Heimskringla - 24.10.1912, Síða 1
SENDIÐ
KORN
TII,
ALEX. JOHNSON & COMPANY,
242 QRAIN EXCHANQE WINNIPEQ, MAN.
ALEX. JOHNSON & COMPANY,
ííijía
ISLENZKA
KOKXrjlXAUj I OASADA.
LIC^NSED OG BONDED MEMBEBS
Winnipeg Grain Exchange
XXVII. ÁR.
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN, 24. OKTÓBER 1912.
Nr. 4
BALKANSTRlÐlÐ.
Tyrkir fara halloka fyrir
bandamönnum.
Nú eru Svartfellingar ekki leng-
ur einir á móti Tyrkjum ; hinar
Balkanþjóðirnar ' fóru að dæmi
þeirra og sögðu Tyrkjum stríð á
hendur fyrra fimtudag, 17. þ. m.,
og frá þeim degi, byrjar hið veru-
lega Balkan-stríð.
G r i k k i r réðust inn á Tyrk-
land að sunnan, og stýrði megin-
her þeirra Konstantin krónprins ;
tók hann viðstöðulitið ýmsar smá-
borgir þar við landamærin, þar á
meðal borgina Klassona ; sátu þeir
um hana rúman sólarhring, en þá
gáfust Tyrkir upp, eftir að hafa
mist meiri hluta varnarliðs síns.
Fengu Grikkir þar talsvert af skot-
vopnum og tóku 1000 tyrkneska
hermenn til fanga ; en sjálfir
mistu þeir 1500 manns. Er þetta
stærsti sigur Grikkja enn sem
komið er, og iafnframt sá dýr-
keyptasti.
Svartfellingar hafa enn
ekki tekið borgina Skiitari, en
sitja um hana með meginher sinn,
og búast við að ná henni á sitt
vald á hverri stundu. þeir hafa
náð borgunum Plava og Gussinje,
eftir mannskæðar orustur.
S e r b a r eru þeir einu af Bal-
kanskaga þjóðunum, sem farið
hafa halloka fyrir Tyrkjum. Mistu
þeir heila hersvéit með 1000 manns
nálægt þorpinu Novipazar á mánu-
daginn. Raunar kom þar ekki til
orustu, heldur höfðu Tyrkir íalið
mikið af sprengiefni í jörðu, og er
Serbarnir komu þangað, 1-étust
Tyrkir hörfa undan, en kveiktu um
leið í sprengiefninu, og varð spreng
ingin svo gífurleg, að næstum
hvert mannsbarn í serbisku her-
sveitinni beið bana- Aftur unnu
Serbar, undir forustu Jaukoviteh
hershöfðingja, sigur á Tyrkjum
við þorpið Podujovo, og tóku þeir
þar 500 hermenn til fanga.
Bulgarir hafa gert mestan
uslann. þeir eru langfjölmenna^tir
bandaþjoðanna og hafa góðan her.
llafa þeir unnið hvern sigurinn á
Tyrkjum á fætur öðrum og tekið
margar borgir og bæi. Fyrst tóku
þeir borgina Kvik-Kilisseh eftir
harða orustu ; léllu þar af Tyrkj-
Uö* 2,000 hermenn og 1200 af Búlg-
urum. Næst tóku þeir bæinn Must-
pha Pasha, eítir tveggja daga or-
ustu ; höfðu Tyrkir þar mikinn
viðbúnað og virki góð, en svo
fóru leikar, að þeir urðu upp að
gefast. Stýrði Ferdinand Búlgara-
konungur sjálfur liðsveitum sin-
um. Eftir þennan sigur hélt meg-
inher Búlgara i tveimur deildum
niðun eftir Maritza dalnum og sett
ust um borginaf' Adrianopel, sem
er ein af stærstu borgum Tyrk-
lands. Um hana hafa nú staðið
blóðugir bardagar í þrjá daga, og
hafa Tyrkir alt af hröklast undan
smátt og smátt, og nú i dag ber-
ast þær fréttir, að Búlgarir hafi
náð borginni og tekið 8,000 Tyrki
til fanga.
Næstu daga er búist við stóror-
ustum, hverri á fætur annari. —
Ilafa Tyrkir sent út meginher sinn
í þremur deildum : eina suöur
á inóti Grikkjum og hinar í norð-
ur móti Búlgurum og Svartfelling-
um. Er búist við, að fyrsta reglu-
lega stórorustan standi við borg-
ina Skiitari, því þangað sendu
Tyrkir aðra norður-herdeildina, til
að levsa borgina úr umsátri
Svartfellinga.
Tyrknesk herskip hafa skotiö á
borgir meðfram Bitlgaríu strönd-
um, og grísk skip á tyrkneskai bæi
en litlum skaða kvað það hafa
valdið.
Ný uppreist í Mexico.
Mexico er vandræðanna land. —
þegar Madero stjórnin þóttist vel
á veg kotnin meö að bæla niður
uppreist þá, sem Orozco hershöfð-
ingi liafði liafið í norður Mexico og
setn staðið hefir lengst af í sumar,
— kemur það fyrir, að önnur upp-
reist er hafin, og langtum alvar-
legri i attstur Mexico. Fyrir þess-
ari nýju og óvæntu uppreist stend-
ur Felix Diaz hershöfðingi, bróður
sonur hins fyrverandi forseta, sem
Madero steypti af stóli.
Gamli Diaz hafði fylgi mikið í
Mexico meðal höfðingja og klerka,
og nú eru allar líkurnar, að Felix
Diaz fái alt það mikla fylgi. Ilfann
byrjaði uppredst sína í Vera Cruz
fylkinu, og gengu Jægar fjórar
borgir á vald hans, og tollstjóri
stjórnarinnar í Vera Cruz gekk
þegar í lið með Diaz, og afhenti
honum tollsjóðinn, sem nam fimm
hundruð þúsund dollurum i gulli,
og kom það Diaz vafalaust i góð-
ar þarfir.
Nú hefir hinn uppreistarforinginn
Orozco gert bandalag við Diaz
gegn Madero stjórninni og hafa
þeir nú mikið lið, bæði í austur
og norðurhluta landsins. Diaz hef-
ir Jtegar tekið sér bráðabyrgðar-
forsetanafn og myndað ráðaneyti.
Einn af ráðherrum hans er Fran-.
cisco de la Barra, sem áður var
Maderos maður og bráðabyrgðar-
forseti, þegar Diaz forseti hröklað-
ist af stóli.
Nokkrar orustur liafa háðar ver-
ið og hefir uppreistarmönnum
veitt betur.
En Madero stjórnin er engan
veginn aðgerðalaus. Hún fékk
þingið til að veita eina milíón
dollara til herkostnaðar, og ætlar
að senda allan meginher sinn gegn
Diaz, og reyna að koma honum
fyrir kattarnef áður uppreist hans
verður mögnuð. Hafa margar her-
deildir verið sendar norður á leið
til Vera Cruz, og er búist við
stórbardaga á næstu dögum.
Álit fiestra er að gamli Diaz
standi að baki uppreist bróður-
sonar síns, og að hann muni ætla
sér forsetatignina að nvju í Merxi-
co, ef Madero verður hrint af stóli.
’Ctlitið er því ískvggilegt í Mex-
ico um þessar mundir.
Fregnsafn.
Mn k vei ðustu viðburðir
hvaðanæla
— Hertoginn af Connaught,
Canada landsstjórinn, kom á mánu
daginn beim til Ottawa úr umíerð
sinni um Vestur-Canada. Hver-
vetna sem hann og fjölskylda hans
komu var Jteim fagnað með kost-
um og kynjum, og gerðu Vest-
menn sé-r einkum dælt við dóttur-
ina, hina fögru prinsesstt Patrica,
sem strax vann sér velvild allra,
er hana sáu. Hertoginn var stór-
hrifinn af Vestur-Canada og hinum
alúðlegu viðtökum, er hann varð
hvervetna aðnjótandi.
— Fvlkisþingið í Saskatchewan
á að koma saman 14. nóvember.
— Flotamálaráðgjafi Breta, Rt.
Hon. IVinston S. Churchill, hafði
sem kunnugt er ákveðið aö heim-
sækja Canada í næsta mánuði, í
tilefni af flotasamningum Borden-
stjórnarinnar við stjórn Breta ; en
nú er hann hættur við þá för í
bráðina vegna Balkan ófriðarins,
þvkist þurfa að vera heitri'a'* og
hafa gát á rás viðburðanna, og
mun slíks engin vanþörf eins og nú
horfir. I.íklegt er talið, að Mr.
Churchill mnni ferðast til Canada
og Ástralíu á næsta sumri.
— Signor Marconi, hinn heims-
frægi uppgötvari loftskey tanna,
lenti í bifredðarslysi nýverið og
meiddist talsvert á höfði, en lækn-
ar héldu þá, að engar alvarlegar
afleiðingar tnundi fylgja. En raun-
in varð önnur, þvi núna fvrir fá-
um dögum, varð Marconi að láta
taka úr sér hægra augað, og
sögðu þá læknarnir, að sjóntaugin
htfði skaðast við höfuðhögg það,
' sem hann fékk í bifreiöarslysinu og
eini vegurinn til að varðveita sjón-
j ina á vinstra auganu væri að taka
burtu hægra augað. Marconi er
ennþá á sjúkrahúsinu í Rómaborg.
— Maður nokkur í Mason City í
lowa, \V. J. Coleman að nafni,
var nýverið dæmdur í hegningar-
| hússyinnu utn óákveðinn tima fyr-
ir fjölkvæni. Kom það i ljós fyrir
1 réttinum, að hann hafði kvænst 6
I konum, sem allar voru á lífi, og
ekki íengið skilnað frá neinni
þeirra. Engar tvær voru úr sama
ríkinu ; ein var frá Georgia, ein
frá South Carolina, þriöja frá New
York, íjórða frá Illinois, fimta frá
Wisconsin og sjötta frá Iowa. Var
það konan númer 5, sem kotn upp
um hann ; hafði hún veitt honutn
eftirför til Iowa,- og fann hann þar
nýkvongaðan eigtnkonunni númer
6. Hún brá þá strax við og klag-
aði bónda sinn fyrir lögreglunni,
og var hann samdægurs tekinn
fastur og farið að grenslast fyrir
um æfiferil hans. Kom það þá í
ljós., að á síðastliðnum fjórum ár-
tim hafði hann búið í sex ríkjum
og kvongast að minsta kosti sex
sinnum, og alt af undir sínu rétta
nafni — Coleman. Fimm a£ konum
hans mættu fvrir réttinum, og níu
, börn sýndu þær, sem Jtær kváðu
. hann föður að. þrjár hafði hann
( vfirsxefið eftir nokkura mánaða
sambúð, en með tveimur Jteim
ivrstu bjó hann í tvö ár og skifti
( tímanum á milli þeirra. Hina
j sjöttu og siðustu hafði hann nv-
gengið að eiga. I.ögreelan heldur
raunar, að hann muni eiga fleiri
konur en þessar sex, og sjálfur
| bar náunginn ekki á móti því ;
sagðist ekki muna með vissu, hve
mörgum hann hriði kvænst osx
hversu margar hefðu að eins vrið
vinkonur s'nar. Coleman er talinn
ófríður maður, og dómarinn lvsti
tindr”n si”ni vfir bv'. að kommnm
skvldi hafa getað litist á slíkan
mann.
— Senator Weldon Brinton Hey-
burn frá Idoho andaðist í Wash-
ington, D. C., 17. þ.m. eftir langa
legu. Hann varð 60 ára og hafði
setið í W7ashington senatinu í 9 ár.
Hann var Repúblikani.
— Fellibylur geysaði yfir Filips-
eyjarnar 16. þ.m., og gerði feikna
skaða á mönnum og eignum. Segja
fregnir þaðan, að rétm 400 manns
hafi farist og eignatjónið nemi vfir
8 milíónum dollars. Mörg þúsund
manns mistu aleigu sína og standa
uppi húsnæðislausir og allslausir
og er því hörmungaástand víða á
eyjunum. Mestur skaði varð þá á
eyjunni Cebu ; fórust þar mörg
skip og fjöldi húsa fauk ; er eigna-
tjónið' á þessari einu evju talið að
nema 5 miliónum dollars. Iyands-
KLIPPIÐ AF
Húshaldskostnaði yðar
Rieð meira ltrauðáti, brauð er ódýrust og
saðsömust fæðutegund.— Gerið brauðið úr
OGILVIE'S
Royal Household Fiour
Það er ágætasta mjölið, sem J ér getið not-
að, og veitir ætfð fullnæging.
FÁIÐ ÞAÐ HJÁ MATSALANUM.
The Ogilvie Flour JVliIIs Co. Ltd.
Winnipeg(
stjórinn hefir Jtegar sent skip hlað-
in vistum til Cebu eyjar, og sam-
skot hafa verið hafin víðsvegar til
að bœta úr brýnustu þörfum þessa
bágstadda fólks.
— Col. Roosevelt fór út af spít-
ala Jteim í Chicago, er hann lá á,
á mánudaginn var, og hélt rak-
leiðis til Oyster Bay. Hann er tal-
inn úr allri hættu, Jtó enn blæði
talsvert úr sári hans og kúlan hafi
enn ekki náðst.
— Grikkir í Canada eru að safna
£é til styrktar löndum sínum á
ættjörðinni, sem nú eru i stríðinu
við Tvrki. Á fé það, að ganga til
lífsframfærslu hermannanna og
fjölskyldna þeirra. A einum slíkum
fundi í Toronto borg náfflu sam-
skotin nokkrutn þúsundumi dollars
og 200 manns á þeim fundi sömdu
skrifiega um, aö hverfa þaðan
heim aftur til að berjast moti
Tvrkjum.
— Morson dómari í Toronto
borg hefir höföað mál móti borg-
inni fyrir það, að hún lagði á hann
$65.00 inntektaskatt. Hann borg-
aði kröfuna með mótmælum og
gaf um kið tilkynning um máls- j
höfðun. Hann segir alla rikis- I
stjórnarþjóna undanjtegna skatt-
greiðslu. Málið ienn óútkljáö.
— Eldur kom upp í sjó- og fiski-
mála deildinni í þinghúsbygRÍngun-
tim í Ottawa á lattgardaginn var.
ökaðinn varð lítill, því að fijót-
lega varð slökt, en eitthvað af
\-erðmiæitum skjölum er mælt að
hafi brunnið.
— Ræningi einn i Skagway sló
í rot mann einn þar í borg á föstu-
dagsk\-eldið var á skrifstofu Wells
Fargo Epress félagsins ; ræninginn
náði pakka með 1200dollars í, en
gætti ekki að taka með sér annan
stærri pakka, sem var á skrifstof-
unni, og sem hafði inni að halda
250 þúsund dollars. Skrifstofu-
þjónninn, sem sleginn var í rot,
fanst meðvitundarlaus þar á skrif-
stofunni næsta dag.
— Robert Barr, skozka sögu-
skáldið nafnkunna, andaðist í
Lundúnum 22. þ. m., 62. ára gam-
all. Hann var mjög vel Jtektur hér
i Canada, hafði dvalið hér allmörg
ár sem kennari.
KINDASYIÐ
Fást nú,. og framvegis,
f verzlun G. Eggertssonar
Ósvíðin 7c. hausinn, svið-
in 12 cents. ,
AJJskonar kjöt af Jteztn
tegnnd,—Nýr fisknr, kart-
efinr og kftlmeti, sem se!j-
ast með mþig vægu verdi,
er ætfð fil i verzluninni,
G. Eggertsson,
kjölNttli,
693 Wellington Ave.
TALS'MI G. 2(583.
Matthias Jocku mss o n
H.S-Hel6ason Thinjjholt-
Forspg:
£ím. ; T?<xtL
1
, j jvf V~ _ r
f3 —h?
VJT= - ■ < Æí=dF
T ~4 - J. f * 1 — r • f'
< — - g—~
c. E. Jones.
HIGH CLASö
LADÍES & GENTS TAJLOR,
H HKlNS * R, PRlSSNR.GERIR VH) KÖÍ
.\olie II nin' I»1«. G 8z4
(Aðui .1, Frie'L]
VEGGLIM
Pafent haichvall
veííujlím (Empire
tejiundin) gert úi
Gips, jzerir betra
vegolírn en nokk
urt annað vegg-
línis efni eða svo
nefnt vegglíms-
ígildi. : :
PLÁSTER BOARD
ELDVARNAR-
VEGGLÍMS
RIMLAR oq
HL.JÓDDEÝF1R.
Manitoba Gypsum
Company, Limited
WliVNIPEÖ