Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1956, Side 6

Norðurljósið - 01.01.1956, Side 6
6 NORÐURLJÓSIÐ MOLAR FRÁ BORÐI MEISTARANS. (Greinir fyrir trúaða.) „GERIÐ I’AKKIR í ÖLLUM HLUTUM.“ (Eftir EDITH C. TORREY. Stytt í þýð.) Ber þú einhverja byrði, sem þú þráir að losna við? Hún getur orðið þér blessunarrík, ef þú getur þakkað fyrir hana. Ung stúlka ætlaði út á trúboðsakurinn. Him lagði hart að sér við nám. Taugarnar biluðu, og síðan fór hún að verða rugluð. Trúuð kona mælti við móður hennar: „Hefir þú nokkru sinni þakkað Guði fyrir þetta?“ „Þakkað Guði?“ svaraði hún gremjulega. „Nei.“ Hóglátlega sagði konan: „Góða mín, það ættir þú að gera.“ Dótturinni versnaði meir og meir. Móðir liennar vildi ekki gera Guði þakkir fyrir veikindi hennar. Loksins gafst hún upp. Grátandi færði hún Guði þakkir. Stuttu síðar fór dóttur hennar að batna. Kristnum manni er boðið að gera ávallt þakkir, hvað sem ber að höndum. „Gerið þakkir í öllum hlutum." (I. Þess. 5. 18.) „Þakkið jafnan Guði föð- urnum fyrir alla hluti í nafni Drottins vors Jesú Krists.“ (Efes. 5. 20.) „Fyrir hann skulum vér því óaflátanlega frambera lofgerðarfórn fyrir Guð.“ (Hebr. 13. 15.) Með lofgerð og þakkargerð sýnum vér þakkláts- semi og traust. „Sá sem færir þakkargerð að fórn heiðrar mig.“ (Sálm. 50. 23.) Lofgerðin sýnir traust vort á kærleika og alvizku föður vors á himnurn. Oft fer svo, að traust vort til hans eykst, er vér biðjum. Trúaðri konu var tilkynnt, að hún yrði að flytja úr leiguíbúð ásamt manni sínum á vissum degi. Maðurinn var svo veikur, að flutningur gat verið hættulegur lffi hans. Þrátt fyrir þetta missti hún ekki sjónar á gæzku og trúfesti Guðs. Hún gat þakk- að honum fyrir þessa örðugleika. Daginn, sem átti að flytja, hafði maðurinn náð sér svo, að hann var fær um að ganga út úr húsinu. Dóttir trúaðrar konu þjáðist af einhverjum sjúk- dómi. Læknisrannsókn leiddi í ljós lungnaberkla á byrjunarstigi. Þetta var mæðgunum reiðarslag. Þeg- ar þær komu heim, sagði móðirin: „Hvað eigum við að gera?“ „Ég veit, hvað þú munt segja,“ svaraði dóttirin, „þú munt segja: „Við skulum færa Guði þakkir.“ Saman krupu þær niður og þökkuðu Drottni, að hann hefði leyft þessum erfiðleikum að mæta þeim. Það leið ekki mjög á löngu áður en unga stúlkan var alheil orðin. Hvernig er hægt að þakka, mitt í miklum þreng- ingum? Trúuð kona segir frá því, að hún sá systur sína sem ósjálfbjarga aumingja. Henni féllst svO' mikið um það, að hún hraðaði sér heim til að út- hella hjarta sínu með tárum. Um leið og hún kom inn heima, var sem mælt væri til hennar: „Hvernig er það að gera þakkir í öllum hlutum?" „Hvernig gat ég það,“ segir hún. „En ég vissi, að ég varð að gera það. Ég féll á kné og sagði: „Faðir, ég finn alls ekki til þakklætis, en í trú þakka ég þér að láta allt þetta koma fyrir. „Byrði mín hvarf þegar í stað.“ Skömmu seinna var systir hennar tekin heim til Drottins, þar sem engan veikleika eða sjúkdóm er framar að finna. Hér má minna á frásöguna í II. Kron. 20. kap.,. þegar óvígur her kom á móti Júdakonungi. Hann fylkti liði sínu til bardaga samkvæmt orði Drottins, og eftir hinu sama orði lét hann söngvara hefja lof- söng. Drottinn gaf þeim frægan sigur orrustulaust. Vér megum ekki gleyma, að vér fáum ekki alltaf lausn úr erfiðleikum með því að lofa Drottin. Oft vegsamar það Guð meir að gefa náð til að bera byrðina með lofgerð heldur en taka hana á brott. Slíkri reynslu lýsir Páll í II. Kor. 12. 7.—10. „Því vil ég mjög gjarna þess framar hrósa mér af veikleika mínum, til þess að kraftur Krists megi taka sér bú- stað hjá mér.“ Lofgerð, þegar erfiðleikar mæta oss, hjálpar oft öðrum til að festa traust á Guði vorum. Dæmi þessa eru þeir Páll og Sílas í fangelsi. (Post. 16. 19.—34.) Þegar þeir lofsungu Guði, þá kom jarðskjálftinn, svo að fjötrarnir féllu af öllum. Hann vakti líka fangavörðinn, sem óttasleginn spurði, hvað hann ætti að gera til þess að verða hólpinn. Þá sömu nótt frelsaðist hann og heimafólk hans allt. Kona nokkur var að fara að heiman, en gat ekki fundið hanzkann sinn. Henni varð að orði: „Guði sé lof eigi að síður.“ Þetta vakti svo athygli þernu hennar, sem nærstödd var, að hún skömmu seinna gaf Guði hjarta sitt. Maður ritaði einu sinni: „Guð veit, hverjum hann getur trúað til að bera þjáningar." Getum vér þakkað Guði, er hann trúir oss fyrir erfiðleikum? Tökum vér við óvelkomnum kringumstæðum sem einhverju, er Guð felur oss á hendur til að helga sér og nota honum til dýrðar? Spurningin vaknar, hvernig vér getum þetta, sem virðist ókleift, að þakka Guði fyrir sorgir, erfiðleika og margs konar reynslur. Vér þurfum að bera traust til Guðs og kærleika til hans, af því að vér vitum, að hann elskar oss. En auk þessa mun svarið finnast í Hebr. 13. 15. „Fyrir HANN skulum vér því óaflátanlega fram- bera lofgerðarfórn fyrir Guð.“ Aðeins þegar vér helgum Kristi líf vort til fulls og opnum hjörtun fyrir Heilögum Anda í fyllingu hans, getur gerzt þetta kraftaverk stöðugrar lofgerðar, gleðiríkrar þakkargerðar. ——

x

Norðurljósið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.