Norðurljósið - 01.12.1913, Síða 1
JMorðurljósið
— JVIÁNAÐARLEGT HEIMILISBLAÐ —
* •
11. árg. * Desember 1913 • !2
SAOA OULLNEMANS.
Jeg fór til Alaska (í Norð-vestur-Ameríku) til að
leita gulls árið 1898, og fór frá h.eimili mínu fullur
syndar og vantrúar. Jeg ofsótti Ouðs fólk eins og
Páll postuli af öllum huga og af öllurn mætti. Áður en
jeg fór á stað, kom litla dóttir mín og spurði mig hvort
mig langaði ekki'til að hafa nýja testamentið nieð mjer.
Jeg sagði, nei;
jeg hafði ekkert
með nýja testa-
mentið að gera.
Flestir á skip-
inu voru eins og
jeg, spiltir og
drykkfeldir, og
vjer eyddum tím-
anum með
drykkjuskap,
þangað til vjer
komum til Skag-
way, þarsem vjer
fórum í Iand 4.
marts. Það voru
hjer um bil 160
manns; þaðan
lögðum vjer upp
í leiðangur vorn
inn í landið með
handsleða.
Jeg settist að,
með fáeinum
öðrum, á stað
sem hjet »Fjöru-
tíu-mílna vík«.
Hjer fór jeg að grafa eftir gulli og þegar vetra tók bjó
jeg um mig í gömlum kofa, og ætlaði rnjer að halda
til í honum um veturinn. Jeg hafði gamlan mann með
mjer í kofanum, en jeg var svo lundleiður, að við gát-
um ekki búið sa man, því mjer fanst hann vera sá leið-
inlegasti maður sem jeg hefði nokkurntíma kynst. Úr-
slitin urðu þau að jeg bjó um mig í öðrum kofa og
tók annan mann með mjer, sem var kaþölskur, oghafði
verið sendur norður til Alaska, til að sjá hvort hann
vendist þar ekki af ofdrykkju, því að hann var sífull-
ur, ef hann gat náð í áfengi.
Skömmu síðar kom maður frá öðrum stað og settist
að skamt frá mjer. Hann var heitur andatrúarmaður og
vantrúaður á ritninguna og Krist.
Pessumfmanni
bauð jegaðkoma
til mín á kvöld-
in og tók hann
því vel. Viðkom-
um saman á
hverju kvöldi og
byrjuðum fljót-
lega á því, að
halda andatrúar-
fundi og hafa
mök við anda
myrkranna.
Við gerðum
þetta í margar
vikur, þangað til
einn af fjelögum
mínum varð veik-
ur. Pá fór jeg að
skoða ofan í
meðalakistu
mína. Þegar jeg
opnaði hana,
varð jeg hissa á
að sjá lítið ein-
tak afnýjatesta-
mentinu i henni.
Jeg tók hana upp og sá að nafn dóttur minnar var rit-
að á saurblaðið. Einn af fjelögum mínum spurði hvað
það væri, og jeg sagði: »Það er testamenti, sem hún
Florence litla hefur Iátið í kistuna.* )eg komst við, en
Ijet sem jeg vildi ekki líta í bókina. Þegar maðurinn
var búinn að skoða hana, tók jeg hana samt aftur, því
mjer fanst jeg ætti að geyma hana vegna dótturminn-
ar, þó ekki væri það vegna innihaldsins.
Þessi mikla brú
var opnuð til yfirferðar árið
og stendur 135 feta hátt yfir
Brooklyn-brú.
iggur á milli New-Yorks og Brooklyns á Long Island, og
8S3, Er hún 5989 fet á lengd, 85 fet á breidd
vatninu.