Heimskringla - 16.06.1910, Síða 5
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 16. JtJNt 1916. B'S.
Heyrirðu ekki vel ?
Ef svo er ættir þú að hafa
Wilson’s Common
Sense Ear Drums
Ný vísindalepr nppgötvun. Hjálpar yöur
þegar alt annaö bregrst. Þessar heyruar-
pípur eru viöfeldnar ot? sjást ei?i þótt
notaöar séu. Verö: $6.50 pariö. Burð-
artfjald frltt. SendiÖ póstávísnn, express
ávísun eöa peninga 1 ábyrgöarbréfi, til
K. K. Albert
P.O. Box 64 WlNNIPEG
Getiö um Hkr. er þér skrifiö
Giftingaleyfisbréf
selur* Kr. Ásg. Benediktsson
486 Simcoe St. Winnipeg.
The Evans Gold Cure
229 balmoral St. Sími Main 797
Varanleg 1 kning viö drykkjuskap á 28
dögum án nokkurrar tafar frá vinnu eftir
fyrstu vikuna. Algerlega prlvat. 16 ár
1 Winnipeg. Upplýsingar í lokuöum
umslógum.
“Dr. D. R. WILLIAM5, Exam. Phy»
J. L. WILLIAMS, Manager
Farmer’s
Trading Co.
(Itl.ACk & BOLG)
HAFA EINUNGIS
BESTU VÖRUTEGUNDIR.
Einu uinboðsinenn fyrir :—
“SLATER” Skóna góðu.
“FIT-RITE” Fatnaðinn.
“H. B. K.” prjónafélagið.
“HELENA” pils og ‘waist’
kvenfatnaði.
Bestu matvörutegundir.
“ DEERING ” akuryrkju
verkfæri o, s. frv.
Beztuvörur Lágtverð
Fljót og nákvæm afgreiðsla.
Farmer’s Trading Co.,
TUE QUALITY STORE
Wynyard, Sask.
JOHN DUFF
PLUMBER, GAS AND STEAM
FITTER
Alt vo-k vel vandaö, og veröiö rétt
664 No.'t Dame Ave. Phone 3815
Winnipeg
íslands fréttir.
Reykjavík, 14. maí.
Tvö af málum ^eim, sem risu út
af dónarithætti Heimastjórnar (! )
höfðingijamna í vetur, 1 bankamáls-
æsinigunum, voru dæmd af undir-
dómara, Jóni Magnússyni, í fyrra-
dag. )>að voru mál, er ráðherra
höfðaði á hendur þeim félögum
Tryggva Gunnarssyni og Jóni ól.
Tryggvi var dœmdur í 200 kr.
sekt og meiðyrðin dæmd dauð og
ómerk, en J.öl. í 150 kr. sekt, og
öll greinin “Vitfirring ráðherrans”
dæmd dauð og ómerk, frá upphafi
til enda.
Öðru máli móti J.öl. var vísað
frá, af því að meiðyrðin, sem í
þeirri grein fólus.t, voru ekki sér-
staklega tilnefnd. Stöku orð í
gneininni hefir dómarinn með öðr-
um ekki talið meiðandi ; en stefnt
hafði verið fynir greinina alla, eins
og hún lagði sig.
T í ð a r f a r o g s k e p n u h öld
— Einlægur bati hófst snemma í
vikunni þessari, með nokkurra st.
hita víðast um land, jafnvel á
Akureyri í fyrra dag að morgni
(kl. 7).
En lengi verður snjóa að leysa
eftir þá ódœma fannferigju, er vera
munu mest brögð að í uppsveitum
austanlands (Héraði og Eyðaþing-
há m.m.) og á Vestfjörðum norð-
antil, svo sem Hornströndum, við
Djúp og alt suður að Dýrafirði.
Yfir fjárhús skelfdi svo eitt sinn
í Furufirði, að 'leit varð úr. Díkt
sagt af Langadalsströnd utan-
verðri og Sniæfjallasitrimd. Fjög-
urra álna klaki á götum í kamp-
túninu Bolungarvík.
Heyskortur mikill víða, en vand-
ræöi þó minni yfirleitt en orð hef-
ir verið á gert. Skilorður strand-
bátaiarþegi kring um land segir
svo frá, að kvörtun hafi engin
heyrst veruleg fyr en kom á Evja-
fjörð austan um land. þar taiað
EIN MÖRK AF MJOLK SAMSTEIPT
í EITT PUND AF
SMJÖRI 5c. pundið
Vé’ til heimilisnota. Samsteypir einni
mörk af mjólk í eitt puncl af smjöri á
tveimvr mínútum.
Engin efnablöndun viöhöfö. SmjöriÖ
er eins hart, lítur eins út, en er brasrö-
betra heldur en skilvindu smjör og not-
aö á sama hátt.
$IOOrt ©f þessi vél reyn-
1KJXJKJ ist eigi eius og auglýst er
Ef þér viljiö eignast hina þægileg-
ustuog heilnæmustu vél sem til er búin,
þá kaupiö þessa vél. Skrifiö eftir eiö-
svörnum vottoröum o*r a lskonar upp-
lýsingum um þdssa undravél.
VERÐ: $7 50 Flutningsejald borgaö.
AGENTAR ÓSKAST HVÍVETNA
K. K. Albert
P.O. Box 64 Winnipeg, Man.
Getifi um Heimskriniflu er þér skrifié
um vandrœði á Fljótsdalshcraði.
Og þar í Eyjafirði mikil þröng
orðin í útfirðinum ; farið að kaupa
korn handa skepnum, en um sein-
an gert — hin gamla, alþekta ó-
forsjálni, að fara ekki til þess fvr
en hey eru alveg þrotin. Hagar
höfðu verið í framfirðinum öðru
hvoru í allan- v.etur ; heendur þar
birgir fyrir sig og afiögufærir fyrir
sína sveitunga, þá fáu, sem tæpt
voru staddir.
Ekki látið illa af ástandinu 1
Skagafirði og Húnavatnssýslu.
Engin jarðbönn þar að staðoldri í
vetur nema sumstaðar. Fullvrt
hiklaust, að þar muni bændur
bjargast almenit fyrir skepnur sín-
ar, nema hestar víða magrir, ekki
þó farnir að falla nema á einum
á einum bæ í Húnavatnssýslu.
Miður látið af ströndum, eink-
um norðan til. Af Selströnd og úr
Bjarnarfirði sauðfé flutt út íGríms-
ey á Steingrímsfirði upp á guð og
gaddinn, sem kallað er ; hún þó
auð að sjá.
Hjá einum hefðarmanni í suður-
sýslunni löngn skift upp öllum
fénaði á hjálpfúsa nágrannia betur
stadda. Sextán hestar höfðu verið
á gjöf frá því með þorra á einum
bœ í Hrútafirði (Kollsá).
Við Inin-Djúp eru bændur fedkna-
tæpir orðnir og sumir farnir að
fella. Farið að skera á 2 býlum í
Bolungarvík, og 1—2 í Önundar-
firði. Matvöru nóga að fá í kaup-
stöðum, en o£ sednt til hennar
tekið.
Miklu vægara um vesturfirðina.
Nægdr hagar þar á útnesjum. þar
gekk fé úti.
Hafís hvergi að sjá nær en 11)4
míliííjórðunga undan Horni. Hald-
ið meira um hann austar ; sú átt-
in stríðust og kalsamest.
Viðskiftaráðunantnr-
i n n, herra B jarni Jónsson alþm.
frá Vogi, ferðaðist til Svíþjóðar í
byrjun apríl ,og Jlutti þar erindi
um Island m.fl. á ýmsum stöðum.
Haíði Ragnar Lundborg ritstjóri i
Uppsölum undirbúið það. Fyrst
flutti hann (B.J.) erindi í kaup-
mannasamkundunni í Stokkhólmi
um verzlun vora, land og lýð. —
því næst talaði hann á háskólan-
um í Uppsölum um land O" lýð '*>g
þjóðmenning yora, og þá um ver/.l
un vora og þjóðháttu. — Loks
flutti hann fjórða erindið í Gauta-
borg um verzlun vora og viðskifti,
landsháttu, lýð og menning. All-
staðar vel tekið. Mikið kann lagt
á, að ná beinum viðskiftum við
oss. Isatold.
Reykjavík, 21. maí.
Meiðyrðamál, sem Kristjánjóns
son háyfirdómari höfðaði gegn
ráðherra fyrir ummæli um banka-
stjórnina í frávikningarskjalinu 22.
nóv. sl., þar sem talað var um
“margvíslega og megna óreglu og
frámunalegt eftirlitsleysi” — hefir
verdð v’ísað frá undirdómi og orð-
in talin leyfileg af ráðherra.
Hlutafélagiö “Mjölnir” í Rvík er
gjaldþrota, og bi'iist við, að hluta-
félagið “Málmur” fari á sömu
leið áður en langt um líður.
Prestkosning fór fram á Stað í
Grindavík 17. maí sl., og var guð-
fræðiskandídat Brynjólfur Magnús-
son hlutskarpastur. K
Strandal'æknishérað er veitt
Magnúsi Péturssyni cand. med. og
Nauteyrarhérað Sigvalda Stefáns-
syni cand. med.
1 fi I Smærri Peningamanna!
Um leið og vér bjóðum yður þessar lóðir til kaups, getum vér með sanni sagt, að vér
alveg ómótmælanlega höfum á boðstólum slík kjörkaup, sem sjaldan bjóðast, — með öðr-
um orðum : Ágætar byggingalóð-ir með vægustu mánaðar afborgunum. þessar lóðir eru í
35 St. James, og renna þessar strætisbrautir þar framhjá : St. James, St. Charles, Coun-
try Club, Kirkfield Park, Deer Lcdge og Headingly rafmagnslestir. þetta svæði er alt
á hálendi, og eru því lóðirnar þurrar og skemtilegar.
Tuttugu og ílmm smáhús (Cottages) er nú
verið að byggja á þessu svæði
Enginn hluti borgarinnar byggist nú jafn óðfluga eins og Yestur-Winnipeg og þessar lóðir
eru í miðbiki þessa hraðbvgða svæðis, og er ætlað að þær tvöfaldist í verði á einum til
tveimur árum. Skattur af þeim er enn sem komið er að eins 70 cent um árið af hverri lóð
Verð : $250 til $300, $10 niðurborgun og
$8 mánaðarlega þar til fullborgað er
Með því að kaupa lóð með þessum skdlmálum eignist þér bráðlega fasteign, nær því
án þess þér vitið það.
Látdð nú ekki úr hömlum dragast, að nota þetta undursamlega tækifæri. Eftir að
þér hafið greitt hina fyrstu niðurborgun, leyfum vér yður 10 daga til að skoða lóðdrnar, og
SKILUM YÐUR þA AFTUR PENINGUM YÐAR, ef þér óskið þess. Er mögulegt
að bjóða aðgengilegri skilmála.
Oss er hugleikið, að vedta yður allar upplýsingar og sýna yður lóðirnar, hvenær sem vera
vill. — þér ættuð að festa kaup nú þegar, þar eð eftirspurnin eftir þessum lóðum hefir verið
meiri þessa siðustu viku, en vér gerðum oss í hugarlund.
Skrifstofa vor er opin á kveldin kl. 7 30 til kl. 10
Talsými 1630
THE CITY REALTY C0.
426 PORTAGE AYE. WINNIPEG
«*?##*##****#««#«#*# 0
Tíðarfar mjög hagstætt og
gott um land alt i!rá því cr bat-
inn hófst, nær úrkomulaus þið-
viðri, með alt að 10 stiga hita.
Af Reyðarfirði er skrifað fyrir
fám dógum (16) : Síðustu vjku
einmunatíð. Enda mátti batinn
ekki koma seinna. Svo illa voru
bændur staddir yfirleitt hér eystra
— verst í Eiðaþinghá og lljaita-
staða. þeir eru hræddir um, aö f :
þoli illa nýgræðdnginn ; en júr$in
kemur græn undan snjónum. Tölu-
vert hey hefir verið pantað l'rá ut-
löndum ; og hefir EU-fsen sýnt af
sér höfðingsskap að vanda og vin-
arþel við oss íslendinga : flutt
fyrir ekki neitt til landsins 20,000
H
GI.HNhKIMiLl! oe TVÆB
skerat.iWar sö«ur fft nýir kauf -
endur fvrif að eius OO
THE-
44
Árena
Þessi vinsæli skautaskáli
hér f vestnrbænnm er nú
opinn. Isinn er ágœtnr.
18da Mounted Rifles
Band Spilar á Arena.
KAliLM. 25c.—KONUR löc.
Chas. L. Trtbllcock. Manajjer.
Arnarstapa umboð og Skógar- j pd. aif heyi og hjálpað af sinn enn
strandar er veitt 17. maí uppgjafa- , meira. ísafold.
presti Jóni Ó. Magnússyni, síðast
presti að Ríp, nú búandd í Biarn-
arhöfn.
«•••
OID Tf~
IR03LIS HOTEL*
115 AííhIhuI • Sr. Wmnípeg
B* zt \ S1.50 dnir hú*4 f Vestkvr-
C'VHHdrt. Khv sla lU'ilÍ
VMlífiHfö'Wa Oií h ’l-»sin> H nóttu OJJ
dHgi. A h ynitiuiv hi sb-z w. Vu'
I lu d o A-*í w. OLAFI’R
G. OL A FSSON, íslvtidinjiiir, af-
grciöir yöur. Hcin.sæi'jlO hann.—
• O. kOY, eigaodi.
JIMMY’S H0TEL
BEZTU VÍN OG YINDLAR.
VÍNVETTARI T.H.FR VSF.R,
ÍSLENDINGUR. : : : : :
'Jamcs Thorpo, ElganeJI
290 SÖGUSAFN HEIMSKRINGLU
“Já”, sagði Móritz, “ég hefi opnað hann".
“Og innihald hans, vinur minn? þú ert stór-
auðugur, það sé ég á þér. Skjöl þessi hafa verið
gullnáma lyrir þig, .. er það ekki ? ”
“Ned”, svaraði Móritz, “þau breyta stöðu minni
að engu leiyti. Ég verð eins fátœkur og ég hefi ver-
ið, en í alvöru að tala, Albert minn góður, þá get
ég ekki, eins og nú stendur, greint frá innihaldi skjal-
anna, þó ég feginn vildi. það v.erður fyrst um sinn
að vera leyn'darmál”.
“Jæja, geymdu það þá'hjá sjálfum þér”, sagði
Albert firtinn. “Mér finst nú samt, að þú hefðir
mátt bera ofurlítið meira traust til mín. þú veizt
það vel, að ég myndi aldrei bregðast þér. En það
er það sama. Vdð skulum halda áfram”.
“Hérna býr hin-n ungi Ehrenstam”, sagði Móritz,
um leið og hann nam staðar hjá stóru húsi.
“.Etlar þú upp til hans?”
“Já, óg má til”.
“Vertu þá sæll".
Albert hélt áfram.
“Honn reiddist”, sagði Móritz við sjálfan sig,
“mér þykir það leitt, en ég þori samt ekki að segja
honum leyndarmálið, því þó ég efist ekki um vin-
áttu hans, er ég hræddur um, að hann kynni í sínutn
hóp við tækifæri að segja eitthvað þvi viðvíkjandi,
og það vil ég ekki”.
Meðan Móritz hugsaði þetta gekk hann inn í
húsið.
“Á hinn ungi Ehrenstam hér heima ?” spurði
hann stúlku, sem hann mætti í stiganum.
“Já, ungi barúninn, sem er nýkominn hingað, er
á öðru lofti”.
Móritz hélt áfram samkvæmt bendingu stúlkunn-
ar, og kom von bráðar að dyrum, þar sem nafnið
Ehrenstam stóð á hurðinni.
FORLAGALEIKURINN 291
Hann opnaði dyrnar og gekk inn.
Georg lá endilangur á.legubekknum, með vindil i
munninum. Hjá legubekknum stóð borð og lágu
á því nokkrar skrautbundnar bækur, sem ekki leit
út fyrir, að væru mikið notaðar.
Herbergið var stórt og húsmunirnir skrautlegir.
Dyrnar inn í svefnherbergið voru opnar, og inn af
svefnherberginu var þriðja herbergið, eins konar sam-
ræðuklefi. Móritz lét brún síga, þegar hann sá alt
þetta skraut, sem var svo fátítt hjá stúdentum.
“Velkominn”, sagði Georg og brosti þægilega.
“Fáðu þér sæti og taktu þér vindil. <Sg er hreyk-
inn yfir því, að geta boðið þér Havanna vindil”.
Móritz þakkaði, kveikti í vindlinum og settist á
legubekkinn. - ■
“þú býrð eins og prins, barún góður”, sagði
hann.
“það er nú þesslegt”, svaraði Georg kæruleysis-
lega. “Ég ætlaði mér að fá sérstakt íbiWarhús fyr-
ir mig, en pat hvergi fengið það, svo ég varð að
gera mig ánægðan með þessi 3 fátæklegu herbergi.
í fyrra vetur hafði ég 6 herbergi í Stokkhólmi”.
Móritz svaraði ekki. Ypti bara öxlum og þagði.
Hann var í hálfgerðum vandræðum með það,
hverniig hann átti að byrja samtalið viðvíkjandi á-
iformum Georgs með Helenu. Hann var hræddur
um, að hann kynni að móðga hann, því eítir því,
sem hann þekti lundarfar Georgs, gat hann búist við
að óvinátta kviknaði á milli þeirra, ef orðinu hall-
aði, svo að sér yrði bannað að taka þátt í að menta
Hielenu, sem hann þó svo gjarnan vildi, af öðrum á-
stæðum en Georg samt.
Georg varð sá, sem fyrst vakti umtal um þetta
efnd.
“þú kemur líklega”, sagði hann, til að ráðgast
292 SÖGUSAFN HEIMSKRINGLU
við mig um skjólstæðing okkar, lítlu stúlkuna úr
S var tabekk jargö ttinni' ’.
“Já”, sagði Móritz, “mig langar til að vita,
hvað er orðið af þeim, því þar sem þær voru, frétti
ég að þær væru fluttar”.
“þœr búa i Konungsengjagötu í V........ hiisinu”,
sagði Georg. “Eg leigði tvö lagleg herbergi handa
þeim, og útvegaði stúlknnni söngkennara. Hún á
að byrja námið á morgun, og borga ég fyrir það
og sömuleiðis gef ég- þeim peninga til daglegra þarfa.
En hvernig er það, Sterner ? JStlar þú að kenna
hienni tungumál og mannkynssögu ? Máske þitt eig-
ið nám leyfi það ekki?”
“Jú”, svaraði Móritz, “ég ætla að kenna henni
tvær stundir á degi hverjum heima hjá þeim. það
er lientugast”.
“það held ég lika”, svaraði Georg. “Ef þú vilt,
þá getum við orðdð samferða á morgun til að finna
þær. Ég vona, að þær verði myndarlegri þá, því
ég hefi gefið þedm nýjan fatnað, svo þær mega fleygja
gömlu tuskunium”.
“Jiað hlýtur að vera þér sannarleg ánœgja, að
geta gett.«vona mikið gott, hr. barún”, sagði Mór-
itz ofutiitið ákafur. “þú notar auð þinn á heiðar-
legan hátt, rþegar þú gerir önnur eins góðverk og
þetta af eintómum mannkærleika”.
Georg leit niður. Hann þóttist viss um, að
Móritz grunaði eitthvað um áform sín, en sá jafn-
frarnt, að hann þurfti að eyða þeim grun algerlega,
því annars gat Móritz vakið ótta og vantraust hjá
mœðrunum.
Hann leit því upp og sagði :
“þú vedzt ekki í hvaða vandræði þú kemur mér
með hrósi þínu, Sterner”.
“Á hvern hátt?” spurði Móritz undrandi.
“Af því ég verðskulda það ekki. því ég skal
FORLAGALEIKURINN 293
scgja þér, þó ég sé enn tæpra 18 ára, hefi ég þó
framið ýmsa heimsku. Eg hefi í hugsunarlaysi eytt
talsverðum peningum í skemtanir, sem hafa skilið eft-
ir auðn og aflleysi í hugantim. Faðdr minn, sein
er afarríkur, hefir ekki gotað fengið sig til að neita
mér um neitt, síðan ég fór að stálpast, og af því
hefir leitt, að ég hefi tekið þátt í óteljandd tegund-
um skemtana, sem fást fyrir peninga. En ég get
fullvissað þig um það, að ég hefi miklti me.iri og
sannari ánægju af þessum fáu hundruðum, sem ég
hefi eytt í þarfir mæðganna, heldur en af öllum þús-
undivnum, sem ég eyddi í Stokkhólmi. það var af
meðvitundiinni tim þennan lifnaðarhátt, að ég varð að
líta undan, þegar þú hrósaðir mér, því ég fann með
sjálfum mér, að ég átti ekki hrós skilið ívrir neitt,
nema ef það væri fyrir þessa hjálpsemi við mæðg-
tirnar”.
Móritz svaraði engu. Hann vissi ekki, hvað
hatin átti að hugsa um þessi óvæntu orð Georgs.
Hann horfði éast á hann, en svipur hans var svo
hmnskilnislegur, að ómögulegt var að sjá, að hann á
þessu augnabliki hafði .afráðiö, að villa Móritz sjónir.
“Eg skal segja þcr í trúnaði, Sterner minn”,
sagði Georg þægilega, “að ég hefi ásett mér, að rétta
þurfandi mönnum hjálparhönd hér í Uppsölum, og ég
veit, að það gleður mig miklu medra heldur en háv-
aðasömu skemtanirnar, sem ég hefi áður unað viS.
Faðir minn er edgandi tveggja miljóna og hann gefur
mér 10,000 dali á ári, sem • ég má nota eftir eigin
vild. Eg skal viSurkenna, aS ég er dálítiS eigin-
gjam, aS því leyti, aS ég vil eiga fallegt heimfli,'
hafa nóg og gott að borða og v.era vel klæddur, og
mér finst, að ég eigd kröfu til þessa, fyrst aS for-
sjónin hefir veitt mér þennan auS. En, skildu mig
nú rétt, ég þykist eiga hedmild á því, ef ég nota af-
ganginn til hjálpar þurfandi mönnum, og í því tilliti