Fréttablaðið - 26.07.2002, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 26.07.2002, Blaðsíða 12
12 FRÉTTABLAÐIÐ 26. júlí 2002 FÖSTUPAGUR NM kvenna U-21 árs: Leikið gegn Svíþjóð í dag SAMVELDISLEIKARNIR Ungir skóiadrengir í Manchester æfa Haka, sem er dans Maóra, frumbyggja Nýja Sjá- lands. Þeir sýndu dansinn á opnunarhátíð Samveldisleikanna í gær. fótbolti ísland leikur gegn Svíum í dag, í síðasta leik riðilsins á Norð- urlandamóti U-21 árs í kvennaknattspyrnu. íslenska liðið hefur tapað tveimur fyrri leikjun- um 4-0, gegn Noregi og Þýska- landi. Svíþjóð tapaði í gær fyrir Noregi 3-1 og hafði áður gert jafn- tefli 2-2 við Þýskaland. Noregur og Þýskaland eigast því við í leik um fyrsta sætið í riðlinum en ís- land getur orðið í þriðja sæti með sigri í dag. Ef það gengur ekki eft- ir leika þær íslensku um 5. sætið líklega við Bandaríkin eða Finn- land. Athygli hefur vakið í hinum riðlinum að Bandaríkin sem voru talin sigurstrangleg í mótinu töp- uðu fyrir Danmörku og gerðu jafntefli við Finnland. Leikið verð- ur um sæti á sunnudag. ■ Símadeild kada: Toppslagur á Akureyri fótbolti KA og Fylkir mætast í tí- undu umferð Símadeildar karla á Akureyrarvelli í kvöld klukkan 19.15. Fylkir er í öðru sæti deild- arinnar með 18 stig en KA í því þriðja með 16. Leikir liðanna hafa alltaf verið hin mesta skemmtun. Þau mættust í úrslitaleik Coca- Cola bikarkeppninnar í fyrra, þegar norðanliðið lék í 1. deild. Þá sigraði Fylkir. Þau drógust saman í undanúrslitum bikarkeppninnar í ár. Ef Fylkir sigrar í kvöld getur liðið skotist í efsta sæti deildar- innar, einu stigi á undan KR. Vest- urbæjarliðið á þó leik til góða. Á TOPPINN? Ef Fylkir sigrar í kvöld geta þeir skotist í toppsæti Símadeildarinnar. Fari svo að KA sigri skipta þeir um sæti við Árbæjarliðið. ■ | ÍPRÓTTIR í PAC | 14.00U21 kvenna NM B riðill (fsland - Svíþjóð) 16.45RÚV Fótboltakvöld 18.30 Sýn fþróttir um alfan heim 19.15Akurevran/állur Símadeiid karla (KA - Fylkir) 19.30 Sýn Gillette-sportpakkinn 20.00 Stjörnuvöllur 1. deild karla (Stjarnan - Vikingur R.) 2Q.OOHIiðarendi 1. deild karla (Valur - Leiftur/Dalvik) 20.00 fR-völlur 1. deild karla (l'R - Breiðablik) 20.00 Niarðvlkurvöllur 2. deild karla (Njarðvik - HK) FÓTBOLTI Hugsanlegt er að Manchester United bjóði 4 milljónir punda í franska varnarmanninn Julien Escude hjá Rennes. Á dög- unum seldi United varnarmann- inn Denis Irwin til Wolves og þeir þurfa mann í staðinn. Fyrir nokkrum dögum sögðu forsvars- menn félagsins hinsvegar að kaupin á Rio Ferdinand mörkuðu endalok eyðslunnar í leikmenn. Fjölmiðlar á Englandi hafa gert því skóna að Terry Venables þjálfari Leeds ætli að setja mark- vörð liðsins Nigel Martyn út í kuldann vegna þess að hann fór ekki með í æfingaferð til Asíu. Martyn sagðist hinsvegar hafa fengið leyfi hjá Venables til að vera heima því hann hafi spilað alla leiki liðsins á síðasta keppn- istímabili auk þess að hafa verið í enska landsiðinu á HM. „Á síð- ustu sex árum hef ég varla misst úr æfingu eða leik og ávallt helg- að mig liðinu. Ég geri ekki ráð fyrir öðru en ég verði aðalmark- vörður." nattspyrnustjóri West Bromwich Albion, Gary Meg- son hefur undirritað nýjan þrigg- ja ára samning við liðið. Megson sem var þjálfari Stoke áður en Guðjón Þórðarson tók við, stýrði liði sínu með Lárus Orra Sigurðs- son innanborðs, upp í úrvalsdeild á síðasta keppnistímabili. „Meg- son nýtur mikillar virðingar í Englandi fyrir að hafa komið lið- inu upp og hann er mjög mikil- vægur í okkar fyrstu úrvalsdeild- arbaráttu," sagði Jeremy Peace forystumaður í WBA. IAN THORPE Ástralska sundstjarnan lan Thorpe, sem vann þrenn gullverðlaun á Ólympíuleikun- um í Sydney, verður meðal þátttakenda I Manchester. Bresku samveldisleikarnir: Stefnir í miðasölumet samveldisleikar Miðasala á Bresku samveldisleikana sem hófust í Manchester í gær hefur gengið framar björtustu vonum skipuleggjenda. Yfir 90% miða sem ætlaðir voru til almennrar sölu eru þegar seldir og stefnir í miðasölu-metið sem sett var á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000. Þá er átt við hlutfall seldra miða sem var 94% í Sydney. Niels de Vos sem stýrir skipulagningu fjármálahliðar mótsins sagði að nú þegar hefði selst tvöfalt meira á þessa leika en áður hefur þekkst á samveldisleikum. Nokkrum klukkustundum fyrir opnunarhá- tíðina í gær voru aðeins 200 miðar eftir og voru þeir á dýrasta stað, kosta 195 pund eða um 26 þúsund krónur. Ein milljón miða er gefin út á hina 17 viðburði keppninnar og opnunar- og lokahátíð. Þar af eru 750 þúsund í almennri sölu.B Umboðsmaður Dennis Wise segir leikmanninn ætla í lög- fræðing ef Leicester rýfur samn- inginn við hann, eins og þeir eru að velta fyrir sér eftir að Wise kinnbeinsbraut samherja sinn í Finnlandi á dögunum. Umboðs- maðurinn segir að Wise, sem er 35 ára fyrrverandi lykilmaður Chelsea, vilji leika áfram með Leicester. Leicester gefur út yfir- lýsingu í dag um það hvað gert verður í málinu. Fallhlífa- stökkvarar vita jaðarsport „Ég hef haft 1260 nem- endur og það hefur engin slasast, fyrir utan eitt tábrot," segir Þórjón Pétursson, sem rekið hefur Fall- hlífastökkskóla íslands síðan 1985. „Tölfræðilega séð er öruggara að stökkva úr flugvél en að keyra í bíl á stökksvæðið. Þegar þú ert hins vegar kominn á 200 kílómetra hraða í átt að móður jörð þá er þér slétt sama um alla tölfræði," segir Þórjón inntur um hættuna af stökkinu. „Þetta er mjög öruggt sport en það fer illa ef það mis- tekst. Ef þú ert vakandi og þekkir öryggisatriðin þá ertu í góðum mál- um. Ef þú ert hins vegar orðinn of kaldur og klár þá grípur vindurinn í rassinn á þér.“ Þórjón fékk 1 ðaÉ YNGSTI STÖKKVARINN Ottó Aage Þórjónsson, tíu ára, er yngsti stökkvari landsins. „Hann var lengi búinn að væla um að fá að koma með enda er hann al- inn upp við þetta," segir Þórjón sem stökk með hann framan á sér í sumar. STOKKIÐ ÚR FLUGVÉL Þórjón segir að af tæplega 1300 nemend- um hafi tveir eða þrír hætt við þegar að stökkinu var komið. STJARNA HÁTT Á HIMNI SKÍN Þeir sem eru lengra komnir í fallhlífastökkinu leika ýmsar kúnstir og listir í loftinu. stökkbakteríuna með Flug- björgunarsveitinni árið 1983 og hefur verið óstöðv- andi síðan. Hann á að baki rúmlega tvö þúsund stökk. Byrjendur í greininni stökkva fyrst í um þrjú þúsund fetum (1300 metrar). Þeir vönu stökkva úr allt að tíu þúsund fetum. Þórjón segir fallhlífastökk stríða gegn öllum lögmálum skynseminnar. „Þetta er samt eins og kynlífið. Það er ekki hægt að lýsa þessu ef þú hefur ekki prófað það. Það er fræg setning sem segir að aðeins fallhlífa- stökkvarar vita af hverju fuglarnir syngja. Tilfinningin er nefnilega sú að þér finnst þú vera að svífa en ekki falla.“ af hverju fugl- ♦ ♦ armr syngja Um 50 manns stunda fallhlífastökk reglulega hér á landi. Mun fleiri hafa lært sportið. „Or- uggt sport en fer illa ef mistekst,“ segir skóla- stjóri Fallhlífastökkskóla Islands. Hermann Hreiðarsson hjá Ipswich: Sáttur vid sitt fótbolti Hermann Hreiðarsson, knattspyrnumaður hjá Ipswich, segist ekki vita til þess að hann verði seldur frá félaginu eins og komið hefur fram í enskum fjöl- miðlum. Samkvæmt enskum net- miðlum er hugsanlegt að Her- mann verði seldur til úrvalsdeild- arliðs áður en leikmannamarkað- urinn lokar, þann 1. september. Fulham og Blackburn eru sögð sýna honum áhuga. „Ef eitthvað gerist þá gerist það í næst mánuði," sagði Her- mann í viðtali við Fréttablaðið. Hann segist afar sáttur hjá Ipswich en liðið féll úr úrvals- deildinni eftir síðasta tímabil. „Það vilja allir spila í úrvals- deild og metnaður minn liggur þar. Ef eitthvað gerist og ég verð seldur til liðs í úrvalsdeildinni þá verð ég sáttur við það. Ég verð samt líka sáttur ef ég verð áfram hér.“ Ipswich Town á við fjárhags- örðugleika að stríða og hefur þurft að selja marga af bestu leik- mönnum sínum. ■ HERMANN HREIÐARSSON Hefur meðal annars spilað með Crystal Palace, Wimbledon og Brentford. Hann er metinn á fimm milljónir punda.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.