Heimskringla - 07.05.1914, Page 6
VjrNNIPEG, 7. MAf, 1914.
■EIKSE1IV6CX
Islenzkar sagnir.
Endurminningar úr Hjaltastaða-
þinghá frá 1851 til 1876.
Eftir j)orl. (Jóakiinsson) Jackson
(í eftirfylfjandl ritgjörð liverf ég
sunistaðar aftur í tírnanri ]>ar sern
mér þykir ]iaö vify ei(?a, alt ti|>i> til
seinni hluta tíundu aldar og fyrstu
ára þeirrar elleftu, líka kem ég ofur-
lítifi viíV í næstu svettum við H.jalt-
astaðaþingiiá).
Hjaitastaftaliingliá sem f Árbók-
uin Espólíns oftast er kölluð tJt-
mannasveit liggur frá Eiða þingtiá
að sunnan norður að Héraðsflóa.
,Yestan við liana er Lagarfljót, en að
austan fjalljöklaröð á milli jBorgar-
fjarðar og héraðs* Sveitin telst því
ysta næst sjó og austasta í Fljóts-
dals héraði.
Hringinn í kringum Hjaltastaða
þinghá.
Að vestanverður við I.agarfljót
og norður með því. Austustu bæir
í Hróárstungu og búendur þar.
Hallur á Litla Steinsvaði. Nokkrir
prestar á Kyrkjubæ. Jón Yigfús-
son í Gunnliildargerði. Húsey og
bændur þar. .
Ef að maður stóð á hálendisbrún
beint vestur af Ketilsstöðum syðsta
bæ af vestustu baiaröðinni í Hjaita-
staðaþinghá. ])á eygði maður það
mikilfenglega Lagarfljót. Þjóðsagn-
ir sögðu að f því byggju þrjár ó-
freskjur, Ormur, Skata og Selur.
Um uppruna ormsins var sú saga
sögð að stúlka hefði staðið á fljóts-
bakkanum. Hún sá þar snígil
liggja í húsi sínu, tók hann upp
með húsinu o'g liandiék um stund,
tók af sér fingurgiill sitt og lagði
hjá sníglinum. En snígillinn, sem
leist vel á hinn fagra tnálin, skreið
á gullið. Þegar stúlkan- ætlaði
að taka aftur gull sitt, gat hún ekki
losað 'sitygilfnii við l>að svo hún
fleigði. öllíf -f fljótið. Snígillinn óx
á gullinu og varð að afar stórum
ormi. í Arbókum Espólins getur
þess að eitt sinn þóttust incnn sjá
orm í Lagarfljóti.
Skatan var' sagt að lægi undan
bænum Straumi einsog staka ein
segir;. “Skatan liggur barða breið
beint líndan’ Strantfii. Selurinn
var sagt að byggi undir hrikalegum
fossi sem var í fljótinu, austur af
prestsetrinu, Kyrkjubæ.
~Af hálendis brúninni sem ég gat
um eygði maður spölkorn frá Lag-
arfljóti að vestan verður, bæinn
Litla Steinsvað, ]>ar bjó Hallur
Einarson Sigurðssonar Hallson-
ar í Njarðvík Einarssonar;
móðir Halls' liét Hólmfríður,
hennar móðir Þórunn dóttir
Árna Gfslasonar í Höfn í Börgarfbði
bre>ður JÞórunar voru hinir alkunn-
u liafnarbræður, Jón og Hjörleiíur
hrm sterki ' Hallur á Steinsv iði
var hárvexti og afar þrekinn manna
mestur og sterkastur og vissu menn
ógjörla afl hans. Hann bjó jafnan
góðu búi og heimili iians talið eitt
hið myndarlegasta í Hróárstungu,
orðlagt fyrir livað lijú voru þar vel
haldin til matar viðurgjörnings,
ferðamönnum var liar ávalt veittur
góður beini og sýud gestrisni. Ein-
ar faðir Halls og Siguiður HalLson,
afi hans liöfðu búið á Litlasteins-
vaði, austan Lagarfljóts; iiróðir Sig-
urðar var Eiríkur Hallson á Stóra-
steinsvaði, austan Lagarfljóts; son-
ur Eiríks var Sigurður á Mýrum í
Skríðdal; bræður Einars voru
Björn á Ketilsstöðum f Jökulsár-
hlíð og Hallur á Xleðbrjót; en systir
Vilborg, kona Odds á Surtsstöðum;
Bræður Halls á Steinsvaði voru Jón
í Dölum í Hjaltastaða]iinghá, bjó
líka mörg ár á Mýruin í Skriðdal og
Hvannstoð í Borgarfirði; Björn f
dölum; Haldór í Fremraseli; Sig-
urður á Geirastöðum, samfeðra.
Hallur á Steinsvaði. var tvíkvænt-
ur, fyrri kona hans var Helga Sig-
fúsdóttir Helgasonar prests í Húsa-
vík, Benidiktssonar, þeirra son
Halldór dó á barnsaidri, seinni
kona Halls var Gróa, Árnadóttir,
Björns Björnssonar á Bóndastöð-
um; móðir Gróu, Anna, dóttir síra
Jóns Guðmundssonar á Hjaltastað,
þeirra börn Björn og Þórunn.
Hailur liafði ferjubát á i.agarfljóti
og flutti ferðamenn þar yfir sem
komu úr kaupstað og annarstaðar
að. Hesta sem menn höfðu f förum
sínum, rákti menn í fljótið á sund.
Hringiðustratiinur var þar svo
hestana hrakti í ýmsra króka áður
en þeir náðu landi. Komið hefir
l>að fyrir að menn hafa verið svo
vogaðir að sundrfða yfir fljótið á
ferjustaðnum. en orðið liátt á því.
ekki komist lifs úr þvf. í minni tíð
á íslandi drukknaði þar Guðmund-
ur Þórarinson frá Víðivallagerði í
Fljótsdal árið 1850.
Nú, ef maður liélt norður ineð
Lagarfljóti kom liann að fossinum
þar skamt fyrir norðan. Hafði
Kyrkjubæjar prestur flutningsferju.
Þegar ferðamaður úr sveitunum
fyrir austann I.agarfljót koiti að
því og ætlaði vestur yfir, kallaði
hann; ‘kom! kom!” þar til hann sá
ferjumanninn koma.
Undan fossinum druknaði skáld-
ið síra Sigfús Árnason prófasts frá
Kyrkiubæ Þorsteinssonar. Hann
átti einn son eftir sig, Halldór að
nafni, þá barn að aldri er faðir hans
lést, Halldór var guðfræðis candi-
dat og kominn að ]>ví að vígjast til
prcsts ]>á drukknaði liann í Lagar-
fljóti á sömu stöðvum sem faðir
lians. JCona Hallilórs var Þórunn
Pálsdóttir syslumanns á Hallfreðar-
stöðum GuðmtindsfHmar frá Kross-
avík; þeirra son síra St.efáp á Dverg-
asteini og Hofteigi.
Á Kyrkjubæ var prestur á
fyrri hluta 17. aldar; síra ólafur
Einarson bróðir Odds biskups
í Skálholti,' en 'faðir síra Stefáns
í Vallanesi skáldsins. Síra ólafur
var líka skáld, orti Árgala-kvæði
svö kallað, í hverju hann lýsir ald-
arhætfinum á 17 öld. Árni prófast-
Uf Þorsteinsson, síra Björn Vigfús-
son, áður prcstur á Eiðuin og að-
'sfoðar prestur síra Stefán sonur síra
Björns, og síra Hjörleifur Guttorms-
son frá Hofi í Vopnafirði, og sfra
Jón Þorsteinsson frá lieykjalilð.
Það: mun hafa verið árið 1854 að
síra Magnús Bergsson flntti að j
Ivyrkjubæ frá Stöð í Stöðvarfirði,
og var prestur þar, ]iar til árið 1864
að hann flutti að Eydölum í Breið-
dai. Hann varmerkur presturgerði J
góðar predikanir og hafði á yngri
árum sínum verið söngmaður, en
(framliald á 7. síðu)
*Hér fylgi ég höfuðáttUnum, það
var vanalega í sveitinni ekki talað
um nema tvær áttir, og liær gagn-
stæðar hver annari, austur og norð-
ur. Kallað var úteftir sem horfði tii
norðurs mót sjó, norður til vesturs
inneftir og frameftir í land suður.
*Vanalega í ritum l>egar minst er á
Hafnar bræður báða í einu er Hjör-
leifur kaliaður hinn sterki, en þó
var Jón sterkari, en Hjörleifur örari
og meirl skapmaður.
J. E. Stendahl.
Nýtfzku klæðskeri. Gerir við
og pressar föt. Alfatnaðir.
kosta $18.00 og meira eftir
gæðum.
328 Logan Ave.
Winnipeg
Tilboð.
LOKUÐUM TILBOÐUM, merktum “For
Mounted Police Provisions and Light
Supplies, Province of Alberta and Sas-
katchewan” og áritubum til undirskrif-
aíSs, veríSur veitt móttaka þar til um
hádegi á fimtudag, 4. júní, 1914.
Prentuð eybiblöó, me? öllum upplýs-
ingum uf tegundir og gæöi vörunnar
fást á öllum aösetursstööum Mounted
Police í fylkjunum eöa á skrifstofu
undirritaös.
TilboÖum ekki veitt móttaka . nema
skrifuö sé á slík eyöiblöö.
Ekki nauösynlegt aö lægsta eöa
nokkru tilboöi sétekíS.
viöurkend bankaávísun fyrir 5 pró-
sent af upphwö þeirri sem tilboöiö
sýnir sem svo umsækjandi tapar ef
hann neitar aö standa viö tilboSiS sé
þess krafist eöa á annan hátt ekki
uppfyllir þær skyldur sem tilboöiö
bindur hann til. Ef tilboöinu er hafn-
aö veröur ávísunin send hlutaSeig-
anda.
Blöö sem flytja þessa auglýsngu
leyfislaust fá enga borgun fyrir.
LAURENCE FORTESCUE,
Comptroller
Ottawa, 28. apríl, 1914
Föstudaginn 8 þ.m. byrjar
LUCILLE LOVE
Verið vist að koma
Það borgar sig
Kaupið
Farfa
beint frá verksmiðjunni, fyrir
lægsta verð mót peninga borgun.
Komið og talið við
Shingle Stains & Specialties
LIMITCD -------y
Eftirmenn farfadeildar, C^arbon Oll Works Ltd.
Sími: Garry 940 66 King St., Winnipeg
J
WHITE & MANAHAN LTD.
188:? þrjátíu og; tveggja ára 1914
Búðin sem alla gerir ánægða
I-----------------—_ .- i
Karla klæðnaður, hattar og aðrar nauðsynjar selt með sann-
gjörnu verði. Vorir bláu og gráu ullarfatnaðir $18.00
eru þeir beztn eftir verði. Vér ábyrgjuqist að fötin fari vel.
NýtJsku klæðnaðnr ávalt til boða. Temjið yður að kaupa hjá
WHITE & MANAHAN, LTD., 500 Main Street
FURNITURE
on Easy Payments
OVERLAND
MAIN & ALEXANDER
SKRASETNING KJÓSENDA
í Gimli kjördæmi:
Hér meö gefst til kynna aö sam-
kvæmt kosningarlögum Manitoba, hef-
ir veriö ákvebiö aö auka viö og leiö-
rétta kjörskrá hinna ýmsu kjördæma
fylkisins. Límsóknun um aö komast
á kjörskrá, og aö fá nöfn strikuö af
kjörskránni og öörum leiöréttingum,
veröur veitt mótaka á þeim stööum og
tima sem fylgir:
Á mánudaginn, 11 maí, i húsi Albert
Thidrikson, section 28-18-4 east, from
kl. 10 f.h. til kl. 6 e.h.
Á þriöjudaginn, 12. maí, í húsi Frank
Szcrucki, section 13-18--3 east frá kl.
10 f.h. til kl. 5 e.h.
Á miövikudaginn, 13. maí,‘ á skrif-
stofu hjá B B. Olson, Gimli, frá kl. 10
f.h. til kl. 8 e.h.
Á fimtudaginn, 14. maí, í búö Mr.
Veinstock, Kruezburg, frá kl. 10 f.h. til
kl. 6 e. h.
Á föstudaginn, 15. maí, í búð N. Dol-
inuk, Silver Spur, frá kl. 10. f.h. til kl.
6. e.h.
Á mánudaginn, 18. maí, í búÖ R. Rod-
gers, Fisher 'River, frá kl. 12 á.li. til
kl. 4. e.h.
Á þriöjudáginn, 19. maí, á pósthús-
inu aö Vidir, frá kl. 2 til 8 e.h.
Á miövíkudaginn, 20. maí, i húsi Pete
Sagergwoski, section 20-23-2 east, frá
kl. 2 til 6 e.h.
a fimtudaginn. 21. maí, i húsi T. J.
Jónason, Icelandic River, frá kl. 1 til
6 e.h.
Á laugardaginn, 23. maí, í pósthúsinu
aö Hekla, frá kl. 1 til 6 e.h.
Á mánudaginn, 25. maí, í húsi Jóns
Baldwinsonar, Hnausa, frá kl. 2 til 6
e.h.
Á þriöjudaginn, 26. maí, í húsi J. S.
Nordals, section 23-22-2 east, frá kl, 12
á.h. til kl. 6 e.h.
Á miðvikudaginn, 27. maí, í húsi Max
Kozak, section 13-21-4 east, frá kl. 12
á.h. til kl. 6. e.h. ____
Á fimtudaginn, 28. maí, í húsi J.
Adam Haas, section 17-21-4 east, frá kl.
12 á.h. til kl. 6 e.h.
Hra. B. B. Olson, frá Gimli hefur
verið valin skrástjóri og verður aö hitta
á fyrnefndum stööum á þeim tíma sem
áður er sagt, frá kl. 12 á.h. til kl. 6 e.h.
og til kl. 7 e.h. til kl. 9.30 e.h., nema
ööruvísi sé tekiö fram hér að ofan, en
í löggiltum bæjum og þorpum verður
tíminn frá kl. 9 f.h. til kl. 1 e.h., kl.
2.30 e.h. til kl. 6. e.h. og ki. 7.30 e.h. til
kl. 9.30 e.h.
Aðeins þeir sem ekki standa skráðir
á nýjustu kjörskránni, enn sem hafa
fullan rétt að vera á kjörskrá, sam-
kvæmt kosningar lögum Manitoba,
þurfa aö koma á skrásetningar staðinn
eöa þangað sem kjörskráin verur
endurskoðaður, til pess að fá nöfn sín
þannig skráð. Kjosendur geta sókt
um skrásetningu á hverjum þeim staö
sem að ofan er nefndur.
Endurskoöun kjörskránna verður aö
Gimli, í bæjarráðhúsinu, mánudag, 8.
júní, og aö Árborg, í skólahúsinu, miö-
vikudag, 10. júní, 1914, byrjað kl. 11 f.
h. og stendur til kl. 6 e.h., umhádegi
verður hlé til borðhalds. Á þessum
stööum veröa íhugaöar allar beiönir
sem gjöröar hafa verið til skrásetn-
ingar stjóra, og aörar umsóknir . um
að komast á kjörskrá, sem þar kúnria
fram aö koma.
Dagsétt á skrlfstofu fylkisritarq,; 23,
dag apríl mánaöar, 1914.
JOSEPH BERMER,
Fylkisritari.
Xi STÚLKA «
« ------------- «
« sem vön er hússtörfum og «
« kann lítið eitt til matreiðslu, «
« óskast í vist. Verk létt og «
« fáir í heimili; gott kaup og «
« umsækjcndur beðnir að snúa «
« sér til undirritaíra «
« MRS. SCHIFLEY «
« 653 Beverley St., Winnipeg «
»««»«««»«::«««« ««««««
jeHARGRAVE^CÖLM
mmmm\ vvholi
WHOLCSAI.C &RETAIL
334 MAIN ST
WlNN I PEG
oo
'Q
f
SKRASETNING KJÓSENDA
í St George kjördæmi:
HérmeÖ gefst til kynna aö sam-
kvæmt kosningalögum Manitoba, hefur
veriö ákveðið að auka viö og leiðrétta
kjörskrá hinna ýmsu kjördæma fylkis-
ins. Umsóknum að komast á kjörskrá
eöa aö fá nöfn strikuö af kjörskránnl
og öörum leiðréttingum, verður veitt
móttaka á þeim stööum og tíma sem
fylgir:
William A. Lundy verður að hitta á
mánudaginn 11. maí, í húsi Joseph
Gordon, section 36-19-1 West.
Áþriöjudaginn, 12. maí, í húsi GestS
Sigurðssonar, section 22-19-2 West.
Á miðvikudaginn, 13. maí í húsi Pét-
urs Bjarnasonar, section 2-20-3 West.
Á fimtudaginn, 14. maí, 1 húsi Ben
Rafnkelsonar, Clarkiey’s Station.
Á föstudaginn, 15. maí, í I. O. G. T.
Hall, Lundar.
Á laugardaginn, 16. maí í húsi E, C.
Hawkins, section 28-21-6 West.
Á mánudaginn, 18. maí, 1 Deer Horn
skólanum.
Á þriðjudaginn. 19. maí, í húsi Dan-
iel Thorne, section 1-21-1 West.
Á miðvlkudaginn, 20. maí, í húsl
Daniel Tretiak, section 2-23-2 West.
Á fimtudaginn, 21. maí í húsi J. H.
O’Malley, section 1-25-3 West.
Áföstudagipn, 22. maí, í húsi Stephan
Wozniak, section 23-24-2 West.
Á laugardaginn, 23. maí, í húsi Ferd-
inand Dion, section 35-23-1 West.
Ámánudaginn, 25. maí, í húsi John
Ross, section 23-25-1 West.
Á þriðjudaginn, 26. maí, í húsl R. G.
Rogers, section 14-21-1 West. *
Frank'A. Pickersgill verður að hitta;
Á mánudaginn, 11. maí, í búð J.
Sharpe, Ericksdale.
Á þriöjudaginn, 12. maí, í Eastland
School, section 4-22-4 West
Á miðvikudaginn, 13: maí, í búð
Armstrong Trading Co., Mulvihill.
Áfimtudaginn, 14. maí, í húsi Charlea
Fawcett, section 36-22-7 West.
Á föstudaginn 15. maí, í húsi S. Steph-
enson, section 33-22-9 West.
Álaugardaginn, 16. maí, í húsi Paul
Kernested, section 12-24-10 West.
Á mánudaginn, 18. maí, í húsi W. D.
Tranter. section 16-23-7 West.
Á þriðjudaginn 19. maí, í skólanum
að Camper.
Á miövikudaginn, 20. maí, hjá Pick-
Á fimtudaginn, 21. maí, í Picnio
ersgill & Hyde, Ashern.
Ridge skólanum.
Á föstudaginn, 22. maí, á skrifstofti
Ben Eldin, Moose Horn.
Á laugardaginn, 23. maí, í húsi W.
Graham, Deerfield.
Á mánudaginn. 25. maí, í húsi J.
Wills, Steep Creek.
Á þriðjudaginn, 26. maí, í húsi D.
McDonald. Fairford.
Á miðvikudaginn. 28. maí, í húsi C.
Zettergreene, section 15-32-9 West.
William A. Lundy frá Minnewakan,
og Frank A. Pickersgill frá Ashern,
hafa verið valdir skrásetningar stjórar
og verða til viö tals á fyrnefndum
stöðum, á þeim tíma sem áður er sagt,
frá kl. 12 á.h. til kl. 6 e.h. og kl. 7 e.h.
til kl. 9.30 e.h., nema öðruvísi sé tekið
fram hér aö ofan. f löggiltum bæjum
og þorpum veröur tíminn frá kl. 9 f.h.
til kl. 1 é.h. og kl. 2.30 til kl. 6. e.h. og
kl. 7.30 til kl. 9.30 e.h.
Aðeins þeir sem ekki standa skráöir
á nýjustu kjörskránni, enn sem hafa
fullan rétt aö vera á kjörskrá, sam-
kvæmt kosningar lögum Manitoba,
þurfa aö koma á skrásetningar staðinn
eöa þangaö sem kjörskráning verður
endurskoöaöur, til þess aö fá nöfn sín
þannig skráð. Kjosendur geta sókt
um skrásetningu á hverjum þeim stað
sem að ofan er nefndur.
Endurskoöun kjörskránna verður aö
Ashern, í Pickersgill & Hyde Hall,
þriðjudag 23. júní, og aö Brood Valley
Post Office, föstudag, 26. júní, 914,
byrjar kl. 11 f.h. og stendur til kl. 6 e.
h. Um hádegið verður hlé til borð-
halds. Á þessum stöðum veröa íhug-
•aðar allar beiönir sem gjöröar hafa
veriö til skrásetningar stjóra og aðrar,
umsóknir uiri aö komast á kjörsk^á.
sem -þar kunna fram aö koma.
Dagsett á skrifstofu fylkisri.tara, 23.
dag apríl mánaðar, 1914.
JOSEPH BERMER,
Fylkisritari.
228 Sögusaln Heimskringlu
hefi framið svik gagnvart ykkur og þessari konu
hérna’, sagði Jón Treverton djarflega.
Hann ætlaði að halda áfram með sjálfsásökun
sína, þegair dyrnar opnuðust og Trimmer nefndi Eð-
varð Clare.
Ungi maðurinn gekk hvatlega inn í herbergið og
leit ilskulega í kringum sig. Honum brá við að sjá
Láru og Tom Saimpson þar. Hafði ekki búist við
öðrum en Jóni Treverton og föður sínum.
Treverton leit á þenna óboðna gest með ódulinni
gremju.
‘þetta eru ó.vac.nt vonbrigði’, sagði hann, ‘en þeg-
ar ég segi yður, að við erum hér að afgjöra áríð-
andi málefni fyrir okkur fjögur í einni heild, eruð þér
máske svo góður, að ganga inn í daglegu stofuna,
og skemta yður þar, þar til við höfum lokið samtali
okkar’.
‘Ég kom hingað til að tala við frú Treverton.
Eg hefi nokkuð arð segja henni, sem hún er skyldug
til að heyra og skal lieyra, og það án undandrátt-
ar. Eg hefi komist eftir lejmdarmáli, sem snertir
hana og hennar velferð, og ég er hér til að segja
henni frá því, heiini einni. Síðar getur hún breytt
samkvæmt því, og ég verð þá að haga mér sam-
kvæmt ákvörðun hennar’,-
‘Ef leyndarmál yðar snertir mig, snertir það
einnig manmnn minn’, sagði Lára, stóð upp og tók
sér stöðu við hlið manns síns. ‘Alt, sem snertir
mina gæfu, snertir einnig hans. Máske yðar ímynd-
aða leyndarmál sé ekkert leyndarmál?’
‘Við hvað eigið þér?’ spurði Eðvarð hissa.'
‘Eruð þér kominn til að segjai mér, að eiginmaö-
jir minn var eitt sinn þektur undir nafninu Chicot?’
’Já, það og margt annað’, svaraði Eðvairð, gram-
ur yfir því, að einhver haföi orðið á undan honum.
Jón og Uára 229
‘þér ætlið að segja mér, að hann sé grunaður um
morð ?’
‘Mikið grunaður og með svo sterkum líkum, að
alt yðar blinda traust þarf til að álíta hann sak-
lausan’, sagði Eðvarð háðslega.
‘Hann er ekki sekari um morð en ég’, sagði Lára,
‘hvaða líkur, sem á hann bendia’?
‘Og nú, hr. Clare, fyrst að þér sjáið að leyndar-
mál yöar er leyndarmál allra, og að kona mín þekkir
alt, sem þér getið saigt henni um mig —-------’.
‘Kona yðar’, sagði Eðvarð háðslega, ‘já, það er
eins gott að kalla hana því nafni’.
.^Hún er kona mín samkvæmt lögum lands og
kirkjö’.
‘þér áttuð aðra konu lifandi,. þegar hún giftist
yður, — nema þér hafið gifst aftur eftir dauða fyrri
konu yðar-------
‘Já, við vorum gift aftur’.
‘þá er fyrra hjónaband yðar með Láru ásetnings-
glæpur’, sagði Eðvarð. ‘Glæpurinn vaff tvikvæni,
sem lögin igeta hegnt yður fyrir, og sviksemi er það,
að látast uppfylla erfðaskrá frænda yðar, án þess
að geta það löglega’.
‘Hinkrið þér við, hr. Eðvarð Clare’, sagði Samp-
son, sem nú var farinn að skilja, hvernig í öllu lá.
‘þér ímyndið yður meira, en þér igetið sannað. þér
eruð of fljótfær. Hvaða sannanir hafið þér fyrir því,
að fyrsta hjónaband skjólstæðings míns haífi verið
löglegt ? Hvaða sannanir hafið þér fyrir því, alð
hann hafi nokkru sinni gifst ungfrú Chicot?.’
‘Hans eigin viðurkenmngu’.
‘Skjólstæðingnr minn viðurkennir ekkert’,- sagði
Sampson með áherzlu.
‘Hann viðurkennir alt, þegar hann segist Hafa
gifst nngfrú Malcolm eftir dauða Chicots.- Ef hann
230 Sögusaíjn Heimskringlu
hefði álitið fyrri giftingu sína gilda, var engin ástæða
fyrir hann að giftast aftur’.
‘Honum gat hafa skjátlað af of mikilli varkárni’,
sagði Sampson.
‘Jón Treverton’, sagði prestur, sem nú vár farinn
I að skiljal ásigkomulagið, — ‘þetta er voðalegt. —
Hvers vegna stendur sonur minn hér og ásakar yð-
ur ?, Hvað þýðir þetta ? ’
‘það þýðir það, að ég hefi gert mig sekan i rang-
indum’, svaraði Treverton rólegur, ‘og aið ég er
reiðubúinn, að hæta úr því eins vel og ég get. En
ég vil ekkj tala um þetta efni í nærveru sonar yðar.
Hann hefir ruðst hér inn í kveld, sem opinber óvin-
ur minn, ag ég neita því, að hann hafi heimild til,
i að skifta sér af mínum málefnum’.-
■‘Nei, það er satt, Eðvarö, það snertir þig ekki’.
‘Snertir það mig ekki?j Heldurðu að þessi herra
hefði opipberað smán sína fyrir konn sinni og ykkur,
ef það hefði ekki verið fyrir uppgötvun mína og
nærveru Georg Gerarðs í kirkjunni í dag? Hann
vissi þá, að læknirinn mundi þekkja sig og vita um
hina síðustu framkomu sína undir nafninu Chicot.
Annairs liefði hann haldið áfram að lifa til dómsdags
án nokkurs samvizkubits’.
Presturinn horfði hugsandi á son sinn. Gerði
hann þetta með tilliti til sannleika og réttlætis, eða
af hatri ? Presturinn var miskunnsamur gagnvart
öllum mönnum, nema lélegum matreiðslustúlkum, og
gat því ekki ætlað syni sínnm neitt ilt, og ekki held-
ur álitið, að Jón Treverton væri sekur um jafn
vondan glæp.
‘Ef þér viljið biðja son yðar að fara, getum við
gert tit um málefni okkar, án nokkurra sjónhverf-
inga eða ofsa, en 4 meðan hafliö er hér, verða varir
mínar lokaðarL
‘Mig lanigar ekki til að vera hér lengur’, svaraðT
Jón o g Lára 231
Eðvarð. ‘Eg vona, að frú Treverton viti, aið ég er
fús til að hjálpa henni, ef hún vill biðja um aðstoð
mína’.
‘:Éig veit, að þér eruð svarinn óvinur mannsins
míns’, svaraði Lára með ískaildri fyrirlitningu,
það er alt, sem ég veit og skeyti um að vita um
yður’.-
‘þetta voru hörð orð við gamlan vin, I.ára’,
sagði prestur,, þegar Eðvarð gekk út.
‘Hefir hann ekki komið fram, sem miskunnarlaus
óvinur mannsins míns?’ sagði Lára og lá við gráti^
‘Við skulum nú reyna að athuga málefnið’, sagði
Sampson, settist við borðið og tók upþ vasabókina
sína. ‘Samkvæmt viðurkenningu yðar, hr. Trever-
ton, áttuö þér aðra konu lifandi þann dag, sem þér
giftust ungfrú Malcolm. Hafi gifting yðar með
frönsku stúlkunni verið lögleg, þá er hin fyrri gifting
yðar með ungfrú Malcolm ólögleg. Hin siðari gift-
ing yðar oghennar verndar heiðtir konu yðar, en
' snertir ekki arfinn hið minsta, svo þér hafið engin
■ umráð yfir honum’.
‘Ég er fús til, að sleppa öllu tilkalli til arfsins.
I þegar ég gifti mig í fyrral skiftið, áleit ég það engin
; svik, — ég igerði það til þess, að Lára gæti fengið
allar eignirnar, eins og ég vissi, að frændi minn hafði
ætlast til, og þegar ég ánefndi herini þær með lögleg-
I nm samningi, hafði ég enga vissu fyrir, að geta' orð-
ið eiginmaður hennar. Eg legg drengskap minm við
| því, að ég gerðí þetta alt.hennar vegna, án þess að
í hugsa um mína eigin lnkku eða fremd’j
Uára hélt í hendi hans meðan hann talaði,- og
1 þrýsti hana, þegar hann hætti, svo hann vissi,- að
hún trúði sér.
‘Ef þér opinberið þetta atvik, þá gerið þér sjálf-
! am yður og konu yðar að hetlurum’, sagði Sampson.
‘iNei, við verðum ekki fátæk’, svaraði f.ára. 'Vext-