Fréttablaðið - 20.07.2002, Side 10

Fréttablaðið - 20.07.2002, Side 10
10 FRETTABLAÐIÐ 20. júli 2002 LAUGARPAGUR FORMÚLA ÞÝSKI HEIMSMEISTARINN Michael Schumacher undirbjó sig vel fyrir átök helgarinnar. Lykilatriði er að speglarnir séu rétt stilltir. jÍÞRÓTTIR í PAG[ 10.50 RÚV Formúla 1 12.15 RÚV Gullmót í frjálsum íþróttum 15.10 RÚV Opna breska meistaramótið í golfi (British Open) 14:00 Sindravellir 1. deild karla (Sindri - Stjarnan) 00.30 Sýn Hnefaleikar-Vernon Forrest (Vernon Forrest - Shane Mosley) Á MORGUN: 11.30 RÚV Formúla 1 14.00 RÚV Opna breska meistaramótið 19.15 Akureyrarvöllur Coca-Cola bikar karla (KA - Breiðablik) 19:15 Hásteinsvöllúr Coca-Cola bikar karla (ÍBV - Leiftur/Dalvík) 19:15 Fylkisvöllur Coca-Cola bikar karla (Fylkir - ÍA) 2000_Sýn Golfmót í Bandaríkjunum (Advil Western Open) 21.00 Sýn Hnefaleikar-Vernon Forres 21.50 RÚV Helgarsportið 22.05 RÚV Bikarkvöld Enska knattspyrnan: Dwight Yorke vill til Blackbum ENSKA KNATTSPYRNAN FramlínU- maðurinn Dwight Yorke lék nán- ast ekkert með liði sínu Manchester United á síðustu leiktíð og Blackburn hefur lýst yfir áhuga á að fá hann í sínar raðir. Andy Cole sem leikur með Blackburn staðhæfir að Yorke vilji skipta yfir og leika með Cole að nýju í framlínunni. Vandamál- ið er að M.U. vill fá 4,5 milljónir punda fyrir Yorke en Blackburn er ekki reiðubúið til þess. „Yorke er hágæðaleikmaður og ef við viljum bæta árangurinn verðum við að fá slíka menn til liðs við okkur. Okkur gekk frábværlega að leika saman hjá Manchester United og því ætti það ekki að geta endurtekið sig,“ spyr Andy Cole. ■ Hermann Hreiðarsson: Er ekki á förum frá Ipswich knattspyrna „Ég er ekkert á för- um eins og staðan er nú, en auð- vitað vilja allir leika í úrvals- deildinni," sagði Hermann Hreiðarsson knattspyrnumaður hjá Ipswich, en liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor. Vangaveltur hafa verið uppi um að Hermann sé á leið frá liðinu. Þótti það renna enn frekari stoð- um undir þær að Hermann ákvað að fara ekki með liðinu í æfingabúðir til Danmerkur í vikunni og vera heldur heima hjá nýfæddri dóttur þeirra Rögnu Lóu Stefánsdóttur fyrr- um knattspynrukonu. „Þetta var nú svo stutt ferð, þrír dagar, og það eru fimm aðr- ir æfingaleikir framundan, langt í mót og ekkert stress í gangi. Eg spurði bara hvort það væri ekki í lagi að ég yrði heima þessa daga og það var ekkert mál,“ sagði Hermann sem mætti skiln- ingi hjá forráðamönnum liðsins. „Þeir lenda svo oft í þessu gagn- vart leikmönnum," sagði Her- mann en þau hjónin eiga reyndar þrjú önnur börn. ■ HERMANN HREIÐARSSON Hefur áhuga á að leika í urvalsdeild en eins og staðan er í dag verður hann áfram hjá Ipswich. Auka þarf breiddina Árangur kvennalandsliðanna í knattspyrnu hefur vakið athygli. Guðni Kjartansson aðstoðar- landsliðsþjálfari karla segir þó að konurnar verði að vinna betur í sínum málum. GUÐNi KJARTANSSON Guðni hefur fylgst með kvennaknattspyrnu úr fjarlægð og telur að konurnar geti unnið af meiri elju að framgangi hennar. Aukin þátttaka kvenna í knattspyrnu sé af hinu góða. KNATT5PYRNA Árangur íslenskra kvennalandsliða í knattspyrnu undanfarið hefur vakið athygli. A- landsliðið er nú í 15. sæti á heims- listanum og U-17 ára liðið lenti í þriðja sæti á opna Norðurlanda- mótinu á dögunum, fyrir ofan stórþjóðir í kvennaknattspyrnu á borð við Þýskaland og Noreg. Á mánudag hefst í Finnlandi Norð- urlandamót fyrir U-21 árs liðið. Guðni Kjartansson aðstoðar- landsliðsþjálfari og fyrrum fyrir- Iiði íslenska landsliðsins hefur fylgst með þróuninni í kvennaknattspyrnu úr fjarlægð. „Það er allt jákvætt um þessa þró- un að segja. Helsti vaxtarbroddur knattspyrnunnar í heiminum er hjá konunum en þátttaka þeirra fer vaxandi. Aukin þátttaka þeir- ra eykur líka áhorf á knattspyrnu því stærstur hluti áhorfenda er fólk sem einhvern tímann hefur sjálft leikið knattspyrnu. Auðvit- að veit ég að sumum þykir ekki mikið til kvennaknattspyrnu koma en það þýðir ekki að berja hausnum við steininn. Ef mann- eskja hefur áhuga á að stunda íþrótt þá á hún bara a" burtséð frá því hvort hverjum þyki það hæfa eða vera fallegt." Þótt Guðni telji að 21- árs landsliðið muni spjara sig í Finnlandi, leggur hann áherslu á að fjölga þurfi þátttakendum og auka breiddina í kvennaknattspyrnunni, þetta séu of mikið sömu stelpurnar sem séu að leika með fleiri en einu landsliði. „Mér finnst að kvenfólkið verði að vera fylgnara sér. Það þýðir ekki fyrir þær að vera að væla yfir því að hitt og þetta sé ekki gert fyrir þær og gef- ast svo upp. Þær verða að vera harðari og gera þá eitthvað í málinu sjálfar, taka þátt í umræð- unni og öllu starfinu, stjórnar- störfum, dómgæslu, foreldra- starfi og þess háttar. Það ergir mig svolítið þegar það er notað sem ástæða að konur séu farnar að búa. Þær vilja að karlinn komi meira inn á þeirra svið og þær verða þá líka að víkka sitt svið á móti,“ segir Guðni sannfærður um að framtíðin sé björt ef vilj- inn er fyrir hendi hjá kvenfólk- inu sjálfu. bryndis@frettabladid.is Fylkir og ÍA eigast við í 8-liða úrslitum bikarsins: Þola ekki að tapa ÞÓRHALLUR DAN JÓHANNSSON „Þeir sem einhvern tímann hafa spilað með Fylki vita að mórallinn hefur alltaf verið góður hjá félaginu, eiginlega of góður segja sumir." segir Þórhallur. knattspyrna Á morgun fara fram þrír leikir í átta-liða úrslitum bik- arkeppninnar í knattspyrnu, KA- Breiðablik, ÍBV-Leiftur og Fylkir- ÍA. Leikir síðastnefndu liðanna hafa jafnan þótt fjörlegir og eru bæði lið á góðu skriði um þessar mundir. Lið Skagamanna hefur verið í uppsveiflu eftir slaka byrj- un og Fylkir endurheimti annað sætið í deildinni eftir sigur á FH á dramatískum lokamínútum í fyrradag, 2-1. „Þó að það sé gam- an að vinna leik á þennan hátt þá veit ég það af eigin reynslu að það er skelfilegt að tapa svona. Þá er skárra að tapa bara 10-0 og eiga aldrei sjens,“ segir Þórhallur Dan Jóhannsson leikmaður Fylkis, sem er tilbúinn í slaginn á morg- un. „Skagamenn tóku okkur í bak- aríið í síðasta leik, gerðu þrjú mörk á 20 mínútum. En ég lofa því að við gerum betur á morgun. Finnur Kolbeinsson fyrirliði okkar var meiddur þá; hann verður með á morgun. Hann er rosalega drjúg- ur þó að ekki fari mikið fyrir hon- um og ég ég fullyrði það að hann er vanmetnasti leikmaður á landinu.“ Þórhallur segir Fylkisliðið vera að smella saman og liðsandinn sé alltaf mjög góður. Enda sé meiri- hluti liðsins uppalinn hjá félaginu eins og hjá ÍA. Þórhallur telur Akranesliðið mjög gott og það hafi aðeins verið tímaspursmál hvenær liðið hryk- ki í gang. „Óli (Þórðarson þjálfari ÍA) er bara þannig týpa, hann læt- ur menn spila með hjartanu; þetta virkar ekki annars. En þetta verð- ur hörkuleikur líka vegna þess að Óli og Alli (Aðalsteinn Víglunds- son þjálfari Fylkis og fyrrum að- stoðarþjálfari hjá í A ) eru vinir og þola ekki að tapa hvor fyrir öðr- um.“ Fylkis og fyrrum aðstoðar- þjálfari hjá ÍA ) eru vinir og þola ekki að tapa fyrir hvor öðrum." ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.