Fréttablaðið - 20.07.2002, Side 24

Fréttablaðið - 20.07.2002, Side 24
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VlÐ SEGJUM FRÉTTIR s MÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 515 7500 'l\H Nikon Lítil, handhæg og fullkomin stafræn myndavél frá Nikon — JÚLÍTILBOÐ: .49.900. Sjálfvirk lýsing /12 stillingar • Stafræn myndskerpa • Innbyggt flash • þyngd: 212g • Linsa: 3x Zoom f 5.6 -16.8 mm • Sjálftakari • 8 MB minni • 80 mín rafhlaða »Tölvutenging og Nikon View CD-Room myndaforrit fyrir Mac/PC. 0ORMSSON Bakþankar Eíríks Jónssonar Líða vel / Alítilli griskri eyju liggur rithöf- undur í gröf sinni. Hann réð sjálfur grafskrift sinni, en þar stendur: „Vænti einskis - óttast ekk- ert - ég er frjáls". Þetta var niður- staða hugsuðar eftir langa ævi sem skilaði heimsbyggðinni nokkrum af bestu bókum síðustu aldar. Verst að maðurinn skyldi ekki hafa komist að þessu fyrr. Hann fer ekki langt með legsteininn úr þessu. —♦— Þekki annan mann sem er enn ofan jarðar og væntir mikils. Hann á stóran jeppa og er að bíða eftir stöðuhækkun svo hann geti borgað hann. Líf hans er samtvinnað ótta við að hvorugt gangi eftir. Kannski verður hann ekki frjáls fyrr en í gröfinni. — Svo þekki ég konu sem finnst maðurinn sinn ekki nógu góður. Þó eiga þau þrjú börn saman, hús og bíl. Og maðurinn er ágætur. Samt er hún alltaf að bíða eftir draumaprins- inum og leggur sitt af mörkum í leit að honum á mannamótum í tíma og ótíma. Með væntingarnar í snyrti- töskunni og óttann í brjósti. Hennar bíður gröfin eins og annarra. Ekki er hægt að gera þá kröfu til þessa fólks eða annarra að það til- einki sér hugsun gríska rithöfundar- ins og láti þar með eigin ótta lönd og leið. Því síður að segja því að í raun sé ekkert að óttast nema eigin ótta. Menn þurfa að lifa lengi til að skilja það. Þó má leiðbeina í mestu vin- semd í veikri von um að einhvers staðar kvikni ljós í kolli. ........ í sjálfu sér skiptir engu máii hvað húsið þitt er stórt eða bíllinn fallegur. Hversu ríkur, frægur eða framsækinn þú ert. Sálinni verður aldrei lyft með því einu að pússa skóna þína. Nema um stundarsakir. Því þegar öllu er á botninn hvolft skiptir það eitt máli hvernig þér líð- ur. Það skildi sá gríski undir lokin og tókst að koma fyrir á legsteini sín- um. Frelsið er lífið. Óttinn er skuggi þess. Væntingarnar kynda svo bálið sem allt blindar. Nema fólk sjái að sér. ■ KrÍKc, (oo\ P II H 5 E M /l J H R T H Ð 5 L It R Yfir 150 verslanir og þjónustuaðilar á einum stað. Kringlu-kart um heigina! Go-kart bílabrautin frá Reis-bílum, Reykjanesbæ, verður á bílastæðum Kringlunnar aftan við Sjóvá-Almennar, laugardag og sunnudag 13.00-20.00. Verð fyrir 5 mín. er 1.000 kr. Aldurstakmark er 12 ára. Upplýsingar í síma 893 1992. Enn meiri verðlækkun! LÁGMÚLA 8 • SÍMI 530 2800

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.