Heimskringla - 12.09.1912, Blaðsíða 7
HEIMSKB.INGE A
WINNIPEG, 12. SEPT. 1912. 7. BLS.
ROYAL
Lóðir renna út
Meir en eitt hundrað og fim-
tíu lóðir hafa selzt og þó hef-
ir þessi góða eign í Estevan
verið til sölu að eins f fáeina
daga.
Vér erum nýbúnir að fá
nokkuð af bæklingum vorum
um Estevau og Royal
Heights, Þeir innihalda
rnyndir og lesmál og upp
drátt af bænum Og Royal
Heights ásamt 'prfslista, sölu
skilmálum og p'lntunarseðli.
Þér hafið nú færi til að ganga í
valið og kjósa | hverja ”168
sem yður þóknast JafjJÞessari
eign. Allar lóðirnar^eru stór-
ar. Milli horna lóðir á* $125
og $150 hver.* Hornlóðir $150
J og $175 og Jífáeinar j'stórar
hornlóðir,'70 og'J5' feta, á
$250 hver. JJ
Fyrsta pöntun frá Este-
van “Royal jjHeights”
lóía nýlega móttekin.
í þeirri pöntun falast tólf borgar-
ar í Estevan eftir lóðakaup-
um. par af eru J>rfr 1 þjón-
ustu C. P. R., þrír í þjónustu
International Harvester Co.,
einn er verkfærasali, einn
bankaritari, einn kornhlöðu-
t 3. st.jóri, einn kaupmaður, einn
söngKennari og einn múrari.
Þessar pantanir segia
betur til um eignirn-
ar en nokkur hlutur
annar.
Fólkið f EstevanJ þekkir eignina
og veit hversj virði hún er, og
hve vel sett til bygginga, og
f>eir nota sór tækifærið til að
græða á henni.
F’yrir nokkrum dögum [skrifuðum
vér allmörgum helztu borgur-
um f Eítevan og báðum þá að
segja oss hvaða álit þeirhefðu
á eign vorri “Royal Heights.”
Vér tjáðum þeim að vér ætl-
uðum að fara að bjóða eignina
til kaups og kvöddum þá til
um umsagnar.
Eitt svarið er frá ritstjóra eins
blaðsins f Estevan, er nefnist
“Progress” en ritstjórinn heit-
ir W. Anderson. [Hann seg-
ir svo:
„Royal Heights” er svo sett, að
þar verður áreiðanlega |bezta
heimilabygðin f Estevan. Lóð-
irnar eru allar þurrar ög liggja
hátt, og ég segi fyrir mig, að
ég állt „Royal Heights” æski-
legan stað bæðijtil aðflbyggja
þar og kaupa til^gróða. [Það
stendur mikið til í Estevan.
Bærinn á glæsilega framtið.
Verksmiðjur og vöruhús rfsa
þar upp hvert á fætur öðru, og
áður en langt um lfðar verður
bærinn búinn að £á 5000 fbúa.”
Veljið yður lóðir strax.
Kaupið fyrir lœgsta prís
Skrifstofur vorar eru á 7. gólfi
Somerset stórhýsis nr. 745,
749. Komið )á hvaða tfma
dags sem er, milli 9 árdegis
og 6 síðdegis, ef f>ér getið.
En ef þér gefið ekki komið
þvCvið, þá að komajað kvöld-
inu, milikl. 7.30 og 9.
Phone nain 296 og 297.
Vér höfum sett herra Sigurð
Björnsson, að 683 Beverly
stræti, til þcss að annast sölu
þessarar eignar fyrir oss.
Hann gefar allar upplýsingar.
Skrifið eða komið.
Campbell Realty Co.
Samskctin til ekkjunnar á
Akranesi.
Akra, N.D., 2. sept. 1912’.
Háttvirti ritstjóri Hkr.
það er áskorun í síðasta blaSi
I.öífbergs frá Hielgu Thordarson
þar sem hún skorar á alla, er
stóðu fyrir samskotum til ekkj-
unnar á Akranesi, að svara og
sendi ég Heimskringlu mitt svar,
vegna þess hún svo góðfúslega
veitti samskotunum móttöku.
Fj-rri spurningunni svara ég því,
að ég safnaði gjöfunum, sem ég
sendi, í þeim tilgangi, að íéð yrði
brúkað í fargjöld og landgöngu-
eyrir handa ekkjunni og börnum
hennar. Síðari spurningunni svara
ég- því, að ég sé enga ástæðu til,
að brey ta um umsjónarmann á
téðu £é, þar eð því ætti einungis
að vera varið samkvæmt því, sem
beðið var um.
Mrs. Guðrún Guðmundsson.
* * *
Winnipegosis, Man., 1. sept. ’12.
í Iíögbergi, dags. 29. ágúst sl.,
stendur áskorun frá Helgu þórðar-
dóttur, Antler P.O., Sask., til
j okkar allra, sem gengust fyrir
j samskotunujn til hinnar oftneíndu
Maríu Magnúsdóttur á þaravöll-
rum á Akranesi. Viðvíkjandi téðri
áskorun, það lítið hún kemur mér
við, skal ég svara þessu :
það var meining mín og allra
j þeirra, sem gáfu úr þessu bygðar-
lagi, að styrkja þessa ekkju til að
flytja hingað vestur ; enda tók
ritstjóri Heimskringlu, B. L. Bald-
winson, þetta atriði skýrt fram
áður en samskotin hófust; svo að
ef nokkur misklíð hefst af þessu
samskotafé hér eftir, þá er María
sjálf, vesalingurinn, skuld í því. Ef
ég man rétt, þá voru henni strax
sendir 200 dalir, sem hún átti að
hafa í ferðaks.itnað hingað vestur;
jiessari upphæð virðist hún vera
búin að eyöa ; hún hefir því alger-
lega fyrirgert eignarrétti sínum á
])eim peningum, sem þessi Helga
þórðarson er að tala um.
Ritstjóri Heimskringlu gerir
miklu betur en María verðskuldat,
ef hann ávaxtar þessa peninga enn
í tvö ár, í von um að hún komi,
þar sem nú eru liðin tvö ár síð-
an hún átti að vera komin hing-
að.
Herra B. L. Baldwinson má því
alveg óátalið, það ég á hlut að
j>essu máli, verja peningunum eins
og hann álítur þarfast.
Að senda þa til gefendanna ætti
ekki að koma til neinna mála ;
það myndu fæstir af þeim æskja
þess.
Rétt væri, ef þessi ekkja kemur
ekki hingað vestur innan tveggja
ára, að verja þessum peningum til
styrktar einhverju mannúðlegu
íyrirtæki hér vestra. Við Vestur-
íslendingar ættum hér eftir að
svipast kringum okkur í nágrenn-
inu, hvort enginn af samlöndum
okkar þarfnast hjálpar, áður en
við rétkum hendina austur yfir
hafiö.
Guðbjörg Guðmundsdóttir
r * * *
ATHS.—]>að er röng tilgáta, að
ekkjan á Akranesi hafi eytt þeim
800 kr., sem sendar voru til Is-
lands þann 24. marz 1910.
Féð var sent til Allan 1 nunnar
með þvi ákvæði, að það væri fyr-
ir fragjald ekkjunnar og barna
hennar frá íslandi til Winnipeg, og
til nauðsynlegs undirbúnings við
ferðina og tilkostnaðar á leiðinni
vestur. Féð var ekki þegið með
þessu skilyrði þar heima, og var
því endursent hingað vestur, að
frádregnum flutningskostnaði, sem
var rúmir $2.00, þann 7. febr. sl.
Allur sjóðurinn er því hér á v-öxt-
um á banka.
♦ Ritstj.
Stutt athugasemd.
Hr. ritstj. Heimskringlu.
öskir árs Og friðar.
það er að bera í bakkafullan
lækinn, að bæta fáeinum athuga-
semdum við það langa Op- oft leið-
inlega málefni, sem staðið hefir í
yðar heiðraða blaði nú um langan
liðinn tíma. Eg meina um Islend-
inga í þessn landi, og samanburð
á íslandi og Canada. SamanburÖ-
ur á þeim tveimur löndum naer
engri átt, og kefði mátt sparast
alt það rúm og ómab. En því er
ég með, að hefðu þeir, sem vestur
fluttu, unnið heima með sama
dugnaði og þeir hafa unnið hér, þá
væri ísland betur statt en það er.
En ég ætlaði ekki að ræða pen-
ingahlið málsins, eins Op- allir aðr-
ir hafa gert. Ég ætlað að leiða
rök að því, að af því að Canada
er meira landgæðaland hafa Is-
lendingar tapað við hingaðílutn-
ing. Fjkki svo mikiö í fyrsta lið,
heldur í annan og þriðja og svo á-
framhaldandi, þar til þeir hafa al-
veg sjálfum sér tapað, og eru má-
ske orðnir botnskóf í hinum ó-
valda alþjóðagraut, sem hér á sér
stað.
I
Ég skal játa, að allur þorri af
Islendingutn, sem hafa flutt vest-
ur, hafa bætt kjpr sín. En það
voru einmitt íslenzkir þjóðarkost-
ii, sem liafa hjálpað þeim meira
nokkuð annað, og sakal ég nefna
nokkra.
Metnaður.
þrautsegja.
Sparsemi.
Dygð.
Vöndun í orðum og verkum.
Trúmenska.
Nú spyr ég : Koma afkomendur
vorir tif að skara fram úr foreldr-
um sínum eins mikið og líkindi
væru til, þar þeireru hér uppaldir
og hafa fengið þssa lands ment-
un ? Ef ekki, hver er þá gróðinn ?
Ég veit, að þið byrjið að telja
upp öll þessi landgæði ; en þau
eru mjög lítilsvirði, ef manngildið
sjálft fer minkandi, scm það hlýt-
ur að gera hjá hverjum þeim þjóð-
flokki, setn hefir sett sér það
skeytingarleysi fyrir markmið, að
verða að engu.
Forfeður vorir lögðu alt í söl-
urnar til þess að geta verið frjáls-
ir sjálfstæðismenn. Við, sem ílutt-
um til þessa lands, sem heita má
að fljóti í mjólk og hunangi, lands,
sem er svo sjálfstætt, að einskis
þarf meö frá öðrum löndum, —
\ ið ætlum að vera búnir að éta
okkur dauða á tveimur þremur
mannsöldrum. Og hver verður þá
gróðinn hjá íslendingum í þessu
landi, þegar þeir eru ekki til ?
það þurfa sterk bein til að þola
góða daga. þið auðs og dalsins
dýrkendur, munið þið það, að til
eru í fari bæði einstaklinga og
þjóða það, sem ekki veröur til
verðs metið, og ef það tapast, þá
er alt farið.
Sigurður Jóhannsson.
Alta Vista P.O., B.C.’
Jón Sigurgeirsson dáinn
að Svold P.O., N. Dak.,
27. apríl 1912.
Sorgin og dauðinn er samfylgdin
manns,
sjálfkjörið erfðafé fæðingin hans.
Alt sem að lifnar í ljósvakans
heim
lifir og dej7r undir forlögum þeim
Ilarðlyndur dauðinn mcr harm-
ana jók,
hjartans soninn í burt frá mér
tók ;
athvarfið bezta og aðstoðin var,
umhyggjusemina og trúleikann
bar.
Fratngjarn þú ætíð og fylginn
þér varst,
fvrir þér lífið í huganum barst.
Úr nútiðar hégómans glepjandi
glaum
þú gerðir mjög lítið og gafst
engan gaum.
Ég sakna þín, vinur, en sorgina
ber,
særð er í brjósti og harka af
mér.
Lífstíðin styttist og leiðin að
Rföf,
þá legg fram á djúpið um eilífð-
ar höf.
Vorblómin fölna og visna sem
strá,
viðlíka er æskumannslífið að sjá.
Tuttugu og eins ára tekinn varst
burt;
að takmörkum aldurs ei dauðinn
fær spurt.
Mögla ei tjáir um mannlifsins
tjón, —
mun ég brátt sjá þig, minn ást-
kæri Jón.
Undan mér gekstu, en eftir kem
élT,
að unnu lífsstriði, þann almenn-
ingsveg.
Systkinin kveðja þig sorgfull 4
brá,
saknaðartár streyma augunum
frá.
þó samvistum skilin að séu í
heim,
þið sjáist brátt aftur í ódáins
geim.
Angurmædd móðir, sem útslitin
er,
andvörp í hljóði af munni fram-
ber,
er langar að losast við lífsstríð-
ið hart,
því leiðin var erfið, en dagsverk-
ið margt.
(TJndir nafni móðurinnar).
ISLEBZIAB BIEKD8
Ég undirritaður hefi,til sölu ná-
le>ga allar ísknzkar bækur, seta ti!
eru á markaÖinum, og verð að
hitta að Lundar P.O., Man.
Sendið pantanir eða'finnið.
Neils E. liallson.
n
Heimskringla
Dtbreiddasta fréttablað
á íslenzkrí tungu
Hvort heldur hér í landi eða send til íslands.
Stjórnariutfnd Heimskringlu er ant um að
auka útbreiðslu blaðsins svo sem'mest má verða
með heiðarlegu móti.
Það er enn f jöldi íslenzkra heimila hér vestra,
sem ekki taka blaðið.
Útgefendurnir óskaað sem flestir landar vorir
vildu gerast áskrifendur að þvi, og borga það
skilvíslega einusinni á hverju ári.
Heimskringla er nú orðin meira en tvöfalt
stærri en hún var fyrir fáum árnm.
KOSTAR ÞÓ ENGU MEIRA.
Yestur Islendingar eru beðnir að íhuga hvort
blaðið verðskuldi viðhald og stuðning þeirra.
Sé svo, þá óskar nefndin að sem flestir þeirra
vildu gerast áskritendur að því og borga það
skilvíslega einusinni á ári.
ÍTtbreiddasta íslenzka blaðið er :
P. 0. Box 3083.
WINNIPEG, MAN.