Fréttablaðið - 26.07.2002, Blaðsíða 2
INNLENT
FRÉTTABLAÐIÐ
26. júli 2002 FÖSTUPAGUR
Bæjarráð Reykjanessbæjar
lýsti áhyggjum af fyrirhug-
uðum fjöldauppsögnum starfs-
fólks hjá fyrirtækjum á Kefla-
víkurflugvelli á fundi sínum í
gær. í bókun bæjarráðs segir að
þó gera megi ráð fyrir að um sé
að ræða árstíðarbundna sveiflu
að einhverju leyti megi vera
ljóst að grípa þurfi í taumana og
leita allra ráða til að draga úr
fjöldauppsögnum.
Skuldir Norðurljósa hjá Landsbankanum:
Hætt við gjaldfellingar
19 skuldabréfa
Minnihlutinn í bæjarráði
Vestmannaeyja gagnrýndi
meirihlutann í gær fyrir að hafa
ekki skipað menn í viðræðu-
nefnd við dómsmálaráðuneyti til
að koma í veg fyrir að breyting-
ar á reglugerð um kostnað við
löggæslu á útihátíðum setji
Þjóðhátíð ekki í uppnám á kom-
andi árum.
MILOSEVIC
Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseti
Júgóslavíu, þarfnast hvíldar.
Slobodan Milosevic:
Gæti fengið
hjartaáfall
HAAC. hollandi. ap Slobodan Milos-
evic, fyrrverandi forseti
Júgóslavíu, er í alvarlegri hættu á
að fá hjartaáfall og þarfnast
hvíldar. Þetta segir læknir á veg-
um Sameinuðu þjóðanna sem
rannsakaði hann hátt og lágt ný-
verið. Milosevic, sem er sextugur
að aldri, hefur að minnsta kosti
tvisvar fengið flensu síðan réttar-
höldin yfir honum hófust hjá
stríðsglæpadómstól Sameinuðu
þjóðanna í febrúar síðastliðnum.
Hefur þurft að fresta réttarhöld-
unum um mánuð af þeim sökum.
Milosevic, sem er lögfræðingur
að mennt, ver sig sjálfur í réttar-
höldunum. ■
LÖGREGLUFRÉTTIR
Brotist var inn í Lyf og heilsu í
Glæsibæ í fyrrinótt. Að sögn
lögreglu voru tveir menn hand-
teknir þegar þeir reyndu að kom-
ast af vettvangi í bíl. Stolið var
ávanabindandi lyfjum, en ekki er
vitað hversu miklu. Málið er í
rannsókn.
Drengur slasaðist þegar hann
féll í húsgrunn og lenti á
steyputeini í Grafarholti í fyrra-
kvöld. Að sögn vakthafandi lækn-
is liggur drengurinn alvarlega
slasaður á gjörgæsludeild Land-
spítalans í Fossvogi.
Hæstiréttur hefur staðfest
gæsluvarðhaldssúrskurð yfir
manni á þrítugsaldri. Manninum
var sleppt af Litla-Hrauni 18. júlí
en um klukkutíma síðar stöðvaði
lögreglan á Selfossi hann á ofsa-
hraða á stolnum bíl. Maðurinn
var með talsvert þýfi í bílnum og
verður í gæsluvarðhaldi til 2.
september.
Þorri Bryndísarson, 16 ára pilt-
ur, sem lögreglan hefur leitað
síðan 1S. júlí, kom í leitirnar í
austurbæ Reykjavíkur í fyrr-
inótt. Barnaverndaryfirvöld eru
nú með hann í sinni umsjá, en
málið er til rannsóknar hjá lög-
reglu.
NORÐURLJÓS „Við höfum vitneskju
um að Landsbankinn ætli að falla
frá gjaldfellingu þessara 19
skuldabréfa. Við greiddum fyrir
skömmu vaxtaafborgun af þess-
um bréfum upp á tæpar fjórar
miljónir og höfum nú greitt það
sem upp á vantaði, tæplega 250
þúsund krónur. Tékkinn hefur
verið innleystur og lögmönnum
falið að hætta við gjaldfelling-
una,“ segir Sigurður G. Guðjóns-
son, forstjóri Norðurljósa.
Bréfin eru hluti skuldabréfa
upp á tvo milljarða króna sem
lífeyrissjóðirnir í landinu keyptu
af Norðurljósum. Landsbankinn
á 22 þessara bréfa, sem voru
með gjalddaga á vaxtagreiðslum
í lok maí síðastliðnum. Norður-
ljós gátu ekki að fullu staðið í
skilum með vaxtagreiðslurnar
og hugðist Landsbankinn gjald-
fella 19 þessara bréfa. Vaxta-
greiðslur af þremur bréfanna
voru í skilum. Hvert þessara 22
skuldabréfa er upp á fimm millj-
ónir króna, þannig að til stóð að
gjaldfella bréf upp á 95 milljónir
króna. ■
Umræðan alls ekki
góð fyrir bankann
Ekkert samráð við keppinauta Norðurljósa um að knýja fyrirtækið í
gjaldþrot segir formaður bankaráðs. Lögregla rannsaki hvort trúnaðar-
upplýsingar komu frá bankanum
Það er óraun-
hæft að halda
því fram að
við getum
knúið Norður-
ijós í gjaid-
þrot.
búnaðarbankinn „Við erum þess
fullvissir að það sem gert var fyr-
ir hönd bankans var fyrst og
fremst til að ti’yggja hagsmuni
hans. Hitt er jafnljóst að öll sú
umræða sem spunnist hefur að
___ undanförnu er alls
ekki góð fyrir
bankann," segir
Magnús Gunnars-
son, formaður
bankaráðs Búnað-
arbanka Islands.
Ráðið þingaði í
gær og fjallaði
—4__.~ meðal annars um
kæru Norðurljósa
til Fjármálaeftirlitsins, vegna inn-
heimtuaðgerða bankans gagnvart
félaginu. í yfirlýsingu banka-
ráðsins segir að ráðið telji að
fullnægjandi skýringar hafi kom-
ið fram um atvik málsins. Bank-
inn geti hins vegar ekki tjáð sig
frekar um málið vegna banka-
leyndar. Málsatvik verði skýrð
fyrir Fjármálaeftirlitinu. Þá tel-
ur bankaráðið upplýst að upplýs-
ingar um lánastöðu Norðurljósa
hafi ekki komið frá bankanum,
þrátt fyrir að skjalanúmer hafi
fyrir mistök verið sett á blað af
hálfu bankans.
„Skjalanúmerin segja ekkert
um lánin sjálf og við erum þess
fullvissir að bankaleynd var ekki
brotin. Við höfum hins vegar ósk-
að eftir lögreglurannsókn á því
hvort og þá með hvaða hætti trún-
aðarskjöl hafi komið úr bankan-
um,“ segir Magnús Gunnarsson.
Magnús segir að bankinn hafi
alls ekki átt samráð við keppi-
nauta Norðurljósa um að beita að-
stöðu sinni til að knýja fram gjald-
þrot Norðurljósa.
„Það er óraunhæft að halda því
fram að við getum knúið Norður-
ljós í gjaldþrot. Kröfur Búnaðar-
bankans eru afar lítill hluti heild-
arskulda Norðurljósa og stærri
kröfuhafar láta Búnaðarbankann
ekki ráða ferðinni í þeim efnum,“
segir Magnús Gunnarsson.
MAGNUS GUNNARSSON
FORMAÐUR BANKARÁÐS BÚNAÐARBANKA ÍSLANDS HF.
Hagsmunir bankans hafðir að leiðarljósi við úrlausn mála Norðurljósa. Umræðan að
undanförnu ekki
Hann ítrekar að bankinn sé og
hafi verið tilbúinn til viðræðna
við forsvarsmenn Norðurljósa um
nauðsynlegar tryggingar fyrir
ið fyrir bankann.
lánum, svo unnt verði að falla frá
yfirstandandi innheimtuaðgerð-
um.
the@frettabladid.is
Upplýsingar um lánveitingar til Skjás eins:
Las rangt úr gögnum frá Búnaðarbankanum
búnaðarbankinn „Ég harma að
hafa lesið rangt úr þeim gögnum
sem ég hafði um skuldastöðu Skjás
eins við Búnaðarbankann. Mér
datt bara ekki í hug að fyrirtæki
sem hyggst yfirtaka rekstur Norð-
urljósa væri með 160 þúsund krón-
ur í vanskilum í næstum heilt ár,“
segir Sigurður G. Guðjónsson, for-
stjóri Norðurljósa.
í frétt blaðsins í gær var haft
eftir Sigurði G. að Skjár einn
skuldaði Búnaðarbankanum 162,5
milljónir sem fallið hefðu í gjald-
daga 15. ágúst 2001 og að inn-
heimtuaðgerðir hefðu ekki verið
hafnar þann 23. maí síðastliðinn.
Vísaði forstjóri Norðurljósa þar í
trúnaðarupplýsingar úr viðskipta-
mannaskrá Búnaðai'bankans.
í tilkynningu sem Búnaðar-
bankinn sendi frá sér segir að um-
fjöllun blaðsins sé í meginatriðum
röng. Að fenginni heimild skuldara
upplýsir bankinn að um hafi verið
að ræða viðskiptavíxil að fjárhæð
162.500 krónur auk dráttarvaxta.
Víxillinn hafi verið í innheimtu-
meðferð en hafi nú verið greiddur
að fullu. Þá segir Búnaðarbankinn
að Norðurljós hafi komist yfir um-
rædd gögn með ólögmætum hætti
og notað þau undanfarið til að
koma höggi á bankann í fjölmiðl-
um.
Forstjóri Norðurljósa bað í gær
Árna Tómasson, aðalbankastjóra
Búnaðarbankans afsökunar á um-
mælum sínum.
Fréttablaðinu þykir miður að
hafa farið rangt með upplýsingar
um lánveitingar Búnaðarbankans
til Skjás eins og biður hlutaðeig-
andi velvirðingar á því.
the@frettabladid.ís
Launamisréttisdómur:
Bærinn
áfrýjar
dómstólar Bæjari’áð Akureyrar
ákvað í gær að áfrýja dómi Hér-
aðsdóms Norðurlands eystra í
máli Guðrúnar Ólafíu Sigurðar-
dóttur gegn bænum. Héraðsdóm-
ur hafði fundið bæinn sekann um
að hafa greitt Guðrúnu Ólafíu
lægri laun en karlmanni í sam-
bærilegu starfi. Var bænum gert
að greiða henni 4,8 milljónir
króna leiðréttingu.
Ákvörðun um áfrýjunina var
tekin með fjórum atkvæðum gegn
einu. ■
Smáauglýsingar
Nýtt met á
hverjum degi
útgáfa Nýtt met er sett í smáaug-
lýsingum Fréttablaðsins í dag.
Blaðið hefur aldrei birt fleiri
auglýsingar sama daginn. Það
sama gerðist i gær. Þá var sett
met - sem er síðan slegið í dag. í
gær gerðist það að smáauglýs-
ingar í Fréttablaðinu voru fleiri
en smáauglýsingar í DV.
„Þetta eru frábærar viðtök-
ur,“ segir Dagný Jóhannesdóttir,
deildarstjóri smáauglýsinga-
deildar. „í gær höfðum við birt
smáauglýsingar átta daga. DV
hefur hins vegar verið rúma átta
áratugi á markaðnum."
Þrátt fyrir að smáauglýsingar
Fréttablaðsins hafi augljóslega
tekið frá smáauglýsingum DV
eru áhrifin fyrst og fremst þau
að fleiri nota smáauglýsingar.
„Smáauglýsingar koma nú fyrir
augu miklu fleiri og það ýtir und-
ir að fólk notfæri sér þennan frá-
bæra auglýsingamáta,“ segir
Dagný.B
ERLENT
Zacarias Moussaoui lýsti sig í
gær saklausan af ákærum um
að hafa tekið þátt í að skipu-
leggja hryðjuverkaárásirnar í
New York og Washington 11.
september sl. Moussaoui hafði
áður lýst sig sekan um nokkur
ákæruatriði.
Stjórnvöld í Erítreu hafa óskað
eftir aðstoð hjálparstofnana
og alþjóðastofnana til að koma í
veg fyrir að miklir þurrkar valdi
mannskæðri hungursneyð.
Norður-Kóreumenn lýstu því
yfir í gær að þeim þætti leitt
að komið hefði til mannskæðrar
sjóorrustu milli Kóreuríkjanna
29. júní sl. N-kóresk stjórnvöld
höfðu áður sakað Suður-Kóreu-
menn um að bera ábyrgð á orr-
ustunni.
Ibúar á Gíbraltar munu ganga
til atkvæða um það hvort
landssvæðið heyri sameiginlega
undir Bretland og Spán eins og
stjórnvöld ríkjanna hafa verið að
semja um eða hvort þeir hafni
því að Gíbraltar heyri á nokkurn
hátt undir Spán.
SIGURÐUR G. GUÐJÓNSSON
Datt bara ekki í hug að fyrirtæki sem
hyggst yfirtaka rekstur Norðurljósa væri
með 160 þúsund krónur í vanskilum í
næstum heilt ár.