Fréttablaðið - 26.07.2002, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 26.07.2002, Blaðsíða 4
4 FRETTABLAÐIÐ 26. júlí 2002 FÖSTUDAGUR SVONA ERUM VIÐ A við góðan kaupstað Prestaköll landsins eru eins og gefur að skilja misjafnlega fjölmenn. Þannig eru 10.528 sóknarbörn í Grafarvogspresta- kalli, sem er fjölmennasta prestakall landsins, en aðeins 30 í Þingvallapresta- kalli, sem er það fámennasta. í fimm prestaköllum fer fjöldi sóknarbarna yfir 6.000. Grafarvogsprestakall 10.528 * Hafnarfjarðarprestakall 7.938 Hjallaprestakall 6.882 Nesprestakall 6.795 Akureyrarprestakall 6.386 | KALAM A.P.J. Abdul Kalam, í miðjunni, ásamt Narayanan, til vinstri, fyrrverandi forseta landsins. Kalam var kosinn í embættið í siðustu viku. Eldflaugavísindamaður í embætti: Kalam nýr forseti Indlands NÝJA DELHI.INDLANDI. AP Eldflauga- vísindamaðurinn A.P.J. Abdul Kalam sór í gær eið sem næsti for- seti Indlands. í ræðu sinni við embættistökuna sagði Kalam að Indverjar þurfi að vera undirbúnir fyrir aukna ógn af völdum hryðju- verka og óþægindi vegna innanrík- isdeilna og atvinnuleysis. Kalam hefur í meira en 40 ár unnið að varnarmálum fyrir Indland, þá að- allega á rannsóknarstofum vegna geim- og kjarnorkuáætlana lands- ins. Hann tók þátt í fimm kjarn- orkutilraunum neðanjarðar árið 1998, við mikil mótmæli alþjóða- samfélagsins. ■ ERLENT Atvinnuleysi í Brasilíu dróst saman í júní í fyrsta sinn á árinu. Vonast er til að það gefi vísbendingar um að efnahagur landsins sé að skána. Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, segist sannfærður um að Pólland gæti gengið inn í Evrópusamnandið árið 2004. Straw lét þessi orð falla eftir fund sinn með Wlodzimierz Cimoszewicz, utanríkisráðherra Póllands. „Við höfum fylgst náið með þeim árangri sem Pólland hefur náð undanfarið í átt að ESB aðild,“ sagði Straw. Bandaríska þingmanninum James Traficant var í gær vikið úr fulltrúadeild Banda- ríkjaþings vegna ásakana um spillingu. Hann er annar þing- maðurinn frá því borgarastyrj- öldin stóð yfir sem rekinn er af bandaríska þinginu. Traficant var rekinn með 420 atkvæðum gegn einu. Þrjár af hverjum f jórum þrí- tugum konum í Bandaríkjun- um hafa verið giftar. 43% allra hjónabanda í landinu enda með skilnaði innan 15 ára. Þetta kem- ur fram í könnun sem 11 þúsund bandarískar konur tóku þátt í. Minnstar líkur eru á því að þeldökkar konur giftist. Ef þær giftast eru þær aftur á móti lík- legastar til að skilja við eigin- menn sína. Palestínskur erindreki: Israelar skulu svara til saka sameinuðu þjóðirnar. ap Erindreki Palestínumanna hjá Sameinuðu þjóðunum hefur krafist þess að Israelar verði látnir svara til saka hjá nýstofnuðum glæpadómstóli Sameinuðu þjóðanna fyrir að hafa myrt 15 manns í eldflaugaárás á Gasasvæðinu fyrr í vikunni. Sagði erindrekinn, Nasser al-Kidwa, að um væri að ræða fyrsta stríðs- glæpinn sem framinn hefði verið síðan dómstóllinn var stofnaður þann 1. júlí. Fulltrúar arabaríkja boðuðu til neyðarfundar í gær hjá öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna til að ræða árás ísraela. Ekki náðist sam- komulag um að hvetja ísraela til að hætta árásum sínum á Palestínu- menn. Þess í stað samþykktu full- trúar araba- og vestrænna ríkja að fordæma framgang ísraela. ísraelskir ráðamenn hafa þegar viðurkennt að þeir hafi gert mistök í RÚSTUM Palestínskur drengur stendur í rústum byggingarinnar sem herþotur ísraela réð- ust á sl. þriðjudag. Háttsettur meðlimur innan Hamas-samtakanna féll í árásinni. með því að gera árás á svæði þar sem svo margir bjuggu.B Hugðust smygla 350 kg af hassi með skútu Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær þrjá menn fyrir tilraun til að smygla rúmum 30 kg af hassi til landsins. Höfuðpaurinn fékk tveggja ára fangelsisdóm. Hassið var falið inn í sérsmíðaðri spænskri viðarhurð. dómsmAl Héraðsdómur Reykjavík- ur dæmdi í gær þrjá menn um fer- tugt í fangelsi fyrir tilraun til þess að smygla rúmlega 30 kílóum af hassi hingað til lands frá Spáni í nóvember árið 1999. Talið er að mennirnir hafi einnig ætlað að smygla um 350 kílóum af hassi til landsins með skútu. Einar Óli Ein- arsson fékk þyngsta dóminn eða tveggja ára fangelsi, en hinir tveir fengu vægari dóma. Annar þeirra fékk 9 mánaða skilorðsbundinn dóm en hinn fékk 9 mánaða dóm þar af 6 mánuði skilorðsbundna. Málið átti sér þónokkurn að- draganda og má rekja upphafið til vísbendingar sem lögreglan fékk sumarið 1998 um að fyrirhugaður væri innflutningur á mjög miklu magni af hassi. I framhaldi af því voru símar nokkurra hinna grun- uðu hleraðir og fylgst með þeim. Fljótlega kom í ljós að Einar Óli var í sambandi við menn erlendis, bæði í Frakklandi og á Spáni, í þeim tilgangi að smygla fíkniefnum til landsins. Talið er að strax um haustið árið 1998 hafi skúta með um 350 kíló af hassi lagt af stað til ís- lands frá Suður- Evrópu og átti hún að koma í land við Djúpavog eða Loðmundarfjörð. Áætlað söluverð- mæti efnisins var rúmlega 200 milljónir króna og auk íslands var rætt um markaðssetningu í Fær- eyjum og á Grænlandi. Efnið komi hins vegar aldrei til landsins og mun skútunni hafa verið snúið við vegna veikinda skipstjórans. Árið 1999 hóf Einar Óli undir- búning á sendingu á rúmum 30 kílóum af hassi frá Spáni. Var efn- ið falið inni í einni af tíu sérsmíð- uðum viðarhurðum. Um haustið voru hurðirnar komnar til flutn- ingsmiðlara í Barcelona og átti að —♦— Auk íslands var rætt um markaðssetn- ingu í Færeyj- um og á Grænlandi. ---▲ HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Við ákvörðun refsingar sakborninganna tók Héraðsdómur m.a. tillit til þess þrjú ár eru lið- in síðan málið hófst og þótti dómara Ijóst að það hefði haft áhrif á lif þeirra. Það sem einkum tafði málið var seinagangur í gagnaöflun frá Spáni. flytja þær hingað til lands í nafni íslensks fyrirtækis. Eigandi þess hafði gefið einum sakborninganna leyfi til að nota nafn fyrirtækisins, en hafði ekki hugmynd um að ver- ið væri að reyna að smygla fíkni- efnum. Þann 8. nóvember 1999 gerði spænska lögreglan hassið upptækt og handtók tvo Spánverja sem voru í vitorði með íslending- unum. Þeir hafa ekki enn verið ákærðir. Af fyrirliggjandi gögnum hefur ekki verið ráðið hvort leit hefur verið gerð að tengilið íslend- inganna í Frakklandi, sem gekk undir nöfnunum Yves, „sundkapp- inn“ og „frændinn." Við ákvörðun refsingar sak- borninganna tók Héraðsdómur m.a. tillit til þess að þrjú ár eru lið- in síðan málið hófst og þótti dóm- ara ljóst að það hefði haft áhrif á líf þeirra. Það sem einkum tafði málið var seinagangur í gagnaöfl- un frá Spáni. Gæsluvarðhald sak- borninganna dregst frá refsingu þeirra. trausti@frettabladid.is BJÖRGUN UNDIRBÚIN Námuslys í Bandaríkjunum: Níu menn lokaðir inni bandaríkin, ap Níu námuverka- menn lokuðust inni í kolanámu skammt frá Somerset í Pennsil- vaníu í Bandaríkjunum í fyrrinótt. Mennirnir eru lokaðir inni djúpt niður í Quacreek námunni en í gærkvöld vonuðust björgunar- menn til þess einhverjir af þeim væru enn á lífi. Sérstaklega þar sem þeir töldu sig heyra í þeim. Mennirnir lokuöust inni þegar þeir boruðu óvart gat inn í gamla námu sem var full af vatni. Þrýst- ingurinn frá vatninu olli því að náman hrundi. En þegar það gerð- ist voru mennirnir um 2,5 km frá námuopinu. Nú hefur komið í ljós að kortið sem mennirnir studdust við var rangt. Gamla náman var mun nær þeirri nýju en kortið sagði til um. Talið er að björgunaraðgerðir verði mjög erfiðar. Reyna á að bjarga mönnunum með því að bora gat, um einn metra í þvermál, nið- Níu menn lokuðust inni þegar þeir boruðu óvart gat inn í gamla námu sem var full af vatni. ur á staðinn þar sem mennirnir eru fastir. Björgunaraðgerðir hafa taf- ist þar sem verið var að bíða eftir bornum, en hann var í Vestur-Virg- iníu. Talið er að það geti tekið um 18 klukkustundir að bora gatið. ■ Villinganesvirkjun: Fagnaðarefni að hætt hafi verið við villinganesvirkjun Samtök ferða- þjónustunnar fagna því að sveitar- stjórn Skagafjarðar skuli hafa fall- ið frá áformum um Villinganes- virkjun. Samtökin segja að ákvörð- unin stuðli sannarlega að áfram- haldandi uppbyggingu ferðaþjón- ustu í Skagafirði. Samtök ferða- þjónustunnar mótmæltu virkjun- inni kröftuglega þegar umhverfis- áhrif hennar voru metin á síðasta ári og bentu á að á þessu svæði væri búið að byggja upp fljótasigl- ingar sem bæði skapaði fjölmörg störf á svæðinu og væri mikilvæg- ur hluti ferðaþjónustunnar þar. ■ Landvernd um Alcoa: Tilhæfulaus ummæli landvernd Landvernd segir um- mæli talsmanns Alcoa, þess efnis að lítil sem engin andstaða sé á ís- landi við stóriðjuáform á Austur- landi, tilhæfulaus og afar óvið- kunnanleg. Ummælin gefi til kynna að fulltrúar Alcoa hafi enn ekki kynnt sér nægjanlega vel þá víðtæku og ítarlegu umfjöllun sem þetta mál hafi fengið hér á landi og þær fjölmörgu og rétt- mætu athugasemdir sem fram hafi komið vegna áforma um Kárahnjúkavirkjun. Stjórn Land- verndar andmælir fullyrðingum Alcoa og hvetur fyrirtækið til að kynna sér framlagðar athuga- semdir vegna þeirra alvarlegu og víðtæku umhverfisáhrifa sem framkvæmdin muni óhjákvæmi- lega valda. Þá andmæla samtökin einnig ummælum talsmanns Alcoa um að mótmælin séu ein- ungis frá háværum minnihluta náttúruverndarsinna. ■ -.4—. Tony Blair: Ætla ekki að ráðast áírak lundúnir. ap Hernaðaraðgerðir gegn Irak eru ekki yfirvofandi, að sögn Tony Blair forsætisráðherra Bretlands. Á blaðamannafundi sem sjónvarpað var í Bretlandi sagði hann að ekki hafi verið ákveðið að ráðast á landið. Sagðist hann þó telja að Saddam Hussein, forseti íraks, væri að reyna að framleiða kjarnorkuvopn. Bætti hann því við að næsta skref í stríðinu gegn hryðjuverkum væri að stemma stigu við gereyðingar- vopnum í heiminum. ■ | ERLENT I veir menn sem eftirlýstir voru fyrir að hafa rænt 7 ára gamalli stúlku voru handteknir í suðvesturhluta Fíladelfíu í gær. Náðust mennirnir, sem eru á þrí- tugsaldri, eftir eltingaleik við lögregluna. Að minnsta kosti 25 manns lét- ust í Tyrklandi í gær þegar mikill stormur gekk yfir landið. Flóð, eldingar og aurskriður ollu dauðsföllunum. Að minnsta kosti 20 annarra var saknað auk þess sem um 200 manns misstu heim- ili sín. AP/MYND

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.