Heimskringla - 12.09.1912, Blaðsíða 4
I. BLS,
WINNIPEG, 12. SEPT. 1912.-
HEIMSKEINGCA
Heimskringla
Pablidhed every Thursday by The
ðeÍDiskringla Newsi l’Qhlisbiae Co. Ltd
Verö blafisins 1 Canada og Bandar
|2.00 am áriO (fyrir fram h*>rgaö).
tíent til íslands $2 LO (fyrir fram
borgaO).
6. L. BALDWINSON
Kditor A Manaarer
Ottice:
729 Sherbrooke Street, Winnipeg-
BOX 3083. lalaími Garry 41 10
Félagarnir.
t síöasta blaöi birtutn vér rit-
perðir frá þeim berrum S.E. og
Jóni Kristjánssyni, sem hvoru-
tveggju eru ihugunarverðar af
tvennum ástæöum : 1 fyrsta lagi
af því, hvað þeir herrar viröast
hafa litla þekkingu á máli því,
sem þeir gera aö umræðuefni, og
í ööru lagi af þeirri megnu ósann-
girni, sem báðir beita í umræöun-
um.
þegar S.E. byrjaöi deilumál sitt,
ritaði hann allstillilega, og gaf þá í
skyn, aö hann byggi yfir þekkingu
á högum íslands, sem gaf ástæöu
til að ætla, aö spekingur væri ris-
inn upp á meðal vor hér vestra.
Ilann heimtaöi skýrslur um fram-
leiöslumagn ýmissra afurða hér í
landi, og lézt mundi sýna afuröa-
magn sömu tegunda á Islandi. —
Heimskringla tafði ekki að veita
umbeðnar upplýsingar og vonaði,
að nú stæöi ekki á samanburðar-
töflum hjá S.E. En hvað skeður!
Hann gerir alls enga tilraun til
þess, að uppfylla samanburðartil-
boð sitt, — getur það auðsjáaff-
lega ekki. ITefir engar skýrslur um
jjetta frá íslandi, sem honum
þykja frambærilegar, og hefði ver-
ið iniklu hyggilegra fyrir hann, að
íhtiga það atriði lætur, áður en
hann gerði samanburðar tilboðið.
Drýgindalega ræddi hann og um,
að fróðlegt mundi að bera saman
næringargildi fóðursin's á Islandi
við næringargildi samkynja teg-
unda hér vestra. En enga tilraun
hefir hann gert til Jjessa, og er þó
Heimskringla nú tilbúin með töflu
um }>etta atriði, ef þörf gerist. En
að þessu sinni látum vér nægja,
að benda S.E. á það, að næringar-
gildi skepnufóðurs hér vestra er
nægilega mikið til þess að tryggja
stærri vöxt hesta, sauða og nauta
heldur en á Islandi. Ileimskringla
gerir ennfremur þá staðhæfingu,
að mjólkurkýr í Canada yfirleitt
mjólki fleiri potta, og stærri, í
fleiri daga, og af betri mjólk, held-
ur en kýr gera á Islandi. —* þetta
er ekkert níð um íslenzku kýrnar,
staðreyndur sannleikur, sem hægt
er að rökstyðja með ábyggilegum
landshagsskýrslum, að þvi er þetta
land snertir.
það gildir einu hvar leitað er
afurðamagns og framleiðslu, það
hvorttveggja er hér vestra í yfir-
gnæfandi mæli.
En svo vér snúum beint að síð-
ustu ritgerð herra S.E.., þá ber
þess að gæta, að alt þetta mál
um samanburð Islands og Canada
er risið út af þeirri staðhæfingu
herra Bergssonar, að ísland sé
eins gott land og Canada, ef þaö
væri eins vel setið. Heimskringla
neitaði og neitar þeirri staðhæf-
ingu afdráttarlaust, og af ástæð-
um, sem þegar hafa verið sýndar.
Svo er að vísu að sjá, á síðustu
grein herra S.E., að hann neiti i
ekki yfirburðum Canada, en hann
segist hafa ætlast til, að Heims-
kringla gerði samanburðinn á lönd-
unum á sama breiddarstigi. En j
það telur blaðið ómögulegt að j
gera, — því að Canada á sama
breiddarstigi og ísland er óbygð j
eyðimörk, þar sem hvítir menn
hafa enn ekki stigið fæti, svo oss j
sé kunnugt. Sanni nær teljum vér j
að gera samanburðinn á hinum
bygðu svæðum beggja landanna ;
annar samanburður er alls ómögu-
legur.
Aðal þungamiðjan í síðustu rit-
gerð herra S.E., er játning hans
um það, að hann þoli ekki, að rit-
að sé nið um ísland. En hann
kveðst stíla grein sína til þeirra,
sem ófrægi íslenzkt þjóðerni með
illmælum um lalendinga, svo sem
þeirra, sem láti sér um munn fara !
annað eins og þetta : lihann er
ekta h____ Islendingur! ” Vér er-
um herra S.B. algerlega samdóma
um vansæmið, sem felst í þessu
hvorttveggju, og vér staðhæfum
afdráttarlaust, að Heimskringla j
eða ritstjóri hennar, eða nokkur !
jieirra, er að blaði þessu hefir
nokkru sinni unnið, hafi gert sig
s' ka í þessum atriðum. það hefir
verif. stöðug viðleitni þessa blaðs, j
frá ] ví fyrsta, að halda uppi sóma
tsk ' nga hér í álfu, og oss vitan-
legr ,f:r blaðið aldrei látið neitt
tar’ ’tæ ónotað til þess. Blaðið
hefir þráfaldlega bent á, að sem
þjóðflokkur hafi Islendingar hér
vestra áunnið sér álit og tiltrú
hérlendu jjjóðarinnar, og að þeir
J hafi sýnt, að þeir séu engir eftir-
J bátar annara þjóðflokka, er hing-
| að flytja ; og þess vegna hefir það
verið einlæg sannfæring blaðsins,
að þjóðflokkur vor eigi fagra fram
tíð hér í landi. Hitt er öllum vit-
anfegt, að til eru hér menn og
konur af íslenzku bergi brotið, er
ekki varpa neinum ljóma yfir þjóð-
erni sitt. En þær persónur eru
hverfandi tala í samanburði við
hina, sem mynda þjóðflokksheild-
ina. Vér hyggjum, að staðhæfa
megi, að stofnþjóðin íslenzka þurfi
engan kinnroða að bera fyrir fram-
ferði þeirra hér vestra, yfirleitt,
sem frá hennk eru sprungnir, —
þrátt fyrir sjaldgæfar undanteku-
ingar,, sem átt geta sér stað, svo
sem þeirra til demis, sem telja sér
vanyirðu að þjóðerni sínu og vilja
helzt hvorki heyra það né sjá.
En S.E. viröist sérlega umhug-
! að um, að smeygja þeirri flögu
inn í meðvitund lesenda Heims-
kringlu, að ritsjóri hennar níði Is-
land. Vér fáurn ekki séð þetta í
sama ljósi og hann. Reyndar geta
verið deildar meiningar um þýð-
inguna í orðinu l‘níð”. Vér höfum
leitað þeirrar þýðingar í orðabók-
J um, oe ekki fundið neitt beint á-
J kveðið um það. það næsta, sem
j vér höfum komist er, að “óverð-
skulduð ófræging” sé níð. Sé þetta
ré.ttur skilningur, þá er engin sú
! ófræging níð, sem á rökum er
bvgð. Ef vér til dæmis segjum, að
einhver sé illmenni, þá er það ekki
níð um þann mann, eða áníðsla á
mannorði hans, ef sannað verður
með órækum rökum, að ámælið sé
verðskuldað. — Níðingsverk er
það, er einhver meiri máttar beit-
ir mætti sínum til þess, að á-
stæðulausu og óverðskulduðu, að
undiroka sér minni máttar og
beita hann rangindum.
‘‘ Överðskuldað last er níð ”,
en verðskuldað last er engin
ófræging og þess vegna ekki nið.
Alt er komið undir því, að satt sé
sagt. Að segja kost og löst á
| landi, manni eða hlut, er ekki níð
! um það land, mann eða hlut, —
j sé sannleikanum fylgt í lvsingunni.
j í raun réttri hyggjum vér vafa-
j samt, hvort rétt er að telja það
I löst, sem skortir á fullkomnun
j eins landshluta eða hlutar ; 1 oss
j finst það megi fremur teljast galli,
J þegar um dauða hluti er að ræða.
I En hvað sem um það má segja,
j)á teljum vér hitt rétt mælt, að
engin þau sannmæli eru níð, sem
svo svo eru rökstudd, að ekki
verði með jafn sterkum rökum
j hrakin.
Vér verðum því að halda því
fram, að hvorki Heimskringla né
ritstjóri hennar hafi nítt Island, —
en vér hófum sagt tim það rök-
studdan sannleika : —
1. það, að íslendingar á ættjörð-
inni hafi ekki við þúsund ára
búskap þar fundið eins mikil
þriínaðarskilyrði eins og Vest-
ur-íslendingar hafa fundið í
Canada á sl. 40 árum.
2. Að það vaxi ekki nóg gras þar
í Iandi til þess að fullnægja
heyþörfum þjóðarinnar, og að
þess vegna sé árlega keypt
bæði hey og korn frá útlöndum
til viðhalds búpeningi.
3. Að landið gefi ekki af sér næga
jarðepla uppskeru til að mæta
• þörfum þjóðarinnar, og að
jarðeplin þar séu vaxtarlítil, í
samanburði við vöxt þeirra
hér vestra.
4. Að jarðepli vaxi alls ekki i
sumum árum á Islandi, nema
helzt á Suðurlandi, og þá bæði
fá og smá. þess vegna séu
jarðepli keypt frá útlöndum á
hverju ári.
5. Að Island hafi í raun réttri alls
engin landgæði til að bera, er
því nafni megi nefnast, í sam-
anburði við náttúruauðlegð
þessa lands, og
6. Heimskringla og ritstjóri henn-
ar er við því búinn, að bæta
við þessari sjöttu staðhæfingu,
að ísland sé tvimælalaust lang
gæðasnauðasta landið á hnetti
vorum, sem nokkur menningar
og mentaþjóð byggir.
þetta er að vorum dómi ekkert
níð um ísland, heldur hlutdrægnis-
laus sannleikur, sem vér hyggjum,
að S. E. ekki muni hrekja með
nokkrum ábyggilegum rökum.
* * *
Vinur vor Jón Kristjánsson hef-
ir í síðasta bíaði auglýst þá skoð-
un sína, að meðhald þessa blaðs
með Canada hljóti að vera gert í
|/eim tilgangi, að gera fólk á Is-
íandi óánægt með kjör sin þar
heima, og örfa það þannig til
vesturferðar. Sennilegt er það
mjög, að þessar geti í mörgum til-
fcllum orðið afleiðfngarnar af með-
haldi blaðsins með Canada, en ekki
eru greinarnar ritaðar f því augna-
miði. þær eru ritaðar fyrir Vest-
ur-íslendinga, og án tillitS til þess
hver áhrif þær kunna að hafa á
hugarfar landa vorra austan hafs.
Alt eins mætti Jón segja, að þeg-
ar blað vort getur um stórslys,
þrumuveður og haglstorma, sem
hér koma oft fvrir, þá væri þess
getið til þess að fæla fólk á ís-
landi frá að flvtja til Canada. En
í hvorugu tilfellinu er tillit tekið
til þess, hvernig fólk á Islandi lít-
ur á það. Eina augnamið blaðs-
ins er að segja fréttirnar og að
.seg.ja þær sem sannastar Oy ré.tt-
astar.
Hitt er satt, að Heimskringla
hefir sett það óáfmáanlega á
stefnuskrá sína, að benda löndum
vorum hér í landi á, hve ágætt
land það er, sem þeir nú byggja
hér., og með því að örfa hjá þeim
ást til þessa lands, sem er föður-
land afkomenda þeirra. Heims-
kringla hefir oft fundið til þess, að
Canada íslendingar eru ennþá að
nokkru leyti útlendingar í anda, —
með hugann heima við ættjörðu
sína, og svo bundnir við endur-
minningar bernskuáranna það, að
það stendtir eðlilegri ættjarðarást
til þessa lands fyrir þrifum. Og
það er sannfæring Heimskringlu,
að sem fullveðja borgarar þessa
lands fái landar vorir aldred full-
komlega notið sín, fvr en þeir eru
snortnir eins hreinni ást til lands-
ins og meti gæði þess jafn rétt,
eins og þeir, sem mestir eru og á-
kafastir ættjarðarvinir. Enginn
sannur ættjarðarvinur mundi finna
Heimskringlu það til foráttu, að
hún heldur fram verðleikum Can-
ada.
Herra Kristjánsson telur það ilt
verk og vondan tilgang, að rita
rita svo um þetta land, að Islend*
ingar á ættjörðinni fái löngun til
vesturferða. En jafnframt tekur
hann það skýrt fram, að “nærri
undantekningarlaust eru allir ís-
lendingar, sean hér koma, allslaus-
ir, nema ef þeir eiga eitthvað litið
af fatnaði, og þar að auki mál-
lausir á enska tungu”. þessi setn-
ing í ritgerð Jóns er algerlega
sönn, og þarf því engan að undra,
þótt þeir verði að láta hendur
standa fram úr ermum hér, til
þess að ryðja sér braut til auðs
og sældar. Og þegar svo þess er
gætt, hve undursamlega landar
vorir hér hafa blómgast á liðnum
árum, þá gegnir það furðu, að
herra Kristjánsson skuli halda því
fram, að “hagur hins vinnandi
fólks í Canada sé engu betri en
þar sem ástandið er verst í .heim-
inum”. Svo langt er þetta frá
hreinum sannleika og heilbrigðu
viti, að því verður ekki nógsam-
lega andmælt. En hins vegar veit-
ir það hvöt til þess, að íhugað sé
siðar meir, í sérstakri ritgerð, :
“þýðing auðs á hag þjóða”.
Vér bentum Jóni á það í fyrra
blaði, hve skaðfegt það væri fyrir
tiltrú hans, að verða uppvís að &
sannsögli í ritgerðum, því að ein
ósönn staðhæfing gæfi grun um,
að alt annað í ritgerðunum færi
eftir því. En þessi bróðurlega á-
minning virðist ekki hafa haft nein
áhrif á hann, því að í þessari sítfe
ustu ritgerð segir hann, að rit-
stjóri Heimskringlu hafi virt bú
bónda eins í Nýja íslandi, í sum-
ar, þannig, að hver sauðkind og
eins unglömbin hafi verið .virtar á
30 krónur hver, og hver nautgrip-
ur og nýfæddur káifur á 30 doll-
ars. I þessari stuttu setningu úr
ritgerð hans eru fjórar missagnir,
sem sé :
1. Ritstj. Heimskringlu virti ekki
bú bóndans, heldur gerði sjálf-
ur bóndinn það, hér inni á
skrifstofunni.
2. Unglömb voru ekki nefnd né
talin í gripastofni bóndans,
heldur 17 sauðkindur, vænar,
metnar á $136.00, en það er
8 dollara hver sauðkind til
jafnaðar, fyrir þær kindur, sem
' allar voru vænar. Til þess að
sýna, að hér var ekki of hátt
metið, skal þess getið, að einn
bóndi í Nýja Islandi seldi i
fyrra skrokka af tveimur sauð-
kindum, tveggja ár gömlum.
Kaupandinn var verzlunarmað-
ur í Árborg bæ ; hann borgaði
bóndanum $19.10 fyrir skrokk-
ana. En bóndinn hafði þess
utan gærurnar, sviðin og slátr-
ið, sem vægast metið var
$2.75 yirði. Hér varð því hver
kind nálega 40 kr. og 40 aura
virði, eða 10 krónum meira,
en áðurnefndur bóndi mat sín-
ar kindur.
3. í tölu þeirra 33 Hautgripa sem
téð grein getur um, voru kálf-
ar ekki metnir $30.00, — þar
segir :
33 nautgripir, þar með vænt
aknevti og önnur yngri ak-
neyti, alls $825.00.
Akneytin vænu eru minst
$150, og aðrir nautaripirnir
metnir minna en ætla mætti
að þeir seldust fyrir.
4. Hver nautgripur var því ekki
metinn $30.00 eins og Jón seg-
ir, heldur 25 dollara hver að
jafnaði. Bóndinn gerði eins lít-
ið úr eigum sínum og hann sá
sér fært, og tók það jafnframt
fram, ein's og getið var í grein-
inni, að hann vildi ekki selja
eignir sínar á þessu virðingar-
verði, þó hann fengi það borg-
að í peningum út í hönd.
þegar þess er nii gætt, að í
svona stuttri setningu í ritgerð
Jóns, eru fjórir ósannindaliðir, þá
virðist ljóst, að annaðhvort kann
maðurinn ekki að lesa rétt, eða að
j ástríðan hjá honum til að segja ó-
satt er svo mögnuð, að hann fær
ekki við hana ráðið, — eða í
j þriðja lagi, að skapæsingin er svo
mikil, að hann fær ekki stjórnað
1 penna sínum.
Nýja sýningarsvæðið.
það hefir legið á meðvitund
allra skynbærra borgarbúa um
nokkur síðastliðin ár, að sýuingar-
svæðið gamla, sem þó er árlega
notað fvrir sýninguna hér i boig,
sé orðið alt of litið til að ina:ta
vaxandi þörfum borgarinnar. það
hefir frá því fyrsta verið a c;n-
kennilega óhentugum stað, hér
norðvestast í borginni. það I'.ggur
lágt og er blautt og sóðaleg t ;
hvenær sem votviðri eru, liggur
vatn á þvi, því að framræsla hefir
þar aldrei verið gerð að nokkru
ráði. Byggingarnar hafa verið og
eru ennþá að mestu leyti i sam-
ræmi við svæðið : litlar, lágar og
lélegar, í samanburði við það, sein
ætti að vera. “Grand Stand” er
það eina, sem vandað hefir verið
til að nokkru ráði, því að þar lá
við líf tuga þúsunda manns, að
vel væri bygt.
En þó að svæði þetta liafi á
liðnum árum orðið að nægja þörf-
um s’ýningarinnar, þá er nú svo
komið, að takmarka verður stærð
i sýningarinnar eða magn þeirra
hluta, sem sýndir eru, við rúm-
mál svæðisins og bygginganna,
sem á því standa.
Winnipeg borg hefir á sl. 12 ár-
um tekið svo hraöskreiðum fram-
förum og vexti á allan hátt, að
liún er komin í stórborga röð, og
fáir eru þeir af framsýnum mönn-
itm, sem ekki eru sannfærðir um,
að það’ liggur fyrir henni að verða
langstærsta borgin í Canada, er
tim;ir líða. Nú þegar er hún orðin
svo stór, og vegleg, að sýningar-
svæði hennar, sem notast hefir
j verið við að undanförnu, er orðið
alls óhæfilegt, og alger nauðsyn er
til þess, að fá annað stærra og
j hentugra. það er nú orðið bygt
upp af íveruhúsum alt í kringum
j gamla svæðið, og er það því orð-
! in verðmæt landspilda til að selja
fyrir byggingarlóðir.
Nú hefir bæjarstjórnin trygt sér
kost á að kaupa landspildu mikla
og fagra á bökkum Rauðár, eina
milu norðan við takamarkalínu
borgarinnar. Svæði þetta er eitt
hið fiegursta, sem völ er á hér
nokkurstaðar nærlendis, en fæst
nú fyrir talsvert minna verð, en
gamla svæðið getur selst fyrir. —
Mgsti fjöldi borgarbúa hefir skoð-
að svæði þetta hið nýja, og ber
þeim öllum saman um, að ekki sé
nokkurt vafamál, að borgin ættF
að tryggja sér það nú strax, og
að reisa þar vegfegar sýningar-
byggingar, er séu í samræmi við
stærð og vaxandi þarfir borgar-
innar.
Gjaldþegnarnir eru beðnir að
greiða atkvæði um þetta á föstu-
daginn í þessari viku, þann 13.
Heimskringla maelir fastfega með
því, að tslendingar greiði atkvæði
sin með því að kaupin verði gerð
og svæðið trygt borginni til eign-
ar og varanfegra sýningarnota. —
Strætisbrautin liggur að þvi, svo
hægt er að komast þangað á öll-
um tímum.
Úr bænum.
Herra Jóhannes Stefánsson, frá
Uppsölum í Skagafirði, sem dval-
ið hefir hér vestra um tveggja ára
tíma, hefir verið hér í borg í sl.
4 mánuði og stundar fasteignasölu
Heimili hans er að 692 Victor St.
Hr. R. Th. Newland fastcigna-
sali kom til borgarinnar á laugai-
daginn, eftir mánaðardvöl að Dog
Creek, Man. Dvaldi hann allan
þann tíma hjá þeim hjónum Steph
an Stephansson kaupmanni og
konu hans. Margir aðrir vildu lá
Newland sem gest, en vegna hins
slæma tíðarfars var örðugt að
lerðast um, og sat hann því i
lagnaði hjá kaupmannshjónunum
með mestu rósemd og fór hvergi.
Hr. Newland biður Hkr. að flytja
þeim hjónum hinar beztu þakkir
sínar fyrir rausn þeirra við sig
og svo einnig kæra kveðju til allra
annara kunningja sinna þar. New-
land lítur út sem annar maður eft-
Fyrir nýtízku karlmanna fatnað
FARIÐ TIL
W. R. DONOGH & CO.
ÞEIR GERA VöNDUÐUST F'"T ÚR VðLDrSTl' EFN'I EFTIR MÁLI
216 BANNATYISIE AVE.
Talsími Garry 4416. Winnipeg, Man.
ir þessa mánaðardvöl sína þar við
Ilundasprænuna, er hann feitari og
sællegri og hefir yngst um 5 ár að
minsta kosti,, bæði í anda og útliti
Nokkrir meðlimir Goodtemplara
stúknanna Heklu og Skuldar hafa
áformað að heimsækja íslenzku
Goodtemplara stúkuna í Selkirk
næsta miðvikudagskveld (18. þ.m.)
þeir félagar V. Freemann, Vest-
fold, og H. Johnson, Adelard, voru
liér í borginni um daginn. Hey-
skapur nær búinn og uppskera lit-
ur vel út, og kornskurður byrjað-
ur fyrir nokkrum dögum. þeir
voru að kaupa ýmislegt aðlútandi
þreskivél sinni. þar var uppskera
ágæt í fyrra, en samt líklega betri
nú.
Ilr. Karl Vopni, ‘contractari’ frá
Reddett, Ont., var á snöggri ferð
hér í fyrri viku. Hann er að
byggja brautarstöðvar þar eystra.
Nýskeð brann þar “department
block” og pósthúsið, og fékk félag
hans samning um, að byggja þessi
stórhýsi aftur. Var hann að leita
sér að trésmiðum. Kaupgjald er
frá 50 til 60 cents um klukkutím-
ann.
Ilr. Pétur Ma,gnússon, “contrac-
tari” á Gimli, hefir fengið verk-
stjórastöðu hjá Dominion stjórn-
inni, að byggja undirstöðu á
bryggju í bænum Drayton, Ont.,
og fór austur í síðustu viku til að
byrja á verkinu.
Miss I.ína Sigurdson, sem um
sl. mánaðartíma hefir verið suður
í Granvilk, N. Dak., er væntanfeg
heim hingað til borgarinnar um
næstu helgi.
Fregn frá Árborg á mánudaginn
var segir timbursmið einn að nafni
Ólafsson hafa .fyrirfarið sér um
helgina. Fregnin óljós að öðru
feyti. Hinn látni hafði átt heimili
3 mílur austur frá bænum.
þann 1. þ. m. andaðist að Ros-
ser Ave., Fort Rouge, húsfrú þor-
gerður Johnson, eiginkona herra
Friðriks Johnsons, ‘contractor’ hér
í borg. Hún hafði þjáðst af
krabbameinsemd síðan í janúar sl.
en varð rúmföst í lok febrúar sl.
Hún varð 61 ára gömul. Hún var
jarðsungin þann 3. þ.m. af þeim
séra Fr. J. Bergman og séra Rún-
ólfi Marteinssyni.
þeir herrar Björn kaupmaður
Austfjörð og Karl Einarsson, báð-
ir frá Ilensel, N. D., voru hér á
ferð í borginni í þessari viku.
— Hússtjórnarskóli verður sett-
ur á stofn í Isafjarðarkaupjtað á
komandi hausti, og er Fjóla Gteí-
ánsdóttir ráðin forstöðukou.i iians
Hún hefir haft á hendi umferðar-
kenslu suður í Danmörk siðasta
árið, en er nú kennari við Borrc-
hús hússtjórnarskóla í Koldiug.
Kvenfélagið “Ósk” hefir gengist
fyrir stofnun þessa skóla, on har.n
er styrktur af sýslusjóði og lands-
sjóði.
JÖN JÖNSSON, járnsmiður, að
790 Notre Dame Ave. (horni Tor-
onto St.) gerir við alls konar
katla, könnur, potta og pönnur
fyrir konur, og brýnir hniia og
skerpir sagir fyrir karlmenn. —
Alt vel af hendi leyst fyrir litla
Winnipegverð á korntegundum
geymdar 1 Fort Willam eða Port Arthur
vikuna frá 4. til 10. sept.
September 4 5 6 7 9 10
1 Nor 1052 1052 99
2 Nor 104 104 • 97
3 Nor 97 96 94 90 91 91
No.Four 37 86 84 8Í) 80 81
No. Five' 74$ 74 $ 74$-g 72 72 72|
No. Six 64$ 64 64 62 62 62£
Feed m 59 59 .... .... 57
2 C. W. Oats 43 43 43 42$ 43 42$
3 C. W. Oats 41| 41$ 41$ 41 41 41
Ex. 1 Feed 42$ 43 42$ 42 42 42
1 Feen 414 42 42 41$ 41$ 41$
2 Feed 37 37 37 36$ 37 37
No. 3 Bar 53 53 53 53 53
Nn. 4 Bar 47 47 464 47 47
1 N. W. Flax I6tf
1 Man Flax 164 .... • • • • .... ....
Rej. Flax 158 158 • • • . • • • • .... 150
Cond. Fla x 125 125 • • • • .... .... ....
WINNIPEG FUTURES
Oct W 911 91 90-$ ’-t* 00 00 87|-| 88$
Dec W 88$-$| 87£ 86$ 85 94$ 852-1
Oct Oats 35| 36 36$ 35| 36$ 36$-§
Oct Flax 161 | 158 157 151 151 151
g: ■ —— « g
ÍSLENZKIR BŒNDUR!
Reynið aðferð vora þepar þér semlið KORNVÖRU
yðar frá yður.—Það borgar sig fyrir yður.
Vér krefjums ekki að meðhöndla alla uppskeru yðar,
heldur að eins eitt vagnhlass, svo vér getnm sýnt yður
hvað vér getum gert.
Samkepnin er líftaug verzlunar, og trygging
þess að þér fái hæzta verð fyrir kornvöru yðar.
Skrifið eftir vorri vikulegu markaðsskýrzlu og bækl-
ingi um kornsölu, sent kostnaðarlaust til allr bænda.
HANSEN GRAfN CO.
HAFA TRYGGT UMBOÐ8SÖLULEYFI.
'WIN'inPEG, r 1k/r A TS.r
P ...— ' B
*