Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.07.2002, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 20.07.2002, Qupperneq 12
12 FRÉTTABLAÐIÐ 20. júlí 2002 LAUGARPAGUR HASKOLABIO HAGATORGI » SÍMI 530 (919 « STÆRSTA SÝNINGARTjALD LAKDSINS [amores perros ld.10 BAD COMPANY kl. io Isýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Imávahlátur kl. 6 og 81 jSCOOBY DOO kl.2,4, 6og 8. j [hjálp ég er fiskur kl. 2 og 3.45 | ÍBIG FAT LIAR kl. 2, 4, 6, 8 og lo| [ÍÍMMY NEUTRON kl. 2 og 4 J smnfífí^ bíú MR.JONES MR.SMITH Kl. 12,1,2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10, 11, 12 og 1 Sýnd kl. 12, 2, 4, 6, 8, 10 og 12 Sýnd kl. 1, 3, 5, 7, 9, 11 og I jíSÖLD m/ísl. tali kl. 12 og 21 [BLACK KNIGHT kl. 12, 2, 4 og 61 [llNFAITHFUL k[ 8 og 10.4o| ODDotby JDD/ Ihx SlMl 564 0000 - www.smarablo.ls GEORGE MICHAEL Hugsar málið þessa dagana. George Michael: Bedinn að semja lag fyrir Olymp- íuleikana fólk George Michael hefur verið beðinn um að skrifa þemalag ólympíuleikanna í Aþenu árið 2004. Hann er af grískum ættum eins og hans rétta nafn, Georgios Kyriacos Panayiotou, gefur til kynna. „Ólympíunefndin í Aþenu lagði fram beiðni um að semja lag fyrir leikana," sagði talsmaður nefndarinnar. George mun vera að hugsa málið. Michael, hefur verið í eldlínu fjölmiðla undanfarið. Ástæðan er nýja lagið hans, Shoot the Dog. í því gagnrýnir hann samband Tony Blairs, forsætisráðherra Bret- lands og George W. Bush, forseta Bandaríkjanna. Myndbandið við lagið, sem meðal annars sýnir hann í bælinu með Cherie Blair, eiginkonu Tony, hefur verið gagn- rýnt. Undirbúningur Ólympíuleik- anna hefur einnig verið umdeild- ur. Gagnrýnt hefur verið hversu langan tíma allt hefur tekið. ■ —«— Oskarsverðlaunum flýtt: Afhent í febrúar KVIKMYNDIR Bruce Davis, fram- kvæmdastjóri bandarísku kvik- myndaakademíunnar, segir að hægt sé að slá því föstu að ósk- arsverðlaunin verði afhent fyrr en vanalega. Hann segir að líta megi á það sem „fastákveðið mál“ að verðlaunin verði afhent í febr- úar á næsta ári. Vanalega hafa þau verið afhent í seinni hluta mars. Fulltrúar bæði Kodak leikhúss- ins, þar sem afhendingin fer fram, og bandarísku sjónvarpsstöðvar- innar ABC, sem sendir verðlauna- afhendinguna út um heim allan, hafa lagt blessun sína yfir flutn- inginn. Stjórn kvikmyndaakademíunn- ar hefur ákveðið að færa verð- launaafhendingu til í tvö ár i til- raunaskyni. Ugglaust hefur flutn- ingurinn margvísleg áhrif á kvik- myndaheiminn. Þegar er komið í ljós að bresku kvikmyndaverð- launin, Bafta, verða einnig flutt til, en þau eru vanalega afhent á undan óskarsverðlaununum. ■ FRÉTTIR AF FÓLKI Breska verslunin Sainsbury hefur hætt við fyrri áætlan- ir um að láta „nakta“ kokkinn Jamie Oliver og eiginkonu hans Jools koma fram nakin í sjón- varpsauglýsingu. Auglýsingin átti að sýna parið í baði. Talsmenn Sainsbury segja að ástæða þess að hætt var við myndatökuna hafi ekki verið þá að Oliver hafi andmælt hugmyndinni. Hug- myndin hafi einfaldlega ekki verið nógu góð. Julian Casablanca, sæti söngv- ari hljómsveitarinnar The Strokes, er búinn að jafna sig á hnémeiðslum sem hann hlaut um síðustu helgi í Los Angeles. Strákurinn ætlar að harka af sér og koma fram með sveitinni um helgina. Meiðslin komu í veg fyrir að Casablanca kæmist til New York í byrjun vikunnar og frestaðist því upphaf fyrirhug- aðrar tónleikaferðar. Ekki er ljóst hvernig hann fór að því að meiða sig, en talsmaður The Strokes fullvissar áhyggjufulla aðdáendur um að meiðslin séu ekki alvarleg. Hugsanlegt er að sjónvarps- þættirnir vinsælu um Soprano fjölskylduna verði færðir á hvíta tjaldið. Maðurinn á bak við þættina, David Chase, tekur vel í hugmyndina. Hann segir að hún gæti hugsanlega virkað. Hann segir vandamálið í handritsgerðinni yrðu krakk- arnir, á hvaða aldri þau ættu að vera. Einnig væri vandkvæðum bundið vísa til fortíðar, vegna þess að leikkonan sem lék móð- ur Tony Sopranos er ekki lengur HLJÓMSVEITIN STJÖRNUKISI Stjörnukisi hefur verið starfandi með hléum frá því að hún var stofnuð. Ýmsar mannabreytingar hafa orðið í gegnum tíðina en hljómsveitin eins og hún lítur út í dag starfað í eitt ár. Þrír meðlimir hafa verið frá upphafi þeir Bogi Reynisson, Gunnar Óskarsson, gítarleikari og Úlfur Chaka Karlsson, söngvari. Við hafa bæst Gísli Már Sigurjónsson, gítar og hljómborð og Ari Þorgeir Steinarsson, trommuleikari. „Ætlum að sinna landanum, heimurinn getur beðið“ Stjörnukisi með tónleika á Grand Rokk í kvöld. Nýr geisladiskur, Góðar stundir, kom út fyrir viku síðan. Fyrsta stóra platan þeirra. tónleikar Hljómsveitin Stjörnu- kisi hefur sent frá sér nýjan geisladisk. Diskurinn, sem kom út fyrir rúmri viku, ber heitið Góðar stundir og á honum eru tíu lög. Þrátt fyrir að hljómsveitin hafi verið starfandi síðan 1996 er þetta fyrsta stóra platan þeirra. í kvöld heldur Stjörnukisi partý á Grand rokk. Auk þess að spila frumsýna félagarnir nýtt mynd- band við lagið Rimini. Partýið hefst á miðnætti og stendur fram á nótt. Stjörnukisi vakti fyrst á sér athygli þegar hún vann Músíktil- raunir Tónabæjar árið 1996. Það sama ár sendi sveitin frá sér þriggja laga disk sem hún kallaði Veðurstofuna. Síðan þá hefur lít- ið sem ekkert komið frá hljóm- sveitinni, fyrr en nú. Bogi Reyn- isson, bassaleikari Stjörnukisa, segir þá félaga mjög ánægða með útkomu geisladisksins. „Við stóð- um að útgáfunni sjálfir. Okkur fannst tilvalið að gera þetta núna ekki síst í tilefni af því að við höf- um tekið í notkun nýtt upptöku- ver sem heitir einmitt í höfuðið á fyrstu plötunni okkar, Veðurstof- unni.“ Bogi segir öll lögin ný, allt eldra efni sem þeir félaga eiga óútgefið verði það enn um sinn. „Við spilum í-okk sem á að segja allt sem segja þarf um tónlistina okkar. Við semjum lögin samein- ingu og er allur gangur á því hvernig þau verða til. Það eru engir sólóistar í bandinu heldur fullkomin samvinna." Allt efni á nýju plötunni er sungið á íslensku. Aðspurður um heimsyfirráð eða dauða segir Bogi ekkert útiloka. „Við gerum ekkert meira í bili heldur en að sinna landanum. Heimui’inn get- ur beðið um sinn.“ ■ Hollywood uppgötvar Rúmeníu: Gjaldeyristekjur gleðja bæjarbúa KVIKMYNDIR Þrátt fyrir að bæjar- stjórinn í bænum Potigrafu hafi aldrei séð mynd með Nicole Kid- man, væri hann alveg til í að gera hana að heiðursborgara bæjar- ins. Gheorghe Voicu segir það eins og gjöf af himnum ofan að kvik- myndin „Cold Mountain" verði kvikmynduð í bænum. Um er að ræða stórmynd með Nicole Kidm- an og Jude Law í aðalhlutverkum. Hún byggir á sögu Charles Frazi- er og gerist í bandaríska borgara- stríðinu. Hún er tekin upp í þorp- inu. í því búa 1.300 manns. Bæjarstjórinn hefur verið upptekinn við það í sumar að laga leikskóla og grunnskóla bæjarins með peningum sem koma inn í gjaldeyristekjur vegna myndar- innar. Þetta er í fyrsta sinn sem Hollywood kvikmyndar í Rúmen- íu. Kosturinn í augum banda- rískra kvikmyndarisa er ótví- ræður. Meðallaun á mánuði eru einungis um það bil 100 dollarar, andvirði 8.000 íslenskra króna. Það er töluvert lægra en í ná- grannalöndunum, Tékklandi og Ungverjalandi, sem hafa reynst vinsæl sem tökustaðir. Annar af kostunum er t.d. sá að ekki þarf að fjarlægja ýmis ummerki um nútímann, eins og rafmagnslínur. Anthony Minghella, sem leik- stýrði „The English Patient," finnst þorpið og nágrenni þess fullkominn tökustaður. Rúmenar búast nú við því að fleiri kvikmyndir fylgi í kjölfar- ið, og gleðjast yfir væntanlegum gjaldeyristekjum. ■ BÖRNIN I POTIGRAFU Skólinn í bænum hefur verið endurnýjaður fyrir peninga sem streyma í bæjarsjóð eftir að ákveðið var að taka myndina „Cold Mountain" þar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.