Norðurljósið


Norðurljósið - 01.03.1929, Qupperneq 3

Norðurljósið - 01.03.1929, Qupperneq 3
NORÐURLJÓSIÐ aö Guð hafi ætlað oss öllum að verða ein.s og Helen (Keller, eða Hallgrímur Pjetursson, cða Jón Bunyan, eða Jón Newton. Það má vel vera, að verk Guðs opinberist best á oss, meðan vjer gegnum hinum hversdagslegu störfum vorum, sem virðast vera svo þreytandi og leiðinleg, eða meðan vjer liggjum í rúmi voru líkamlega veikir. Vjer verðum í öllu falli að læra að vinna sigur, vfir kringumstæðum vorum heima fyrir, áður en vjer förum út til þess að vinna •sigur annarsstaðar. Merkilegustu dærnin frjettast út um heiminn og bækur eru skrifaðar um þau. 5*688 vegna viturn vjer um þessa menn og konur, sem hjer eru nefnd. En ótal þúsundir munu efalaust op- inberast á hinum síðasta degi, sem hafa í ömurlegum kringumstæðum lifað Gúði og Kristi ti! dýrðar, unn- ið sigur í kraftinum, sem kemur að ofan, og látið ljós sitt skína á hinu takmarkaða sviði tilverunnar, þar serri Guð hefir sett þá. Pá koma launin. Og þá verður armæðan og sorgin og vonbrigðin fljótt gleynid. •»Guð mun þerra hvert tár af augum þeirra.« Mannkynsfrelsarinn. (Framhald.) Engin af þessum kenningum, út af fyrir sig, gefur fullnægjandi skýringu á dauða Krists. Eins og vjer höfum sjeð, voru margar myndir ,og líkingar nauð- synlegar, til þess að sýna oss, hver Kristur er; á sama hátt eru margar líkingar nauðsynlegar til þess að lýsa því, sem hann hefir gert fyrir oss. Pað er þess vegna ófullnægjandi, og jafnvel vill- andi, að einblfna á einn ritnirigarstað,eða nokkura sarnhljóða ritningarstaði, og halda þá, að vjer höf- um fengið í þeim fulinaðarskýringu á lausnarverki Jesú Krists. Vjer verðum að taka til greina alla spá- dómana og fórnalíkingarnar, ef vjer viljum komast að rjettri niðurstöðu um þetta mikilvæga atriði. Vjer verðum að hlusta á hin örlagaþrungnu orð, sem töluð voru í Edensgarði, ef vjer viljum fræðast um það, hvernig höfuð höggormsins á að merjast. Vjer verðum að líta skinnkyrtla hinna seku hjóna þar, ef vjer viljum skilja, hvernig syndasekt vor verði hulin og burt tekin. Vjer verðum að bera saman fórnargerð þeirra Kains og Abels, ef vjer viljum læra, hvernig vjer getum aflað oss velþóknunar Ouðs. Ásamt Abraham og ísak verðum vjer að klifra upp hina háu brekku Móríafjalls, ef vjer viljum læra um »einkasoninn«, sem fórnað er, og um lambið, sem Guð sendir til að líða og deyja í staðinn fyrir oss. Vjer verðum að fylgjast með sögu Jósefs, hins elsk- aða sonar, sem bræður hans hötuðu og seldu í ánauð, en varð þó »krýndur dýrð og heiðri«, ef vjer viljum fræðast um hinn sanna »frelsara heims- ins«. Ef vjer viljum vita, hvernig »Sonurinn gerir oss frjálsa«, skulum vjer horfa á hinn mikla fjölda endurleystra þræla, sem gengu út úr hinum blóði- drifnu dyrum og komust yfir landamæri hins hat- aða Egiptalands. Til þess að skilja það, sem Guð hefir ætlað með endurlausnarverki Krists, verðum 11 vjer að ganga inn í hina undraverðu tjaldbúð, sem Móse reisti í eyðimörkinni. Vjer verðum að standa við hlið þess manns, sem hreinsaður er af líkþrá, og horfa á fórnina, sem prestur Drottins færir, ef vjer viljum byrja að skilja þann leyndardóm, hvernig hinn heilagi Guð hreinsar menn af líkþrá syndar- innar. Já, vjer verðum að hlusta á hörputóna Davíðs og Ijúka upp bókfelli Jesaja, og Ijá öllum spámönn' um Drottins eyru, ef vjer viljum sktlja til hlítar með hverjum hætti Kristur hefir dáið fyrir syndtr vorar. Og þegar vjer höfum gert alt þetta, skulum vjer minnast þess, að það guðlega mál, sem vjer fhugum, er óendanlega miklu yfirgripsmeira og háleitara en allir spádómar og fórnarmyndir geta nokkurntíma lýst fyrir oss dauðlegum mönnum, að sínu ieyti eins og sólin á himni er ósegjanlega miklu dýrðlegri en hinn besti listmálari gæti málað hana. Spámennirnir, sem Andi Guðs notaði til þess að vitna fyriríram uin píslir Krists og dýrðina þar á eftir, rannsökuðu þessa hluti kostgæfilega; »inn í þetta fýsir englana að skygnast«. (I. Pjet. 1- 10.—12) En bæði spámenn og englar, og vjer einnig, verð- um að bíða þangað til »opinberun Jesú Krists* ber að (13. vers), til þess að skilja dýrðina, sem leiðir af þjáningum hans. Oss nægir nú, eins og það nægði tveimur læri* sveinum Jóhannesar skfrara forðum, að heyra orð- in: »Sjá það Guðs lamb!« »Og lærisveinarnir tveir heyrðu hann fala þetta og fóru á eftir Jesú.« (Jóh. 1. 35. 37.). í aliri auðmýkt skulum vjer gera hið. sama. Ef vjer gerum það, munum vjer læra, að eins og Faraó, óvinur Guðs fólks, var sigraður, eins hefir frelsari vor, fyrir dauða sinn, »að engu gert þann, sem hefir mátt dauðans, það er að segja djöfulinn, og frelsað alla þá, sem af óíta við dauðann voru undir þrælkun seldir alla sína æfi « (Hebr. 2. 12.—15.) Og ekki nóg með það, — jaínvel veik djöfulsins verða brotin niður, og í þeim tilgangi birtist Guðs sonur, (I. Jóh. 3. 8.); hinn líkþrái hreinsast, hinn lami rís upp og gengur. Mest af öllu rnunum vjer fagna yfir því, að sGuð í Kristi sætti heiminn við sig.« „Sœttur!“ Abel, er hann stendur við rjúkandi altari sitt, sæll í þeirri fullvissu, að Guð telur hann rjettlátan; sonurinn, sem einu sinni var týndur, er hann situr við hlið föður síns, fagnandi yfir hinum kærleiksríku viðtökum, sem honum hafa hlotnast; þessir og aðrir, sem ritningin segir fiá, sýna oss að einhverju leyti, hve sælt það er, að vetða sættur við Guð á rjettlátum grundvelli. En sálin skilur það ekki til fulls fyr en hún hefir reynt það. Jeg vildi, að jeg gæti talað nokkur alvarleg orð persónulega við þann, sem nú er að lesa það, sem hjer er skrifað. Jeg vildi segja við hann: »Vinur minn, Drottmn Jesús Kristur hefir, at kærleika til þín, gefið þjer ávísun, ef svo mætti segja, undirskrifaða með sínu eigin blóði. Hún er stíluð til þín og tjáir þjer fyrirgefningu synda þinna og gjöf eilífs lífs. Pú efast víst ekki um, að hann hafi rjett til þess að veita þjer þetta. Alt, sem vantar, er að þú veitir því viðtöku, sem hann býður þjer. Pegar menn

x

Norðurljósið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.