Máni - 18.10.1881, Side 7
149
MÁNI.
150
smekk og þekkingu á söng á sinni fóstur-
jörð. Að endin^u minntist kaupm. þ>orl. O.
Johnsson (á ensku) á líf, starf og baráttu
Jóns sáluga Sigurðssonar, 'og sagði, að vér
ættum að halda hans minni í heiðri líkt
og Ameríkumenn héldu í heiðri minningu
forseta Lincolns. Yíirhöfúð var þettta hin
bezta skemtun, og munu allir er þar voru
hafa farið ánægðir óg glaðir á burt.
Verzlunin.
þ>ótt vjer vitum, að mörgum muni kunn-
ugt orðið, hvernig verzlunin var hjer í
sumar, þá ætlum vér þó, eins og vér áð-
ur höfum gjört, að minnast dálítið á hana
í blaði voru. Lestir voru hér í sumar
eins og fyrr allfjörugar, en eigi munu þó
allir bændur hafa verið hinir ánægðustu,
er heim kom, og þeir fóru að skoða vöru
sína, er þeir fengu afar dýra hjá kaup-
mönnum. Mjöl margra kaupmanna er
sagt, að hafi verið mjög illa vandað, þar
eð það var maðkað hjá sumum, og svo
sendið, að eigi varð til -matar haft hjá
sumum, en nokkrir voru þó, er höfðu á-
gætt mjöl, en kaupmenn þeir, er höfðu
hið skemmda mjöl, sendu það þegar út
aptur, er þeir sáu, að það var eigi nýtt
og munu þeir hafa verið sviknir á því án
þess þeir vissu sjálfir. Rúgur var og í
afarverði, en ullin, sem er aðalvara sveit-
armanna varð eigi nema 70 aura pd.
Saltfiskur og sundmagi hefir í sumar verið
hin eina vara, er kaupmenn hafa viljað
gefa vel fyrir og nærri yfirdrifið verð,
enda var öll þörf á því fyrir ver'bændur,
að þeir fengi vel borgaða vöru sína, þar
sem þeir áttu margir lítinn fisk eptir vet-
urinn, en lögðu mikið í kostnað eins og
vant er. Hin enska verzlun, er byrjaði hér
í vor, hefir allmikið bætt hér, og haft
talsverð áhrif á verzlunina, og orðið bænd-
um að miklu liði; matvara öll hefir verið
þar ágæt og með besta verði, og væri
því óskandi, að verzlun Englendinga gæti
nú þrifist hér betur enn áður hefir verið,
því ef verzlun þessi getur eigi haldið á-
fram, en hættir svo sem eptir ár, þá er
þáð víst, að hún heldur spillir en bætir,
ef hinir dönsku kaupmenn vorir koma aptur
laglega ár sinni fyrir borð, en Englendingar
munu að líkindum þreytast á því, að eiga
verzlunarskipti við oss, ef þeir sjá engan
árangur af tilraunum sínum. Eitt hið
helzta, er vér hyggjum að hnekki verzlun
þessari, er það, að hún hefir eigi húsfvrir
vörur sinar og engan fastákveðinn stað,
en hefir orðið að leigja dýr hús og óhæf
til verzlunar (eg veit það hér í Revkjavík),
og kostnaður allur hefir orðið þeirri verzl-
un dýrari hér í sumar ennokkurri annari
verzlun, vinnulaun hafa orðið j ri ýhmgi
hærri en hjá kaupmönnum, o ; er það
eðlilegt, þar sem vörur hafa verið fluttar
upp með Camoens, er hefir hér, li1,a við-
stöðu, og verður því að skipa upþ- úr í
mesta flýti, og það opt á óhentugum tíma,
er erfiðismenn eru ráðnir til annarar vinnu,
og gefa því eigi kost á sér nema fvrir
afarverð. Forstöðumaður verzlunar þess-
arar hér er herra EggertGunnarsson, sem
því miður er enn þá eigi nógu kunnur
verzlun, en ákaflega stórhuga, kappsmað-
ur mesti og of-góðviljaður. J>að er marg-
reynt hér, að verzlun getur eisfi þrifist,
nema byrjað sé með hófi, og stórkostleg
félagsverzlun eins og herra Eggert liafði
ætlað að stofna í vetur, var faliega hugs-
uð, en of yfirgripsmikil fyrir þenna mann,
er eigi hafði áður gefið sig við verzlun ;
en nú þegar hefir herra Eggert starfað
mikið og verðskuldar mikinn og góðan
orðstýr fyrir að hafa komið fyrstur manna
félagsverzlun á gang hér, þótt eigi sé hún
orðin nú, eins og ákveðið var í vetur.
Majinalát.
Halldór Jónsson, R. af Dbr. prófastur
á Hofi í Vopnafirði, andaðist í svefni hinn
17. júlí, einhver hinn merkasti klerkur
þessa lands á sínum dögum.
Hannes Stejhensen, prestur til Meðal-