Heimskringla - 12.09.1912, Blaðsíða 2
Bj ÐLSj
WINNIPEG, 12. SEPT. 1912.
BBIMBK&IHGDK
HANNES MARINO HANNESSON
'Hiibbard Ai Hannesson)
LÖGFRÆÐINGrAR
10 Bank of Ilamllton Bldg. WINNIPEQ
P.O, Box 781 Phone Mafn 378
“ “ 3142
GARLAND .& ANDERSON
Árni Anderson E. P Garland
LÖöFRÆÐINtiAR
204 Sterling Bank Building
PHONE: main 1561.
Bonnar., &! Trueman
«i
LÖGFRÆÐINGAR.
Snite 5-7 Nanton Block
Phone Maln 766 P. O. Box 234
WINNIPEG, : : MANITOBA
John G Johnson
SLENZKUB LÖOFRŒÐINGUR OG
M.ÍLAFŒRSLUMAOUR
Skrifst.ora í C- A. Johoson B'ock
P. O. Box 45fi MINOT, N D
Phone Maln 2685
WEST WINNIPEG REALTY GO.
TaleimCQ. 4968 653JSargent Ave.
Selja hÚ3 o« 169ir, útvoga peninra
ián.sjáum eldsábygrðir.leisja og sjá
um ieign á hásnm og stórbyggingnm
T. J. CLEMENS B, SIG'IRÐSSON
G. ARNAbON P. J. THOMSON
R. TH. NEWLAND
Verglar me& fast.ein^i r. fiárlA^ ng Ahwtröir
SkrlfMtofa: 310 Mclntyre Block
Talsimi Main 4700
Helmlll Roblln Hotel. Tals. Garry 572
NEW YORK^ TAILORING CO.
639 SAROENT AVE. ~SIMI GARRY 304
Föt gerð 'eftir máii.
Hreinsun,pres9ua og aögeröVerö ganngjarnt
Fdtin sótt 'ogXafhent.
SEVERN THORNE
Selur og gerir við reiðhjöl,
mötorhjól og mótorvagna.
verk; vandadjog ódýrt.
651 Sargent Ave. Phone G. 5155
Gísli Goodman
TINSMIÐUR.
VEHJISTŒÐI:
Cor. Toronto át Notre Dame.
Phone
Qarry 2988
Helmlll*
Garry 899
13-14-12
fV. M. Church
Aktygja smiönr og verzlari.
8VIPUR, KAMBAR, BUSTAR, OFL.
Allar aögeröir vandaöar.
692 Notre\Damc Ave. WINNTPEG
TH. JOHNSON
JEWELER
FLYTUR TIL
248 MalnTSt.,
Síml M. 6606
Paul Biamasou
FASTEIGNASALI
SELUR BLDS- LÍFS- OG
-LYSA- ABYRGÐIR OG
UTVEGAR PENINGALÁN
WYNYARD
SASK.
I
X. jr. BILDFELL
FASTEIÖNASALI.
Unlon .Bank 5th^Floor No. 520
8elur hás og lóöip, og aunaö þa»- aö lát-
andi. Utvegar peuingalAu o. li.
S. A.SIGURDSON & CO.
Húsum skift fyrir löad oar löud fyrir hás.
Láa og eldsábyrgö.
Room : 510 McIntyre Block
Slmi Sherb. 2786
80-11-12
Sveinbjörn Arnason
Fusl cigniiMiil i.
Selar hás og lóöir, eldsábyrgöir, og láoar penioga. Skrifstofa: 310 Mclntyre Blk.
offlce hús
TAL. M. 4700. Tal. Sherb. 2018
Hafsteins dýrkunin.
,Mik ir meiiu era.n
>1. Hró fnr niiuu ”
Ráðherraskiftin heima á Fróni
hafa vakið tvo vestur-islenzka
dánumenn af dvalanum, og með
stýrurnar í augunum rjúka þeir
fram á ritvöllinn og básúna lof-
dýrðina um nýja ráðherrann end-
urfædda, Iíannes Hafstein. Hvor-
ugur kann sér hóf fyrir kæti, óska-
barn þeirra er aftur kominn í
valdasessinn.
Dýrð sé þér, mikli maðurl !i
þessir tveir lofsyngendur eru Kr.
Ásg. Benediktsson, og Bjarni Jóns-
son, dannebrogsmaður af Hafsteins
náð.
Mennirnir fara þó ólfkt að.
Bjarni fimbulfambar með stillingu
og í hjartans einfeldni; K.Á.B.þeyt
ir upp moldviðri af oflofs fjarstæð-
um um II.II. oe níði og ósannind-
um um andstæðingana, svo úr
verður ‘'fúlvindi”.
þar sem báðir þessir lierrar rita
í Heimskringlu, mun það standa
mér næst að svara þeim að nokk-
uru, þar eð ég hefi á tveimur und-
anförnum árum haft mestmegnis
meðgjörð með íslandsmál og ís-
landsfréttir blaðsins, og vann mér
það síðast til óhelgi(! ), að rita
fregngreinina, er skýrði írá ráð-
herraskiftuuum, og sem danne-
brogsmaðurinn gefur. sem tilefni
fyrir greinarstúf sínum.
í upphaíi vil ég geta þess, að
Hkr. hefir aldrei ritstjórnarlega
hallmælt Ilannesi Ilafstein ; hún
hefir ráðist á skoðanir hans, vegna
þess hún áleit þær óheillavænlegar
eða skaðlegar fyrir Island og hina
íslenzku þjóð. Persónu hans hefir
hún látið í friði, sem líka var rétt.
það er málefnið'en ekki maðurinn,
sem mestu varðar.
Mikiimennið H. H.
‘‘Afreksverk Hannesar” heitir
fyrsti kaíiinn í grein K.Á.B., og er
oíiofið, se þar er hlaðið á ráð-
herrann, svo væmið, að það þarf
heilbrjósta mann til að lesa, svo
ekki verði bumbult af. Er mér
stór undrun, ef K.A.B. hefir ekki
verið í ‘‘annarlegu ásigkomulagi”,
er hann reit slík viðundur.
Hann segir hvorki meira né
miniia : ‘‘Hannes Hafstein stendur
uppi sem óskmögur timans, ekki
einasta fyrirmynd og afburðamað-
ur sinnar eigin þjóðar, heldur önd-
vegishöldur heimssamtíðarinnar”.
Og hefði nú einhver af stórþjóð-
unum átt H.H., þá segir K.Á.B.,
að ‘‘þær hefðu ekki þagnað nótt
né nýtan dag, að hann (H).H.)
væri sá mesti afreksmaður, sem
heimurinn ætti (og ekki einasta
það, heldur) og mundi eiga um ó-
talin framtíðarár”.
Svo mörg eru þessi fögru orð,—
Ilvernig lízt skynsömum lesendum
á ósköpin ? Marconi, Edison, Bry-
an og aðrir slíkir yrðu smámenni,
bornir saman við Hannes Haf-
stein! Ij
En hver eru nú ‘‘afreksverk þessa
mikilmennis”, sem K.A.B. svo
kallar ? Ritsímasamningarnir og
innlimunaruppkastið, sérstaklega
þó ritsímasamningurinn, að því er
K.ÁJ3. segir :
Tröllatök Hannesar Hafsteins er
sæ- og land-síminn, skar-
ar hærra uppi á söguhimni Islands
en nokkur Vatnajökull yfir dýpstu
dali landsins. Hannes Hafsteinn,
einn, aleinn, skeytti ísland
i nýtasta fregnsamband við allan
umheiminn. Hann einn hafði ætt-
jarðarást, og þekkingarvíðsýni, aö
vinna það jötunverk. Peningarmr,
sem borgaðir voru fyrir símanr.,
er hverfandi hégómi í samanburði
við forsjálnina, viljaþrekið og af-
reksverkið. 1 þessu máli stendur
Hannes Hafsteinn uppi, sem klett-
ur úr mannlífshafi Islands þjóðar-
innar ; já, ekki einasta Islacds
þjóðarinnar, heldur alira núver-
andi þjóða heimsins”j
Geta menn stilt sig um að
brosa að barnask rpnian ?.
Allir, sem nokkuð þekkja til,
vita, að samningar þeir, sem H.
H. gerði, við “Hið stóra nor-
ræna”, voru hinir argvítugustu
fyrir Island ; fyrst og fremst var ;
gjaldið, sem Island varð að
greiða, helmingi hærra en sann-
gjarnt var ; og svo hitt, að sæ-
siminn var gefinn félaginu til eign-
ar og umráða í aldarfjórðung, og
jafaíramt var félaginu veitt þau
hlunnindi, að ekkert annað féiag
skyldi fá leyfi til firðritasambands
við Island. “Hið stóra norræna”
vildi verða einvalt, og H.H. fanst
það svo sem sjálfsagt.
H.H. fór að þessum samningum
með sáralítilli hagsýni. Hann
reyndi hvergi fyrir sér annarstaðar
— en það hefði meðal kaupmanns-
skussi gert, heldur tók tilboði
•þessa félags með tveim höndum,
og sagði já og amen til alls þess,
sem það hafði að segja.
Hugmyndin um, að leggja rit*
síma til íslands, kom ekki frá H,
H., hún hafði verið fyrir alþingi
I
; áður en hann varð ráðgjafi, og ef
| tnig minnir rétt, samþykti þingið
] 1903 þingsályktunartillögu þess
| efnis, að leitað væri undirtekta hjá
ritsímafélögum um simalagningu
til Islands.
Að segja því, að H.H. hafi unnið
liér slíkt afreksverk, að hanu
“standi sem klettur úr mannlifs-
hafi allra niiverandi þjóða heims-
|ins” (mikið það var ekki fyrver-
andi þjóða lika! ! ), er heimskuleg
fjarstæða. Hiver miðlungsmaður
hefði getað gert það eins vel og
jafnvel betur, hefði hann verið
gæddur bærilegri fjármálagreind.
þá læt ég útrætt um þetta ‘‘af-
; reksverkið”.
Á innlimunar-uppkastið minnist
ég síðar.
Hiver eru önnur afreksverk H.
II. ?
Hvað gerði II.II. til eflingar
sjávarútveginum ? Ekkert. Hvað
gerði H.H. til efiingar landbúnað-
inum ?• Kom á gaddavirslöggjöf,
sem kostaði landið stórfé og gerði
bölvun eina.
Hvað jfyrði II.II. til eflingar al-
þýðumentun í landinu. Bægði þeim
manni frá starfinu, sem fræðslu-
málastjóri, sem beinlínis hafði lært
til þess, með styrk frá alþingi, og
að allra dómi var eini hæfi maður-
inn ; en veitti starfann mági sín-
um, ér aldrei hafði tekið fullnaðar-
próf í nokkurri fræðigrein.
Ilvað gerði II.II. fyrir bindindis-
málið ? Barðist með hnúum og
■ hnefum gegn bannlögunum.
Hvað gerði II.H. í sambands-
málinu ? Hann beitti öllum sínum
I kröftum og afli' til að innlima ís-
lan.l í danska ríkið.
Stjórn H. H:
j Mikill maður ætti að vera góð-
ur, réttsýnn og forsjáll stjórnari.
Var II. II. það ? Nei. Ilann
liruðlaði fé landsins á allar lundir.
þeggr hann tók við, var fjárhagur
landssjóðs góður, og viðlagasjóð-
urinn hafði á aðra milíón krónur
— þá II.II. fór frá, eftir fimm ára
stjórn, var viðlagasjóðurinn þrot-
inn, og landið búið að taka stór-
lán í útlöndum.
Eftirlitsleysí II. II. með undir-
! mönnum sínum meðan hann var
ráðherra í fyrra skiftið, er eitt af
því, sem er ómögulegt annað en
telja honum til sj-ndar. Hann úr-
skurðaði aldrei reikninga Lands-
bankans, sem hann var þó sk}Td-
j ugur til samkvæmt lögum ; og þá
hann hafði slept embætti, varð að
reka tvo af umboðsmönnum lands-
sjóðs fyrir margra ára vanskil.
Hlutdrægni Hf.H. í embættaveit-
. ingum var mikil, og skeyrti hann í
engu skynsamlegum tillögum. —
, þannig veitti hann bókaraembætt-
j ið við Landsbankann vildarmanni
sínum, þvert á móti tillögum
j bankaráðsins, og kennara embætti
! við prestaskólann þvert á móti til-
lögum biskups og lectors.
Ekki eru mikilmennis einkennin
sýnileg þar.
Getur nú dannebrogsmaðurinn
undrast, þó Heimskringla segði :
“Vænta má, að Hannes Hafstein
^ reynist nú betur en í fyrra skiftið’
H. H. og Þjóðarviljinn.
Stærsti lösturinn á H.H. var
hversu hann virti lítils þjóðarvilj-
ann, og hversu hann var hand-
jgenginn Dönum.
Alla sína fimm ára stjórnartíð,
var hann í látlausum ófriði við
! vilja þjóðarinnar. Að íslendingar
j einir aettu Island, að íslenzka þjóð-
in ætti að vera húsbóndi á þessari
óðalsjörð sinni, — það voru kenn-
ingar, sem hann sýndist með engu
móti geta felt sig við.
Nei, sagði hann, Danir eiga Is-
land, þeir eru húsbóndinn, og þeir
hafa fengið mér í hendur, að fara
með vald sitt hér. Af þeirra náð
er ég og vil vera það sem ég er.
Fyrir þessu tvennu barðist hann
þá : Eignarrétti Dana á landinu
og sinni eigin tign af þeirra náð.
Inn á þá braut gekk hann þegar
í upphafi, er hann lét skipa sig
danskan grundvallarlaga ráðgjafa
vfir Islandi. Núna gat hann það
ekki. *
þjóðinni þótti hann sýna gjör-
ræði, er hann gerði ritsimasamn-
inginn. Ekki fékk hún samt frest,
er hún óskaði eftir, til þess að
reyna að ná betri og hagkvaemari
aamningum.
Hún vildi fá nýjar kosningar, áð-
ur en millilandaneíndin var skipuð.
Ekki fékst það. þá brauzt hún til
að koma á fulltrúafundi á þing-
völlum 1907, til þess að stjórnin
skyldi þó mega til að heyra vilja
landsmanna í sambandsmálinu. —
Fyrir það var hún og fulltrúar
hennar höfð að háði og spotti,
bæði af H.H. og blöðum hans.
Alt af brann það saina við:
vilji þjóðarinnar var troðinn undir
fótum, og tilraunum hennar að
koma áhugamálum sínum fram,
valin hin hæðilegustu smánaryrði,
sem ritstjórar heimastjórnarblað-
anna áttu í eigu sinni. Og eftir
hrunið rnikla 5. sept. 1908 lynti
hvorki H.H. né blöð hans látun-
utn, að svívirða bæði þjóðina og
iulltrúa hennar, er stjórninni voru
andvígir.
Dönsk blöð um það leyti bera
þess Ijósast merkin. þau voru öll
full af samtali við H.H., og var
það mest rógur og skammir og
lágfle)-gasta níð um apdstæðinga
lians, trúnaðarmenn þjóðarinnar,
meirihlutann nýkosna.
| þannig var hinn pólitiski dreug-
skapur H.H. Ekki er þvi að undra
þó K.A.B. kalli Skúla Thoroddsen,
! Björn Jónsson, Einar Hjörleifsson
I og aðra, sem þá voru H.H. and-
vígir, “þjóðarsnápa”, “mannúlfa”,
“varmenni”, “örverpi þjóðarinn-
ar” Ojr fleiri slíkum nöfnum ; hann
fer þar að dæmi dýrðlings síns
| Hannesar ITafsteins.
Eða þegar K.Á.B. gefur ídenzku
þjóðinni það ráð, “að hætta að
glápa á Dani dag og nótt”, þá á
sú ráðlegging við engan fremur en
II.II., — hann liefir alla sína stjórn
jmálatíð “glápt á Dani”.
Sambasd smáiið vesíanhaís.
]>á kem ég nú að þeim kafianum,
sem K.Á.B. verður tíðræddast um,
og sem hann af speki sinni kallar
“Vestanrok og fúlvindar”, og sem
hann bvrjar með þjösnalegustu
dóna-árásum á Einar Hjörleifsson.
; Hvað E.H. hefir gert á hluta K.
1 Á.B., veit ég ekki, en hitt veit ég,
að nefndur K.Á.B. lætur ekkert
tækifæri ónotað til að svívirða E.
IH., sem skáld og matin, og er
slíkt ódrengilega að verið, þar sem
maðurinn er í annari heimsálfu og
á því örðugt að bera hönd fyrir
j höfuð sér. En á þessu lúalagi hef-
ir K.Á.B. legið í mörg ár, og munu
þeir fáir, sem skilja í þeirri ónátt-
úru mannsins, því sjálfur er hann
þó meinhægðarskinn og værukær.
En sleppum nú þessu. — K.A.B.
segir að E.II. hafi í fyrirlestrum
sínum hér sumarið 1907 verið að
fræða menn um pólitíkina heima,
tala um landvarnarlið og ríkisað-
skilnað, og þannig að búa menn
undir það, sem síðar kæmi upp á
j teningnum, nefnilega sambands-
frumvarpið. Ilvað satt kann að
vera í þessu, veit ég ekki, því ég
var þá heima á Islandi, en harla
er þetta ólíklegt, og ekki hafði E.
H. þá neina hugmvnd um, hvernig
sambandsnefndar frumvarpið yrði.
! Sannleikurinn er sá, að Vestur-
íslendingar munu ávalt fylgja þeim
flokki á ísl., sem djarftækastur tr
í sjálfstæðiskröfum og stendur við
hugsjónir þjóðarinnar ai meiri ein-
lægni, hvað se.m sá flokkur heitir,
og hverjir svo sem leiðtogar hans
eru.
þess vegna var það, að þeir
urðu andvígir sambandslaga upp-
kastinu, en hölluðust að kröfum
Skúla Thoroddsens. Hann var
djarftækur í kröfunum og viHi
ekki binda landið og þjóðina á
i innlimunarklafann, og landar hér
voru undantekningarlítið einhuga
| honum fylgjandi, þó að K.Á.B.
segi annað. Sannleikurinn er sá,
að flestallar bygðir íslendinga í
Canada og Bandaríkjunum sam-
þvktu fundarályktanir, sem lýsa
mótmælum gegn uppkastinu, en
engin einasta fundarsamþykt kom
fram, sem var því fylgjandi. þetta
getur K.Á.B. sannfært sig um að
sé satt með því að lesa vestur-
íslenzku blöðin fr,á þeim tíma.
Um fundarhöldin hér í Winnipeg
segir hann og rangt frá. Fyrst
þar sem hann segir, að óefað fleiri
j liundruð manna hér í borg mundu
j ekki hafa viljað undirskrifa fundar-
| áskorunina. Hefði slíkur fjöldi ver-
ið uppkastinu fylgjandi, því sýndi
hann sig ekki á fundunum ? Auð-
vitað vegna þess, að hann var
ekki til ; nokkrar hræður, svo sem
K.A.B., Sigfús Renedictsson og
Sigurður Vilhjálmsson skóari voru
j 'Teiðandi” uppkasts fylgjendur, og
j allir Winnipeg-íslendingar vita,
hverja þeir leiða! ti
Alls voru fundirnir fjórir, sem
haldnir voru hér í borg til að ræða
I um uppkastið. Fyrsti fundurinn
j stóð langt fram eftir kveldi og var
fjölsóttur ; 4 honum var etigin á-
lyktun tekin, en allir ræðumanna
voru á móti uppkastinu. Næsti
fundur var haldinn 9. júlí, Og var
hann sem hinn fyrri einróma á
móti uppkastinu. Að eins þrir eða
fjórir fundarmenn virtust annarar
skoðunar, og reyndu þeir að gera
hávaða, sem kafnaði þó af sjálfu
sér. þessi fundur kaus svo ellefu
manna nefnd til að gera ályktun.
Lauk svo þeim fundi.
þá næst boðar Sigfús Benedicts-
son fund í enskum kirkjukjallara,
og hafði sér til aðstoðar þessar
fá« uppkastshræður. Sá fundur fór
svo, að andstæðingar uppkastsins
báru frægan sigur af hólmi.— Sið-
asti fundurinn var haldinn 16. júlí
í Goodtemplarahúsinu, og hafði
nefndin, sem kosin var á öðrum
undinutn, boðað til hans. Hann
var fjölsóttur. Eftir miklar nm-
ræður var ályktun nefndarinnar
samþykt því nær einróma, og var
hún þess efnis, að uppkastinu var
harðlega mótinælt, en fylgi og
trausti lýst á tillögum Skúla
Thoroddsens. Sigfús Benedictsson
bar fram tillögu meðmælta upp-
kastinu, og var hún studd af Sig-
urði Vilhjálmssyni ; þegar htin var
borin til atkvæða, greiddi að eins
einn einasti maður henni meðat-
kvæði og var það stuðningsmað-
urinn S.V.; framberandi tillögunn-
ar hafði ekki einurð, að greiða
j þessu fóstri sínu atkvæði. þannig
var fylgi Hannesar Hafsteins og
uppkastsins í Winnipeg. — Sú að-
dróttun K.Á.B., að fundarályktun-
in, sem nefndin sendi heim, hafi
ekki verið samhljóða þeirri, er
samþykt var á fundinum, er ó-
sönn, og getur hann sannfærst um
það með því, að lesa Isafold frá
þeim tima á Carnegie bókasafn-
jinu, og svo ITeimskringlu eða Lög-
berg ; fundarályktunin er sam-
hljóða allstaðar.
Ivg nenni ekki að fara að skrifa
um kosti og lesti innlimunar upp-
kastsins, það hefir verið svo mik-
. ið skrifað um það mál, að Vestur-
íslendingum hlýtur að vera allir
málavextir í fersku minni, og
þeitn að eins til leiðinda að endur-
taka ]>að hér. Og þó nú að K. Á.
B. sé a'ð þvaðra um lýðveldi, sem
IT.H. sé eini maöurinn setn £ær sé
að stofna, en telur þó aðskilnað
heimskulegan, þá sjá allir, hvaða
samræmi er í slíku hjali, og þarf
því ekki frekar svars.
En úr því nú ég drap á innlitn-
unar uppkastið á annað borð, og
Ilannes ITafstein er þrætuefnið
milli mín og K.Á.B., þá mætti
geta um það “drengskaparverkið"
(eitt af mörgum), er hann lét gera
ranga þýðingu af sambandsfrum-
varpinu, til að fiegra það og villa
mönnum sjónir ; þó það nú kæmi
ekki að tilætluðum- notum, er það
samt dágóður lagður í mikilmenn-
isgæruna, sem K.Á.B. varpar yfir
hans hágöfgi.
Síðasta aíreksverkið.
Varla má ég liætta við þessa
grein, svo ég minnist ekki lítfilega
á síðastá afreksverk H.H., — t>n-
okunarfarganið. Hann ásamt fjór-
um öðrum, sem í nefnd höfðu ver-
iö kosnir til að íhuga, hvernig
bezt mætti auka tekjur landssjóðs,
komu fram með þær viturlegu til-
lögur, að lögleidd yrði einokun á
kolum, steinolíu og seinna tneir á
tóbaki, — ef skýrslur, sem stjórnin
átti að útvega, sýndu, að upp úr
því mætti hafa talsverða peninga.
Ekki átti þó landið sjálít að reka
einokunarverzlunina og hafa þatin-
ig aðalhagnaðinn af henni, heldur
átti að selja einstaklingum, helzt
útlendingum, einokunarréttinn i
hendur um 15 ár, gegn ákvcðiiii
gjaldi í landssjóð. Hannes Hafsteiu
var sagður tillögumaður þessa ó-
skapnaðar. Hann var fús á, að
þröngva þjóðinni undir nýfct e>n-
okunarhelsi og vega að verzlunar-
frelsi landsins.
Loka orð.
Eg nenni ekki að eltast við að
svara K.Á.B. lengur ; fimbulfamb
hans um kennilýð og kirkju og
1 skammirnar um póststjórnina, að
ósekju, á svo skrambans ári lítið
að gera við dóm á hæfileikum
ITannesar Hafsteins.
Að endingu : Ég hefi aldrei
neitað því, að H. II. væri ekki
gæddur góöum haefileikum, og
vitna ég þar í greinarstúfinn frá
15. ágúst um ráðherraskiftin ; ea
að hann sé eitt al mestu mikil-
jmennum heimsins, eins og K.Á.B.
heldur fram, .gengur vitfirring næst
jað ímvnda sér. K.Á.B. getur ver-
ið glöggur á ágæti tnanna, en
þarna hefir honurn hraparlega
skjátlast dómgreindin, því þó H.
II. sé hæfileikamaður, er hann
engu fratnar mörgum öðrum núlif-
andi Islendinga, og jafnvel í hans
gamla flokk, Heimastjórnarflokkn-
um, eru tveir eða þrír menn, sem
honum eru snjallari í. flestu.
Alt um það hefir H.H. verið
óskmögur íslenzku þjóðarinnar
flestum fremur ; en það er ekki
stjórnmálahæfileikum hans að
þakka heldur því, að hann er
gleðimaður hinn rnesti og góð-
skáld. Slíkir menn eru þjóðinni
jafnan kærir. Alþingisrímurnar
lýsa H.H. prýðisvel í þessari vísu:,
“Talaði í ljóðum, skemtinn, skýr,
skáldaði margan braginn,
og við skál var ósköp hýr
oft er leið á daginn”.
þar í liggja vinsældir H.H. öllu
fremur.
Ég vil gefa K.Á.B. það heilræöi
næst hann skrifar lof um einhvern,
að gera það ekki með þeim hætti,
sem þessar Hafsteins greinar hans
sýna, að níða og svlvirða mót-
stöðumenn dýrðlings síns; slík
fratnkoma er ósamboðin hverjum
ærlegum dreng, og spillir jafnframt
stórum fyrir þeirn, sem lofaður er.
, En væri nú svo, sem K.A.B.
segir viðvíkjandi H.H., hvað þá ?,
Hann þessi heimsins mesti mað-
ur H. H. við stjórnmálastýrið á
Fróni, og hann gagnfræðingurinn,
sagna- og rímnaskáldið K.Á.B.
ráðanautur hans hér vestra, —
hversu brosfagra framtíð ætti ís-
land ekki framundan og hversu far-
sælleg-a yrði ekki stjórnmálaþrefið
til lykta leitt og á ógn skömmum
tíma þau undur orðin, að smjör
drypi af hverju strái í annað
sinn! ! i
þá yrði og brennivínsöld í landi.
Gunnl. Tr. Jónsson
********
C. P. R.
North
Transcona
lóðir
$100 og upp
EPTIR AI STÖDU.
Lóöir þossar ern beint
á nióti C. P. R. eignun-
um, og því beztu lóðirn-
ar þnr.
Hæglega helmingi
meira virði en vér selj-
um þæí fyrir.
ÍSkilmúlar; J strax og
afgangurinn á 1 eða 2
árum með 6% vöxtum,
Sendið eftir bæklingi
og verðlista eða látið
okkur sýna yður lóðirn-
ar áður en ]>að verður
um seinan.
Nokkrar fram lóðir á
aðalveginum fyVir 13 til
15 dollara fetið.
IBregðið við fijótt ef
þér viljið ekki verða af
kaupunum.
AlBERTDMLTY fO.
703 McARTHUR lii OCK.
Talsími M. 7323
Krnneh Ofl'ire:
219 Willowby Sumirer Block
SASKAT00N, SASK.
Föt eftir máli
Beztu fatnaðir gerðir
eftir máli og ábyrgst
að fara vel.
HREINSUN, :pRESSUN
og AÐGEBÐIR
J. FRIED, The Tailor
660 Notre Dame Ave.
13-12-12
MARTYN F. SMITH,
TANNLÆKNIR.
PBÍrbalrn Ulk. Cor Maln & Selklrk
íSérfræðingur 1 Gullfyllingu
og ðllum aðgerðum og tilbún
aði Tanna. Tennur dregnar
án sársauka. Engin veiki á
eftir eða gómbólga. —
Stofan opin kl. 7 til 9 á kveldin
Offlce
Phooe Maio 6944.
Heimilis
Phooe Maio 6462
Rafurmagnsleiðsla.
♦♦♦#♦♦♦♦♦♦#♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
fíyffffiuflrameistarar! látiö okkur gera tilboð
nm ljósYÍra og rafurmagosleiOsla 1 Ihúsio
ykkar. Veró vort er saootfjarot.
Talsími Garry 4108
THE H. P. ELECTRIC
664 NOTHE DAMB AVE
1AÐENDUR: Komiö og sjólö rafur-
’ ma^os straujárn og
snðu áhðld okkar, eiooig ðoour rafurmagos
áhðld. Ef eitthvað fer aflatra kalliö Gz\RRY
4108 eða komið til 664 NOTRE DAME AVE
EF þAÐ KEMUR FRÁ
B.J.WRAY
MATVÖRUSALA.
þA ER þAÐ GOTT.
Viðskifti Islendinga óskast.
BÚÐIN Á H0RNI
Notre Dame & Home
Talsfmi: Garry 3235.
ÍSSMSMSSSISSSSMMMSMÍ
Sölumenn óskast
fé'ag. Menn sem tala útlend tungumál
hafa forgan»rsrétt. Há sðlulauo borguð.
Komið og talið viö J. W. Walker, sðluráðe-
maoo.
F. J. Campbell Jk Co.
624 M§in Street - Wiimipeg, Mau.