fengið
eignirnar afhentar og tekið yfir
umráð allrar aðstöðu sem til-
heyrði þrotabúinu í Kringlunni
og Síðumúla 34 í Reykjavík.
„Við sáum hag okkar best borg-
ið með því að kaupa reksturinn en
LÍTIÐ LlF VIÐ NANOQ
Félag í eigu Kaupþings hyggst opna á ný innan fárra daga
við áttum verulegra hagsmuna að
gæta þarna, ásamt SPRON.
Við stefnum að því að opna
mjög fljótlega, jafnvel innan fárra
daga. Viðræður við starfsfólk
hófust í gær og er verið að ganga
frá ráðningum þess. Rekstur versl-
unarinnar verður endurskipulagð-
ur og munum við leggja áherslu á
útivistarþáttinn," sagði Örn Gúst-
afsson, stjórnarformaður Rekstr-
arfélags Nanoq ehf.
Hörður Magnússon, sem var
innkaupastjóri Nanoq fyrir gjald-
þrot verður verslunarstjóri nýju
verslunarinnar. ■
Risi í útflutningi lyfja
Við kaup Pharmaco á Delta verður til íslenskur lyfjarisi sem er verðmætasta fyrirtækið í Kaup-
höllinni. Fyrirtækin hafa sótt fram á ólíkum erlendum mörkuðum. Bréf í félögunum hækkuðu
við fréttirnar. Ekki talið ólíklegt að hugað verði að skráningu á erlendum markaði.
„Það var
ákveðinn
hagsmunaá-
rekstur milli
þessara fyrir-
tækja og starf-
semi Delta
hér á landi."
viðskipti Pharmaco hf hefur keypt
51% hlut í lyfjafyrirtækinu Delta.
í samræmi við reglur mun fyrir-
tækið gera öðrum hluthöfum yfir-
tökutilboð. Við
kaupin verður til
verðmætasta fyr-
irtæki í Kauphöll
íslands með mark-
aðsverðmæti yfir
48 milljarða króna.
Pharmaco greiðir
fyrir með eigin
bréfum. Miðað er
—♦— við gengið 77 á
Delta á móti 73 á Pharmaco. Fyr-
irtækið greiðir því 8,5 milljarða
króna fyrir 51% hlut. Erlendir
lyfjarisar hafa verið að sameinast
og gera sérfræðingar á markaði
ráð fyrir að sú þróun haldi áfram.
Markaðurinn tók þessum fréttum
vel og hækkaði gengi beggja fé-
laga. Fyrirfram var orðrómur um
að Pharmaco væri í kauphugleið-
ingum, en flestir héldu að þeir
væru á leið að kaupa erlent fyrir-
tæki. Kaupin á Delta komu því á
óvart.
Sindri Sindrason forstjóri
Pharmaco segir fyrirtækin hafa
starfað á ólíkum mörkuðum og
því séu töluverð samlegðaráhrif.
„Delta er með öfluga lyfjaþróun
og gott starfsfólk með mikla
reynslu. Þeir eru með vörur sem
henta vel okkar samstarfi. Fyrir-
tækin eru mátulega ólík til þess
að bæta mjög vel upp hvort ann-
að.“
Pharmaco seldi lyfjaheildsölu
sína hér á landi fyrir skömmu.
Sindri segir að sú sala hafi gert
þessi kaup möguleg. Delta hefur
framleitt samheitalyf, lyfja sem
framleiðendur sem Pharmaco
hafði umboð fyrir hafa einkaleyfi
á. „Það var ákveðinn hagsmunaá-
rekstur milli þessara fyrirtækja
og starfsemi Delta hér á landi.“
Fyrirtækin hafa verið meðal
framsæknustu fyrirtækja lands-
ins og hafa leitt hækkun hluta-
bréfamarkaðar. Sérfræðingar á
Sindri Sindrason, forstjóri Pharmaco, segir
fjármálamarkaði segja að fyrir-
tækin falli vel hvert að öðru.
Pharmaco hafi verið meira í
magnframleiðslu meðan Delta
hafi gert út á að vera tilbúið með
LYFJARISI VERÐUR TIL
largvísleg samlegðaráhrif nást við kaup Pharn
er yfir 48 milljarðar.
samheitalyf þegar einkaleyfi
renna út. Fyrirtækin hafa notið
mikils trausts á markaði og
áætlanir þeirra um veltu og
framlegð hafa staðist. Ekki er
o á Delta. Markaðsverðmæti fyrirtækjanna
talið ólíklegt að forsvarsmenn
Pharmaco muni huga að skrán-
ingu fyrirtækisins á markað er-
lendis.
haflidi@frettabladid.is
Israelsher grípur til aðgerða vegna sjálfsmorðsárása :
21 ættingi handtekinn
JERÚ5ALEM.AP ísraelshei’ hefur
handtekið 21 náinn ættingja
palestínskra sjálfsmorðsárás-
armanna og fyrirhugar að flytja
þá í burtu frá Vesturbakkanum á
Gasasvæðið. Á meðal þeirra sem
teknir voru höndum í gær voru
feður og bræður þeirra manna
sem stóðu fyrir tvöfaldri sjálfs-
morðsáráS í Tel Aviv á miðviku-
daginn og þeirra sem talið er að
hafi setið fyrir rútu skammt frá
byggð ísraela á þriðjudaginn
þegar átta manns fórust.
Talið er að þetta sé í fyrsta
sinn síðan uppreisn Palestínu-
manna hófst sem ísraelar ráðast
gegn fjölskyldum hryðjuverka-
manna á þennan hátt. Ekki er þó
víst hvort brottflutningur fólks-
ins verði að veruleika. Hingað til
hefur dómsmálaráðherra ísraels
lagst gegn slíkum hugmyndum
vegna sérstakra lagaákvæða
þess efnis. Shimon Peres, utan-
ríkisráðherra ísraels, sagðist
styðja brottflutninginn „ef það
er mögulegt lagalega.“ Herferð
ísraelshers gegn fjölskyldum
hryðjuverkamannanna átti sér
stað í þorpinu Tel og í Askar-
flóttamannabúðunum skammt
frá Nablus. 11 ísraelsmenn fór-
ust í árásum hryðjuverkamanna
í vikunni, þrátt fyrir aukin um-
svif ísraelshers á Vesturbakkan-
um. ■
HERMENN
ísraelsher handtók 21 náinn ættingja
palestínskra árásarmanna í gær. Hús tveg-
gja árásarmanna voru eyðilögð í aðgerð-
um hersins.
INNLENT
Stúdentaráð hvetur stjórn Há-
skóla íslands til að endurskoða
frest stúdenta til að greiða innrit-
unargjöld. Fimm dagar liðu frá út-
sendingu greiðsluseðla þar til 15%
álag lagðist á innritunargjöldin.
Útskýringin á hækkun innritu-
nargjalda sé að dráttur á greiðs-
lum geti valdið Háskólanum
auknum útgjöldum. Stúdentaráði
þyki þó að Háskólinn hljóti að
þola að bíða lengur en fimm daga.
Nokkuð góðar líkur eru á því að
verð á ýmsum innfluttum vör-
um geti lækkað á næstunni að því
er kemur fram í Fjármálafréttum
SPRON í gær. Ástæðan er styrk-
ing ki’ónunnar sem hefur ekki enn
skilað sér í samsvarandi lækkun á
innfluttum vörum.
RANNSÓKN AKONUM
Á BREYTINCARSKEIÐI
Fyrirhugað var að halda rannsókninni
áfram í rúm átta ár áður en hún var
stöðvuð.
Konur á breytingarskeiði:
Rannsókn
á áhrifum
hormóna
stöðvuð
rannsókn Viðamikil bandarísk
rannsókn áÝ áhrifum hormóna,
sem margar konur nota við og eft-
ir tíðahvörf, var stöðvuð þegar
niöurstöður bentu til þess að hætt-
an af samfelldri, samsettri horm-
ónameðferð væri meiri en ávinn-
ingurinn, að mati stjórnenda
rannsóknarinnar að því segir á
vef Landlæknisembættisins.
Þar segir að rannsóknin sé
mjög stór og stýrt af Women’s
Health Initiative í Bandaríkjun-
um með stuðningi bandarískra
heilbrigðisyfirvalda
Meta átti áhrif langtímanotk-
unar á m.a. tíðni hjai’ta- og æða-
sjúkdóma, heilaáfalla, blóðtappa,
beinþynningar og ýmissa krabba-
meina auk heildardánartíðni. Fyr-
irhugað var að halda rannsókninni
áfram í átta og hálft ár en þegar í
ljós kom, eftir rúm fimm ár, að
hætta á hjarta- og æðasjúkdómi,
heilaáfalli, brjóstakrabbameini og
blóðtappa var aukin hjá konum í
hormónameðferðinni var rann-
sóknin stöðvuð. ■
ERLENT
Nærri 80 prósent Palestínu-
manna telja rétt að styðja
Saddam Hussein ef Bandaríkin
réðust á írak til að steypa hon-
um af stóli. Þetta kemur fram í
skoðanakönnun sem birt var í
gæi'. Það var palestínsk skoðana-
könnunarstofa sem gerði könn-
unina.
Noelle Bush, bróðurdóttir Ge-
orge W. Bush Bandaríkjafor-
seta, var látin laus úr fangelsi í
gær. Þar hafði hún mátt dúsa í
tvo daga fyrir að brjóta gegn
dómsúrskurði um fíkniefnameð-
ferð, sem henni var gert að
gangast undir.
Lögreglan í Lettlandi hefur
lagt hald á meira en 25.000
flöskur af ólöglegu viskíi, sem
voru faldar í jafnmörgum rúss-
neskurn trébrúðum, svonefndum
‘matrjoska’ dúkkum af því tag-
inu, sem hægt er að setja hverja
inn í aðra.