Máni - 19.10.1880, Page 8
31
M A N I.
32
fallist á eptir tillögum alþingis, og vér vit-
um eigi til, að landshöfðinginn hafi verið
hlynntur innanlands framförum, hvorki í
iðnaði né verslun eða neinu því, er til veru-
legra framfara horfir fyrir þetta land; en
þennan gamla mjög takmarkaða stjórnar-
gang, sem hér er hafður, má hann til að
láta framkvæma eptir gömlum vana. Vér
biðjum i'Norðling» að benda oss á, hvað
'andshöfðinginn hefir gjört, er honum geti
tileinkast, er rýmki nokkuð frjálslega fram-
för fyrir iandsmenn. Frelsisvinur.
— «Máni!» J>ú sem reikar svo víða
og litur yfir byggðarlög manna og skyggnist
eptir hýbýlisháttum þeirra og aðgjörðum,
getur þu sagt mér, hvar útgefendur »Ljóð-
mæla Hjálmars Jónssonar frá Bólu muni
vera niðurkomnir, því að svo lítur út sem
þeir hafi eigi sinn haus framar fyrir mold
ofan með því nú er nær því ár liðið frá því,
er hið fyrra eða fyrsta hepti »Ljóðmælanna»
kom út og engar sögur fara af því, að fram-
halds þeirra sé bráðlega von. Viltu nú gera
svo vel, »Máni» minn, og huga að þeim, og,
ef þú finnur þá, vil eg biðja þig að vekja
þá og hvetja til að ganga héreptir ótrauð-
lega til starfa; með því mundu þeir gera
mörgum manni þægt verk.
Kvæðaviuur.
Af 26. tbl. f>jóðólfs má sjá, að skáldið
sira M. Joehumsson hefir selt blaðið Hra.
Kr. Ó. porgrímssyni í Reykjavík, og að það
er hans eign frá 1. desember næstk Nú
skuluð þér kæru landar, og pjóðólfs-vinir
stilla hendur yðar, að taka pálinn og rek-
una að þ>jóðólfi, hann er eigi alveg dauður
enn þá, meðan hann á fyrir höndum að
ganga í barndómi, og þroskast undir aga
hins ötula bóksala og bókbands-meistara
Kr. Ó. forgrímssonar, er vér höfum heyrt
að hafi keypt hann fyrir 800 kr.
— Hér í bænum eru nú 94 handiðna-
menn, auk sveina, er læra hjá þeim. Af
þeim eru 20 trésmiðir, 9 járnsmiðir, 11
gullsmiðir, 14 skóarar, 8 prentarar, 6 röðl-
arar, 6 brauðarar, 5 bókbindarar, 3 laggar-
ar, 2 ljösmyndarar, 3 klæðgjörðarmenn, 1
úrari, 1 grafari, 2 múrarar, 1 hattari, 1
málari, 1 bruggari.
Auk þeirra, sem hér eru taldir, hafa
margir erlendir handiðnarmenn verið við
þinghúsbygginguna hér í sumar, og jafn-
framt margir innlendir æfst stórum í því að
höggva grjót og múra. pinghússbyggingin
hefir því verið nytsamleg, eigi að eins fyrir
þörfina, sem var á húsinu, og vinnulaunin,
er mörgum hafa orðið að góðu, heldur einn-
ig fyrir æfingu þá, er margir hafa fengið
til húsbygginga.
Auglýsingar.
— Við verslun Einars prentara pórðarson-
ar, fást vasa-ulir, með sérlega góðu verði;
gangi þau vel út, býðst hann til að útvega
fleiri.
— Skjóða með ýmislegu dóti fanst á
brúnni niður í Fossvog 1. október um kveldið,
og sá, sem sannar eignarrétt sinn að munum
þessum getur vitjað þeirra að Vífilstöðum
með þvi að borga fundar laun og þessa aug-
lýsingu. Jón Jónsson.
— Eigi tekur Máni hina hrakyrtu grein
um stjórnendur ísafoldarblaðs, og má höfund-
urinn vitja þeirra 40 aura, er hann lét fylgja,
til Einars jpórðarsonar prentara.
Ráðning á talgátunni í 13.—14. tölubl.
B e r g v í k.
Kví — kver — berg — ber — brek —
vík — ger — verk — brík — rek — ker.
(Fjósarauður, Hólbúi Hattarson, Bergönundur og
Ægir bafa ráðið gátuna).
Útgefandi: «Félag eitt í Reykjavík».
Ritstjóri: ./ ó n a s J ó n s s o n.
Prentaöur í prentstofu Einars pórðarsonar.