Skuld - 14.01.1880, Blaðsíða 4

Skuld - 14.01.1880, Blaðsíða 4
III. ár, nr. 31.—32.] S K U L D. \uh 1880. _____________ 376___________________ lieldr en hver einstakr ynni að peira, pví „mörg höncl vinur létt verk“. "Vér austlendingar ættum ekki að láta oss fara miðr í pessu efni, en sunnlendingum, vestfirðingum og norð- lendingum, sem eru talsvert farnir að gefa pessu málefni gaum. Yér erum eins ríkir, eins vel úthúnir að andans og líkamans atgjörfi, eins og landar vorirí hinum landsfjórðungunum; hara ef vér viljum brúka peninga, gáfur og hendr vorar réttilega. Hvað útheimt- ist til pess? Ekki annað en fá orð, ef vér breytum eftir peim, pau eru: vilji, félagsskapr, dugnaðr og fyrirhyggj a. Vér höfum alt petta í herfórum vorum, en pað er eins og vér geymum dýrmæti pessi ákistu- botni, líkt og maurapúkar, og tímum ekki að brúka pau. Yér ættum og vorðum að fylgja tímanum, að minsta kosti í landinu sjálfu, og efla pað hjá oss, sem svo ljóslega getr verið oss til gagns. Vér gjörum pað líka — vona ég, — svefntími vorra góðu eig- inlegleika er úti, og vér tökum til að starfa hver að annars heill, svo vér verðum ekki minni löndum vorum í hinum landsfjórðungunum. BÓKMEÍÍTIB. „Ljóðmæli J ó n s Árnasonar á Víðimýri“. Akreyri. ]879. (Xorðanfara-prentsm.) Jón heitinn á Víðimýri var einn af pessum mönnum (sem talsvert er af á landi hér), sem hafa pann hæfi- leik að geta sett saman bundið mál undir ýmsum bragarháttum, með pví peir bera skyn á, að pegar tvö ,,h“ t. d. eru stuðlar í vísuorði, pá á eitt „h“ að vera höfuðstafr í næsta vísu- orði á eftir; og svo hafa peir veðr af pví, að endi vísu-orð hjá peim. á „bjarta“, pá má ríma par á móti „lijarta11, „skarta“, „svarta“, „kvarta“, „narta“, „varta“; móti „vér“ máríma „mennirner", og ef á liggr má berja í gatið „hér“. Ef vantar nokkur at- kvæði í vísuorð til að ná fullri lengd, má skjóta inn „trútt“ og „hratt“ — eða „ört í stað“ og „trútt með hrað“ ef hallæri er á hugsunum. J>essa menn kalla meinlausir menn og brjóstgóðir „hagyrðinga;“ sjálfir kalla peir sig „skáld“, og margir heimskir eða fáfróðir menn nefna pá svo; en einarðir menn, er satt vilja segja, skjóta „leir“ framan við „skálds“- nafnbótina. Jón hcitinn á Víðimýri var víst annars greindarmaðr og merldsmaðr í héraði í mörgu; svo liann hafði margt til pess, að menn hefðu vel mátt fyrir- gefa honum pá smekkleysu, að hann fékst við kveðskap, sem var leiðin- legasti ágallinn á annars svo greind- um og skemtilegum manni. Enda tranaði Jón heitinn sér eigi fram með kvæðabók sína á prent í lifanda lífi. |>að eru peir, sem eftir liann lifa, sem hafa gjört honum pá minkun í gröf hans, að „dúkúmentora“ pað fyrir allri pjóð, að Jón heitinn liafi haft pann breyzkleika, að vera leirskáld mikið. — En einkum má pó gefa sök á pessu útgef. bókarinnar, séra Ólafi Bjarnar- syni, sem hefir undirbúið bókina undir prentun. Hann hafði sérstakt tælci- færi og livöt til, að koma vitinu fyrir hlutaðeigendr, sem vildu láta leirinn á prykk út ganga, og sýna peim fram á, að peir gjörðu inum látna mínkun, en eigi heiðr með pessu. |>að má sæta mikilli furðu, að séra Ólafr skyldi ekki gjöra petta. Brast hann einurðina? Eða hafði hann ekki betr vit á? Hann er pó sjálfr ___ 378 hagyrðingr nokkur, og pótt vér álít- um hann ekki skáld mikið, pá hefðum vér pó ætlað honum meira smekk. — Útgáfan er í alla staði hraparlega af hendi leyst: vér tökum til dæmis, að ljóðabréf til prests byrj- ar par svona: „Elskuverðugi vinur minn, fyrir velgjörðir veittar pinar, er virzt hefir pú mér ætíð sýna, síðan pér færast nam ég nær...“ o. s.frv. Hér hefir hagyrðings- eða rim- gáfa séra Ólafs á B.ip sofið; annars hefði honum verið auðsætt, að petta var afbökun. Jón lieitinn hefir vafalaust kveðið: „vinur kær“ — rim- að móti „nær“. Annars erum vér nýstaðinn upp úr sjúkdómi og erum veikir af oss, svo vér kennum oss eigi mann til að fara í rosabullur og ösla 240 rastir — blaðsíður vildum vér sagt hafa, í svo slæmri færð eins og blautr 1 e i r er. V erðr pví eigi af pví, að vér för- um út í einstök kvæði í bókinni, en látum oss nægja að skýra lesendum vorum frá, að i lienpi er leir, leir, leir, og eintómur a.....Vs leir! „Nokkur orð um pýðingu Odds lögmanns Gottskálkssonar á Matteusar guðspjalli, er Dr. Jfuðbrand' Vigfússon hefir gefið út með athugasemd- um um biflíumál vort í „An Icelandic prose reader“. Ox- ford 1879, eftir Eirík Magn- ússon, M. A., undir-bókavörð við háskólabókasafnið í Cam- bridge“. Reykjavik. „ísaf.“- prentsm. 1879. [50 Aíí.] Dr. Guðbr. hefir gefið út í Ox- ford (á háskólans kostnað í Claren- don-Press) lestrarbók norræna. Eins 93 1850 . . . 515394 íbúa 1860 . . . 813 669 — 1870 ... 942 292 — 1875 var eigi búið að taka fólkstal, er ég var par; en ibúatalan var orðin yfir eina millíón pá. |>ó að New York hafii fleygt svona á fram, eins og hér er sýnt, hefir hún pó oft átt mótdræga daga. Skæðar stórsóttir og ógrlegir eldsvoðar hafa aftr og aftr geysað yfir hana; en hún hefir risið upp öflug og íjörug aftr og næstum eins og harðnað við hverja plágu. Til að nefna rétt eitt dæmi frá síðustu árum, pá keypti James Gordon Bennett hús, sem stóð á strætahorni, par sem „Heralds“- byggingin stendr nú, fyrir 450 000 dollars af Barnum, inuin alkunna „humbugs“-inanni. En húsið sjálft kostaði 250 000 af pessari upphæð, en 200 000 voru borguð til Barnums fyrir að gefa eftir grunninn, er hann hafði leigt, en pá voru eftir 13 ár af leigutímanum. Verð hús- lóða er annars reiknað par eftir framhliðar-fetum; lóðin kostar svo og svo raikið fyrir hvert fet af hliðinni, sem veit út að strætinu. Xæsta liúsið við „Heralds“-bygginguna 94 hefir ekki nema 60 framliliðar-feta lóð; og hljóp sú lóð fyrir skemstu á uppboði 310 000 dollars. Nú er „Ho- ralds“-1 ó ð i n metin hálfrar millíónar virði. J>að er alment, að maðr kaupir lóð fyrir 1000 dollars, og pegar hann deyr og erfinginn tekr við pessari sömu lóð, pá er hún orðin 100000 eða 125 000 eða 150000 doll- ars virði. |>etta er als ekki fátítt, ef grunnrinn eða lóðin liggr í peirri átt, sem bærinn er að færast út í. Indverjar seldu hvítum mönnum grunninn undir allri Xew York fyrir 25 dollars. Xú nemr lóðar-skattrinn (skattr aí lnisgrunnunum) í allri New York 101/2 millión dollars um árið. Bærinn sjálfr er nú um 12 mílur (enskar) á lengd. Steinlögðu göturnar eru til samans 200 mílur á lengd, og pó eru hundrað götur enn ósteinlagðar'). [Framh.[ 1) petta var 1871 vel að merkja; ]iegar ég var síðast í N. Y. (1875) var hún orðin 15 (enskar) mílur á lengd. Af |iví má ráða, hvc ótt margt breytist vcstr Jiar á stuttum tíma. J. 0.

x

Skuld

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skuld
https://timarit.is/publication/109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.