Fréttablaðið - 20.07.2002, Page 15

Fréttablaðið - 20.07.2002, Page 15
20. júlí 2002 LAUGARUDAGUR FRETTABLAÐIÐ 15 Jazzvaknmg og Rringlukráin: Arne Forchhammer snýr tónleikar Jazzvakning og Kringlu- kráin bjóða upp á ókeypis tónleika annað kvöld klukkan níu. Það er danski píanistinn Arne Forchhammer sem leikur ásamt Tómasi R. Einarssyni bassaleikara og Pétri Grétarssyni trommara. Arne lék á Jazzhátíð Reykjavíkur ásamt tríói sínu fyrir tveimur árum og vakti leikur hans mikla hrifn- ingu. Arne er bæði meðal elstu og yngstu jazzpíanista Dana. Lengi lék hann með leikhúsvinnu, en 1969 stofnaði hann tríó með Erik Mos- aftur eholm og Jprgen Enliff sem hljóð- ritaði fræga plötu 1971. Hún nefnd- ist einfaldlega Trio. Fljótlega eftir það hætti Arne að mestu að spila og helgaði sig leikstjórn og handrita- gerð fyrir sjónvarp auk þess sem hann samdi mikið af efni fyrir skemmtikrafta á borð við Eddie Skoller og Tommy Ke-.ter. 1999 tók hann jazzþráðinn upp aftur og stofnaði tríó að nýju, Trio 2, gaf út skífuna Assimilation sama ár og ný- lega kom út önnur skífa, Pianoman- ia, sem hefur fengið mjög góða dóma í dönskum blöðum. ■ ARNE FORCHHAMMER Efnisskráin samanstendur af verkum Arne og þekktum söngdönsum sem hann hefur endurhljóðsett. Tríó Arne með Jesper Bod- ilsen og Birgit Lokke vakti mikla athygli á Jazzhátíð Reykjavíkur árið 2000 og gaman verður að heyra hvernig Arne leikur með Tómasi og Pétri. KAFFIHUS Rót verður Róm Við Rauðarárstíginn er kaffi- hús sem ekki fer mikið fyrir. Það hefur aldrei náð að komast í tísku en á sér engu að síður traustan hóp fastagesta sem ým- ist sest þar og snæðir hádegis- verð og fær sér kaffi eða kaupir brauð og kökur yfir búðarborð- ið. Þessi hópur situr sem fastast eftir andlitslyftingu og nafn- breytingu staðarins (Kaffi Rót varð Kaffi Roma). Andlitslyft- ingin var til góðs. Staðurinn er orðinn huggulegri en hann var og fjölbreytnin í veitingum hef- ur aukist. Sömuleiðis hefur ryk- inu verið dustað af espressóvél staðarins og nú er hægt að fá þar fínasta kaffi af öllum sort- KAFFI ROMA Laugavegi 118 Rauðarárstígsmegin um, bæði til að drekka á staðn- um og taka með sér ef vill. Á Kaffi Róma má fá nýsmurð rúnnstykki, ciabatta og fleiri brauðtegundir, pasta og heitar súpu. Þarna er engin tilgerð á ferð heldur traustur og þokka- legur matur. Það besta við Kaffi Róma er verðið. Ekki það að það sé neitt rosalega ódýrt, hver gerir ráð fyrir því? Hins vegar er þarna ekkert okur á ferð. Steinunn Stefánsdóttir listamaðurinn er staddur þar um þessar mundir. Sýningin stendur til 26. júlí. Safnið er opið þriðjudaga til laugardaga kl. 13-17. í Listasafni ASÍ sýna þær Valgerður Hauksdóttir og Kate Leonard. Sýningin stendur til 28. júlí og er opin alla daga nema mánudaga. Listasafns íslands sýnir tæplega ÍOO verk i eigu safnsins eftir 36 listamenn. Á henni er gefið breitt yfirlit um islenska myndlistarsögu á 20. öld, einkum fyrir 1980. Sýningin skiptist í fimm hluta: Upphafsmenn islenskrar myndlistar á 20. öld; Koma nútimans/módernismans í myndlist á íslandi; Listamenn 4. ára- tugarins; Abstraktlist; Nýraunsæi áttunda áratugarins. Listasafn (slands er opið alla daga nema mánudaga. Sýningin stend- ur til 1. september. í Gerðasafni stendur yfir fyrsta sýningin úr Listaverkasafni Þorvaldar Guðmunds- sonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur. Meðal annars eru til sýnis fjögur verk eftir tvo færeyska listamenn, S. Joen- sen Mikines og Ingálvur av Reyni. Sýn- ingin stendur til 28. júli og er opin alla daga nema mánudaga. Björg Sveinsdóttir sýnir myndir teknar á tónleikum hljómsveitarinnar Sigur Rós- ar í Laugardalshöll, Listasafni Reykjavík- ur, Montreux og London á Kaffitári við Laugaveg. Sýningin er opin á verslunar- tíma og lýkur 1. ágúst. SÝNINGAR______________________ I Þjóðmenningarhúsinu standa þrjár sýningar. Sýndar eru Ijósmyndir úr svo- nefndum Fox-leiðangri sem eru með elstu myndum sem teknar voru á is- landi, Grænlandi og I Færeyjum, sýning er á vegum Landsbókasafns á bók- menntum Vestur-íslendinga og loks er svo Landafundasýningin sem opnuð var árið 2000 og hefur nú verið framlengd. Aðgangur er ókeypis á sunnudögum. Hallgrímskirkja: Eistneskur org- anisti með tónleika KATRIN MERILOO Hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir orgelleik. tónleikar Fjórðu kvöldtónleikar Sumarkvölds við orgelið í Hall- grímskirkju verða annað kvöld, sunnudag. Þar kemur fram hin unga og efnilega Katrin Meriloo frá Tallinn í Eistlandi, en í sumar gefst áheyrendum kostur á að heyra leik organista frá öllum Eystrasaltslöndunum. Fyrir hálf- um mánuði spilaði organisti frá Litháen og eftir viku heldur org- anisti frá Lettlandi tónleika í kirkjunni. Efnisskrá Katrinar Meriloo er 5 mjög fjölbreytt og gefur mögu- s leilca á að nýta hið glæsilega § Klais-orgel Hallgrímskirkju til hins ítrasta. Fyrsta verkið er Fantasía í A- dúr eftir César Franck, frá barokktímabilinu er Prelúdía í G- dúr eftir Nicolaus Bruhns, tvö fuglaverk frá því snemma á 17. öld og barokktímabilið er svo brotið upp með verki eftir ung- verska tónskáldið Zsolt Gardonyi sem fæddur er 1946. Þá hljómar eitt þekktasta verk Johans Sebastians Bachs, hið einstaka verk Piéce d7tOrgue. Þar fara saman mikil leikgleði og stórir hljómar, í heild sinn hádramat- ískt verk. Þá leikur Katrin Mer- iloo verk eftir eistneska tón- skáldið Peeter Súda, sem lést að- eins 37 ára gamall árið 1920, Basso ostinato og Ave Maria, tvö verk um ki-ómatískt stef, en tón- leikunum lýkur með Sálma- fantasíu op. 40 nr. 2 eftir Max Reger. Katrin Meriloo er meðal frem- stu organista á Noi'ðurlöndum í Eystrasaltslöndunum. Hún hefur leikið með mörgum einleikurum og einsöngvurum, kórum og hjómsveitum. Nú býr Katrin Meriloo í Svíþjóð þar sem hún starfar sem kennari í orgelleik og meðleikari. Tónleikarnir í Hallgríms- kirkju hefjast klukkan 20. ■ Hátíð á Laugavegi: Ovæntar uppákomur UPPÁKOMA Verslanirnar Spútnik, Kron og Brim standa fyrir ýmsum uppákpmum á Laugaveginum í dag. Útimarkaður verður fyrir utan verslanirnar. Ilann hefst klukkan tíu í dag, um leið og verslanir við Laugaveginn opna. „Það verða ýmsar uppákomur í gangi. Við verðum með klippara út á götu, þannig að vegfarendur geta notað tækifærið og skellt sér í ódýra klippingu," segir Magni Þorsteinsson, annar eigandi skó- verslunarinnar Kron og hár- greiðslumaður. „Það verður skópússari á svæðinu og plötu- snúður sem leikur tónlist allan daginn." Magni segir uppákomuna tengjast átaki í miðbænum sem kallast meiriháttar miðbær. Spútnik, Kron og Brim hafi ákveð- ið að leggja sitt af mörkunum og skapa skemmtilega stemmingu, en verslanirnar standa á sama stað við Laugaveginn. „Síðan eru náttúrulega nóg af góðum tilboð- um hjá okkur enda útsölurnar í fullurn gangi.“ ■ Saif Gaddafi, sonur leiðtoga Lýbíu: Opnar sýningu í London mynplist Listaverk eftir son Gaddafis, leiðtoga Líbýu, sem endurspeglar gagnrýni hans á sprengjuárás Bandaríkj- anna á Trípólí árið 1986 verð- ur sýnt á sýningu með lí- banskri list í Bretlandi. Saif Gaddafi skapaði Intifada, eða „uppreisn11, í kringum sprengjuflís úr sprengju sem varpað var á heimili hans á meðan á loftárásinni stóð. Talsmaður hans segir fólki sem spyr hvað verkið tákni að það verði að túlka það sjálft. Ættleidd dóttir Líbýu- leiðtogans, sem Saif leit á sem systur sína, var sögð hafa látist í loftárásinni. Nokkur önnur málverk eftir Saif, sem er 30 ára gam- all arkitekt og verkfræðing- ur, verða á sýningunni. Efni hennar eru líbanskir fornmunir og samtímalist. Það er Alþjóðlegi vel- gjörðasjóður Gaddafis sem stend- ur fyrir sýningunni, en Saif er stjórnarformaður sjóðsins. Honum hefur verið frjálst að búa í Bretlandi síðan Sameinuðu þjóðirnar afléttu refsiaðgerðum á Líbýu. Þær höfðu verið settar vegna þáttar Líbýu í hryðjuverk- um. INTIFADA Listaverk eftir son Gaddafis sem sækir inn- blástur sinn í loftárás Bandaríkjamanna á Líbýu árið 1986. Sýningin ber heitið „Eyðimörk- in er ekki hljóð“. Hún verður í há- tíðartjaldi í austurhluta Alberts- garðsins, gegnt Royal Albert Hall og opnar næsta miðvikudag. ■ KNICKERBOX ÚTSALAN í fullum gangi Enn meiri verðlækkun Allt að 80% afsláttur Öll sundföt me 40-60°/ afslætti Sendum i póstkröfu KNICKERBOX Krínglunní, sfmi 533 4555 KNICKERBOX Laugavegi 62, sími 551 5444

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.