Heimskringla - 12.09.1912, Page 3
HEIMSKRIN GLA
WINNIPEG, 12. SEPT. 1912. 3. BLS-
B- ................■■---- ■■ ■ - -■-=«
Helga in fagra
EFTIR
tíuðm. Guðmuudsson.
I. •
Mér leiöist viö lín og sauma
og langdegisglauminn á B o r g!
Eg, hlakka til dúra’ og drauma,
en dögunin vekur mér sorg. —
I sól-löndum dulraeðra drauma
er ég drottmng í skínandi borg.
Og kongurinn ? Mér er sem kenni
.ég karlmensku-svipinn hans,
og hjart er um brá hans og enni, —
í bragði hins unga manns
ég O r m s t u n g u ættarmót kenni
og augun hin náttmyrku hans.
Mig dottar við dúka’ og sauma
og dyngjan er orðin mér leið :
Á land minna ljósu drauma
mig langar hvert dægvirskeið. —
Til hans ber mi.g dularvald drauma,
en — dreyri’ er á miðri leið!
II.
Hve eintjeitt og fast var hans augnaráð hvasst.
og alvara’ í gamansvörum!
Og hvernig siem fer, mig festi hann sér
með íallega brosið á vörum,
og bráleiptur tindruðu’ und brúnaskörum.
En fööur míns brún var mér ráðgáta’ og rrán,.
cr rétti’ hann fram höndina tregu,
og svipurinn hans á mér sýndist þá,
að sæi' hann um óra vegu —
um ókomnu daganna dularvegu.
En lund min er siðan svo létt og blið
og ljóst j’fir öllum dögnm.
Hvort léku þeir sér, eða sannleikur er
að sitji ’ég í.íestum að lögum,
é(g brýt um þaö heilann, — barn í lögum!
III.
0, að ég valkyrja væri!
Gegnum reiðarslög,
yfir loft og lög
á vinar míns fund ég færi,
hvort sem lífs eða Jiðinn hann væri!
En — ég er svanur í sárum, —
varpa einatt önd,
hugsa út í lönd, —
hver dagur er orðinn að árum,
þessi þrjú ár að jnisund árum!
IV. ' 1
þungt stynur hafið! ..... Til brúðkaups að Borg-
er boðið um héruð víða.
Dimmt er i lofti...... É’g sá með sorg
hann sjálfan að garði ríða.
Hugurinn reikar svo víða, — víða!
þær bundu mér nálín : mitt brúðarlín!
— Hve brimið í fjarska drynur! —
Og H r a f n i var gefin h ö n d i n mín.
En h j a r t a ð mitt, elsku vinur,
þ a ð áttu lífs og liðinn, vinur!
V.
Hans svipur er mikill. — Viö Ö x a r á
ég áðan hann sá
litverpan hólmgöngu hverfa frá
með herklæðin dreyra roðin,
— með ægishjálm víkingsins undir brá
í elskunnar kvöldbjanma roðinn.
þeir settu sér mót fvrir handan haf.
Og himninum af
síðasta geislanna gidlinstaf
í grátskýjum sá ég renna. — 1
Hve langt ber Gunnlaugur öllum af,—
en — engjnn má sköpum renna!
VI.
þeir hétu mig II e 1 g u’ ina f ö g r u ,
en hver er mér styrkur í því,
er helgasta kend míns hjarta’ er meidd
og helgasta ást mín er rétti sneydd ?,
Já, kvöl er að vera kona,
og seld eins og þræll og þý!
Hvers á ég, guð minn, að gjalda?
IIvi gafstu mér hjarta’ og mál,
er minninga’ að njóta í náðum mér
með nýju valdboði meinað er ?.
ö, drep þú ei svo í dróma
dætranna minna sál!i
VII.
Látið skíðin loga, svo skikkjuna hans
við skinið ég sjái’ að rekja!
í hinsta smn vil ég. svipinn hans,
er syrgt hef ég elskandi, vekja.
Og lofið mér höfuð að hneigja
að hægindi. — Gott er að deyja! ........
Fjær, fjær
mér himneskii brúðsöngvar hljóma!
Nær, nær
haun kemur í litbrigða ljóma!
Við þennan síðasta sólskinsblett
fær sorg mín og ást sinn heilagan rétt.
Og sveipið mig skikkjunni! — Svona er létt
að sofna — og eiska — og deyja!
— (Sunnanfari).
Samkvœmislíf í Paris.
þó ParísE'Xborg sé miðstöð gleð-
innar og þangað komi menn og
konur frá 'öllum löndum til að
skemta séx, þá samt sem áður er
samkvæmislíf hins mentaða hluta
fólksins þar mjög svo frábrugðið
himun eiginlegu skemtunum, þó
vitanlega glaðværð sé þar oft á
ferðum.
Mentaða fólkið í París hefir mest
yndi af því að hittast tál a ð
t a 1 a s a m a n. Samræðan á þar
enn ráö til sálfræðilegrar auðgun-
ar og itil aukningar lifandi fróð-
leiks, — þekkingar, sem gleymist
síður en bókfræðslan. Menn koma
ekki saman til að éta og drekka,
svo sem hér er siður. Víndrykkja í
Parsar samkvæmum má heita al-
veg lögð niður.
Sjálf veitingahjónin drekka olt-
ast vatn, eða fá sér þá tebolla, og
gestirnir drekka sem allra minst af
áfengnm drykkjuin. Matnum sjálf-
um, liversu góður sem liann er, er
ekki mikið gert úr. þar er ekki
komið samau til að fá sér vel að
borða, heldur til að skiftast á
hugsnnum og áhrifum, kynnast
hver öðrum og heimimim.
þar sem dugandi fólk og íhug-
ult er s-aman komið, þar er ekki
hæbt >við að vanti umræðuefni ;
þax vex tilhneiging .til að gera
heyxinkunnugt það, sexn sagt er
frá Qg hafa af því einhvern ábata.
Frægur geðveikraheknix -sagði einu
sinni i samkvæmi sögur um glæpa-
menn, sem gera sér upp vitfirring
til þess að losna við hegningu. —
Stcu-þiófur nokkur hafði til dæm-
is þann sið, að ráfa fram og aftur
um brautarstöðvarnar Og- tína þar
saman alla brunna eldspítnabúta,
sem hann fann. Árlega sendi hann
forseta lýðveldisins og yfirráðgjafa
að gjöf fullan sekk af þessu. Og
tvær .eðá þrjár shkar brjálsemis-
athaínix framdi hann. að jafnaði í
viðbó-t. Aileiðingin af þessu var sú
að jaínskjótt sem .lögregluþjónn
kom drattandi með hann, sakaðan
um eitthvert ódæðið, v.ar honum
slept lausutn jafnharöan á skrif-
stofunum, með því hann var ekki
með öllum mjaUa. — þessar smá-
sögur skemta, en ósjálírátt spinn-
ast út úr þeim íekari hugleiðing-
ar. Tilnætt varð um takmörkin
milli geðveiklaðrar og heilbrigðrar
hegðunai;, þar til samræðan varð
að íhugun ,um vitlirring LLarls VI.
— í hverju hún væri .fólgin, aí
hverju hún .væri sprottin og hvern-
viðurgexning .hún hafði.
1 París er það siður, eins og í
Kaupmannahöfn, að hver talar
við sína dömu, Qg eins lítið eitt
við dömuna á hina hUð ; en þar
sem samr.æðan verður svo að kaUa
aldrei almenu i Kaupmannahöfn
(af því aidrei er hreyf.t við neinum
íilmennnm áhugamálum), en þótt
ekki sé við borð nema tuttugu
manns, þá er slíkt altítt í París.
Og venjan hefir það áreiðanlega
verið þar fyr rneir.
Fyrir tuttugu árum var tið-
nefndur salur einn i París, salur
Madame d’Aubernon. Hún var vön
að segja við gesti sínaEí þið
viljið skemta ykkur sérstaklega
viö dömuna ykkar., getið þið gert
.það eftir borðun, sða þá annar-
staðar ; ég vil haía ánægju af
samkvæmisgestum mínum og á-
bata af mælsku þeirr.a, og ég
krefst þess, að samræðan sé al-
menn hér við borðið. Hún hafði
meira að segja hjá sér bjöllu, sem
hún hringdi eins og í þingsal, ef
einhver tók fram í mál, sem var á
baugi, eða glapti þann, sem þá
var að tala.
Sv’o vinsæl sem frúin var,
skcmtu menn sér mikið í París að
þessari smásmygli hennar, og
len^i var sögð sagan um liana og
ritsnillingin Renan. það var einn
dag í samkvæmi hennar, að heim-
spekingurinn Carlo var að tala og
Renan gerði sig líklegan tif að
gera einhverja athugasemd, þá
hríngdi hún bjöllunni og sagði :
það kemur bráðum að yður, hr.
Renan! það drógst þó úr lopan- |
um hjá Carlo, og þegar húsfreyjan t
leyfði Renan loks að tala, hafði
bann sagt með gletnis-vandrseðs* :
svip : Ég er hræddur um það
komi of seint, sem ég ætlaði að
leggja hér í belg. Mig langaði til
að biðja um grænar baunir, en nú
■e.r kominn ísinn!.
Menn eru ekki grónir hver upp
að öðrum eins og í samkvæmum á
Norðurlöndum, sex tíma í röð. —
það er komið seint og snemma,
eftir því sem hver vill, verið hálf-
an tíma eða heilan, eða hálfan
annan ; talað viö þá, sem maöur
lendir í samræðum viö, án þess að
húsbóndi eða húsmóðir séu á vakki
eins og varpsjúkar hænur og linni
til ábyrgðar á, að gestunum sé
skemt. Gestgjafar hafa engar á-
hyggjur út af samvistunum. það
er jufnlitið tekið eftir, aö einhver
fari eins og hann sé kyr, og langi
liann til, getur hann kkmiö í mörg
hús á tveimur, þremur klukkutim-
um.
Eitt hefir París í stærri stíl en
bæði Berlin, London og Róm : Að
í samkvæmum þar liittast allir
þjóðernisílokkar, og það mestu
mierkismenn hverrar þjóðar : Suð-
ur- og Norður-Ameríkumenn, Pól-
verjar, Finnar, Rússar, típánverj-
ar, Rúmenir, Tyrkir. Öllum finst
þeir eiga heiina í Paris. Og það
er ekki verið að skifta um tnál, þó
erlendir menn sé.u viðstaddir. þar
er að eins talað eitt mál, með því
allir útlendingar skilja frönsku.
Og alveg sama, þó húsbóndinn
kunni ílest Evrópu-mál, jafnvel
rússnesku og viðstaddir séu menn
frá öllum löndum.
Eins og þjóðernismunurinn í
frönsku samkvæmislífi sundrar ekki
heldur auðgar, eins gerir ekki
stéttamunurinn eða eignaanunur-
inn. 1 frönskum samkvæmum eru
engir mannvirðingailokkar.
það vekur ekki minsta athygli
öðru freinur, í borgara samkvæm-
um nú orðið, þótt þar sé staddur
prins eða prinsessa- Slík hefðar-
mær, sem prinse^sa Lucien Murat,
fædd hertogafrú af Roan., eða mað-
ur eins og- prins Ronald Bona-
parte eru stööugir gestir í borg-
aralegum húsum. Eins er um ann-
að stórmenni, svo se greifa, har-
úna, lávarða, hérshöfðingja og
nafntogaða stjórnmálamenn og
skáld.
Gesturinn er metinn þar ein-
göngu eflir því, sem hann leggur
til samkvæmislifsins, eða hvert
andlegt stórmenni hann er ; alt
annað er lítiisvarðan.di, sem það
væri ekki til.
Eins og kunnugt er, er ekkert
titlatog á Frakklandi • þar sem
tíðir eru á þýzkalandi og í Dan-
mörku titlar, sem engi starfsenu
samsvara, — já, sem brjóta stund-
um hlæ.gilega í bága við iðju
maansins, svo sem þegar slátrarar
verða jusVisráð og bakaxar etaz-
ráð ; og þar sem menu í ger-
mönskum löndum gera samvizku-
samlega stórskotahrið hver á ann-
an með þessum titlum, þá þekkj-
ast titlar yfirleitt ekki á Frakk-
landi. Maðurinn er m o n s i e u r,
húsfrúin m a d a m e og mærin
mademoiselle. Franskur ráð
herra er aldrei titlaður h o n e r -
a b 1 e eða excellence, á sér
etigan annan titil eu “monsieur”.
Engir nema höföingjaþjónar á-
varpa : greifi eða greifafrú. Keis-
arafrúr eru meira að segja ekki á-
varpaðar öðruvísi en m a d -
aiKie.
Hinn mikli jafnaðargustur bylt-
ingarinnar, sem æddi yfir Frakk-
land við fall keisaradæmisins 1870,
finst enn, og gerir ókleyft með
Öllu, að slikt verði tekið upp aft-
ur, — að minsta kosti ekki meðan
lvðveldið :er viö lýði á Frakklandi,
og sem al.t bendir til að verða
muni um langan aldur.
Samkvæmislífið á Frakklandi er
því framar öUu öðru mentandi og
ágætur menningarskóli fyrir út-
lendinga ; enda verða fiestir tnjög
unnandi París, sem þar hafa
■ dvalið.
En þó samkvæmislífið bjóði ekki
gleði þá og glaum, sem París er
frægust fyrir, þá má ekki ætla að
það sé ósönn frægð. Nei, París
er í sannleika miðstöð heimsgleð-
im.ar. þar getur maður séð alt,
] sem augað girnist, og heyrt alt,
st»m vert er aS hej’ra, og Parísar-
borg eru fleiri leikhús og skeirtti-
staðir, en í nokkuri annari borg
veraldarinnar, og Frakkar eru
menn, sem kunna að skemta og
njóta gleðinnar.
I Wiis Biisiss Eillw
t
■f-
*
*
t
♦
*
4
t
♦
*
♦
»
+
t
4-
t
4-
t
4■
STOFNSETT 1882.
Helzti hraðritunar vélritunar og verzlunarsköli í Canada.
íllaut 1. verðlaun á heimssýningunni í St. Louis, fyrir
kenslu aðferð.
Dag og kvöldskóli
og sérstfik tilsó'gn. Atvinna útveguð hæfum Demendum.
Tilsögn veitt með pösti ef óskað er.
Skrifið oss eða kallið upp MAIN 45.
Wiimipejr línsiiiess College,
Horni Portage Ave. og Fort St.
■VsTIlsrdSrr^ElGf, - - iLÆAklsT.
•*^-*-ý-*-f-*-f-*-f -*-ý-*ý-*-ý-*-ý-*-ý-*-ý-*-f-»--ý-*--ý-*-ý-*-ý-«-f-»-f;.4£
U
4-
»
-f
t
T
■f
t
-f
t
-f
t
-f
t
-f
-f
t
í
t
-f
t
-f
t
4-
t
-f
t
-f
t
-f
f
6REED BRO’S.
—-------723 ELLICE AVE.------
Komið og finnið oss. Vér böfum allar tegundir af
Fiski, garðávöxtum og kjöt-
meti. Lágt verð, beztu vör-
ur og greið afhending.
Gleymið ekki staðnum,
723 ELLICE AVENUE.
Til að fá bezta árangur sendið korn yðar til
PETER JANSEN Co.
Heifirtrygt nmboössAluleyfl,
PORT ARTIIUR eöa FORT WILLIAM.
Fljót afgreiðsla, bezta flokkun,—fyrirfram borgun,—hæzta verð.
Meðmwlcmdnr: Canadian haak of Commerce,
Winnipeg e?a Vesurlands útiböaráðsmenn.
Skrifið eftir burtsei dingaformum.—Merkið vðruskrá yðar:
„Advic Pc.TKKJAXáEN Co.Grain Exchange, Wiunipeg.Man.”
Stefaa vor: Seljandi krefst árangurs, en ekki afsakana.
F
CAIVA.OIAIV
IST PROOF WBATflER STRiPS. I
Sparar 25 prö sent af eldsneyti, varnar ryki og súg að.
komRst f húsið. Aftrar gluggum og hurðuin frá að skrölta
Þessi “Strips” fást hjá
WÍLLIAM30N MANUFACTURERS AGENCY G0.
255 PKINCESS St.
TALSÍMI: OARRY 211«.
North Star Grain Company
URMN EXCHANOE, Wínnipeg, Man.
Mfiðnaælendur : BANK OF MONTREAL.
Ef þér viljið fá hæsta verð fyrir korntegundir yðar, látið
NORTH STAR GRAIN CO. selja þær fj-rir yður.
Vér ábyrgjumst greiðar og áreiðanlegar borganir.
Formaður félagsins er Mr. W. A. Anderson, er svenskur, og
norski konsúllinn í Manitoba. Mr. II. R. Soot er ritarí og ráðs-
maður þess.
NORTH STAR GRAIN CO. er viðurkent um alt Canada,
sem áreiðanlegt félag, og má rita hvaða banka sem er í
landinu um upplýsingar þess efnis.
Skrifið eftir frekari upplýsingum.
ai^faíSÍSJSJSJSrSJaJBJSJBJSfBJSíaJSISíSJSJBii
jaiBlSII
□□□□□□□□□□□□
KARN eða MORRIS P1AN0
eru búnir til' af stærsu pianvverksmiðju f Canada.
Félagið er einnig eitt það stærsta pianofclag f
heim num, og hefirlilotið aímenings hylli fyrir ein-
staka VANDVIRKNI og CrÆÐI á hverju piano
sem frá verkstæðinu hefir farið.
Það eru engin hljóðfæri sem hafa hreinni eg
fegri tóna en Karn-Mobris, og endingin og prýðin
eiga ekki sinn lfka.
KARN-MORRIS PIANO & ORGAN COMPANY
587 POKTAGE AVE., WINNlPEG.
E. MERRELL
Ráðsmaöur.
jj^rsi3i5^j£-sb:'a,BíajafBrsiajBfajajaj3jajaja2JaJSJBÆJBJBJBjaj2jajafBEjair^
The West End Dry Goods Store.
Það er staðurinn sem þið geti fengið
KJARAKAIJP.
Vér höfum nýustu tegndir af kvenna, karlinanna og
unglinga prjónapeysuin (Sweaters) og allar tegundir af
skóm, m. fl
Vér höfum sérstaka tegund af skóm fyrir skólabörn.
MUNIÐ EFTIR STAÐNUM;
720 SARGENT AVE