Heimskringla - 03.07.1913, Qupperneq 1
XXVII. AR.
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN, 3. JOU 1913.
Nr. 40
101«.
aT
1
Upphlaup á Islandi.
Danska varðskipií sminar íslenzka flaggið.
|>au tíöincli híifa borist hingað
með dönskum blööum, aö alt sé í
uppnámi á Islandi, út af því, aö
danska varöskipið 1 ‘Kálkinn hafi
handsamaö íslenzkan bát, sem hafi
hait íslenzka flaggið uppi, og hafi
varðskipið síöan flutt bátinn til
Revkjavíkur og afhent lögreglu-
:.stjóranum flaggiö.
j>etta olli feikna uppnámi i
Reykjavík, sérstaklega meöal .stúd-
enta o,e sjálfstæöismanna, og voru
mótmælendafundir haldnir og
þetta gjörræði danska skipstjor-
ans harðlega vítt, og síðan skorað
á alþjóð íslendinga, að draga
hvarvetna upp íslenzka flaggið.
Hitinn og ákafinnn í mönnum
var svo mikill, að danska flag.gið
sem blakti vfir stjórnarráösbvgg-
ingunni, var af svni Skúla Thor-
oddsens dregið niður, og þrirfti
hjálp lögreglunnár til að koma því
unp aftur og til að varðveita það.
Bjarni Jónsson frá Vogi og aör-
ir landvarnarmenn eru áköfustu
mótmælendurnir gegn þessu gjör-
ræði Dana, að því er datiska blað-
iö Politiken segir.
j»etta mun hafa skeð nm miðjan
júní, og má því búast við nánari
fréttum í næstu íslands blöðum.
ARTHURjMEIGHEN
tekinn í Borden-stjórnina.
Til að skipa hið auða sæti sak-
•sóknara ríkisins (Solicitor Gen-
eralj hefir Borden stjórnin skipaö
Arthur Meighen, þingmann fyrir
Portage la Prairie kjördæmið, og
er það þriðji meðlimurinn, sem
Pilanitoba fær í Borden stjórninni.
Raunar er saksóknara embættið
ekki sérstök stjórnardeild, helllur
er það ein deild dómsmálariáða-
nevtisins. Er saksóknarinn þvi
ekki ráðgjafi, þó meðlimur sé
stjórnarinnar, og hafi “Hon.” fyr-
ir framan nafn sitt. En sá maður,
sem þetta embætti hefir, stendur
jafnan næstur að taka hið fyrsta
ráðgjafaembætti, er losnar.
Hon. Arthur Meighen er einhver
allra mikilhæfasti maður í stjórn-
arflokknuin, og gengur næst Hon.
Geo. Foster sem mælskumaður.
Hann var aðal málsvari stjórnar-
innar á síðasta þittn-i og faðir um-
ræðu-takmörkunar laganna, sem
hann barði fram með fádæma
'dugnaði, og sýndi hann þá betur
en nokkrtt sinni fyr, hver aiburða-
hæfileikamaður liann er. Hann er
kornungnr, hefir að eins fimm um
þrítugt, Og á þingi hefir hann set-
ið síöan 1908.
Embættisskipun hans hefir það
meðferðis, að hann verður að
sækja á ný um kosningu í kjör-
dæmi sínu. Og á kosning fram að
lara 27. þ.m., en lítil líkindi eru
til, að nokkur bjóði sig fram á
móti honum.
Liberalar segja, að fylgi Borden-
stjórnarinnar sé stórum að þverra
ltjá þjóðinni. þeir ættu þá að
senda tnann á móti Meighen, cg
.-sjá hvernig fer.
Fréttir.
— Ófriður er nú hafinn meðal
Balkan þjóðanna, og hafa all-
margar orustur þegar verið háðar.
— Hon. Dr. W. J. Roche, innan-
ríkisráðgjafi Bordenstjórnarinnar,
kom úr Englandsför siuni á mánu-
daginn, og er nú þegar tekinn við
hinu umfangsmikla embætti sínu.
Hann hefir verið heilsuveill ttm
all-langan tíma, en er nú orðinn
albata og fær til að gefa sig allan
við störfum sínum sem ráðgjafi
innanrikismála.
— Forseti Frakka, Raymond
Poincare, brá sér í heimsókn til
Englands nú nýlega, og dvaldi þar
nokkra daga i hinu mesta dálæti
og viöhöfn. Hefir fáutn þjóðhöfð-
ingjum verið sýndur meiri heiður
og vinarþel en honum. Aðalllega
var heimsókn forsetans i pólitisk-
titn erindagerðum, til þess að
styrkja enn frekar vináttuböndin
á milli Bretlands og Frakklands,
og tókst honum það. Hafði hann
lan.n-a ráðstefnu við brezka utan-
ríkisráðgjafann Sir Edward Grey,
og var það bundið fastmalum, að
Bretar og Frakkar skyldti virvna
sem einn maður gegn áhrifum og
afskiftum Austurríkismanna og
þjóðverja af skifting Tyrklands ;
sérstaklega þó, hvað það snertir,
að Tyrkir Cesti sig ekki um of á
skuldaklafa hjá þessttm andstæð-
ingaþjóðum. Rússar hafa og gert
samskonar fóstbræðralag við
Frakka og Breta. — Poincare hélt
heim til sín á föstudaginn, og var
honum fagnað með miklum inni-
leik í Parfs. þótti Frökkum sem
hann hefði rekið erindi sitt vel og
röggsamlega. Er hann nú eftirlæt-
isgoð frakknesku þjóðarinnar.
— Ilertoginn af Sutherland, ann-
ar stærsti landeigandi í Evróptt
(Rússakeisari er sá stærsti), and-
aðist í kastala stnttm á Skotlandi
27. f. m., hátt á sjötugsaldri. —
Hertoginn átti lönd mikil í Can-
ada, mest í Alherta.
— Tólf ára gömul stúlka, að
Walker P.O., Sask., sem Katie
Samson heitir, skaut til dauða níu
ára gamla telpu þar í bygðinni.
þeim hafði orðið sundurorða, og
reiddist hin eldrt svo óstjórnlega,
að hún hjjóp heirn að bæjarhúsum
föður síns og greip bvssu, pr þar
var, elti síðan liitlu stúlkuna og
skaut hana til dauða. Síðar, er
mvrtu stúlktinnar var saknað,
gerði morðingittn játningu og
fanst líkið þar setn hún vísaði til.
Nú hefir stúlka þessi, er triorðið
framdi, verið sett í fangelsi i Sas-
katoon, og er mikið um það rætt,
hvað verði gert við hana. T.tf leg-
ast er talið, að hún muni verða
send á uppeldisstoínun tun lengri
títnia.
— Fimm attkakosningar til sam-
bandsþingsins standa fyrir dyrtvm.
Voru fjögur þessara kjördæma áð-
ur skipuð Conservatívum og eitt
Liberal. þrjú af þessum kjördæm-
um eru í Ontario, edtt í Quebec og
eitt í Portage la Prairie í Mani-
toba. i þrjú af kjördæmunum eru
ÚTBOÐ
Tilboðum verður vedtt móttaka
af undirrituðum upp til 5. júlí fyr-
ir veitingaleyfi á Islendindadaginn
2. ágúst i sýningargarðinttm. Til-
boðin geta verið bæði fyrir veiting-
ar og máltíðir, eða fyrir annað-
hvort. Tilboðttnum verður að
fylgja, hvaða matartegundir verði
á boðstólum og áætlað verð þeirra
Frekari upplýsingar fást hjá
Ó. S. THORGEIRSSON,
ritara nefndarinnar.
algerlega viss að kjósa Conserva-
tíva, en tvö eru mjög vafasöm. —
I Chateauguay kjördæminu í Qtte-
bec hlaut I.iberal kosningu síðast
með 46 atkv. íleirtölu og í kjör-
dæminu South Bruce i Ontario
var Conservatívinn J. J. Donnelly
kosinn með 103 atkv. fleirtölu.
þetta eru vafasömu kjördæmin. —
í hinutn náðu Conservatívar fleir-
tölu með frá 700 til 1200 atkvæða-
mttit, og munu I.iberalar fara þar
litla frægðarför.
— Robert J. Collier, nafnkendttr
blaðaútgefandi í Bandaríkjunum,
ráðverir að fljúga yfir Atlantshaf
í loftskipi á næsta ári. A það að
vera mjög vandað að öllum út-
búnaði og hafa kröftugar gangvél-
ar, kröftugri en áðttr ltafa þekst á
samskonar loftskipum.
— Eimt af kunnari fjármálafræð-
ingum Breta, er Ptivnc Horne heit-
ir, og kvað vera í þjónustu Can-
adian Northern járnbrautarfélags-
ins, hefir nýlega gert harða árás á
bteja-, borga- og sveita-félög í Can-
adá, og varað peningamenn á Eng-
landi við að lána þeim fé. Segir
hann, að alt sé þar ennþá á svo
völtum fæti, að næsta óráðlegt sé
að Lána fé til framfarafyrirtækja
þar.' þessar árásir hafa orðið til
þess, að spilla fyrir lántöku nokk-
urra Vesturfylkja-bæja, þar á með-
al Edmonton, og að hnekkja láns-
trauspi Canada í heild sinni, mutt
manni |>essum ekki takast, og all-
flest hérlend blöð telja litinn trún-
að lagðan á orð þessa manns hjá
brezkum peningamönnum. Hvað
hr. Payne Horne gengur til þess,
að útbera róg þennan um Canada,
skilia fáir, ett af miðttr hreinum
hvötum mun hatin vera runninn.
— Voðalegir hitar hafa gengið
um Bandaríkin undanfarna d-aga,
og hefir fjöldi fólks dáið af þeim
orsökum. Verstur hefir hitinn ver-
ið í Chicago borg, ef marka skal
dauðsfalla-listann, því þar hafa
urn 60 manns dáið núna 4 síðustu
dagana. t borginni Cleveland í
Ohio dóu 20 á laugardaginn ;
í Pittsburg, Penn., 15. — , Hér í
Canda hefir og víða verið mjög
heitt, þó ekkert svipað því sem í
Chieago, og fáir hafa tttáið hér í
landi, að því er frézt hefir.
— Jack Johuson, hnefaleikarinn
frægi, sem nýlega var fundinn sek-
ur um hvítt mansal og dæmdur í
eins árs fangelsi, en sem var latts
úr farjgelsi gegn hárri tryggingu,
þar til mál hans væri tekAð fyrir
að nýju, — lék illa á yfirvöld n
núna nvlega. Hann sem sé strauk
frá Chicago og hingað til Canada,
áleiðis til Evrópu. Er flótti hans
varð kunnur, urðu Chicago yfir-
völditt óð og ttppvæg og heimtuðu,
þá það fróttist, að hann væri í
Canada, að Canada stjórn sendi
hann strax suður aftur. Canada-
stjórn lofaði strax að gera sitt
bezta, eftir að Washington stjórn-
in hafði stutt kröfu Chicago yfir-
valdanna ; en þá kom það upp úr
kafinu, að Johnson hafði keypt
farseðil alla leið til Frakklands,
og að í Canada voru engin iig fyr-
ir þvi, að taka fastan ferðamann,
sem þar hefði enga viðdvöl, og
sem ekki hefði drýgt stórglæp. —
Johnson komst því á skipsfjöl og
er nú á Leið til Frakklands. það-
an ætlar hantt til Rússlands, að
keppa við Sam Langfprd í önd-
verðum ágústtnánuði.
íslands fréttir.
—Magnús J. Kristjánsson er kos-
inn þingmaður fyrir Akureyrar-
kaupstað með 165 atkv. Gagnsækj
andi hans, þorkell kennari þorkels
son, hlaut 68 \atkv. (Isafold).
Reykjavík, 3. júní 1913.
— Frambjóðendur við þingkosn-
íngu á Akureyri eru þeir þorkell
þorkelsson kennari (frá FLata-
tun«ni) og Magnús Kristjánsson
kaupmaður.
— Séra Arnór þorLáksson á (
Hesti i Andkíl hefir sagt af sér !
prestsskap og brauðinu lausu frá j
þessum fardögum.
— Öskar Halldórsson garðyrkju- 1
maður kom lieim hingað í vor fr'á
Danmörku eftir hálfs þriðja árs
garðyrkjunám þar í landi. Hafði
hann verið hjá mönnum, er einna
fremstir þvkja í garðrækt, t. d.
Carii Chr. BarthoLdy, er fjögur
verðlaun hlaut á garðræktarsýn ng
fvrir Norðurlönd, er haldin var í
fvrra i Khöfn. Óskar tók þegar á
Leigu hálfa áttundu dagsláttu
lands til jarðræktar á Reykjum og
Reykjahvoli í Mosfellssveit. Hefir
hanti plægt land þetta í vor í>g sáð
jarðeplum í þrjár dagaláttur, en í
hitt ýmsum öðrum matjurtum,
svo sem blómkáli, hvítkáLi, rauð-
káli og grænkáli. Hann hefir þar
30 vermireiti og er heitu hvera-
vatni veitt um þá alla. í þeim hef-
ir hann einkum gróðursett agúrk-
ur, tómater og tnelónur, sem allar
eru sjaldgæfar hér á landi og ekki
Teta þrifist nema í góðum gróðr-
arhúsum. Hann hefir góð áhöld tiL
garðræktarinnar og gengur því vel
ttndan. Er hér laglega á stað farið
enda er Óskar fuliur áhuga og
dugttaðar og horfir ekki í kostnað
óg fvrirhöfn. Má vænta hins bezta
af framkvæmdum hans. Hann hafði
lokið búfræðisprófi við Hvanneyr-
arskólann áðttr hann fór utan.
— Rausnargjafir tll heilsuhælis-
:ns á VífiLstöðum. Ekkjufrú Sig-
ríður Asgeirsson í Kaupmanna-
höfn hefir gefið hæiinu 1000 kr., og
skal veita vöxtunum af fé þesstt
til stvrktar fátækum sjúkling á
hælinu, se eigi er gefið með úr
sveitarsjóði. — Stórkaupmaður
Dines Petersen og kona hans, í
Kaupmannhöfn, heita hælinu 50
kr. árLegttm styrk.
Reykjavík, 4. júní 1913.
— Vestur-ísLendingar, sem ný-
kornnir eru hingað og nú dvelja
hér í bænum, eru : Asm. P. Jó-
hannsson frá Winnipeg, með konu
o— 3 börn, Húnvetningur ; Sveinn
Thom]tson aktýgjamaður frá Sel-
kirk. Borgfirðingur ; Sigurður Sig-
urðsson, frá Svelgsá ; Guðmundur
Kristánsson, með kon,u ; Vilhjálm-
ur Kristjánsson með konu ; Jón
Sigmundsson ; Sveinn Oddson ;
Margrét Karlsdóttir frá Bjargi í
Miðfirði, alkomin.
— Jónas Kristjánsson, Skagfirð-
ingalæknir, er hér nú staddur, ný-
kominn úr utanlandsför, hefir far-
ir vestur um Atneríku, bæði Can-
, d: og Bandaríkiunum. og kynt
sér þar spítaja og lækningar.
— Bifneið koma þeir með hingað
tveir nykpmnu Vestur-lslendirtg-
arnir, Sv. Oddson og Jón Sig-
mundsson ; er sagt að þeir ætli að
hafa hana í förum milli Reykjavík-
ur og þinvalla í sumar, og er það
þarft og eott fyrirtæki, sem ætti
að svara kostnaði.
— Slvs varð á tsiafjarðardjúpi í
gær, mann tók út af vélarbáti,
Ingimund Jónsson að nafni, hús-
mann frá Hnífsdal, og druknaði.
— í gær brann íbúðarhúsið á
prestssetrinu Stað í Hrútafirði, á-
samt skemmu og fleiri smærri hús-
um. Alt var óvátrygt. Mviknað
hafði í þékju, út frá ofnpípu. Eid-
urinn kom ttpp um hádegi og var
alt brunnið kl. 3.
— Kuldar og þurkar haía verið
nú stöðttgt ttm þriggja vikna tima
um land alt, og stendur það gróðri
mjög fvrir þrifum. Af ísafiröi og
Akurwri var sagt í gær, að snjó-
að hefði nti um helgina niður und-
ir sjó. Hér svðra rigndi nokkuð í
gærkveld og í nótt, og er breyting
að verða í lofti.
— Frá Stvkkishólmi var sagt í
fvrra dag, að skip þaðan og úr
nálægum verstöðum hefðu aflað
vel.
— Ragnar Asgeirsson, sonur As-
geirs Eyþórssonar, er nýkominn
heirn eftir þriggja ára garðyrkju-
— Guðm. Sigurjónsson iþrótta-
kennari er nýkominn heim eftir
dvöl um tíma á EngLandi og verð-
ur hann í sttmar sundkennari á
Vestfjörðum.
— Dáinn er hér í bænum aðfara-
nótt sL. sunnudags Sveinn Valdi-
mar Sveinsson, stud. med. & chir.
— efnilegur maður. Hann só í
svefui, varð ekki vakinn allan Lattg
ardaginn og andaðist nóttiua eftir.
— Kvæðasafu eftir Hannes S.
BlöndaL á að koma hér út í sttm-
ar á kostnað Sig. Kristjánssonar
bóksala. Hannes verður fimtugur
í haust.
— F ramkvæmdarst jóra skif ti
urðu hjá Hf. P. J. Thorsteinsson
1. þ.m. Thor Jensen fór frá, en viö
tók H. Hendriksen, sá er áður
tók við forstöðu Thorefélagsins, og
liefir hann verið hér um hríð.
— þeir Forberg landsímastjóri
og Geir Zoega verklræðingur
SANNUR SPARNAÐUR
góður árangnr bökunarinnar er áreiðanlegur
þegar þér notið
Ogilvie’s
Royal Hou^ehold Fiour
Hvert pund af Royal Houseliold innibindur meira
næringarefni heldur en sama vigt af nokkuru hveiti
The Ogilvie’s Flour Mills Co,Ltd.
Fort William. Wiunipeg. JÍontreal
komu sl. lattgardag úr 14 daga
ferð austur í Skaftalellssýslu. For-
berg var að skoða simaleiðina
austur til Vikur. Staurar til henn-
ar koma nú bráðlega og verða
landsettir til og frá þar eystra. —
Geir Zoega var að skoða brúar-
stæðið á Ilverfisfljóti ; þar á brú
að koma í sumar, járnbrú, 20
metrar á lengd.
Yfir Jökulsá á Sólbeimasandi á
síminn að liggja hér um biL þar
sem brúarstæðið hefir verið mælt.
Ain var nú mjög vatnsmikil.
beir fóru austur að Svínafelli í
Öræfum, austur fvrir Skeiðarár-
sand. Símastjóri lét mikið yfir,
hve stórkostleg sjón það hefði ver-
ið, að ltorfa yfir svæðið þar sem
hlaupið kom í vor.
Hlaupið haíði brotið úr jöklin-
um stórt stykki rétt austan við
skarðið eftir hlaupið 1903. Eftir
mælingu þeirra höfðu 10 milíónir
kúbikmetrar af ís losnað úr jökl-
inum. ísbrúnin, þar sem jökullinn
sprakk, er 120—150 metra há. En
breiddin á stvkkinu, sem sprakk
frá, liefir verið nál. einum kílótn.
°g Iengdin, upp í jökulinn, álika.
Jtar, sem hlaupið fór fram, hafði
það grafið niður i sandinn djúpan
fart eg ; voru bakkarnir að þeitn
farvegi báðumegin margar mann-
lueðir, og brattir mjög. Víkkaði
þessi farvegur eftir því sem frá
jöklinum, og lá þar jakahrönnin
niður utn allan sand. Jakarnir
vöru á stærð við htisiy hér í
Reykjavík. Sumir, J>eir minstu,
voru þegar soknir t sand og hafði
rent vfir þá. Af því koma hinir
hættuLegu pyttir, þegar frá Líður,
og jakarnir bráðna í sandinum.
þar, sem þeir Forberg fóru yfir
sandinn, var farvegurinn eftir
hlaupið nál. 2XA kílóm. En það
var ofar en venjitlega er farið. —
Niþéi á sandinum, þar sem ætlast
er tiL að símalínan liggi austur
hegar þar að kemur, hefir hlaupið
tekið yfir 5 kílómetra. Símatjón
af ulaupinu hefði því alls ekki orð-
ið gífurlegt, segir símastjóri, og
kalLar hann þessi jökulhlaup 'enga
teljanlega fyrirstöðu fyrir síma-
lagningu austur um sandana. Frá
1855 hafa komið 8 hlaup, með 5—
11 ára millibili. það eru þá Lið-
lega 7 ár að meðaltali milli hlaupa
þetta hlaup nú er mikLu stærra en
venjulegt er, svo að ætla má, . að
til jafnaðar evðiLeggist af þessum
hlaupum símalina setn svarar }6.
kíLómeter á ári, og telur síma-
stjóri það ekki stórkostlegt, segir
vmsa staði antiarstaðar á Landinu
verri viðfangs.
Venjulegast er það, að þegar
hlaup kemur í Skeiðará, austan í
jökLinum, kemur einnig hlaup í
Súlu, sem er smærri á vestan í
jöklinum og fellur í Núpsvötn. Nú
kom þar ekkert ldaup. Núpsvötn-
in uxu ekkert.. En í miöjutn sand-
inum ko-m dálitið liLaup, tiálægt
Iláöldti, þar sem nú er talað um
að reisa sæluhús handa vegfarend-
um ttm sandinn.
G. Björnsson landiæknir talaði í
austurför sinni 1909 við menn, sem
nákunnugir voru Skeiðarársandi,
og hefir eftir þe,im það sem hér
fvlgir : *
þtar sem jakarnir sígá niður í
sandinn, verður dæld eftir, eins og
trekt, og kölluð “jökttlhver”. Eru
lteir sttmir stórir, eins og hús-
grunnar að ummáli. Hættan við
umferð cr cWki mest fyrst eftir
hlaupin, heldur jtegar jakarnir eru
bráðnaðir og kviksendi komið.
Venjulega hlevpttr Skeiðará f.vrst,
en Súla Litlu stðar. það hefir bor-
j ið við, að meun á austurleið hafa
komið að nýbyrjuðu hLatipi. í
Skeiðará, og þá snúið við, riðið i
spretti og rétt komist yfir Núpsr-
vötnin áður en þau hlupu.
VenjuLega minkar vatnið í Skeið-
ará á undan hlaupi, og verður þá
afarfúlt ; stundum hefir hún alveg
þornað á undan. Er það talinn
órækur vottur um, að hlaup sé í
nánd, ef árnar minka að mun og
fýlu leggur af þeim.
Skeiðarárjökull hækkar stöðugt
á miLIi hlaupanna, en við hlaupin
lækkar öIL jökulbungan að miklum
mun. það er nú talið víst, að
hlaupin stafi af eldsumbrotum,
sem valdi því, aö feiknitt öll aj is
bráðni á stuttum tíma, og svo
sprengi vatnið jökulinn. En þegar
jökulbungan fer að bifast, þá sígi '
brúnin niður í árfarveginn, en aí
bví stýflist árnar.
— (Eögrétta).
Tilkynning.
Samkvæmt kröfu Bandaríkja-
stjórnarinnar vottast hér með, að
evðublöð J?a.úr -sem hún hefir sent
til blaðsins tiL útfyllingar og stað-
festingar, hafa verið fylt út á
þessa Leið :
Ritstjóri og ráðsmaður Gunnl.
Tr. Jónsson. Hluthafar um tutt-
ugu talsins, en enginn með 1 pró-
cent af löggiltum höfuðstóli £é-
lagsins, nema B. L,. Baldwinson.—
Ivánardrottinn Waðsins Ontario
Eoan and Debenture Corporatioo,
London, Ont.
Slíka skýrslu sem þessa heimtar
Bandaríkjastjórnin einu sinni eða
tvisvar á ári, af hverju því blaði,
sem nýtur póstflutninga hlunninda
þar í landi. I þeirra tölu er
Heimskringla.
Winnipeg, 1. júLí 1913.
Heimskringla News & Publ. Co.
,EMPIRE‘
Tegundir.
Þegar þér byggið hús,
gerið þér það með því
augnamiði að hafa þau
góð, og vandið þar af
leiðandi efni og verk.
EMPIRE TEGUNDIR
—AF—
Wall Plaster,
Wood Fiber
Cement Wall
—oa—
Finisli
Reynast ætíð ágætlega.
Skrifið eftir upplýs-
ingum til:
Manitoba Gypsum Co. Ltd.
WINNIPEG. MAN.